Morgunblaðið - 24.05.1989, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989
33
Hulda Hermanns
son - Minning
Fædd9. ág-úst 1903
Dáin 14. maí 1989
Sunnudaginn 14. maí sl. andaðist
Hulda föðursystir mín á hjúkrunar-
heimili í borginni Victoria í Kanada.
Hulda fæddist á Seyðisfirði og
var elsta barn Hermanns Þorsteins-
sonar, kaupmanns þar í bæ, og fyrri
konu hans Jóhönnu Stefánsdóttur.
Þau hjón voru bæði ættuð frá Mjóa-
firði eystra.
Hulda lauk prófi frá Kvennaskól-
anum í Reykjavík og var síðan einn
vetur í Verslunarskóla íslands. Eft-
ir það vann hún við fyrirtæki föður
síns á Seyðisfirði.
Árið 1924, er hún var 21 árs
gömul, fór hún til Winnipeg í
Kanada til frænkna sinna, Maríu
og Dórotheu, er þar bjuggu. Að
lokinni nokkurri dvöl hjá þeim, fór
Hulda síðan til Montreal og hóf
hjúkrunarnám við McGill-háskól-
ann þar í borg. Að námi loknu starf-
aði hún lengi við Royal Victoria-
sjúkrahúsið í Montreal. Á styijald-
arárunum síðari gekk hún í
kanadíska herinn og starfaði þar
sem hjúkrunarfræðingur í nokkur
ár. Að þjónustu í hernum iokinni
sneri Hulda sér að einkahjúkrun
(private nursing) og starfaði við það
uns hún komst á eftirlaunaaldur.
Huldu féll vet að starfa við þessa
tegund hjúkrunar, þar sem það gaf
henni jafnframt tækifæri til að ferð-
ast víðs vegar um Kanada og
Bandaríkin.
Þegar Hulda flutti til Kanada
árið 1924 mun það ekki hafa verið
ætlun hennar að setjast þar að fyr-
ir fullt og allt, þótt sú yrði raunin.
Hulda ferðaðist víða um ævina,
m.a. um Evrópu, en þó fór svo að
hún heimsótti ættland sitt einungis
í eitt skipti. Það var árið 1939, um
það leyti sem heimsstyijöldin siðari
var að skella á. í þessari sömu ferð
heimsótti hún systur sína, Rögnu,
sem búsett er í Danmörku.
Hulda giftist ekki og eignaðist
ekki afkomendur. En hún var
frændrækin og hélt eftir bestu getu
bréfasambandi við ættfólk sitt hér
heima.
Við Hulda frænka mín skrifuð-
umst á í áratugi. Hún átti eflaust
dijúgan þátt í því, með hvetjandi
og bjartsýnum viðhorfum, að ég hóf
nám í hjúkrun á sínum tíma. Hulda
var sjálf heilluð af starfi sínu og
var mér með fordæmi sínu fyrir-
mynd, sem ljómi stafaði af, þótt
langur vegur skildi okkur að. Ég
átti þess raunar kost að heimsækja
Huldu í nokkur skipti. Hulda átti
fagurt og myndarlegt heimili þar
sem hún bjó í Montreal og sjálf var
hún glæsileg kona, hlý í viðmóti
og mjög staðföst.
Síðast sá ég Huldu frænku í júní
á síðasta ári. Þá var hún komin á
hjúkrunarheimilið í Victoria, en hún
heillaðist af þeirri fögru borg er hún
dvaldi þar á stríðsárunum og mun
snemma hafa ákveðið að eyða þar
síðustu ævidögunum. Heilsu hennar
var mjög farið að hraka þegar ég
sá hana síðast og þykir mér nú
mjög vænt um að hafa náð að hitta
hana og eyða með henni nokkrum
dagstundum áður en það varð um
seinan.
Nú, er leiðir hafa skilið um sinn,
er mér efst í huga þakklæti til
Huldu frænku minnar fyrir hlýhug
og traust sem hún hefur ávallt sýnt
mér gegnum tíðina.
Með lífi sínu og starfi í fjarlægu
landi var Hulda ættjörð sinni til
sóma og öðrum mönnum góð fyrir-
mynd.
Blessuð sé minning Huldu Her-
mannsdóttur.
Jóhanna Stefánsdóttir
Islenskur meistari í
bæklunarskósmíðum
í SÍÐASTA mánuði fóru fram í
Danmörku, á vegum sambands
danskra bæklunarskósmiða, próf
til meistaragráðu í bæklunar-
skósmíði. Meðal þeirra sex nema
sem að þessu sinni þreyttu prófin
var einn íslendingur, Kolbeinn
Gíslason. Náði Kolbeinn mjög
góðum árangri og hlaut bestu
umsögn prófdómara af þeim sem
gengust undir prófið. Er Kol-
beinn fyrsti íslendingurinn sem
lýkur meistaraprófi í bæklunar-
skósmíði.
Kolbeinn er fæddur í Reykjavík
er Ingibjörg Sigtryggsdóttir. Kol-
beinn byijaði að starfa við skósmíð-
ar hjá Ferdinand Róbert Eiríkssyni
1979 og lauk sveinsprófi tveimur
árum síðar.
Frá árinu 1981 hefur hann rekið
fyrirtækið Gísli Ferdinandsson hf.
í Lækjargötu ásamt föður sínum.
Undanfarin ár hefur Kolbeinn
unnið við bæklunarskósmíði undir
handleiðslu þýskra meistara sem
starfað hafa hjá fyrirtækinu. Á
liðnu liausti fór Kolbeinn til Dan-
merkur til að ljúka námi sínu þar
sem ekki eru tök á því hér á landi.
Kolbeinn Gíslason, fyrsti íslend-
ingurinn sem lýkur meistara-
prófi í bæklunarskósmiði.
16. desember 1955. Hann er sonur
hjónanna Gísla Ferdinandssonar
skósmíðameistara, og Sólrúnar Þor-
bjömsdóttur húsmóður. Kona hans
Kransar, lcrossar
w ogkisíuskreytingar. (P
* Sendum um allt land. ‘
GLÆSIBLOMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álíhcimum 74. sími 84200
/ nfiiivifiiuiu jiiiii un
Systir okkar, t HULDA HERMANNSDÓTTIR
hjúkrunarfrœðlngur,
lést í Victoria í Kanada 14. maí.
Rósa Hermannsdóttlr, Unnur Hermannsdóttlr, Ragna Stahl, Þorstelnn Hermannsson.
t
Faöir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR JÓNAS HELGASON,
Selvogsgrunnl 6,
andaðist í Hafnarbúðum 23. maí.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Litlu risarnir, þvottavél og þurrkari,
fýrir fjölbýlishús og vinnustaði
Máele
/ , ,**'**' *
SUNDABORG 1 S. 688588-688589
ÞÆGILEG
ÞJÓNUSTA HJÁ
RAFMAGNYEITU
REYKJAVÍKUR
Nú getur þú greitt rafmagnsreikninginn þinn með
sjálfvirkri og fyrirhafnarlausri millifærslu af
VISA eða EUROCARD reikningnum þínum.
Hafðu samband við Guðrúnu Björgvinsdóttur
eða Katrínu Sigurjónsdóttur í síma 68 62 22
og gefðu þeim upp númerið á kreditkortinu
þínu og málið er afgreitt, í eitt skipti fyrir öll.
LÁTTU
RAFMAGNSREIKNINGINN
HAFA FORGANG
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SlMI 68 62 22
Málningarverksmiðia
—Slippfélagsins----
Dugguvogi4 • 104 Reykjavík
Við fhfijm sfyif&tofir okfar aðDugguvogi 4 ogfám
NÝTT-5ÍM ANÚ M E R