Morgunblaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVÍKUDjVGUR ÍÖ. 'jÚLÍ' 1989
Þórir S. Gröndal skiáfar frá Flórída:
Ræðismaðurinn
Lítið land sem ísland, er á óvenju-
mikit samskipti við umheiminn og
stendur og fellur með verzlun við
útlönd, verður að hafa einhvers kon-
ar utanríkisþjónustu. Sendiráð eru
starfrækt hjá þeim löndum, sem
okkur eru mikilvægust, og tekið er
þátt í starfí ýmissa alþjóðastofnana.
Þar i viðbót hafa landsmenn skipað
184 ræðismenn í 54 löndum.
Næstum allir þessir vararæðis-
menn, ræðismenn og aðalræðis-
menn eru kjörræðismenn (honorary
consuls), þ.e. þeir eru ólaunaðir og
stunda ræðismannsstörfin í viðbót
við aðra atvinnu. Þeir eru ekki at-
vinnudiplómatar, heldur áhuga-
menn, sem sækjast eftir því að verða
eins konar umboðsmenn íslands i
útlandinu. Margir þessara manna
vinna íslandi vel, og eyða í það eig-
in tíma og fjármunum.
Rithöfundurinn frægi, Graham
Greene, skrifaði bókina „The Hon-
orary Consul", sem gerist í Arg-
entínu. Þar dregur hann dálítið dár
að kjörræðismönnum. I sögunni er
brezki kjörræðismaðurinn, Charley
Portnum, tekinn gísl í misgripum
fyrir bandaríska sendiherrann. Til-
ræðismennirnir ræða um það, hve
hátt lausnargjald þeir geti fengið
fyrir konsúlinn. Komast þeir að
þeirri niðurstöðu, að hann sé ekki
alvöru konsúll, og það bezta, sem
þeir geti farið fram á í lausnar-
gjald, sé kassi af góðu, skozku
viskíi.
Starf ræðismanns fyrir ísland
hérna í henni Ameríku er mjög for-
vitnilegt og oft skemmtilegt. Þau
eru svo margvísleg málin, sem fyrir
koma, og aldrei er að vita, hvað
muni gerast næst. Hér á eftir ætla
ég að nefna nokkur atvik, sem ekki
er hægt að kalla mikilvæg, en flokka
má undir kostulega hluti.
Eitt sinn hringdi bandarísk kona.
Sagði hún, að þau hjón hefðu áhuga
á að skreppa til íslands í frí. Vand-
inn væri sá, að hún ætti hund, sem
hún skildi aídrei við sig. Þegar henni
var sagt, að mikil vandkvæði væru
á því að fara með hund til landsins,
spurði hún, hvort ekki væri hægt
að ræða málið og komast að ein-
hveiju samkomulagi eða málamiðl-
un. Bauðst hún strax til þess að
skilja mann sinn eftir, ef seppi fengi
að fara með henni inn í landið!
Fyrir nokkru hringdi sjötugur
Ameríkani, sem hafði verið í banda-
ríska hemum á íslandi í stríðinu.
Hann sagðist hafa átt íslenzka kær-
ustu, sem ekki var óalgengt. En
hann hafði skilið hana eftir með
loforði um að koma til baka og gift-
ast henni. Þegar heim til Ameríku
kom, hafði hann svo gleymt ástinni
sinni á ísa köldu landi, sem ekki var
óalgengt. Giftist hann gamalli
skólakærustu og höfðu þau eignast
börn og buru, en nú var hún dáin
eftir margra ára sambúð. Fyrrver-
andi hermanninn langaði að reyna
að finna út, hvort íslenzka kærastan
væri ef til vill enn að bíða eftir
honum!
Ekki er óalgengt áð hringt sé og
spurt um „au pair“ stúlkur frá ís-
landi. í Flórída hefir reynslan hjá
slíkum stúlkum ekki alltaf verið
góð. Einni þeirra var sparkað út á
götu af húsmóðurinni vegna þess,
að henni fannst eiginmaðurinn vera
farinn að gefa henni hýrt auga. En
um daginn hringdi maður og vildi
kanna, hvernig hægt væri að ná í
„au pair“, ekki stúlku, heldur pilt.
Hann þyrfti að vera ljóshærður og
hávaxinn, sagði maðurinn. í ljós
kom, að hann var í sambúð með
öðrum manni og vildu þeir fá piltinn
til að hjálpa með heimilisstörf og
vera þeim almennt til ánægju!
Maður nokkur kom á skrifstofuna
í vetur er leið. Hann stundaði nám
í kvöldskóla í Miami, og ætlaði að
skrifa ritgerð um jarðfræði íslands.
Sagðist hann hafa góða þekkingu á
Iandinu og kvaðst m.a. vita, að það
væri land frosts og funa. Líka sagð-
ist hann vita allt um stöðyvatn hið
fræga norður í landi, sem væri
ískalt í djúpinu en bullsjóðandi við
yfirborðið. Hafði hann heyrt, að
hægt væri að draga silung úr hinu
kalda dýpi og syðist hann við yfir-
borðið og væri tibúinn beint á di-
skinn! Varð maðurinn bæði undr-
andi og hneykslaður, þegar ræðis-
maðurinn varð að viðurkenna, að
hann hefði ekki heyrt um þetta
merka vatn.
í síðustu viku hringdi maður frá
ferðaskrifstofu í Miami. Sagðist
hann vera að vinna að verkefni fyr-
ir stórt auglýsingafyrirtæki, sem
væri að undirbúa töku á sjónvarps-
auglýsingu fyrir Coca Cola. Sagði
hann, að það vantaði nokkra
íslenzka eskimóa til að nota í auglýs-
ingunni. Það varð löng þögn í síman-
um, þegar manninum var tjáð, að
engir eskimóar væru á íslandi, en
aftur á móti væru þeir allmargir
hér í hans eigin landi, uppi í Alaska.
Að endingu var það svo konan,
sem var tiltölulega nýkomin frá Is-
landi. Hún hringdi og bytjaði að
spjalla um heima og geima. Eftir
um tíu mínútur, þegar ræðismaður-
inn þóttist hafa fundið út, að hún
ætti ekkert annað erindi en að fá
sér spjail, fór hann kurteislega að
reyna að leiða símtalið til lykta. En
þá firrtist hún við og sagðist nú
alltaf hafa haldið, að ræðismenn
landsins ættu að hafa tíma til að
ræða við landsmenn í útlandinu.
Hétu þeir einmitt ekki þess vegna
ræðismenn?
Aðalfiindur Verndar:
Bú'gir Kjartansson
kjörinn formaður
BIRGIR Kjartensson var kjörinn
formaður Félagasamtakanna
Verndar á fyrsta fundi nýkjör-
innar sljórnar samtakanna, sem
kjörin var á aðalfundi fyrir
skömmu. Jóna Gróa Sigurðar-
dóttir, sem gegnt hefur embætti
formanns í sjö ár, gaf ekki kost
á sér til endurkjörs. Henni voru
á aðalfundinum þökkuð störf i
þágu samtakanna og var hún ein-
róma kjörin heiðursformaður
Verndar. Hún er annar formað-
urinn, sem hlýtur þann titil, en
Þóra Einarsdóttir, fyrsti formað-
ur Verndar, ber einnig þennan
titil.
Birgir Kjartansson, nýkjörinn
formaður Verndar, er kominn í fullt
starf hjá samtökunum frá síðustu
mánaðamótum. Hann sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hann kynni
vel við sig í nýja starfinu og hefði
góða tilfinningu fyrir því. „Það sem
hefur verið erfiðast undanfarin ár
og verður áfram er að afla fjár til
starfsemi samtakanna. Það sem ég
mun annars stefna að er að skoða
stöðuna í málefnum Verndar, hvar
skórinn kreppi og hvað sé til úr-
bóta, hveiju þurfi að sinna mest,“
sagði hann.
Birgir starfaði áður sem ráðgjafi
hjá SAÁ, meðal annars sem dag-
skrárstjóri á göngudeild fyrir alkó-
hólista í Síðumúla. Seinustu mánuði
hefur hann unnið sem ráðgjafí og
dagskrárstjóri hjá íslenzku með-
ferðarstöðinni. Hann hefur einnig
nýlega haft með höndum stjóm
meðferðarstöðvar í Svíþjóð. Hann
sagði að stór hluti skjólstæðinga
Verndar hefðu átt við vímuefna-
vanda að stríða, og hann þekkti því
vel til á þessu sviði.
í framkvæmdastjórn Vemdar em
nú auk Birgis sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson varaformaður, Siguijón
KriStjánsson, Stella Magnúsdóttir
og Hróbjartur Lúthersson. Vara-
menn í framkvæmdastjórn em
Hrafn Pálsson, Sigríður Heiðberg,
Þórhallur Runólfsson, Aslaug Cass-
ata og Edda Gísladóttir.
Birgir Kjartansson, formaður
Verndar.
í aðalstjórn samtakanna em sr.
Árelíus Níelsson, Axel Kvaran,
Birgir ísleifur Gunnarsson, Björn
Einarsson, Bragi Sigurðsson, Bryn-
leifur Steingrímsson, Elísabet
Hauksdóttir, Friðrik Sophusson,
Guðmundur Árni Stefánsson, Hall-
dór Einarsson, Hanna Johannessen,
Hermann Gunnarsson, Ingibjörg
Björnsdóttir, sr. Jón Bjarman, Jón
Guðbergsson, Jóna Gróa Sigurðar-
. dóttir, Jóhanna Sigurðardóttir,
Kristján Guðmundsson, Már Egils-
son, Margrét Sigurðardóttir, Ottó
Örn Pétursson, Olafur Hauksson,
Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir,
Sigríður Valdimarsdóttir, Sigurður
Guðmundsson, Sveinn H. Skúlason,
Unnur Jónasdóttir, Þorsteinn Guð-
laugsson og Þórarinn Sveinsson.
Auk þeirra situr í stjórninni fulltrúi
dómsmálaráðherra, sem ekki hefur
verið tilnefndur. Varamenn í aðal-
stjórn eru Ásgrímur P. Lúðvíksson,
Frank Cassata, Sigríður Hannes-
dóttir, Guðrún Beck og Helga Guð-
mundsdóttir.
Endurskoðendur em Hannes Þ.
Sigurðsson og Guðrún Halldórs-
dóttir. Varamenn þeirra em Carl
Brandt og Ottó Öm Pétursson.
Aðalfimdur norrænu bændasamtakanna:
Rætt um milliríkja-
verslun með búvörur
MILLIRÍKJAVERSLUN með
landbúnaðarvörur verður helsta
umræðuefíiið á aðalfundi nor-
rænu bændasamtakanna, NBC,
sem haldinn verður í Reykjavík
8. til 10. ágúst næstkomandi.
Kalevi Sorsa, forseti þjóðþings
Finnlands, flytur aðalræðuna og
Glenn Flaten, forseti Alþjóða-
sambands búvöruframleiðenda,
verður sérstakur gestur fundar-
ins. Formaður NBC er Haukur
Halldórson formaður Stéttar-
sambands bænda. Um 250 er-
lendir gestir koma vegna fiind-
arsins.
Aðalfundurinn verður settur með
viðhöfn í Háskólabíói þriðjudaginn
8. ágúst, klukkan 9. Þá verður opn-
uð kynning á menningarstarfí
stijálbýlis. Haukur Halldórsson
flytur skýrslu stjórnar. Glenn Flat-
en og Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra flytja ávörp.
Kalevi Sorsa flytur ræðu sína og
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri
flytur fyrirlestur um íslenska
bændamenningu.
Fundinum verður fram haldið
miðvikudaginn 9. ágúst. Þá er með-
al annars á dagskránni afhending
menningarverðlauna NBC. Fundin-
um lýkur 10. ágúst með kynnisferð
fundargesta um Suðurland.
I/ELKOMINÍ TESS
Útsalan
hefstídag.
40% afsláttur af
öllum vörum.
TESS
v NEi
NEÐSTVIÐ
DUNHAGA.
S. 622230.