Morgunblaðið - 19.07.1989, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JULI 1989
Þingeyjarsýsla og Suðurnes;
Fleiri net veiðij
þjófa við Laxárósa
Mikið af netasærðum laxi í ánni og
í heimtum hjá Vogalaxi
Veiðleftirlitsmenn í Þingeyjarsýslu lögðu um helgina hald á tvö ólög-
leg net við ósa Laxár í Aðaldal og hafa þar með þrjú slík net verið
tekin úr sjónum á þeim slóðum að undanfömu. Að sögn formanns
Laxárfélagsins, Orra Vigfussonar, er það hald manna að langt sé frá
því að öll kurl séu til grafar komin í veiðiþjófnaði á þessum slóðum,
þannig beri mikið á því í Laxá, að laxar sem stangveiðimenn ná á land
séu með rtieiri og minni netaförum. Hjá hafbeitarstöðinni Vogalaxi á
Suðuraesjum hefur einnig mikið orðið vart við netasærða laxa.
Netin tvö sem tekin voru, lágu á
miklum gönguleiðum laxins sem
gengur í Laxá, annað rétt við ósinn
og hitt í svokallaðri Eyvík. Eftirlits-
mennimir hafa kært lagnimar til
lögreglunnar á Húsavík. Orri sagði
enn fremur, að þrátt fyrir að mönn-
um væri ljóst að gæsluaðgerðir hefðu
verið hertar, hefði enginn sem teldi
sig hafa rétt til silungsveiðineta hirt
um að skrá lagnir sínar hjá eftirlits-
manni, en lögum samkvæmt bæri
að gera slíkt. Umrædd net sem tekin
voru hefðu því ekki aðeins verið
óskráð, heldur hafi helgarbannið
einnig verið brotið. „Þetta er
ófremdarástand, en við ætlum að
fylgja því eftir af fullri hörku. Það
er mikið að netasærðum laxi í ánni
í sumar. Þórður Pétursson og félagi
Flugfreyjur
samþykktu
FLUGFREYJUR hjá Flug-
leiðum samþykktu einróma
nýgerðan kjarasamning í al-
mennri atkvæðagreiðslu,
sem fram fór í gærkvöldi.
Vel var mætt í atkvæðar
greiðsluna, sögn Sigurlínar
Scheving hjá Flugfreyjufé-
laginu, en hjá Flugleiðum
starfa um það bil 230 flug-
freyjur.
Einar Sigurðsson, blaðafull-
trúi Flugleiða, segist gera- ráð
fyrir því að leitað verði eftir
tilboðum í sokkabuxumar sem
flugfreyjur fá samkvæmt
samningnum, í gegnum Inn-
kaupadeild Flugleiða, eins og
tíðkaðist með annað það sem
keypt væri inn á vegum fyrir-
tækisins í miklu upplagi. Af-
hending þeirra færi síðan fram
í gegnum einkennisfataúthlut-
un Flugleiða. Hann sagðist ekki
geta sagt til um hvað sokka-
buxnakaupin kynnu að kosta
Flugleiði umfram hinar hefð-
bundnu launagreiðslur til flug-
freyja.
Einar segir að flugþjónar
njóti ekki sokkabuxnafríðinda,
samkvæmt nýja samningnum,
eða annarra sambærilegra
friðinda þar sem þeir notuðu
ekki slík klæði.
hans voru til dæmis með fjóra fiska
eftir morgunvakt fyrir skömmu og
þeir voru allir særðir eftir net og
einn þeirra beinlínis stórslasaður,"
sagði Orri.
Vilhjálmur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Vogalax sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að mikil brögð
hefðu verið að því að þeir stórlaxar
sem hefðu skilað sér í stöðina hefðu
verið særðir eftir net. Hann hafði
þá endurheimt 6.000 slíka laxa, en
þriðji hver þeirra var með netaförum
og sumir illa famir. Vilhjálmur sagði
það erfitt fyrir sig að fullyrða eitt
eða neitt, en taldi að minnsta kosti
hluta af skýringunni vera að finna í
þeirri staðreynd að stórmöskvuð grá-
sleppunet væru um allt á Suðumesj-
um og fleiri en einn grásleppukarl
hefði sagt sér að þeir hefðu veitt
laxa í netin.
Morgunblaðið/KGA
Útförgerð frá Akureyrarkirkju
ÚTFÖR mæðgnanna Ástu Jónu Ragnarsdóttur og
Hönnu Mariu Ásgeirsdóttur og systranna Huldu
og Margrétar Hauksdætra, sem fórust í hinu svip-
lega slysi í Bergvatnskvísl á Sprengisandi var
gerð frá Akureyrarkirkju í gær. Séra Birgir Snæ-
björasson prófastur og séra Pálmi Matthiasson
íyrrverandi sóknarprestur í Glerárprestakalli
jarðsungu. Mæðgumar voru lagðar til hinstu hvílu
saman i einni kistu og systurnar í annarri. Akur-
eyrarkirkja var yfirfull við útförina og fengu ekki
allir sæti. Auðfundin var rík samúð með aðstand-
endum hinna látnu. Kveðja barst frá biskupi ís-
lands og íslensku þjóðkirkjunni. Vinir og ættingjar
hinna látnu bára kistumar úr kirkju. Að jarðsetn-
ingm lokinni buðu JC-félögin á Akureyri til erfi-
drykkju að Galtarlæk, húsi Flugbjörgunarsveitar-
innar á Akureyri.
Umboðsmaður Alþingis:
Meinbugir eru á lögum um
stofhun og slit hjúskapar
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur það meinbugi á gildandi lögum um
sf ofnun og slit hjúskapar, að fólk skuli ekki geta leitað til aðila, sem
ekki starfar í tengslum við trúfélög, um sáttaumleitan vegna hjónaskiln-
aðar. í áliti vegna kvörtunar sem honum barst segist hann telja það
miður að frumvarp til breytinga á lögunum hafi ekki verið lagt fram
á síðasta þingi, eins og vænta hefði mátt af svörum dómsmálaráðuneyt-
isins við fyrirspura hans.
að úr þessum meinbugum á gildandi
lögum verði bætt svo skjótt sem
kostur er, eins og fyrirhugað hefur
verið samkvæmt bréfi dómsmála-
ráðuneytisins. Hins vegar hafi slíkt
frumvarp ekki verið lagt fram á
síðastliðnu þingi, eins og vænta hefði
mátt af bréfi ráðuneytisins. „Tel ég
miður að af því skuli ekki hafa orð-
ið,“ segir í áliti hans.
í janúar síðastliðnum kvartaði
kona yfir því að hún hefði ekki átt
þess kost að leita til sáttanefndar í
Reykjavík, í samræmi við gildandi
lög um stofnun og slit hjúskapar,
vegna sáttaumleitana fyrir skilnað,
þar sem sáttanefndir hefðu verið
lagðar af með lögum árið 1981. Fram
kom að hún er utan trúfélaga. í svari
dómsmálaráðuneytisins við fyrir-
spurn Gauks Jörundssonar, umboðs-
manns Alþingis, kemur fram að
ráðuneytið telur kvörtun konunnar
réttmæta. í svari ráðuneytisins kem-
ur fram að um nokkurt skeið hefur
verið unnið að endurskoðun laganna
um stofnun og slit hjúskapar og laga
um réttindi og skyldur hjóna. Ekki
væri ljóst hvenær unnt yrði að leggja
lagafrumvarpið fram á Alþingi og
því hefði ráðuneytið ákveðið að
leggja fram sérstakt- frumvarp, er
gilda skuli til bráðabirgða, þess efnis
að sáttaumleitanir valdsmanns séu
nægilegur sáttagrundvöllur í skilnað-
armálúm þegar annað eða bæði hjóna
eru utan trúfélaga.
Umboðsmaður telur nauðsynlegt
20. ólympíuleikarnir í eðlisfræði:
150 keppendur eru
mættir frá 30 löndum
Varsjá, frá fréttaritara Morgunblaðsins, Viðari Ágústssyni.
Menntamálaráðherra Pól-
lands, Jacek Fisiak, setti á mánu-
dag 20. ólympíuleikana í eðlis-
fræði í hátíðarsal háskólans í
Niðurgreiðsla á fóðri til loðdýraræktar:
Lengir bara í hengingarólinni
segir formaður Sambands íslenskra loðdýraræktenda
„ÞETTA dugar ekki og er bara til að lengja í hengingarólinni. Ég
trúi ekki öðru en að fleira verði gert,“ sagði Einar E. Gíslason bóndi
á Syðra-Skörðugili í Skagafirði, formaður Sambands íslenskra loð-
dýraræktenda, um ráðstafanir til aðstoðar loðdýraræktinni sem ríkis-
stjórnin ákvað í gær. 38 milljónum kr. verður varið til niðurgreiðslu
á fóðri og endurgreiðslu söluskatts flýtt.
Málefni loðdýraræktarinnar hafa áætlaður 38 milljónir kr. Jafnframt
að undanfömu verið rædd í undir-
nefnd Qögurra ráðherra og var nið-
urstaðan lögð fyrir fund ríkisstjóm-
arinnar í gær. Ákveðið var að gera
ráðstafanir til að reyna að tryggja
að loðskinnin komist í verð í haust
og ekki komi til þess að bændur
fargi dýrum sínum á miðju fram-
leiðslutímabili. Ríkisstjómin sam-
þykkti tímabundna hækkun jöfnun-
argjalds á fóður, 2,50 krónur á kíló
liggur fyrir að jfjármálaráðherra er
reiðubúinn til þess að hraða endur-
greiðslu uppsafnaðs söiuskatts í
greininni, sem mun vera lægri tala
en fóðumiðurgreiðslan.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði að þingflokk-
ur Alþýðuflokksins hefði ekki getað
fallist á upprunalegar tillögur land-
búnaðarráðherra um aðstoð við loð-
úf jíe’tta "’&?.* KostnáSur* víff þa3" eh* * "dýi'ál'Sektífiá" Vg ‘ekkt ’ hetdiír 'það *
mat hagsmunaaðila í greininni að
unnt væri að leysa vanda hennar
með því að moka í hana nokkur
hundmð milljónum til viðbótar við
þá þijá milljarða sem í hana væru
komnir. „Tillögumar felast í því að
bjarga því sem bjargað verður,
halda lífinu í þeim búum sem að
mati lánardrottna sinna og sér-
fróðra manna geta staðist það erfið-
leikatímabil sem framundan er.
Fóðurstöðvum verður þá að halda
í samræmi við það. Að öðm leyti
er greinin gjaldþrota," sagði Jón
Baldvin.
Ríkisstjómin mun boða helstu
hagsmunaaðila, það er sjóði, banka
stofnanir og samtök, til fundar um
framhald • málsins. ■ Að. sögn. Jóns
Baldvins snýst það um hvað lánar-
drottnar em tilbúnir að gera fyrir
eigið fé, án þess að velta allri
ábyrgðinni yfir á ríkið. Undirbúnar
verði tillögur um þessar aðgerðir,
þar með talið ábyrgðir vegna skuld-
breytinga, og framhald málsins og
þær tillögur lagðar fyrir Alþingi í
haust ef með þarf.
Einar Gíslason sagði að úr þessu
væri ekkert annað að gera en að
bíða eftir fundinum með ríkisvald-
inu og lánastofnunum. Hann sagði
mikilvægast að komast að niður-
stöðu um afurðalánin frá því í fyrra.
Afurðalán út á framleiðslu yfir-
standandi árs fæm öll í greiðslu
vanskila frá því í fyrra og því hefðu
bændur ekkert til að greiða upp í
fóðrið og hætt við að fóðurstöðvam-
ar stöðvist fyrir-haustiðj -1 ■ «■ ) ■
Varsjá. Þetta er í þriðja skiptið
sem Pólland er vettvangur
ólympíuleikanna í eðlisfræði en
þeir voru fyrst haldnir hér 1967.
Jacek Fisiak sagði að þó allir
gætu ekki vænst þess að vinna
verðlaun á leikunum vonaðist
hann til þess að sérhver bæri úr
býtum það sem hann hefði til
unnið.
íslendingar taka nú þátt í 6.
skipti og em okkar keppendur
Gunnar Pálsson frá Menntaskólan-
um á Akureyri og Ágúst Valfells,
Ásta Sveinsdóttir, Halldór Pálsson
og Kristján Leósson frá Mennta-
skólanum í Reylqavík. Voru þau
valin af Eðlisfræðifélagi íslands og
Félagi raungreinakennara með
landskeppni og úrslitakeppni í vet-
ur. FaráPíitjórar em Einar Júlíusson
og Viðar Ágústsson og hafa þeir
stjómað þjálfun liðsins sl. tvo mán-
uði. 150 keppendur frá 30 löndum
em mættir til leiks.
Ólympíuleikamir í eðlisfræði em
árleg keppni ungmenna 19 ára og
yngri og em þeir haldnir til skiptis
austantjalds og vestantjalds.
Keppnin er fólgin í því að leysa
verkefni úr kennilegri eðlisfræði og
var það gert í gær og framkvæma
tilraunir sem verður gert á morgun.
Verðlaunaathöfnin verður nk.
sunnudag og koma íslensku kepp-
ehdúrhir heifri á máhudag: > u