Morgunblaðið - 24.05.1989, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.05.1989, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989 Slökkviliðið: Tvö útköll SLÖKKVILIÐ Akureyrar var kallað út í fyrsta sinubrunann í gærdag, en er útkallið barst voru slökkviliðsmenn að ganga í hús eftir útkall. Um kl. 13.20 var slökkviliðið kallað að húsi í Vanabyggð, en þar hafði panna gleymst á eldavél og var hún orðin vel volg er slökkvilið bar að garði. Nokkrar skemmdir urðu á íbúðinni af völd- um reyks. Er slökkviliðsmenn höfðu geng- ið frá málum í Vanabyggðinni kl. 13.35 barst tilkynning um fyrsta sinubruna vorsins sem var rétt norðan við útivistarsvæðið í Kjamaskógi. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Opið hús í tilefhi af- mælisins í TILEFNI af 60 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins 25. maí verða Sjálfstæðismenn á Akur- eyri með opið hús í félags- heimili sínu á Kaupangi við Mýrarveg á afmælisdaginn. Húsið opnar kl. 20.00 og boðið verður upp á kaffi og ljúffengt meðlæti. Sjálfstæðismenn vonast til að sem flestir mæti og haldi upp á daginn, spjalli saman og njóti veitinganna. Aðalhátíð Sjálfstæðismanna í tilefni af þessum tímamótum verð- ur haldin í sumar á vegum kjördæ- misráðs og verður hátíðin haldin í Ólafsfirði. í tengslum við hana er ætlunin að planta út heilmiklu af tijám, en sem kunnugt er urðu Ólafsfirðingar illa úti vegna skriðufalla síðastliðið haust. Þau létu sitt ekki eftir liggja, þessir hressu sjöttubekkingar úr Barnaskóla Akureyrar. Morgunblaðið/Rúnar Þór Söfnuðu rusli í sólarhring GALVASKIR nemendur 6. bekkjar Barnaskóla Akureyrar tóku svo sannarlega til hendinni á mánudag, en þá hófu þau að safha rusli og voru að i einn sólarhring samfleytt við ruslatínslu í bæn- um. Jafhframt söfnuðu krakkarnir áheitum, en þau leggja af stað í skólaferðalag suður á bóginn næsta sunnudag. Það voru alls þijár bekkjar- með sameiginlegu átaki á skóla- deildir, eða 53 krakkar sem þátt lóðinni. Benedikt Sigurðarson tóku í ruslatínslunni. Verkinu lauk skólastjóri Bamaskólans sagði samráð hefði verð haft við bæjar- verksjóra sem m.a. lagði til poka undir ruslið. Hann sagði mikið msl í bæjarlandinu nú, meira en oft áður og því hefði hreinsunará- takið verið þarft. Benedikt sagði að krökkunum hefði verið vel tek- ið á flestum þeim stöðum sem þeir leituðu til. „Ég vona að krökkunum takist ætlunarverk sitt þannig að eftir þeim verði tekið. Ég sagði við þau, að ef þau vildu vekja á sér athygli þá þætti mér vænt um að það yrði fyrir prúðmannlega framkomu," sagði Benedikt. Frystihúsin á Dalvík og Hrísey: Mikil vinna við grálúðuna MJÖG mikið er nú að gera í frystihúsunum á Dalvík og í Hrísey og hefur sú törn sem nú er yfirstandandi verið nokkuð löng. Hríseyingar og Dalvíkingar hafa einhver haft skipti á fiski, þann- ig að eyjarskeggjar taka við grálúðu frá Dalvíkingum, en þeir fá aftur þorsk úr eynni í staðinn. Starfsári Tónlistarskólans á Akureyri lokið: Síðasta vetur stunduðu 579 nemendur nám við skólann TÓNLISTARSKÓLA Akureyrar var slitið í Akureyrarkirkju fyrir skömmu. Síðasta vetur stunduðu 579 nemendur nám við skólann og kennarar voru 33 auk örlítillar stundakennslu. Flestir nemend- anna voru í blásaradeild, 156, 111 í forskóladeild, 109 í píanódeild og 105 í strengjadeild. í gítardeild voru 50 nemendur síðasta vet- ur og 36 í söngdeild, orgel 7 og harmonikka 5. Fjölmargir tónleikar voru haldnir á vegum Tónlistarskólans veturinn 1988-89, þar af 23 laug- ardagstónleikar, og einnig voru haldnir tónleikar á vegum deild- anna. Þá voru haldnir þrennir tón- leikar fyrir minningarsjóð Þor- gerðar S. Eiríksdóttur og á kynn- ingardegi skólans þann 8. apríl síðastliðinn voru haldnir 16 stuttir tónleikar. Kammerhljómsveit Ak- ureyrar hélt þrenna tónleika, nám- skeið voru haldin og nemendur skólans fóru í nokkur tónleika- ferðalög auk þess sem skólinn fékk góða gesti í heimsókn. AIls tóku 177 stigspróf i- söng eða hljóðfæraleik, 163 stigspróf í tónfræði, 26 í hljómfræði og 43 í tónheym. Forskólaprófi luku 90 nemendur og prófi í tónlistarsögu 9. Þá stunduðu 7 nemendur nám á tónlistarbraut Menntaskólans á Akureyri síðasta vetur. Þremur nemendum var úthlutað styrkjum úr Minningarsjóði Þor- gerðar S. Eiríksdóttur, en sjóður- inn hefur það markmið að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistar- skólanum á Akureyri til fram- haldsnáms. Hjónin Hólmgeir Sturla Þorsteinsson og Sigrún Jónsdóttir hlutu styrk úr sjóðnum og einnig Svanhvít Friðriksdóttir. í máli Jóns Hlöðvers Áskelsson- ar skólastjóra kom fram að mikil- vægt væri að kenna allar náms- greinar í sama húsnæðinu, en á síðasta vetri starfaði söngdeildin í Lóni, húsi Karlakórsins Geysis. Eigið húsnæði skólans er um 740 fermetrar. Áformað er að taka upp samstarf við Glerárskóla þar sem boðið yrði upp á byijunarkennslu forskóla og á hljóðfæri næsta haust og yrði þar um viðbót við starfsemi skólans að ræða. Jón Hlöðver sagði við skólaslitin að eftirminnilegasta verkefni vetr- arins hefði verið fjölskylduhátíð og kynningardagur Tónlistarskól- ans. „Þrátt fyrir álagið við undir- búning og framkvæmd þá tókst okkur að koma þeim boðskap áleiðis til okkar og almenning hvaða hlutverki skólinn og sú fjöl- breytta tónlistariðja gegni í bæn- um og umfram allt þeirri gleði sem varð erfiðinu yfirsterkari.“ Jóhann Þór Halldórsson, fram- kvæmdastjóri ÚKE, í Hrísey sagði að í síðustu viku hefði verið tekið á móti 212 tonnum af fiski. Súlna- fellið var væntanlegt að landi í nótt, en Jóhann sagði að ekki yrði byijað að landa úr því fyrr en á morgun, fimmtudag, þar sem nægur fiskur væri fyrir. Súlnafel- lið er með rösklega fullfermi, 85 tonn. Jóhann Þór sagði að nú vantaði fólk til fiskvinnslu, þar sem skóla- krakkar sem nýttu verkfall kenn- ara til vinnu í frystihúsinu væri nú horfið inn í skólana, en hins vegar væri von á þeim aftur fljót- lega. Auk frystihúss Kaupfélags Eyfirðinga er einnig unnið við fiskvinnslu hjá fyrirtækjunum Rif og Borg. „Það gengur enginn um hér með hendur í vösum,“ sagði Jóhann Þór. í frystihúsinu á Dalvík byijar vinnudagurinn kl. 4 að morgni, en flökunin hefst kl. 7. Einkum hefur verið unnið við grálúðu und- anfarið, að sögn Gunnars Aðab björnssonar frystihússtjóra. í síðustu viku komu togaramir^ Björgvin og Björgúlfur með sam- tals um 420 tonn, mest grálúðu. í dag er Björgúlfur væntanlegur inn til löndunar með síðasta grá- lúðufarminn og er hann með að minnsta kosti 150 tonn. Frá því grálúðutörnin hófst seinnipartinn í apríl hefur verið unnið um hveija helgi í frystihúsinu á Dalvík, nema hvað hvítasunnuhelgin féll úr. Gunnar sagði húsið vel sett hvað starfsfólk varðaði, húsið hefði verið svo til fullmannað síðustu vikur. Hvað sumarstarf skólafólks snertir sagði hann að þeir framhaldsskólanemar sem unnið hefðu áður í húsinu fengju vinnu, en nú í sumar yrði í fyrsta sinn í langan tíma ekki ráðið fólk undir 16 ára aldri. Kynnisferð um jarðgöng JARÐGANGAGERÐ í Ólafsfjarðarmúla gengur vel og að sögn Björns Harðarsonar staðarverkfræðings er hún nokkuð á undan áætlun, eða sem nemur um tveimur vikum. Á sunnudaginn kemur, þann 28. maí, gefst heimamönnum sem og öðrum kostur á að skoða göngin, en þau eru nú orðin 1.435 metrar að lengd. Göngin verða til sýnis frá kl. 13.00-18.00. Farið verður með lítilli rútu, sem tekur um 20 manns, frá vinnubúðunum í útj- aðri Ólafsfjarðar og ekið inn göng- in og verður leiðsögumaður með í för. Ef vel tekst til og áhugi manna á gangagerðinni reynist mikill er fyrirhugað að efna til annarrar sýningar seinna í sumar. Sjálfstæðisflokk- urinn 60 ára:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.