Morgunblaðið - 24.05.1989, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 24. MAÍ 1989
15
Fossvogsbraut
hlýtur að koma
eftir Jón Ármann
Héðinsson
Deilan um fyrirhugaða Foss-
vogsbraut er orðin að stórmáli,
eftir að bæjarstjórn Kópavogs tók
þá furðulegu ákvörðun að segja
samningnum um þessa umdeildu
vegalögn" einhliða upp. Þetta eru
vinnubrögð, sem ég lýsi algjörri
andstöðu við og geta ekki verið til
góðs fyrir Kópavogsbúa.
Það er flestum velkunnugt að
fjárhagstaða bæjarfélagsins er
mjög slæm og tilvalið tækifæri að
„gleyma“ umræðu um hana og æsa
upp til átaka og átthagarígs með
viðkvæmu máli. Þegar staða bæjar-
sjóða Kópavogs er orðin slík, að
starfsmenn verða oft að leggja fram
úr eigin vasa peninga, svo ekki
komi til vandræða við rekstur, þá
skyldi maður ætla að það stæði
öllum bæjarfulltrúum nær að taka
þessi mál föstum tökum og jafn-
framt leitast við að ná samkomu-
lagi í deilunni um hugsanlega Foss-
vogsbraut.
Bæjarstjórn hafði veitt íþróttafé-
Iögunum lóð á allt öðrum stað og
voru menn sáttir við það eða í Fífu-
hvammslandi (beint fyrir botni
Kópavogs). Skyndilega er þessu
breytt og boðið upp á nýja úthlut-
un. Svæði fýrir íþróttafélag Kópa-
vogs var fundinn staður í nánd við
Snælandsskólann. ÍK á rætur
sínar á þessu svæði og tóku þeir
boðinu, en voru áður að því er mér
virtist vel ánægðir með fyrri úthlut-
un og samstarf við Handknatt-
leiksfélag Kópavogs. ÍK og HK
ætluðu að starfa saman að um-
fangsmikilli uppbyggingu á Fífu-
hvammslandinu. Síðari úthlutun
bæjarstjórnar Kópavogs kemur í
veg fyrir það samstarf.
Lítum nú nánar á Fossvoginn
og dalinn þar inn af. Hvernig land
er þama? Langmestu leyti mýrlent
og mjög rakt, næstum blautt og
þverskorið af að minnsta kosti 8
þverskurðum til að vatn sigi sæmi-
lega fram í einum stórum skurði á
„landamærunum". Hvað þýðir
þetta? Jú, niður á fast er örugglega
víða 3/2—5 metrar. Gífurlegur
kostnaður er að ræsa landið fram
alla leið til sjávar. Haldi Kópavogs-
samþykktin, verður bæjarsjóður
að kosta þessa framkvæmd einhliða
og „tapa“ jafnvel í það hundruðum
milljóna að óþörfu. Ekki getur
nokkrum manni dottið í hug, að
Reylqavík komi til móts við
holræasagerð, sennilega nokkuð á
þriðja kílómetra, með Kópavogi eft-
Alþjóðlegur
minningardag-
ur um alnæmi
EFNT verður til minningarguðs-
þjónustu í Langholtskirkju, sunnu-
daginn 28. maí, um þá sem látist
hafa af völdum alnæmis. Guðs-
þjónustan hefst.kl. 11.00. Prestur
er séra Sigurður Haukur Guðjóns-
son en séra Jón Bjarman predikar.
Minningarathafnir um þá sem lát-
ist hafa af þessum sjúkdómi eru
orðnar að árlegum viðburði um allan
heim en auk þess að minnast látinna
er tilgangurinn sá að styðja smitaða
og sjúka, fjölskyldur þeirra og vini,
og að efla samstöðu þeirra sem láta
sig málefnið einhveiju varða. Þetta
er í fimmta sinn sem Alþjóðlegi minn-
ingardagurinn er haldinn og taka
íslendingar nú þátt í honum í fyrsta
sinn.
Minningarguðsþjónustan er haldin
að frumkvæði Samtaka áhugafólks
um alnæmisvandann og Samtakanna
’78 og vilja þau með henni gefa öllum
tækifæri til að opna hugann, syrgja
og sameinast í baráttunni við sjúk-
dóminn alnæmi.
(Fréttatilkynning)
ir þetta upphlaup. Á þetta er ekki
minnst í umræðunni hjá bæjarstjóra
Kópavogs, sem virðist ekki hafa
annað að gera en koma fram með
einhliða sjónarmið í málinu.
Ennfremur verðum við að muna
það, að engin leið er að gera not-
hæfan nútíma íþróttvöll, nema að
skipta alveg um jarðveg og dugar
þá lítt ein milljón, þótt góð sé, frá
bæjarsjóði Kópavogs. Einnig er
vonlaust að reisa íþróttahús nema
mikill gröftur komi til áðurog fram-
ræsla lands.
Landnýting í hvaða formi sem
er þarna þarf því verulegan undir-
búning og því fylgir mikill kostnað-
ur. Samstarf um landnýtingu er
forsenda fyrir því að vel takist
til milli aðilanna, Kópavogs og
Reykjavíkur.
Fyrst þegar ég heyrði um vænt-
anlega Fossvogsbraut taldi ég þetta
óþarfa og vart nokkra nauðsyn.
Nú hefi ég búið rétt um 10 ár Kópa-
Jón Ármann Iléðinsson
vogsmegin á Birkigrund 59 (í um
100 metra fjarlægð frá skógaijaðr-
inum).
Mér er nú löngu vel ljóst að
Fossvogsbrautin hlýtur að koma
vegna mistaka fyrir löngu í
skipulagsmálum Kópavogs.
Það mætti hafa um þetta langt
mál, en hér gefst ekki svigrúm til
þess. Að knýja mörg þúsund íbúa
neðan (dalsmegin) við Nýbýlaveg
til þess að aka inn á hann, er fjar-
„Það yrði báðum aðil-
um til sóma að ná sátt-
um í málinu og tryggja
bestu hugsanlegu nýt-
ingu svæðisins sem úti-
vistarsvæðis ogeinnig
sem óhjákvæmilega
samgöngubót fyrir allt
Stór-Reykjavíkursvæð-
ið.
stæða fyrir alla framtíð. Það sýndi
sig best í vetur og hafði reyndar
gert það fýrir fjórum og fímm árum
áður í snjóalögum.
Er þá einhver lausn í málinu til?
Já, ég vil halda því fram og hún
sérdeilis jákvæð fyrir Kópavog og
sparar Kópavogsbúum hundruð
milljóna króna í framtíðinni. Þessi
lausn er að ganga til samstarfs
um lögn brautarinnar og hafa
þar á sín eðlilegu áhrif og einnig
að fylla upp sjávarmegin við
Fossvogsnesti verulega út í sjó-
inn, til dæmis 300—400 metra,
og hafa þar einskonar „miðstöð“
eða hringakstur til Reykjavíkur
og í vesturbæ Kópavogs. Þetta
jafiiaði verulega álag á Nýbýla-
veginn að Dalbrekku og innakst-
ur á Kringlumýrabraut til
Reyþjavíkur. Það verður að
grafa Fossvogsbrautina niður að
langmestu leyti og síðan þekja
yfir hana og þá sér enginn annað
en að svæðið sé ein heild eins
og menn vilja að það verði til
útivistar um alla framtíð.
Áætlun um þetta verk þarf -að
setja í gang sem fyrst og t.d. miða
við að allt verði búið um aldamót.
Það yrði báðum aðilum til sóma að
ná sáttum í málinu og tryggja bestu
hugsanlegu nýtingu svæðisins sem
útvistarsvæðis og einnig sem óhjá-
kvæmilega samgöngubót fyrir allt
Stór-Reykjavíkursvæðið.
Við skattgreiðendur Kópavogs-
bæjar vil ég segja þetta: Við getum
ekki sætt okkur við þvermóðsku og
hroka á báða bóga, sem kemur til
með að kosta okkur ótaldar hundr-
uðir milljóna í framtíðinni. Þetta
bið ég fólk að íhuga rólega og æs-
ingalaust. Eða endar málið þannig
vegna frumhlaups bæjarstjómar
Kópavogs, að menn skrifí eitt orð
í dagbókina, þegar hún hrökklast
frá: landhreinsun?
Höfundur er fyrrvenmdi alþingis-
maður.
Þetta er Anton.
Hann er tveggja og
hálfs árs. Föt hans
eru mikilvæg. Ekki aðeins
fyrir myndatökuna, heldur
alltaf.
Til þess að hann geti ærsl-
ast og leikið sér, verða fötin
að vera þægileg.
Ef hann dettur og fær
gtasgrænu á hnéð, verða
buxurnar að þola þvott og
það oftar en einu sinni.
Og verði honum heitt,
verður skyrtan að geta „and-
að” og má ekki loða við húð-
ina.
Föt Antons eru öll úr
hreinni (100%) bómull sem
þola daglega meðferð í
þvottavélinni.
Skyrtan er með litlum
kraga og stuttum ermum.
Axlaböndin á köflóttu bux-
unum eru stillanleg og mjúka
peysan er með mynd af bíl
að framan og rúnnuðu háls-
máli.
Öll fötin eru saumuð með
Polarn Sc Pyret vandvirkni.
Saumarnir hvorki hlaupa
né vindast. Teyjan hvorki
snýst né ofteygist. Allir
hnappar vel festir og rennilás
sem endist.
Þannig getur Anton
áhyggjulaus leitt mömmu,
farið heim og haldið áfram
að leika sér í Polarn & Pyret
fötunum sínum.
Polarn&Pyret
KRINGLUNNI 8-12, SÍMI 681822, OPIÐ MÁNUD.-FÖSTUD. KL. 10:00-19:00, OG LAUGARD. KL. 10:00-16:00