Morgunblaðið - 19.07.1989, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989
29
Yfirskyggðir dalir
eftir Gylfa Knudsen
Á baksíðu Morgunblaðsins 30.
apríl sl. birtist falleg ljósmynd af
Prestahnjúki á Kaldadal. Fjall þetta
er talið myndað við líparítgos undir
jökli og hefur að geyma gnægðir
perlusteins. Þær námur hafa verið
rannsakaðar ítarlega en ekki hag-
nýttar. Fyrr á öldum leituðu menn
ekki að námum á þessum slóðum
heldur að draumum sínum um betra
veraldargengi, gósenlöndum úti-
legumanna. I myndartexta er sagt,
að hnjúkurinn dragi nafn af tveim-
ur prestum, sem farið hafi að leita
útilegumannabyggðar í Þórisdal
árið 1644. Þeir eru sagðir hafa
verið sr. Helgi Grímsson frá Húsa-
felli og sr. Björn Jónsson frá Snæ-
foksstöðum á Grímsnesi. Nokkuð
er missagt í frásögn blaðsins. Þar
sem ætla má, að nútíðin vanmeti
framtak klerkanna, sem var hið
merkasta, er ekki nema réttmætt,
að öllu sé óbrengluðu til skila haldið.
Það þurfti ekki litla hugdirfð að
leita Þórisdals á 17. öld og talið óðs
manns æði að leggja upp í slíka
reisu óvopnaður og iiðfár. Þekking
á öræfum landsins og óbyggðum
var mjög takmörkuð. Atti mögnuð
útilegumannatrú ekki lítinn þátt í
því. Helsti sérfræðingur landsins í
þessum efnum var þá Jón lærði, sem
réit um „hulin pláz“ og „yfir-
skyggða dali“. Alræmdasta útilegu-
manna- og tröllabyggðin voru
Áradalir, en svo nefndist Þórisdalur
á þessum tíma. Jafnframt var talið,
að þarna væri rétt varnarþing
verstu ókinda og illvætta. Skegg-
Ávaldi fann plássið í öndverðu og
„gerðist guð yfir“ segir Jón lærði.
Sá lærði maður rak saman Áradals-
_________Brids____________
Arnór Ragnarsson
Bikarkeppnin
Bridssambandinu hafa borist
nokkur úrslit úr Bikarkeppninni.
Sveit Guðmundar Eiríkssonar frá
Reykjavík vann sigur á sveit Ragn-
ars Haraldssonar frá Grundarfirði
með 94 impum gegn 71. Leikurinn
fór fram þann 14. júlí síðastliðinn.
Laugardaginn 15. júlí fóru fram
fjórir leikir í annarri umferð bikar-
keppninnar. Sveit Sigmundar Stef-
ánssonar frá Reykjavík atti kappi
við sveit Frímanns Frímannssonar
frá Akureyri og var sú keppni mjög
jöfn og spennandi. Fyrsta lotan var
hnííjöfn, sveit Frímanns komst 10
impum yfir eftir aðra lotu, en fyrir
síðustu lotuna áttu Sigmundur og
félagar 12 impa umfram Frímann.
Frímanni tókst ekki að vinna nema
7 impa til baka í síðustu lotu og
lokatölur urðu því 100-95 Sigmundi
í vil. Sveit Valtýs Jónassonar frá
óð. Hann segir bæn dalbúa vera
þessa: j „Skegg-Ávaldi, skygg þú
land þitt, svo ekki verði Áradalir
fundnir." Og enginn hafði fundið
staðinn. Vísindi þessi studdust við
Grettissögu og ýmsar kynja- og
tröllasögur. Grettir á að hafa dval-
ist í dalnum einn vetur í útlegð á
tímum Þóris þurs. í sögunni er
plássinu lýst og kennt við Þóri þenn-
an. Það var því ekki ómerkur at-
burður, þegar tveir valinkunnir
klerkar, samtíðarmenn Þorleifs
Kortssonar og sr. Páls í Selárdal,
gerðu lykkju á leið sína suður
Kaldadal á fögrum sumardegi og
stefndu til Geitlandsjökuls að leita
að þessum voðalega „yfirskyggða
dal“.
Þessi atburður gerðist árið 1664
en ekki 1644 eins og segir í myndar-
textanum. Þessi ártalsvilla er á
kreiki hjá Birni Gunnlaugssyni,
þeim merka vísindamanni, í tveimur
ritgerðum hans um könnun Þóris-
dals, sem birtust í Skírni 1835 og
Sunnanpósti 1836. Prestarnir tveir
voru þeir sr. Helgi Grímsson á
Húsafelli og sr. Björn Stefánsson á
Snæfoksstöðum í Grímsnesi. Þeir
voru þjónandi prestar á þessum
stöðum. í þann tíma voru Húsafell
og Snæfoksstaðir kirkjustaðir og
prestsetur. Á báðum stöðunum voru
kirkjurnar af teknar og sóknirnar
lagðar annað í byijun 19. aldar.
Prestarnir voru mágar. Guðríður,
systir sr. Bjöms, var kona sr. Helga.
Hann var prestssonur frá Húsa-
felli, fæddur um 1622 og andaðist
1691. Fékk Húsafellsbrauð 1654
og sat þar til æviloka. Svo segir
um sr. Helga í ísl. æviskrám: „Hann
var mikill maður vexti og rammur
að afli, vel að sér, unni mjög forn-
Siglufirði gerði góða ferð til
Reykjavíkur og vann nauman sigur
á sveit Guggu Þórðar frá Reykjavík.
Leikurinn var nokkuð jafn allan
tímann, þó Valtýr og félagar hafi
haft fmmkvæðið allan leikinn. Fyr-
ir síðustu lotu voru Valtýsmenn 6
impum yfir, og bættu 27 impum
við í síðustu lotunni, lokatölur
109-76. í þriðja leiknum vann sveit
Braga Haukssonar öruggan sigur á
sveit Gunnars Berg frá Akureyri.
Lokatölur í þeirri viðureign voru
117-38, og unnu Bragi og félagar
ömggan sigur í öllum _ lotunum.
Sveit Sigfúsar Amar Árnasonar
vann öruggan sigur á sveit Guðjóns
Bragasonar, 167-73. Eftir 20 spil
í þeim leik stóðu leikar næstum
jafnir, en Sigfús og félagar sigu
örugglega framúr í þriðju lotu.
Fyrir austan áttust við sveitir
Trésíjdar og Guðmundar Jónssonar
frá ísafirði. Sveit Trésíldar frá
Reyðarfirði vann fyrstu lotuna auð-
veldlega og hélt þeim mun út leik-
inn. Leikurinn endaði 105-49.
„Nokkuð er missagt í
frásögn blaðsins. Þar
sem ætla má, að nútíðin
vanmeti framtak klerk-
anna, sem var hið
merkasta, er ekki nema
réttmætt, að öllu sé
óbrengluðu til skila
haldið.“
fræðum og eru til uppskriftir hans
nokkurar, merkur maður og mikils
metinn." Nafn sr. Björns hefur fyrr
brenglast en í myndartexta Morg-
unblaðsins, þar sem hann er rang-
feðraður og sagður Jónsson. Þegar
hjá Eggerti og Bjarna er öræfaþok-
an tekin að leggjast yfir nafn hans.
Þeir gera hann að sr. Stefáni
Bjömssyni í ferðabók sinni. Reynd-
ar var Björn nokkur Jónsson með
í förinni, fylgdarmaður nafna síns
Stefánssonar, ungur maður, skóla-
genginn, er síðar varð prestur í
Hrepphólum. Þá var þar einnig
sveinninn Þorsteinn Þórðarson í
fylgd með sr. Birni.
Sr. Björn Stefánsson var fæddur
um 1636, ættaður af Seltjarnar-
nesi. Foreldrar hans vom sr. Stefán
Hallkelsson, prestur í Seltjarnar-
nesþingum, og kona hans Úlfhildur
Jónsdóttir. Hún var hálfsystir sam-
mæðra sýslumannsins harðdræga,
Torfa Erlendssonar, föður Þormóðs
sagnaritara. Úlfhildur og sr. Stefán
bjuggu fyrst í Breiðholti en síðan í
Nesi við Seltjörn. Úlfhildur var afar
stórlynd og skaphörð kona. Presta-
þvarg okkar tíma bliknar í saman-
burði við atganginn, þegar hún var
að reyna að koma Birni, syni sínum,
í brauðið eftir lát sr. Stefáns. Sr.
Björn fékk veitingu fyrir Snæfoks-
stöðum 1660. Bjó þar en hafði ann-
að bú á Kiðjabergi. Sat sr. Bjöm í
brauðinu til 1716 og andaðist ári
síðar. Kirkjustaðurinn gengur
reyndar undir þremur nöfnum í
heimildum: Snæfoksstaðir, Snæ-
fuglsstaðir eða Snæúlfsstaðir.
Lagðist staðurinn í auðn út af
draugagangi landsfrægum snemma
á þessari öld. Nefnd Sálarrannsókn-
arfélagsins var teppt í Reykjavík
vegna ófærðar. Málið leystist þann-
ig að Páll bóndi á Hjálmsstöðum
vatt sér í verkið og kvað niður
draugana með Draugsrímu sinni
snarpri. Sr. Bjöm Stefánsson var
sagður „spakferðugur, forsjáll mað-
ur, eitt hið mesta hraustmenni og
gestrisinn".
Kona hans var Hildur, dóttir
Högna bónda í Gufunesi Sigurðs-
sonar. Finnur Jónsson, Skálholts-
biskup, var dóttursonur sr. Björns,
þar af komnir Finsenar. Högni, son-
ur sr. Bjöms, var bóndi og lögréttu-
maður á Laugarvatni. Svo þolfrár
var Högni, að hann hljóp uppi tóf-
ur. Niðjar hans sátu Laugarvatn
fyrst mann fram af manni og síðan
kvenmann fram af kvenmanni, uns
staðurinn lagðist undir lærdóms-
menntir.
Frásagnir prestanna af þessari
merku för eru til og hafa birst á
prenti. Ferðasaga sr. Helga birtist
i Blöndu 1948. Frásögn sr. Björns
er aðgengileg í III. bindi ritsafnsins
Híakningar og heiðavegir. Sr. Helgi
fylgir mági sínum og sveinum hans
á leið suður Kaldadal að endaðri
heimsókn að Húsafelli. „Veður var
gott og sólskinshiti mikill,“ segir
sr. Björn. Klárarnir fara fetið.
Grettir sterki berst í tal og dvöl
hans í Þórisdal. Sr. Björn spyr mág
sinn, hvað hann viti til þess dals og
í hvaða jökli hans sé að leita. Þeir
stöðva klárana og stíga af baki,
sttjúka svitann af enninu og staupa
sig. Sr. Helgi bendir á Geitlandsjök-
ul og sýnist þeim hann ekki fjarlæg-
ur. „Og með því að veðrið var harla
gott, loptið skírt og ekki mjög á
dag liðið, þá er þetta bar til ræðu,
vegurinn sýndist og ekki heldur svo
langur, að ekki mætti nokkuð
frækilegt að hafast, ef lukkan vildi
það ljá, þá réðist það af þeirra á
millum, að þeir vildu reyna til að
leita að Þórisdal," segir sr. Björn í
ferðaskýrslu sinni. Stíga þeir nú á
bak hestum sínum og stefna á jökul-
inn miðjan. Ríða þeir nú yfir urð
og grjót, skriður og skominga, uns
þeir koma að steini einum miklum
uppundir jökli. Stíga þar af baki
og láta eftir farteski sitt og hesta
í gæslu sveinsins Þorsteins. Keifa
nú klerkar og Bjöm lærisveinn upp
á jökul í nafni kristilegs kærleika.
Hafa þeir vín og brauð sér til endur-
næringar og styðja sig við tjaldsúl-
ur. Ef dalbúar fyndust „þá skyldu
þeir telja trú fyrir þeim og öllum
gott gjöra, en ekkert illt ef að hlýða
vildu“. Ekki ganga þeir á Presta-
hnjúk heldur fara skriðjökul bak
hnjúknum sunnan og upp á mó-
bergshrygg vestan Helgatinds. Þeir
finna móbergshelli mikinn, sem nú
er horfinn. Á bergi einu reisa þeir
vörðu. Hrafn flöktir yfir þeim. Hann
sest á bergið og einblínir á þá, úf-
inn og þegjandalegur. Og sem þeir
horfa á hann fljúga spaklega í burtu
yfir þverhnípisbrúnir, sjá þeir í út-
norðri snjólausan fláa liggja frá
jökulbrún niður í dýpi mikið. Halda
þeir austar en ofan fyrir verðuc
ekki komist. Svo skuggar í dýpið,
að dalbotninn verður ekki gerla
greindur. Dal þennan vill Húsa-
fellsklerkur halda Þórisdal. Það
varð séð, þótt daldimmt væri, að
hér var ekki gott undir bú hvorki
útilegumönnum né tröllum og varla
illvættum.
Höfundur er lögfræðingur.
—— ' .
mnmouglymgar
Wélagslíf
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 Ofl 19533.
Helgarferðir Ferðafélags-
ins 21 .-23. júlí
Þórsmörk - Fimmvöröuháls.
Gist i Skagfjörösskála/Langadal.
Gangan yfir Fimmvöröuháls tek-
ur um 8 klst. Gönguferöir um
mörkina.
Landmannalaugar - Gist i sælu-
húsi Feröafélagsins í Laugum.
Gönguferðir um nágrenni Lauga.
Hveravellir - Gist í saeluhúsi
Ferðafólagsins á Hveravöllum.
Gönguferðir um nágrenniö m.a.
i Þjófadali.
Brottför í ferðirnar er kl. 20.00
föstudag.
Upplýslngar og farmiðasala á
skrifstofu F.I., Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur i kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
M Útivist
Miðvikudagur 19. júlí kl. 20
Nátthagavatn - Selvatn. Létt
kvöldganga milli fallegra vatna á
Miðdalsheiði. Verð 600 kr. Ferð
I Strompahella er frestað til mið-
vikudagskvölds 2. ágúst. Brott-
för frá BSl, bensinsölu.
Munið miðvikudagsferðirnar i
Þórsmörk. Brottför kl. 8.00 aö
morgni. Tilboðsverð á sumar-
dvöl. Dvalartími að eigin vali.
Uppl. á skrifst. Grófinni 1, simar
14606 og 23732. Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533
Ferðir FÍ miðvikudaginn
19. júlí:
Kl. 08.00. Þórsmörk - dagsferð.
Verð kr. 2000,-
Þórsmörk skartar sinu fegursta
nú. Kynniö ykkur tilboðsverð
Ferðafélagsins fyrir sumarleyfis-
gesti.
Kl. 20.00. Búrfellsgjá - Kaldársel.
Ekið að Hjöllum, gengið um Búr-
fellsgjá og áfram að Kaldárseli.
Brottför frá Umferðamiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bll. Fritt fyrir börn I fylgd fullorð-
Inna.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11796 og 19533.
Helgarferðir Ferðafélagsins
14.-16. júlí
1) Snæfellsnes - Elliðahamrar
- Berserkjahraun
Gengið þvert yfir Snæfellsnesið
skammt vestan við veginn um
Kerlingarskarð. Þarna er fjall-
garðurinn mun lægri en viöast
annars staðar. Lagt verður af
stað i gönguna frá Syðra-Lága-
felli. Gist i svefnpokaplássi.
Fararstjóri: Jóhanna Magnús-
dóttir.
2) Landmannalaugar. Gist i
sæluhúsi F( i Laugum. Göngu-
ferðir um nágrennið með farar-
stjóra. Fararstjóri: Magnús Guð-
laugsson.
3) Þórsmörk. Gist I Skagfjörðs-
skála/Langadal. Gönguferðir
með fararstjóra.
4) Hveraveílir. Gist I sæluhúsi
FÍ á Hveravöllum. Eftir erfiðan
vetur er sumarið loksins komið
á Hveravöllum.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Fl, Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
[Blj Útivist
Helgarferðir 21 .-23. júlí.
1. Þórsmörk - Goðaland. Gist í
Útivistarskálunum góöu í Básum
á miðju Goðalandi.
Hressandi gönguferðir við allra
hæfi. Munið sumardvöl í þessari
sumarleyfisparadís. Fararstj.
Hákon I. Hákonarson.
2. Veiðivötn - Útilegumanna-
hreysið. Kynnist þessari perlu
öræfanna. Hugað að fjallagrös-
um. Tjöld. Fararstj. Lovísa
Christiansen.
Ferðir um verslunarmanna-
helgina: 4.-7. ágúst.
1. Hornstrandir - Hornvfk. 2.
Þórsmörk.
3. Núpstaðarskógar. 4. Langi-
sjór-Sveinstindur-Lakagígar-
Fjallabaksleið syðri.
Ath. að nauðsynlegt er að
panta tjaldstæði á umsjónar-
svæði Útivistar á Goðalandi
(Þórsmörk) um verslunar-
mannahelgina vegna fjöldatak-
markanna.
Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni
1. (v/Vesturgötu 4). Opið kl.
9.30-17.30. Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
Afmælisferð í Þórsmörk
22.-23. júlí.
Farfuglar fagna 50 ára afmæli
félagsins með afmælisférð í
Þórsmörk helgina 22.-23. júli nk.
Dagsferö og helgarferö i boði.
Brottför kl. 9.00 frá Sundlauga-
vegi 34 (nýja Farfuglaheimilið).
Nánari upplýsingar og þátttöku-
tilkynningar á skrifstofu félags-
ins, Laufásvegi 41, í simum
24950 og 10490.
Farfuglar.