Morgunblaðið - 24.05.1989, Qupperneq 35
1
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989
-------------------------V ... . ,
35
lagar í nokkur ár. Á þessum árum
áttum við mjög skemmtilegar sam-
verustundir hvort sem var við vinnu,
á stigahúsfundum eða á skemmti-
kvöldum. Gylfi setti fljótt sterkan
svip á allar framkvæmdir hvort sem
var í starfi eða leik með gleðinni
sem spratt fram fölskvalaus og
hress. Því voru samfundir okkar
samfelldar ánægjustundir. Líf hans
hér á jörð hefur lýst upp veginn til
leiðsagnar öðrum og alltaf var hann
boðinn og búinn þegar einhver
þurfti á aðstoð að halda í stóru sem
smáu. Sú harmafregn sem okkur
barst fyrir fáum dögum, um skyndi-
leg veikindi og andlát Gylfa, var
okkur því gífurlegt áfall og viljum
við með þessum fátæklegu orðum
kveðja góðan vin. Helga mín, við
vottum þér, bömum ykkar og fjöl-
skyldunni allri okkar dýpstu samúð
og biðjum góðan Guð að styrkja
ykkur öll.
Margrét, Friðrik, Þuriður,
Sölvi, Brynja, Páll, Erna,
Geir, Ann, Guðjón, Linda.
I dag kveð ég hinstu kveðju
kæran vin og félaga, Gylfa Þorberg
Gunnarsson.
Þegar ungur maður, hraustur og
lífsglaður, er hrifinn burt úr þessum
heimi frá ungum bömum, eiginkonu
og ástvinum svo fyrirvaralaust leið-
ir maður hugann að tilgangi lífsins
hvers vegna emm við látin þola
slíka sorg og finna til slíks van-
máttar gagnvart almættinu. Kynni
okkar Gylfa hófust þegar ég flutti
9 ára gamall í Smáíbúðahverfið,
vinalaus og óframfærinn í nýjum
skóla kom Gylfi til hjálpar. Gylfi
var þeim eiginleikum búinn að eiga
auðvelt með að stofna til og við-
halda kunningsskap og vináttu.
Hann var einlægur og traustur vin-
ur sem hægt var að deila með gleði
og sorgum, fús að hjálpa og sætta
hvenær sem var og hvernig sem á
stóð.
Þegar leiðir skilja nú er vináttan
búin að standa órofin í 27 ár og
aldrei borið skugga á þó samskiptin
hafi verið náin síðustu 11 árin í
stundum erfiðum fyrirtækjarekstri.
Sagt er að tíminn lækni öll sár, en
það sár sem skyndilegt og ótíma-
bært fráfall Gylfa veldur í huga
vina og vandamanna verður lengi
að gróa.
Um leið og ég kveð minn besta
vin sendi ég mínar einlægustu sam-
úðarkveðjur til Helgu, barnanna,
foreldra, tengdaforeldra, bræðra og
annarra vandamanna.
Ragnar Bragason
Léttleiki og um leið lífskraftur
eru þau einkenni, sem fyrst koma
í hugann í minningunni um Gylfa
Þ. Gunnarsson, svo rík var skap-
höfn hans af slíku fasi. í dag kveðj-
um við Gylfa hinstu kveðju, svo
löngu fyrr en nokkur gat fyrir séð,
aðeins 36 ára gamlan.
Minningin um Gylfa, sem nær
þó aðeins yfir rúmlega áratugar
vinskap okkar, er full af björtum
og afskaplega ánægjulegum svip-
myndum liðinna ára. Það segir sig
sjálft að Gylfi var þar oftast veit-
andinn með alla sína kímni og orku.
Ein slík er ferð okkar hjónanna
tveggja í Flatey á Breiðafirði, þar
sem svefnstaður var valinn undir
kirkjuveggnum og hvílan gerð úr
nýslegnu heyi bóndans, undir
rökkvaðri himinhvelfingu sumar-
næturinnar. Önnur tengist dvöl í
Kerlingafjöllum. Þar kom reynsla
Gylfa og þekking af ijallaferðum
sér mjög vel, m.a. við matargerð
og hveraböðun. Já, þessar og fjöldi
annarra minninga koma fyrir hug-
skotssjónir, þegar litið er til baka.
Svo skyndilegt fráfall góðs vinar
í blóma lífsins er afar sárt. Söknuð-
ur og tregi fyllir hugann samhliða
djúpri hluttekningu í sorg hans
nákomnu, einkum Helgu og barn-
anna, sem voru og eru óaðskiljanleg
í minningunni um Gylfa. Megi
styrkur þess innra og blessun hins
æðsta leiða ykkur nú sem og endra-
nær.
Sólveig og Árni
Ég kynntist Gylfa fyrst í nóvem-
ber 1972. Það fór strax mjög vel á
með okkur. Ég var þá að takast á
við mitt fyrsta alvöru stjórnunar-
starf eftir að námi lauk, en það var
að sjá um hin ýmsu einkasamkvæmi
fyrir Hermann Ragnar Stefánsson
danskennara sem haldin voru í
glæsilegum húsakynnum dansskóla
hans.
Gylfi hafði þá verið ómissandi
aðstoðarmaður þar frá upphafi og
helzti vinur Arngríms sonar Her-
manns. Það liggur alveg ljóst fyrir
mér að án hjálpar Gylfa þennan
vetur sem ég var hjá Hermanni
hefði ég ekki klárað mig af þessu
verkefni. Eftir þetta héldum við
sambandi af og til og mikið þótti
mér vænt um þegar Gylfí og Helga
buðu mér í brúðkaupið sitt eða
heimsóttu mig til Flórída 1977.
Þegar ég lít til baka þá upplifi
ég Gylfa eins og yngri frænda minn.
Stundum liðu ár milli þess sem við
hittumst en alltaf var hann jafn
hress og bjartur þegar við hittumst
næst. Svo var það árið 1981, þegar
ég opnaði fyrsta Tommahamborg-
arastaðinn, að ég hafði samband
við þá félaga í Rafkrafti, Gylfa,
Ragnar og Ögmund, og bað þá um
hjálp við raflagnirnar á Grensás-
veginum. Þeir brugðust skjótt við
og þó svo ég væri ekki árennilegur
til að taka áhættu á þá hlupu þeir
strax undir bagga og lánuðu mér
allt verkið. Síðan hafa þeir verið
ómissandi í öllum þeim veitinga-
stöðum sem ég hefi komið nálægt.
Ég sá Gylfa síðast rétt fyrir
hvítasunnu, hann hafði ekkert
breyst frá því 1972, „hress og bjart-
ur“. Því miður verðum við hjónin
ekki stödd á landinu þegar jarðar-
förin fer fram en hugurinn verður
hjá ykkur.
Veri kær vinur sæll, ég sakna
hans, megi hann hvíla í friði.
Guð blessi Helgu og fjölskyldu
hans.
Tommi og Helga
Okkur setti hljóð þegar okkur var
tilkynnt að Gylfi mágur og svili
hefði veikst skyndilega aðfaranótt
annars dags hvítasunnu og að
brugðið gæti til beggja vona um
bata hans. Það er óskiljanlegt hvers
vegna svo lífsglaður og tápmikill
félagi er nú hrifinn á brott langt
fyrir aldur fram. Söknuður okkar
er mikill.
Frá Gylfa skein orka, gleði og
hamingja sem maður komst ekki
hjá að njóta. Strax við fyrstu kynni
kom vel í ljós hæfileiki hans til að
sjá björtu hliðarnar á öllu og hefur
hann svo sannarlega sett sinn svip
á fjölskyldu okkar. Ótal svipmyndir
fljúga um hugann.
Gylfa og Helgu, systur okkar og
mágkonu, varð tveggja barna auðið
og voru þau Fríða og Gunnar Þor-
bergur augasteinar þeirra. Gylfi var
jafningi bama sinna en um leið
fyrirmynd, vinur og leikfélagi. Það
er því erfitt að hugsa sér það að
þau fái hans ekki notið í framtíðinni.
Við viljum, með þessum fátæk-
legu orðum, þakka góðar minningar
sem við eigum af Gylfa. Elsku
Helga, Fríða og Gunnar Þorbergur,
við samhryggjumst ykkur innilega.
Blessuð sé minning hans.
Þorgrímur, Asdís, Eiríka,
Dói og Ragnheiður Elín.
Ég stóð ráðþrota þegar ég heyrði
um skyndilegt andlát vinar, vinnu-
félaga og meðeiganda míns, Gylfa
Þorbergs Gunnarssonar. Mig langar
til að minnast hans með því að rifja
upp okkar fyrstu kynni. Það var
árið 1975 er við unnum saman hjá
Rafveri hf. við hin ýmsu rafvirkja-
störf. Fljótt tókst með okkur vin-
átta sem leiddi til þess að í apríl
1978 hófum við starfsemi Rafkrafts
hf. Gylfi var frábær verkmaður og
ósérhlífin, alltaf tók hann að sér
verkefni þar sem þor og dugur var
það sem þurfti, svo sem klifur og
þess háttar sem svo oft kom fyrir
í okkar starfi. Það var ávallt glað-
værð, fjör og glens þegar Gylfi var
á meðal okkar í vinnu sem og ann-
ars staðar og alltaf var hann hrók-
ur alls fagnaðar. Gylfi lét félagsmál
til sín taka og var ávallt til taks
fyrir flugbjörgunarsveitina og þau
voru ófá útköllin sem hann fór í
sama hvernig á stóð bæði heima
fyrir og í vinnu. Þá var hann einnig
í Jöklarannsóknafélaginu og hafði
unun af skíðum og allri útiveru þar
sem hann komst í snertingu við
náttúru landsins. Þá minnist ég
þess að oft var Gylfi kosinn til að
sjá um skemmtanir og uppákomur,
bæði hjá félögunum og fyrirtækinu.
Þá var hann oft skemmtilega skáld-
mæltur og var ekki lengi að sjóða
saman vísur og hendingar sem kom
öllum í svo hlæjandi gott skap. Það
hefur verið höggvið stórt skarð á
meðal okkar sem verður ekki fyllt.
Með söknuði og trega kveðjum við
vin sem fór svo snöggt frá okkur.
Ég votta þér, Helga mín, bömunum
og fjölskyldum þínum mína dýpstu
samúð.
Guð styrki ykkur á þessari sorg-
arstund.
Ögmundur Guðmundsson
Fallinn er frá einn af dyggustu
félögum Flugbjörgunarsveitarinnar
í Reykjavík.
Það var þögul og þungbær stund
að fá fréttir af því að félagi okkar
væri látinn, eftir stutta sjúkdóms-
iegu.
Þegar fréttist af alvarlegum
veikindum Gylfa fyrir nokkrum
dögum var haldið fast í vonina. í
störfum okkar sem björgunarsveit-
armenn er vonin oft það eina sem
við höfum í farteskinu þegar lagt
er af stað í erfiða ferð. Við þekkjum
vel þann kraft sem bjó í Gylfa og
við vonuðum innilega að hann dygði
til. Gylfi gafst ekki auðveldlega
upp, þótt á móti blési, það þekkjum
við af eigin raun frá þeim ýmsu
björgunarstörfum sem við unnum
saman.
En félaga okkar var ætlað að
nýta krafta sína annarstaðar.
Gylfi gerðist félagi í byijenda-
flokk Flugbjörgunarsveitarinnar í
Reykjavík haustið 1973 og árið
1975 var hann samþykktur sem
fullgildur félagi sveitarinnar. Fram-
undan voru mörg ár með mörgum
krefjandi verkefnum. Það gustaði
af Gylfa þegar hann gekk til verks,
það var ekki spurt eða spjallað, það
var framkvæmt.
Gylfi gegndi mörgum trúnaðar-
störfum fyrir Flugbjörgunarsveit-
-ina. Hann var m.a. flokksstjóri eins
virkasta hóps sveitarinnar ti'
margra ára. Hann var yfírflokks-
stjóri í nokkur ár og þegar stofnað-
ar voru svæðisstjómir björgunar-
samtakanna var Gylfí einn af okkar
fulltrúum þar. Þessi störf, sem urðu
mörg önnur, bæði á vettvangi og
innan sveitarinnar, voru vel unnin
og kunnum við honum bestu þakkir
fyrir.
Starf björgunarsveitarmanns
getur á stundum verið sorglega
raunverulegt og menn sem þau
störf vinna verða oft að brynja sig
fyrir allri viðkvæmni. En nú er ná-
lægt okkur höggvið, nú er erfitt
að vera harður. A okkur leita ljúfar
minningar úr starfi og leik liðinna
ára og í þeim er dauðinn fjarlægur.
Um leið og við kveðjum kæran
félaga þökkum við fyrir allar þær
góðu samverustundir sem við höf-
um átt.
Hugur okkar leitar til aðstand-
enda og þá sérstaklega til Helgu
og bamanna. Við sendum þeim öll-
um okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og megi góður Guð gefa
þeim styrk og trú til að standast
þessa miklu raun.
F.h. Flugbjörgunar-
sveitarinnar í Reylqavík,
Jón Gunnarsson.
Kveðja firá vinum
Hver dagur skiptir skðpum böls og gleði
þvi skilur enginn dauðans miklu völd
en þar sem áður yndi dagsins réði
er autt og tómt við harmsins rökkurtjöld.
(Sveinbjöm Beinteinsson - 1984)
Ljúfur elskulegur vinur er lagður
í langferð. Ferðina sem við munum
öll leggja upp í, í fyllingu tímans.
Ferðalög em meðal annars það sem
tengt hefur þennan vinahóp saman,
en í þessa ferð fer hann án okkar
hinna.
Fjöll og ferðalög vom mjög stór
þáttur í lífí hans og áhugi hans kom
berlega í ljós, hvort heldur hann
var þátttakandi í ferðinni eða fylgd-
ist með úr íjarska. Iðulega kastaði
hann fram stöku sem við átti hveiju
sinni enda fékk hann viðumefnið
skáldið frá Kverk.
Þetta endurspeglaði hæfileika
Gylfa til að draga fram jákvæðar
hliðar tilvemnnar, alltaf stafaði svo
mikilli glaðværð og miklum krafti
frá honum að ekki var hægt annað
en að hrífast með.
Hann var alltaf hrókur alls fagn-
aðar, hvort heldur var í hlýrri stofu
í óveðri uppi á jökli eða reginfjöllum.
Þótt móti blési, sá hann ávallt
jákvæðar hliðar og kraftur hans og
dugnaður kom öllum í ömgga höfn.
Þegar einhver átti á brattan að
sækja og þarfnaðist hjálpar eða
hughreystingar mátti alltaf treysta
á Gylfa til að styðja þá sem minna
máttu sín.
Við sendum Helgu, Fríðu, Gunn-
ari, foreldmm, tengdaforeldmm og~
öðmm vandamönnum innilegar
samúðarkveðjur, megi algóður Guð
styrkja þau í sorginni. Minningin
um Gylfa varðveitist ætíð björt í
huga okkar.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson — 1968)
Gömlu D-flokksvinimir úr
Flugbjörgunarsveitinni í
Reykjavík.
Kveðja frá skólafélögum í
Réttarholtsskóla
Það sló okkur gömlu bekkjarfé-
lagana óneitanlega illa er við frétt-
um andlát félaga okkar. Hann Gylfi
sem alltaf var svo kátur og lífsglað-
ur og smitaði út frá sér. Hann var
hraustur á sál og líkama og sýndi
það í raun í íþróttaleikjum í Réttar-
holtsskóla. Bekkur okkar saman-
stóð aðeins af sex strákum og tutt-
ugu og ijórum stúlkum. Þegar kom
að keppni í hand- eða fótbolta urðu
strákamir að fá lánaðan einn pilt
úr næsta bekk þar sem stelpumar
máttu ekki hlaupa undir bagga. í
leikjunum hvatti Gylfi til góðrar
samstöðu og hafði góð áhrif á
bekkjarbræður sína.
Gylfi var drifijöður í einu og öllu
og minnumst við blaðaútgáfu sem
hann stóð að ásamt Gunnari Jónas-
syni og Lúðvík Hermannssyni. Af-
rakstur blaðsins var fjárhagslega
góður þar sem félagamir sáu sér
fært að gefa bókasafni skólans bók-
argjöf.
Við minnumst tíu ára útskriftar
gagnfræðinga úr Réttarholtsskóla
árið 1980. Gylfí átti dijúgan þátt í
að ná hópnum saman með frábær-
um árangri. Skemmtunin var sér-
lega vel heppnuð og er það ekki
síst að þakka Gylfa fyrir veislu-
stjóm sem hann stýrði á þann hátt
að hver og einn kynnti sig og lét í
té upplýsingar varðandi liðin ár.
Þetta skapaði góða stemmningu —
allir upplifðu skólaárin á jákvæðan
hátt.
Það er af mörgu að taka þegar
minnast á Gylfa en ætlun okkar er
að lýsa honum á skemmtilegan
hátt því þannig mun hann lifa í
minningunni.
Að lokum vottum við eiginkonu,
börnum, foreldrum og systkinum
okkar dýpstu samúð. Gunnar
SKÓVERKSMIÐJAU IÐUNN
LOKA-LOKAUTSALA
Laugavegi91 (kjallara Domus)
Kuldaskór
Herraskór
Dömuskór
Spariskór
Sumarskór
Barnaskór
Sportskór
Inniskór
Opió virka daga írá kl. 13 til 18.
Laugardaga frá kl. 10 til 14.
ALLIR SKOR A 500 TIL 1.000 KRONUR