Morgunblaðið - 19.07.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989
Alþjóðleg nútímalist
sýnd á Kjarvalsstöðum
Sýningin frá listasafininu í Epinal í Frakklandi
SÝNING á nútímalistaverkum í
eigu listasafnsins í Epinal í Frakkl-
andi verður opnuð á Kjarvalsstöð-
um á laugardaginn. Á sýningunni
eru verk eftir ýmsa kunna lista-
menn, svo sem Frank Stella, Andy
Warhol, Gilbert og George, Tony
Cragg, Donald Judd og Sigmar
Polke. Segir í fréttatilkynningu
frá Kjarvalsstöðum að sýningin
gefí gott yfirlit yfir þá þróun, sem
átt hafi sér stað í myndlist samtím-
ans í Bandaríkjunum og Evrópu,
sérstaklega á Ítalíu, Þýskalandi
og Frakklandi.
Á sýningunni á Kjarvalsstöðum
getur að líta úrval nútímalistaverka
safnsins í Epinal, en þar hefur verið
lögð áhersla á þær liststefnur sem
komu fram í byrjun sjöunda áratug-
arins, svo sem popplist, minimalisma,
arte povera og conceptlist. Er það
mat Gunnars B. Kvarans, forstöðu-
manns Kjarvalsstaða, að á safninu í
Epinal sé eitt besta úrval nútímalist-
ar í heiminum í dag.
Undirbúningur þessarar sýningar
hefur staðið í ár og hefur franska
menntamálaráðuneytið veitt margv-
íslegan stuðning og fyrirgreiðslu til
þess að af henni gæti orðið, að sögn
Gunnars. Verkin eru samtals metin
á þijú- til Qögurhundruð milljónir
króna og eru þau tryggð hjá norsku
tryggingafélagi.
Eftirtaldir listamenn eiga verk á
sýningunni: Carl Andre, Giovanni
Anselmo, Richard Artschwager, Mic-
hael Buthe, Philippe Cazal, Tony
Cragg, Dan Flavin, Gilbert og Ge-
orge, Jenny Holzer, Donald Judd,
Joseph Kosuth, Richard Long, Mario
Merz, Bob Morris, Helmut Newton,
Pino Pascali, Sigmar Polke, Jean
Pierre Raynaud, Frank Stella, Niele
Toroni, Richard Tuttle, Bemer Ve-
net, Jaques Mahé de la Villeglé,
Wolf Vostell, Andy Warhol og Gil-
berto Zorio.
Deildarsljóri
í stað blaða-
fulltrúa
STAÐA deildarstjóra í forsætis-
ráðuneytinu hefur verið auglýst
laus til umsóknar eftir að ákvörð-
un var tekin um að leggja niður
stöðu blaðafulltrúa ríkisstjómar-
innar.
Að sögn Guðmundar Benedikts-
sonar ráðuneytisstjóra hefur staða
blaðafulltrúa verið lögð niður og
henni breytt í stöðu deildarstjóra við
ráðuneytið. Er þá miðað við að deild-
arstjórinn eða einhver anriar úr ráðu-
neytinu riti fundargerðir á ríkistjórn-
arfundum.
VEÐURHORFUR IDAG, 19. JÚLl'
YFIRLIT í GÆR: Yfir Brettandseyjum er 1.026 mb hæð en 1.005
mb lægð á Grænlandssundi, þokast norðaustur. Hiti breytist lítið,
SPÁ: Suðvestanátt, kalt eða stinningskaldi og skúrir suðvestan-
og vestanlands, en þurrt i öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Hæg suðlæg átt með súld og síðar rign-
ingu sunnan til en þurrt og bjart nyðra. Hlýtt, einkum norðan til.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Breytileg átt og víðast súld eða rigning
framan af degi en síðan léttir til um norðanvert landið. Litið eitt
kólnandi.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
Él
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—[* Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
Q - Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma. httl weftur Akureyri 19 hálfskýjaö Reykjavík 10 súld
Bergen 14 léttskýjað
Helsinki 13 þrumuveður
Kaupmannah. 18 léttskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk 3 rigning
Osló 17 hálfskýjað
Stokkhólmur 17 hálfskýjað
Þórshöfn 13 súld
Algarve 31 léttskýjað
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 29 heiðskfrt
Berlfn 13 skúr
Chicago 21 skýjað
Feneyjar 26 hálfskýjað
Frankfurt 20 skýjað
Glasgow 21 skýjað
Hamborg 18 hálfskýjað
Las Palmas 26 heiðskfrt
London 22 skýjað
Los Angeles 19 mistur
Lúxemborg 18 skýjað
Madríd 36 heiðskfrt
Malaga 28 léttskýjað
Mallorca 22 vantar
Montreal vantar
New York vantar
Orlando 26 léttskýjað
Paris 25 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Vfn 17 rigning
Washlngton 22 þokumóða
Winnlpeg vantar
Morgunblaðið/Sverrir
Frá uppsetningu sýningar Kjarvalsstaða á alþjóðlegri nútímalist frá
listasafiiinu í Epinal í Frakklandi. Hér afhjúpa þeir Gunnar B. Kvar-
an forstöðumaður Kjarvalsstaða og Helgi Árnason starfsmaður safiis-
ins verk eftir Helmut Newton.
Borgin kaupir Broadway:
Kaupverðið samtals
um 118 milljónir króna
BORGARRÁÐ hefiir samþykkt samning, sem undirritaður heftir
verið við Ólaf Laufdal, um kaup á skemmtistaðnum Broadway. Kaup-
verðið er samtals um 118 milljónir króna; þar af verða 100 milljón-
ir greiddar með skuldabréfi til tólf ára, borgin fellir niður fjögurra
og hálfrar milljónar króna skuld eiganda skemmtistaðarins vegna
vangreiddra fasteigagjalda og afgangurinn, þrettán og hálf niilljón,
er aridvirði tveggja lóða við Aðalstræti og Túngötu, sem seljandi
Broadway fær nú til eignar. í Broadway hyggst borgin reka áfelngis-
lausan skemmtistað fyrir unglinga auk þess sem þar verður aðstaða
fyrir félagsmiðstöð unglinga í Seljahverfi og félagsstarf aldraðra.
Við afgreiðslu kaupsamningsins
í fundi borgarráðs í gær lögðu full-
trúar minnihlutans fram bókun þar
sem sagt er að skemmtistaðurinn
Broadway muni sjálfsagt nýtast
Reykvíkingum ekki sist unglingum
og því séu fulltrúar minnihluta-
flokkanna samþykkir kaupunum.
Hins vegar komi Broadway ekki í
stað þess unglingahúss í miðbæ
Reykjavíkur, sem sijórnarandstað-
an hafi ítrekað flutt’ tillögur um og
auk þess eigi enn eftir að koma upp
félagsaðstöðu fyrir unglinga í Selja-
hverfi. í bókuninni segir einnig, að
þau vinnubrögð borgarstjóra.að
undirrita fyrst samninga og kynna
þá síðan borgarráði, séu nú sem
oft áður andlýðræðisleg og ámælis-
verð.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
lögðu þá fram bókun, þar sem seg-
ir: „Borgarstjóri hefur bæði í borg-
arstjórn og borgarráði kynnt fyrir
borgarfulltrúum að hann ætti í
óformlegum viðræðum vegna hugs-
anlegra kaupa á Broadway. Full-
yrðingu í bókun minnihlutans um
andlýðræðisleg og ámælisverð
vinnubrögð borgarstjóra í þessu
máli er því vísað á bug.“
Að sögn Davíðs Oddssonar, borg-
arstjóra, verður húsið afhent
Reykjavíkurborg þann 1. nóvember
næstkomandi og er gert ráð fyrir
því að hægt verði að taka það í
notkun þá þegar.
Borgarráð samþykkti tillögu
Katrínar Fjeldsted borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins um að efnt
verði til samkeppni meðal unglinga
um nýtt nafn á skemmtistaðinn.
íþrótta- og tómstundaráði verður
falin framkvæmd keppninnar.
Lyngholt sf:
Mariane Dan-
ielsen seld
þriðja aðila
Morgunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi yfirlýsing frá Lyngholti
sf. Lyngholt er eigandi danska
skipsins Mariane Danielssen, sem
strandaði við Grindavík í janúar
síðastliðnum.
„Samningar hafa ekki tekizt milli
fyrirtækisins og Finnboga Kjeld, sem
hugðist kaupa skipið. Því mun skipið
verða selt þriðja aðila. Telja forráða-
menn Lyngholts sf að með þessu
fyrirkomulagi verði hagsmunir allra
tryggðir."
Egill Jónasson látínn
Húsavík.
EGILL Jónasson skáld á Húsavík
lést í gær, 18. júlí, tæpra 90 ára,
fæddur 27. desember 1899.
Egill vann mestan sinn aldur við
verslunar- og skrifstofustörf, hóf
þau ungur hjá Bjama Benediktssyni
kaupmanni en var lengst af starfs-
maður hjá Kaupfélagi Þingeyinga.
Egill var snjall og þjóðþekktur
hagyrðingur og var hann oft hvatt-
ur til þess að gefa út ljóð sín í bók
en það vildi hann ekki. Lausavísur
hans munu lifa með þjóðinni svo
lengi sem hún hefur áhuga á rímuð-
um ljóðum.
Konu sína, Sigfríði Kristinsdótt-
ur, missti hann fyrir 10 árum. Þau
eignuðust þijú börn sem öll lifa
foreldra sína.
- Fréttaritari
Egill Jónasson