Morgunblaðið - 19.07.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989
17
Vandfenginn mun mér þykja sessunauturinn
ef við skiljum
Heimskringla
Vinátta er meðai æðstu gæða
lífsins. Vinir eiga ánægju saman í
velgengni, en í mótlæti hyggjum
við að því
hver mér hugaður
á hlið standi
annar þegn
við óðræði.
í erfiðleikum finnum við bezt,
hvers virði vinátta er. Sannir vinir
standa eins og sterkir stofnar hlið
við hlið, skýla og hlífa hvor öðrum,
eftir því sem vindar blása.
Mikill er missir þegar annar fell-
ur, svo sem skyndilega höggvinn
upp, en hinn stendur eftir einn og
óvarinn. Svipað gerist þegar sessu-
nautur er farinn, sætið autt, annar
vandfenginn, verður raunar ekki
fenginn svo að fylli sessinn vel. Það
er eins og steinn falli úr vegg;
skarðið verður ekki fyllt til hlítar
með öðrum steini.
Missir góðs vinar verður ekki
bættur. Hitt verður þó enn þyngra
á metum að hafa átt góðan vin,
mátt deila með honum sorg og
gleði. Og fagrar minningar verða
aldrei af okkur teknar.
Vjnur minn og mágur, Olafur
M. Ólafsson, er horfinn.
Ólafur var eftirminnilegur maður
í sjón og raun. Hann var virðulegur
að sýn og hlaut að vekja athygli
hvar sem hann fór. Hann var fríður
sýnum, með hærri mönnm á vöxt,
beinvaxinn og svaraði sér vel, léttur
í spori, enda útivistarmaður, iðkaði
einkum göngur og sund, snyrtimað-
ur hinn mesti í hvivetna.
En þótt Ólafur væri gervilegur
að vallarsýn og glæsimenni, var þó
skapferli hans og eðliseinkenni eigi
síður eftirminnileg og glögg eins
og þau birtust við nánari kynni.
Ólafur var heilsteyptur maður.
Hann var nákvæmur og vandvirkur
með afbrigðum. Ekkert lét hann frá
sér fara fyrr en hann hafði unnið
það svo sem bezt mátti verða. Lof-
orðum hans mátti treysta að fullu.
Aldrei hefði honum komið til hugar
að láta það bregðast sem hann
hafði heitið öðrum. Samviskusamari
og áreiðanlegri manni hef ég aldrei
kynnzt þau nærfellt fimmtíu ár sem
við þekktumst.
, Vinátta Ólafs, tryggð og gest-
risni verður mér ætíð í glöggu
minni.
Ólafur var eins og Gunnar á
Hlíðarenda vinfastur og vinavand-
ur. Hann gerði ekki alla sér að vin-
um, en sá sem hlotið hafði trúnað
hans, átti þar vin sem aldrei brást.
Tryggur var hann vinum sínum.
Áttu þeir þar jafnan hauk í horni
og öruggan málsvara ef við þurfti.
Ólafur var höfðingi heim að
sækja og þau hjón bæði, Anna og
hann. Eigum við, ég og Kristín
kona mín, margar ánægjulegar
minningar frá boðum á heimili
þeirra að Grundalandi 8, þar sem
saman fóru rausnarlegar veitingar
og ánægjulegar samræður. Einnig
eru mér minnisstæðar heimsóknir
þeirra, er þau komu til okkar, stund-
um boðin, stundum óvænt í stuttar
heimsóknir. Voru það glaðir góðra
vina fundir.
Einkum eru mér í ljósu minni
síðustu samfundir okkar. Seint í
maí s.l. auðnaðist okkur Kristínu
að koma á heimili þeirra Ólafs og
Önnu og dveljast þar mikinn hluta
dags. Það var eitthvað sérstakt við
þennan samfund, einhver glaðværð,
björt og opinská, umtalsefni margt,
m.a. ýmislegt sem sjaldan ber á
, góma, meðal þess um líf og dauða.
Ef til vill var það tilviljun, eða var
það óljós fyrirboði þess er brátt
skyldi koma? Nokkru síðar, 16. júní,
á afmælisdegi Ölafs, komu þau til
okkar, og við áttum glaðværar og
ánægjulegr samræður. Ekki grun-
aði okkur að þær yrðu hinar síðustu.
Ólafur og Anna fóru skömmu síðar
til Þýzkalands á ráðstefnu fræði-
manna. Þar andaðist Ólafur skyndi-
lega.
Mikill harmur er kveðinn að
frændum Ólafs og öðrum vanda-
mönnum, mestur þó hinum nán-
ustu, Önnu, eftirlifandi eiginkonu,
og börnum, Guðrúnu Bimu og Ólafi
Magnúsi. En þó að harmur sé sár,
eiga við orð Njálu: „en þó er það
vel, að þú grætur góðan mann“.
Eg bið þann sem öllu ræður að léttá
þeim byrði í sárri sorg.
Ég kveð Ólaf vin minn með lýs-
ingu Snorra á Kvernbít, sverði Há-
konar góða:
„Aðalsteinn konungur gaf Há-
koni sverð það er hjöltin voru úr
gulli og meðalkaflinn, en brandur-
inn var þó betri.. . Það sverð hefur
bezt komið til Noregs.“
Haraldur Matthíasson
Fyrir okkur, sem komin eru á
efri ár, kemur fátt eitt á óvart nú
orðið, enda hefur lífið sjálft kennt
okkur þá staðreynd, að við mörgu
megi búast með hækkandi aldri.
Eitt er það þó, sem við virðumst
nær alltaf óviðbúin, þegar á hólm-
inn kemur, og það er skyndileg
burtför góðs vinar úr samferða-
hópnum hér á jörð.
Á þetta var ég minntur enn einu
sinni, þegar mér bárust þau óvæntu
og sviplegu tíðindi, að góður vinur
og samferðamaður um nær hálfa
öld, Ólafur Markús Ólafsson, fyrrv.
menntaskólakennari, hefði skyndi-
lega látizt suður á Þýzkalandi. Við
höfðum átt smárabbstund saman á
heimili hans nokkru áður en hann
og Anna, kona hans, héldu til
Þýzkalands til þess að taka þátt í
sextugsafmæli góðs vinar í Giessen
7. þ.m. Var auðheyrt, að Ólafur
hlakkaði mjög til þeirrar afmælis-
hátíðar með vinafólki sínu. Hann
naut einnig nokkurra ánægjulegra
daga með þessum vinum sínum og
hélt á sjálfan afmælisdaginn ágæta
ræðu til heiðurs vini sínum og fjöl-
skyldu hans. En þá gerðist hið
óvænta, þegar hann hafði setzt við
hlið konu sinnar. Stundaglas hans
sjálfs rann út, og hann hné örendur
niður. Tæplega er unnt að óska
góðum vini betri brottfarar af þess-
um heimi, en engu að síður eru
umskiptin snögg — já allt of snögg
— fyrir okkur, sem eftir sitjum og
höfum notið samfylgdar hins látna
um áratugi. Ekki er það síður vegna
þess, að ekki var annað vitað en
Ólafur væri við góða heilsu, enda
gat engum dottið í hug, að þar
færi maður á áttragðisaldri, sem
Ólafur gekk um götur. Hér varð
hann samt að lúta sömu örlögum á
aldurtilastund og bræður hans tveir
og systir höfðu lotið á undan hon-
um.
Ekki ætla ég að setja hér á langa
ræðu um hinn látna vin, enda þekkti
ég hann svo vel, að ég veit, að slíkt
hefði ekki verið honum að skapi.
Engu að síður vil ég að leiðarlokum
þakka honum margar ánægju-
stundir allt frá því, að fundum okk-
ar bar fyrst saman í heimspekideild
Háskóla íslands haustið 1942. Þá
sat hann þar fyrir frá haustinu
áður, en stúdent varð hann utan-
skóla frá Menntaskólanum í
Reykjavík með lofsverðum vitnis-
burði vorið 1941, 25 ára gamall.
Áður hafði hann lokið prófi úr
Yerzlunarskóla íslands árið 1935.
Árin þar á eftir dvaldist hann í
Þýzkalandi við nám, en því miður
einnig um skeið vegna veikinda.
Yfir þau komst hann þó, svo að
hann gat hafið bæði nám við
Menntaskólann í Reykjavík og síðan
Háskólann, þaðan sem hann lauk
cand. mag.-prófi í íslenzkum fræð-
um vorið 1946.
Á háskólaárum sínum gerðist
hann samstarfsmaður hins frábæra
kennara og vísindamanns, Bjöms
Guðfinnssonar prófessors, við hljóð- •
fræði- og framburðarrannsóknir
íslenzkrar tungu og kenndi m.a. í
veikindaforföllum Björns við Há-
skólann. Veit ég vel, að Björn mat
Ólaf og störf hans mikils og þá
ekki sízt þá miklu nákvæmní og
alúð, sem Ólafur sýndi í öllu því,
sem hann tók sér fyrir hendur. Það
voru einnig þeir eiginleikar, sem
fylgdu Ólafi æ síðan í hveijum þeim
verkefnum, sem honum var trúað
fyrir.
Þegar Bjöm Guðfinnsson féll frá
löngu fyrir aldur fram síðla árs
1950, áttu margir von á því, að
Ólafur gerðist eftirmaður hans í
íslenzkri málfræði við Háskólann,
enda hafði hann J)á þegar allan
lærdóm til þess. Eg veit líka, að
kennsla á háskólastigi var nær
vísindaeðli hans og hefði látið hon-
um betur en kennsla á lægri skóla-
stigum. Því miður fór svo, að Ólaf-
ur hlaut ekki náð fýrir augum ráða-
manna í heimspekideild, og er ég
sannfærður um, að þar réð mikil
skammsýni. Margt hefði örugglega
farið á annan veg í ævi Ólafs og
sögu íslenzkra fræða, ef hann hefði
fengið að setjast í sæti Björns Guð-
finnssonar og stunda óskiptur þau
vísindastörf, sem hugur hans stóð
til. __
Árið 1951 varð Ólafur svo fast-
ráðinn kennari við Menntaskólann
í Reykjavík og kenndi þar nær óslit-
ið, þar til hann hvarf frá skólanum
fyrir aldurs sakir haustið 1986.
Lengst af kenndi hann íslenzku í
efri bekkjum skólans, en einnig
þýzku. Hann var nákvæmur í allri
kennslu sinni, og hef ég fyrir satt,
að hann hafi ekki sízt notið sín við
þýzkukennsluna, enda vita þeir,
sem eitthvað þekkja til þeirrar
tungu, að þar býr lengst að fyrstu
§erð. Hygg ég, að margur nemandi
lafs minnist hans fyrir vandaða
Sjá nánar bls. 34-35
SIEMENS-ðæðf
TRAUSTUR OG AFKASTAMIKILL
ÞURRKARIFRÁ SIEMENS
íslenskar fjölskyldur í þúsundatali telja SIEMENS
þvottavélar og þurrkara ómissandi þægindi. Þú getur
alltaf reitt þig á SIEMENS.
WT
33001
■ Þurrkar mjög hljóölega.
Tromla snýst til skiptis
■ réttsælis og rangsælis.
■ Tímaval upp í 140
mínútur.
■ Hlíföarhnappur fyrir
viökvæman þvott.
■ Tekur mest 5 kg af
þvotti.
■ Verð kr. 39.500,—
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Skafís, kramarhús og
kúluskeið er allt sem þarf til að
framleiða ódýra ísrétti heima.
Líttu á dæmið
hagnaðurinn er augljós.
i c aneó r í:i’ st i
AUK/SlA k3d42-749