Morgunblaðið - 24.05.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989
17
Er Veröld ekki
komin til að fara?
„Viðskiptavinir ferða-
skrifstofanna hljóta að
velta fyrir sér trausti
og afli þeirra sem þeir
velja að skipta við. Ekki
hvað síst á þetta við á
óvissutímum eins og
þeim sem nú ríkja á
ferðamarkaðinum, þar
sem ekki verður spurt
að upphlaupum heldur
leikslokum."
eftir Önnu Guðnýju
Aradóttur
Ummæli sem ég lét falla á dög-
unum um að ferðaskrifstofur á
íslandi væru allt of margar og
þeim ætti eftir að fækka hafa
valdið miklum taugatitringi hjá
sumum forsvarsmönnum ferða-
skrifstofanna.
Þetta mátti meðal annars sjá á
varnarræðu Andra Ingólfssonar
hjá Ferðamiðstöðinní Veröld sem
birtist í Morgunblaðinu 12. maí.
Titringur hjá þeim veiku
Mér virðist sem titrings gæti
helst hjá þeim sem eru veikastir
fyrir og hafa mesta ástæðu til að
ætla að ekki sé bjart framundan.
Hinir hafa ekki gert sér reílu út
af spá minni um fækkun ferðaskrif-
stofa.
í mínum huga er enginn vafi á
því að sú mynd sem ég dró upp er
byggð á skynsamlegum rökum hvað
sem keppinautarnir segja, enda
skulum við spyrja að leikslokum.
Það styður kenningu mína að síðan
ég lét umrædd orð falla hefur það
gerst að Ferðaskrifstofan Saga hef-
ur hætt við allt leiguflug sitt til
Spánar og Pólaris hefur einnig sagt
upp leiguflug sínu til Spánar og
verður ekki með neitt leiguflug í
sumar frekar en Saga. Pólaris mun
hins vegar kaupa sæti í leiguflugi
Samvinnuferða.
Valt er veraldar gengi
Svo segir fornt íslenskt spak-
mæli og í Morgunblaðsgrein sinni
segir Andri Ingólfsson m.a.: „Fyrir-
tæki verða að afla meira en þau
eyða til að geta haldið lífi“. Þetta
er svo sannarlega rétt. Spurningin
er einmitt hvort Veröld takist að
afla meira en hún eyðir, en góður
þarf sá afli að verða, annars óttast
ég að Veröld sé frekar komin til
að fara en vera og þá gæti hún
farið veg allrar veraldar.
Fagleg úttekt
En það þjónar eflaust litlum til-
gangi að við Andri séum að skrif-
ast á í blöðum út af þessu máli því
við erum auðvitað hvorugt hlut-
Anna Guðný Aradóttir
laust. Lítum frekar á faglega úttekt
hlutlauss blaðamanns hjá DV sem
birtist um ferðaskrifstofumar þann
9. maí. Þar sagði Jón G. Hauksson,
blaðamaður og viðskiptafræðingur
m.a. í fréttaljósi: „Flestir em á
þeirri skoðun að Anna Guðný hafi
ekki hitt naglann á höfuðið hvað
þetta ár snertir. Hins vegar gæti
spá hennar í stómm dráttum orðið
að vemleika á næsta ári eða því
þamæsta“. Blaðamaðurinn segir að
spá mín um uppstokkun verði ekki
að vemleika fyrr en á næsta eða
þarnæsta ári en segir samt að hún
muni rætast. Einungis spurning um
tíma.
Hveijir eru traustir?
í áhættusömum rekstri eins og
ferðaskrifstofurekstri skiptir fjár-
hagsleg staða og fjárhagslegur bak-
gmnnur viðkomandi fyrirtækja
miklu máli. Þar er um að ræða ör-
yggisatriði fyrir viðskiptavini ferða-
skrifstofanna, sjálfa farþegana.
Lítum á hvað segir í hinni fag-
legu úttekt blaðamannsins um
þetta: „En hvað gerist þá eftir þetta
ár? Verður þetta ár hinna löngu
hnífa og hvaða ferðaskrifstofur lifa
þá hina löngu hnífa af? í því sam-
bandi benda ferðaskrifstofumenn á
þá bakhjarla sem ferðaskrifstofu-
urnar hafa. Samvinnuferðir hafa
launþegahreyfinguna á bak við sig.
Úrval hefur Eimskip og Flugleiði
og Útsýn hefur Þýzk-íslenzka. Ljóst
er að þessar ferðaskrifstofur hafa
sterkustu bakhjarlana og því hljóta
þær allar að þola erfitt ferðaár að
þessu sinni“.
Er ávöxtunarfyrirtæki
bakhjarl Veraldar?
En þá má spyija: Hverjir em
bakhjarlar Ferðamiðstöðvarinnar
Veraldar? Að því er best er vitað
em eigendur hennar tveir ungir
menn, og einnig ávöxtunarfyrir-
tækið Hagskipti. Kannski finnst
viðskiptavinum Hagskipta nauð-
synlegt að fá vitneskju um hvort
fé þeirra sé „ávaxtað" í áhættusöm-
um ferðaskrifstofurekstri Veraldar.
Viðskiptavinir ferðaskrifstofanna
hljóta að velta fyrir sér trausti og
afli þeirra sem þeir velja að skipta
við. Ekki hvað síst á þetta við á
óvissutímum eins og þeim sem nú
ríkja á ferðamarkaðnum, þar sem
ekki verður spurt að upphlaupum
heldur leikslokum.
Höfiindur er framkvæmdastjóri
Útsýnarh/f.
FYRSTA FLOKKS
BANKAÁBYRGÐIR
Áhættufé - Fasteignaviðskipti
- Fjórmögnun viðskipta -
Bankaábyrgðir og aðstoð við
ábyrgðir vegna hvers kyns
framkvæmdaáætlana.
Engin umboðslaun fyrr en fé
erfengið.
Miðlarar eru verndaðir.
UMBOÐSMANN
þarf til að skapa tengsl fyrir
okkur til að framkvæma fjár-
mögnun.
Vinsamlegast skrifið til okkar
áensku.
VENTURE CAPITAL
CONSULTANTS
Investment Bankers
16311 Ventura Blvd., Suite
999, Encino, California
91436, U.S.A.
Telex: 651 355 Vencap LSA .
Fax nr.: (818) 905-1698
Sími: (818)789-0422
SJONVARPH) MEÐ FORYSTU
- enda miðill allra landsmanna.
Sjónvarpsnotkun um landið allt, fimmtudaginn 18. maí.
Athyglisverðar upplýsingar fyrir auglýsendur!
19-19:30
19:30-20:00
Dagana 17.-18. niaí kannaði SKÁÍS
sjónvarpsnotkun um landið allt. Mæld
voru sex 30 mínútna tímabil hvorn
dag. Eins og þetta dæmi ber með sér
nýtur Sjónvarpið yfirburðavinsælda.
SJONVARPIÐ
ekkert rugl.
20-20:30
20:30-21:00
21-21:30
21:30-22:00