Morgunblaðið - 19.07.1989, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.07.1989, Qupperneq 18
13 MORGUNBLABJÐ, MIÐyiKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989 Séð yfír höfriina í Höfh í Hornafirði. Höfii í Hornafirði: Staldrað við í bryggju stússi í vertíðarlok Morgunblaðsmenn heim- sóttu Hornafjörð í vetrarvert- íðarlok og römbuðu um bryggjur þar sem sjómenn voru að gera klárt, ýmist frá því að koma úr róðri eða að fara í róður. Það var góð stemmning á bryggjunum eftir ágæta vertíð og hugur í mönn- um þrft fyrir kul í lofti. Floti Hornfirðinga er glæsilegur og honum er vel við haldið. Sigur- geir Jónasson ljósmyndari Morgunblaðsins smellti mynd- um af nokkrum þeirra sem voru að vinna við bryggjustús- sið. Æskan hefur mestan kvóta allra báta á humrinum. Björgvin, Óskar og Bjarnar að brasa við humartrol- lið, en þeir eru á Sigurði Ólafssyni SF 44. Guðfinna, II. vélstjóri á Lyngey SF 61, en þau voru að gera klárt fyrir humarinn. Guðfinna sagðist vera með punga- prófið og hefur verið á sjónum frá því í ágúst í fyrra. Þj óðhátí ðarsj óður: Tólfta úthlutunin LOKIÐ er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 1989 og þar með tólftu úthlutun úr sjóðnum. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðs- ins, nr. 361 frá 30. september 1977, er tilgangur sjóðsins að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varð- veislu og vemd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Fjórðung- ur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúruvemdar á vegum Náttúru- vemdarráðs, annar fjórðungnr skal renna til varðveislu fomminja, gam- alla bygginga og annarra menning- arverðmæta á vegum Þjóðminja- safns. Að öðm leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hveiju sinni í samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig til álita við- bótarstyrkir til þarfa, sem getið er hér að framan. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt em, en verði ekki til þess að lækka önn- ur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. í samræmi við 6. gr. skipulags- skrár fyrir sjóðinn skipa eftirtaldir menn stjóm sjóðsins á yfirstand- andi kjörtímabili, sem hófst í árs- byijun 1986: Magnús Torfi Ólafs- son, fyrrv. blaðafulltrúi ríkisstjóm- arinnar, formaður, skipaður af for- sætisráðherra, Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, varaformaður, til- nefndur af Seðlabanka Islands, Bjöm Bjamason, aðstoðarritstjóri, Eysteinn Jónsson, fyrrv. ráðherra, og Gils Guðmundsson, fyrrv. forseti sameinaðs Alþingis, sem kjömir em af sameinuðu Alþingi. Ritari sjóðs- stjórnar er Sveinbjöm Hafliðason, lögfræðingur. í samræmi við 5. gr. skipulags- skrár sjóðsins vom styrkir auglýstir til umsóknar í fjölmiðlum í lok des- ember 1988 með umsóknarfresti tii og með 24. febrúar sl. Til úthlutunar í ár koma allt að kr. 6.500.000,00 þar af skal fjórð- ungur, 1.625 þús. kr., renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúmvemdar á vegum Náttúmvemdarráðs og fjórðungur, 1.625 þús. kr., skal renna til varðveislu fomminja, gam- alla bygginga og annarra menning- arverðmæta á vegum Þjóðminja- safns, skv. ákvæðum skipulags- skrár. Allt að helmingi úthlutunarfjár á hveiju ári er varið til styrkja skv. umsóknum og vom því allt að kr. 3.250.000,00 til ráðstöfunar í þenn- an þátt að þessu sinni. Alls bámst 42 umsóknir um styrki að fjárhæð um 20,0 millj. kr. Hér á eftir fer skrá yfir þá aðila og verkefni, sem hlutu styrki að þessu sinni, en fyrst er getið verk- efna á vegum Friðlýsingarsjóðs og Þjóðminjasafns. Friðlýsingarsjóður Skv. skipulagsskrá Þjóðhátíðar- sjóðs skal Friðlýsingarsjóður veija árlegum styrk til náttúmverndar á vegum Náttúmvemdarráðs. Nátt- úmverndarráð hefur ákveðið að veija styrknum, eftir því sem hann hrekkur til, í eftirtalin verkefni: 1. Áframhaldandi frágangur við þjónustumiðstöð í Asbyrgi m.a. uppbygging tjaldsvæðis, plöntun, stígagerð o.fl. 2. Lagfæring og merking göngustíga í Skaftafelli. 3. Bygging þurrkhjalls í Skaftafelli. 4. Búnaður á tjaldsvæði í Skaftafelli (slökkvibúnað- ur, hreinlætismál, leiktæki). 5. Skiltagerð og merkingar á öðmm friðlýstum svæðum. Þjóðminjasafii Samkvæmt skipulagsskrá Þjóðhátíðarsjóðs skal Þjóðminjasafnið veija árlegum styrk til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningar- verðmæta á vegum safnsins. Þjóðminjavörður hefur gert grein fyrir ráðstöfun styrksins í ár og mun hann m.a. renna til eftirgreindra verkefna: 1. Til framhalds fomleifarannsókna á Stóm-Borg undir Eyja^öllum. 2. Til viðgerðar á Tungufellskirkju í Hreppum. 3. Til að halda áfram tölvuskráningu allra safngripa. Úthlutun styrkja skv. umsóknum: Umsækjandi: 1. Húsfriðunarnefnd ísafjarðar, Engjavegi 14, Ísafírði. Verkeihi: Framhald viðgerða áverslunarhúsum í Neðstakaupstað. Fjárhæð: 205.000,00 2. Byggðasafn Skagfirðinga, Glaumbæ, Skagafirði. Viðgerðágamalli gestastofu frá miðri 19. öld sem var fyrsta sýsluskrif- stofa héraðsins. 195.000,00 3. Sjóminjasafn Austurlands, Eskifirði, Hátúni 9, Eskifirði. Lokaáfangi viðgerða á Randulffssjúhúsi og bryggju á Eskifirði. 105.000,00 4. Stofnun Sigurðar Nordals, Þingholtsstræti 29, Reykjavík. Framhald viðgerða, utanhúss, á húsi stofnunarinnar. 205.000,00 5. Byggðasafn Rangæinga og V.-Skaftfellinga, Skógum. Endurbygging bæjarhúsa frá SkáláSíðu. 100.000,00 6. Safnastofnun Austurlands, Skógariöndum 4, Egilsstöðum. Framhald við- gerða á Löngubúð á Djúpavogi. 170.000,00 7. Sjóminjasafnið á Eyrarbakka. Byggjavið safn- húsið og ljúka uppsetningu á varanlegri sýn- ingu I safnhúsinu. 160.000,00 Umsækjandi: Verkefni: Fjárhæð: 8. Héraðsskjalasafn A.-Húnavatnssýslu, Blönduósi. Skírauppogtaka eftir gömlum ljósmyndum. 90.000,00 9. Byggðasafn Borgarfjarðar, Bjarnarbraut4-6, Borgarnesi. Lagfæring á flygli, sem smíðaður var 1863. 60.000,00 10. Héraðsskjalasafn A.- Skaftafellssýslu, Höfn, Homafirði. Skipuleg söfnun og (rágangur ljósmynda úr héraðinu. 95.000,00 11. Listasafn íslands, Reykjavík. Kaupa lágþrýsti- borð til viðgerða á safnmunum. 265.000,00 12. Sögufélag, Garðastræti 13B, Reykjavík. Til útgáfu heimildarrita. 170.000,00 13. Anna F. Gísladóttir og ívar Gissurarson, Frostafold 20 (306), Reykjavík Gerð bókar um varð- veislu og skráningu gamalla og nýrra ljósmynda. 110.000,00 14. JónÓl. Isbergog Ámi D. Júlíusson, Suðurgötu 13, Reykjavík. Gefa út íslenskan söguatlas. 150.000,00 15. Glímusamband Islands íþróttamiðstöðin, Laugardal, Reykjavík. Útgáfa rits um þróun og sögu glímunnar 185.000,00 16. Fuglavemdarfélag íslands, Bræðraborgarstíg 26, Reykjavík. Vemdun íslenska hafamarstofnsins. 50.000,00 17. Náttúruverndarsamtök Austurlands, Sæbakka 1, Neskaupstað. Kanna og skrásetja náttúraminjar og sögulegar minjar á Upphéraði. 130.000,00 18. Náttúruvemdarráð Hverfisgötu 26, Reykjavík. Úttektáfrið- lýstum svæðum og svæðum sem era á Náttúruminjaskrá. 260.000,00 19. Landsbókasafn ísl. Hverfisgötu, Reykjavík. Styrkja Sigurþór Sigurðsson, til að kynna sér viðgerð bóka og annarra gagna hjá Konungsbókhlöðu og Rfkisskjalasafni í Kaupmannahöfn. 100.000,00 20. Sumartónleikar í Skálholtskirkju, Helga Ingólfsdóttir, Strönd, Bessastaðahreppi. Kaupa barokkhljóð- færi til að nota á tónleikum í Skál- holti. 255.000,00 21. Safnkennsla við Þjóðminjasafn íslands og Minjasafnið á Akureyri. Bryndís Sverrisdóttir, Þjóðminjasafni íslands Reykjavík. Gera farandsýningu um landnám Islands til kennslu grann- skólanema á lands- byggðinni. 190.000,00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.