Morgunblaðið - 19.07.1989, Side 1

Morgunblaðið - 19.07.1989, Side 1
48 SIÐUR B 161. tbl. 77.árg. _______________' _________MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989_____________________________ Prentsmiðja Morgunblaðsins Forsetakjörið í Póllandi: Jaruzelski kveðst ekki vera sigurviss Varsjá. Reuter. WOJCIECH Jaruzelski hershöfðingi, leiðtogi pólska kommúnistaflokks- ins, gaf í gær kost á sér í forsetakjörið, sem fram fer á pólska þinginu í dag, en hann kvað þó ekki öruggt að hann næði kjöri. Adam Mic- hnik, helsti ráðgjafi Lechs Walesa, leiðtoga Samstöðu, óháðu verkalýðs- samtakanna í Póllandi, sagði að líkur væru á að Walesa ræddi við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta i Moskvu fyrir lok þessa árs. Keuter Verkfallsmenn í borginni Prokopjevsk í Vestur-Síberíu lesa dagblöð eftir að hafa sofið undir berum himni á aðaltorgi borgarinnar í fyrrinótt. Talið er að ákvörðun Jaruzelskis um að gefa kost á sér sé mikill létt- ir fyrir hófsama stjórnmálamenn í Póllandi, sem telja hann besta mann- inn til að tryggja stöðugleika í landinu á tímum mikilla lýðræðis- og efnahagsumbóta. Lech Walesa var í fyrstu andvígur framboði Jaruzelskis en skipti um skoðun í síðustu viku og sagði áð Samstaða gæti haft samvinnu við hvaða forseta úr röðum kommúnista sem væri. Talið er að hershöfðingj- ar, stjórnarandstæðingar og erlendir leiðtogar, svo sem Míkhaíl Gorbatsj- ov Sovétforseti og George Bush Bandaríkjaforseti, hafi lagt að Jaruz- elski að gefa kost á sér. Adam Michnik sagði eftir viðræð- ur við sovéska ráðamenn í Moskvu að hann væri sannfærður um að ekkert væri því til fyrirstöðu að Lech Walesa ræddi við Míkhaíl Gorbatsjov fyrir lok þessa árs. Óeirðir og verkföll í Sovétríkjunum: Utg’öiignbaiiu tekur gildi í höfuðborg Abkhazíu 150.000 manns hafa lagt niður vinnu í tveimur helstu kolanámahéruðunum Moskvu. Reuter. Daily Telegraph. Utgöngubann tók gildi í Súk- húmí, höfúðborg sjálfsstjórnar- héraðsins Abkhazíu í Sovétlýð- veldinu Georgíu, í gærkvöldi vegna óeirða sem þar hafa brot- ist út á milli Georgíumanna og Abkhaza. Ennfremur hefúr verið lýst yfir neyðarástandi í borg- inni, viðbúnaður hersins hefúr verið aukin og flugvélar hafa verið sendar til að flytja fólk úr borginni. Mestu verkföll í Sov- étríkjunum frá þriðja áratug ald- arinnar héldu áfram að breiðast út í gær. Að minnsta kosti 150.000 manns hafa lagt niður vinnu í tveimur helstu kolanáma- héruðum Sovétríkjanna, Kúzbass Búist við andófsað- gerðum 1 Myanmar Rangoon. Reuter. Herforingjasljórnin í Myanmar, sem áður hét Búrma, lét í gær handtaka tvo stúdentaleiðtoga og hótaði andófsmönnum harkaleg- um refsingum. Meðal annars hafa fúndir, þar sem fleiri en Qórir eru samankomnir, verið bannaðir og brot gegn neyðarlögum hers- ins geta varðað lífláti. Stjórnvöld hyggjast með þessu koma í veg fyrir mótmælaaðgerðir sem stjómarandstæðingar hafa boðað til í dag. Hermenn, vopnaðir hríðskota- byssum og með byssustingi, tóku sér stöðu á mikilvægum stöðum í nánd við grafhýsi Aungs Sans, frelsishetju landsmanna í barátt- unni gegn Bretum eftir heims- styijöldina síðari. Stjórnarand- stæðingar hyggjast halda hátíð- legan Dag píslarvottarins en þá er þess minnst er Aung San var myrtur árið 1947. Dóttir hans, Aung San Suu Kyi, er helsti forystumaður and- ófsmanna og hefur að undanförnu notfært sér að nokkuð var slakað á neyðarlögunum og haldið úti- fundi með þúsundum stuðnings- manna sinna. Hún sagðist myndu efna til minningarathafnar við grafhýsi föður síns eftir að fulltrú- ar herforingjastjórnarinnar hafa lagt blómsveiga sína að grafhýs- inu, þrátt fyrir tilskipanir stjórn- valda. „Það geta komið upp vandamál en þau verðum við að leysa þegar til þess kemur,“ sagði Aung San Suu Kyi. Hún er formaður Þjóðar- fylkingar lýðræðisins, helsta stjórnmálaflokks andófsmanna. í Vestur-Síberíu og Donbass í Austur-Úkraínu. Um 17 manns hafa látið lífið í átökum milli Abkhaza og Georgíu- manna í Abkhazíu frá því á laugar- dag. Útvarpið í Moskvu skýrði frá því að lýst hefði verið yfir neyðar- ástandi í Súkhúmí, höfuðborg hér- aðsins. Útgöngubann hefði tekið gildi í borginni og völd hersins hefðu verið aukin. Gripið var til svipaðra aðgerða í Armeníu og Azerbajdzhan í fyrra, er óeirðir brutust út á milli Azera og Armena. Um 3.000 her- menn voru sendir til Abkhazíu í gær þar sem hersveitum sem voru þar fyrir hafði ekki tekist að stía hinum stríðandi fylkingum í sundur. Fréttastofan TASS greindi frá því að verkfallsnefnd kolanáma- manna í Kúzbass hefði farið þess á leit við verkfallsmenn í héraðinu að þeir hæfu störf á ný klukkan níu í gærmorgun að ísl. tíma. Embætt- ismenn i héraðinu skýrðu frá því að verkfallsmennirnir hefðu ekki orðið við þeirri beiðni. Kolanámamennirnir í Kúzbass hafa verið í verkfalli í rúma viku til að krefjast bættra lífskjara og betri vinnuskilyrða. Ennfremur hef- ur æ meir borið á kröfum um að dregið verði úr miðstýringu frá Moskvu og að stofnuð verði „óháð samtök kolanámamanna“. Verkföll hófust einnig í fimm kolanámum í Donbass-héraði í Úkr- aínu, mesta kolanámahéraði Sov- étríkjanna, á mánudag. Fréttastof- an TASS skýrði frá því í gær að verkföllin hefðu breiðst út til 39 náma í héraðinu. Talið er að óeirðirnar og verk- föllin' í Sovétríkjunum megi rekja til vaxandi óánægju með efnahags- ástandið í landinu. Neyðarástand ríkir víðs vegar um landið vegna skorts á matvælum og öðrum nauð- synjum. Bretland: Tölvurnar fastheldn- ar á vínið London. Daily Telegjaph. BRESK tollayfirvöld gengust við því á mánudag, að tölvur embættisins hefðu „glatað" 35.600.000 flöskum af víni og þannig gert að engu áreiðan- leika staðtalna um áfengis- neyslu Breta. „Það hefði aldrei flökrað að okkur, að svo miklu gæti skeikað hjá tollayfirvöldum," sagði Al- astair Eadie, formaður samtaka vínkaupmanna, sem spurst hafði fyrir um niðurstöðutölur vegna vínsölu allt aftur til ársbyijunar 1988. Svo virðist sem tölvumar hafi orðið svo vínhneigðar, að þær hafi haldið milljónum flaskna fyrir sjálfar sig. Allar tölur bár- ust tölvunum með skilum, en létu hins vegar ekki á sér kræla, þegar kallað var eftir þeim vegna skýrslugerðar. Reuter 12 tonn affílabeini brennd Arap Moi, forseti Keniu, leggur hér eld að 12 tonnum af fílabeini í Nairobi, höftiðborg landsins, í gær. Forsetinn sagði að kveikt hefði verið í bálkestinum til að hvetja allar þjóðir heims til þess að binda enda á öll fílabeinsviðskipti. Náttúruvemdarsinnar telja að fílum í Afríku hafí fækkað um helming á síðustu tíu árum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.