Morgunblaðið - 19.07.1989, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JULI 1989
5
Morgunblaðið/Einaj- Falur
Ungir húsbyggjendur
Á hverju sumri færist mikil gróska í bygginga-
framkvæmdir um allt land. Þá er unnið myrk-
ranna á milli, til að nýta veðrið, því öllu óhægara
er um vik í vetrarhörkum. Fullorðna fólkið bygg-
ir hús yfir sig og sína og út um allt rísa blokkir,
raðhús eða einbýlishús. Svo þarf líka að reisa
skóla og verslanir. Börnin læra það sem fyrir
þeim er haft og frá auðum svæðum, þar sem full-
orðna fólkið hefur enn ekki byggt, heyrast hamar-
högg ungra húsbyggjenda, eða kofabyggjenda.
Þessir ungu herramenn ákváðu að byggja sinn
eigin kofa, enda er alltaf gott að eiga afdrep til
að ræða næstu prakkarastrik.
Sumardagskrá Norræna hússins:
Fyrirlestur um sögu
Reykjavíkur í 200 ár
Ragnheiður Þórarinsdóttir,
forstöðumaður Árbæjarsafiis,
flytur fyrirlestur í Norræna hús-
inu annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, og hefst hann kl. 20.30.
Fyrirlesturinn er liður í sumar-
dagskrá Norræna hússins og
nefiiir Ragnheiður hann „Saga
Reykjavíkur í 200 ár“. Fyrirlest-
urinn verður fluttur á norsku.
Eftir stutt kafflhlé verður síðan
sýnd kvikmyndin „Þijú andlit
íslands" með norsku tali.
Sumardagskráin hefur verið fast-
ur liður í starfsemi hússins allt frá
árinu 1979. Hún er einkum sett
saman með tilliti til norrænna
ferðamanna og flutt á einhvetju
Norðurlandamálanna. íslenskir
fræðimenn halda erindi um ísland,
sögu, þjóð, land og náttúru. Fyrir-
lestrar verða á dagskrá hjá Norr-
æna húsinu á öllum fimmtudags-
kvöldum í sumar, en síðasti fyrir-
lesturinn verður þann 24. ágúst. Á
dagskrá 27. júlí flytur Helga Jó-
hannesdóttir fyrirlestur á sænsku
um íslenska alþýðutónlist fyrr og
nú. Að því búnu verður sýnd kvik-
myndin „Mývatn“ eftir Magnús
Magnússon með ensku tali.
Þess má að lokum geta að kaffi-
stofa hússins býður upp á veitingar
og bókasafnið er opið þessi kvöld
til kl. 22.00. Þar liggja frammi
þýðingar íslenskra bókmennta á
öðrum norrænum málum og bækur
um ísland. Aðgangur að sumardag-
skrá Norræna hússins er ókeypis.
Hrefiiuveiði-
menn stofha
félagsskap
FYRRUM hrefnuveiðimenn
hafa stofhað með sér hags-
munasamtök og heita þau Félag
Hreftiuveiðimanna.
Félagið ætlar að vinna að því
að hrefnuveiðar hefjist á ný á
íslensku hafsvæði og stuðlað verði
að frekari rannsóknum á hrefnu-
stofninum.
Fjórtán hrefnuveiðimenn voru á
stofnfundi félagsins úr flestum
landsljórðungum. Formaður þess
er Konráð Eggertsson á ísafirði.
Meðstjórnendur eru: Gunnlaugur
Konráðsson, Árskógssandi og Guð-
mundur Haraldsson, Reykjavík.
SUMARHÚS ÍÞÝOUUNU
r að býður enginn betri möguleika til gistingar í Þýskalandi
en Ferðaskrifstofan Úrval, hvort sem flogið er til Frank^urt eða Luxembourg.
Liggi leiðin til Frankfurt, þá gefst farþegum okkar kostur á þægilegum íbúðum
í Ferienpark Rhein-Lahn í bænum Lahnstein, sem er í um 120 km fjarlægð frá
miðborg Frankfurt og eyða 1 -2 vikum við góðar aðstæður í Lahnstein og fara í
skoðunarferðirum Rínardalinn og önnurfögurhéruð Þýskalands.
Langflestir þeirra sem fara um Luxembourg þekkja Daun Eifel og Biersdorf.
Engin önnur sumarhúsasvæði í Þýskalandi hafa náð öðrum eins vinsældum hjá
landanum. Úrval býður upp á dvöl á þessum svæðum í samvinnu við hótel- og
sumarhúsafyrirtækið DORINT, en þar er allt til þess að fríið hdppnist fullkomlega,
fallegt umhverfi, glæsileg aðstaða og góð stemmning.
Farastjóri Úrvals tekur á móti öllum farþegum, sem þar ætla að dvelja,
aðstoðarþá við aðfá bílaleiguþílinn afhentan og leiðbeinirvið val á akstursleið
til Daun Eifel og Biersdorf. Til Daun Eifel er um 1 'h klst. akstur frá Luxembourg
og 1 klst. til Biersdorf.
í tengslum við ferðir til Frankfurt og Luxembourg er einnig völ góðra hótela
í báðum borgunum.
Frankfurt - flug og bíll: Verð frá kr. 24.338,- á mann
(Verð miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára í bíl í c flokki í 1 viku)
íbúð íviku/Rhein-Lahn: Verð frá kr. 14.100,- (2farþegar)
Luxembourg — flug og bíll: Verð frá kr. 20.793,
LAHNSTEIN
(Verð miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára í bíl í B flokki í 1 viku)
íbúð í viku/Daun Eifel: Verð frá kr. 17.800,- (2 farþegar). íbúð í viku/Biersdorf: Verð frá kr. 23.800,- (2-4 farþegar)
Öll verð eru miðuð við staðgreiðslu.
FARKORT FÍF
FEMASKRIFSTOFAN ÚRVAl
- fólk sem kann silt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.
FLUGLEIDIR