Morgunblaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ' MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989
31
Steinunn Ólafs-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 6. september 1893
Dáin 9. júlí 1989
Steinunn Ólafsdóttir er látin.
Hún varð nærri 96 ára gömul. Við
sem þekktum hana vissum að hún
átti fyrir sér eilíft líf, en við vorum
oft jafnvel farin að gleyma því að
einhvern tíma mundi hún yfirgefa
okkur hér á jörðinni.
Steina frænka var alveg sérstak-
lega dásamleg manneskja, alltaf í
góðu skapi, vildi aðeins sjá björtu
hliðar lífsins, trúuð, góðgjörn, hjálp-
söm og hvers manns hugljúfi. Hún
var svo lánsöm að búa við góða
heilsu allt sitt líf og þurfti aðeins
á Borgarspítalann með hvíldum
síðasta mánuð lífs síns. Hún var
svo ern að hún gat búið alein á sínu
heimili til 93 ára aldurs og séð um
sig sjálf. Síðustu árin bjó hún þó á
Droplaugarstöðum.
Alveg til hinstu stundar vann
heili hennar óskertur. Hún fylgdist
vel með ölu og hafði áhuga bæði á
þjóðmálum, stjórnmálum og kjörum
fólks og vitanlega vissi hún allt um
sína nánustu. Ég fór stundum í
eftirmiðdagskaffi hjá henni og
undraðist hvað svo gömul kona
hafði víðan sjóndeildarhring og al-
menn áhugamál og gaman af að
ræða þau. Hún var gáfuð kona,
eins og hún átti kyn til, og hafði
oft frá mörgu skemmtilegu og
áhugaverðu að segja.
Steinunn var föðursystir mín.
Með henni og föður mínum var
mikill kærleikur og gagnkvæm virð-
ing. Hann heimsótti hana oft á leið
sinni heim úr vinnunni. Þau áttu
svo mörg sameiginleg áhugamál,
skiptust á skoðunum og töldu sig
bæði öðlast dýpri skilning á við-
fangsefnunum og verða reynslunni
ríkari.
• Við systkinin 4 fórum oft í heim-
sókn til Steinu frænku á Grettis-
götu 29. Það voru alltaf gleðistund-
ir ásamt börnum hennar og frænd-
systkinum. Hún var dugnaðar-
húsmóðir og hafði sérstakt lag á
því að láta öllum líða vel og að all-
ir hefðu eitthvað að gera við sitt
hæfi.
Maður hennar var Magnús G.
Guðnason steinsmiður, sem ásamt
Steinþóri, föður Steingríms búnað-
■ armálastjóra og síðar forsætisráð-
herra, lærði steinsmíði hjá dönskum
byggingameistara Alþingishússins
Bald að nafni. Síðar vann hann við
ýmsar merkar byggingar í svipuð-
um stíl t.d. símstöðvarhúsið í Póst-
hússtræti, seinna lögreglustöð,
stalla undir styttur Jóns Sigurðs-
sonar forseta og dönsku konung-
anna fýrir utan Stjórnarráðið. Hlað-
ið hús við Skólavörðustíg 6, sem
enn stendur, byggði hann fyrir
móður sína. Steinunni þótti vænt
um að Magnús var virtur og metinn
af samstarfsmönnum sínum, heiðr-
aður af samtökum iðnaðarmanna
og veitt fálkaorðan sem síðasta lif-
andi iðnaðarmanninum sem byggðu
Alþingishúsið 1880-1883. Margar
spaugilegar sögur heyrðum við frá
þeirri merku byggingu m.a. að gips-
ið, sem notað var í loftin innan-
húss, væri blandað Carlsberg-bjór
og passaði Bald vel uppá að þeir
sem töldu þar illa farið með góðan
mjöð fengju litlu ráðið.
Hjónaband þeirra var mjög far-
sælt, þau voru mjög samhent og
þóttu glæsilegt par, þegar þau óku
um götur borgarinnar og reyndar
einnig um sveitir, í svonefndri kon-
ungskerru, sem hafði verið flutt til
landsins í tilefni af komu Kristjáns
X Danakonungs 1907 og Magnús
síðar eignaðist. Það þótti víst stíll
yfir þeim hjónum og bæjarprýði.
Við kveðjum Steinunni með trega
og söknuði og sendum öllum ástvin-
um hennar samúðarkveðjur. Bless-
uð sé minning hennar.
Birgir G. Frímannsson
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
.JÓHANN GUÐMUNDSSON,
Höfðagötu 13,
Hólmavík,
andaðist á Landakotsspítala þann 15. júlí. Útförin fer fram frá
Hólmavíkurkirkju laugardaginn 22. júlí kl. 14.00.
Sigurbjörg Jónsdóttir,
Guðmundur Jóhannsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Marinó Jóhannsson, Guðrún Hupfeldt,
Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Jón Þórðarson,
Gunnar Jóhannsson, Arndfs Hansdóttir,
Rakel Jóhannsdóttir, Jónbjörn Bogason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir og bróðir,
ÁSKELL S. O. KJERULF,
Bogahlið 11,
lést í gjörgæsludeild Landakotsspítala 17. júlí.
Sigrún Kjerulf,
Áskéll Kjerulf,
Sigrfður Þ. M. Kjerulf.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SAMÚEL JÓHANNSSON
prentari,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 20. júlí
kl. 13.30.
Lilly Alvhilda Samúelsdóttir, Margeir Pétur Jóhannsson,
Karl Jóhann Samúelsson, Berit Ingibjörg Samúelsson,
Anna María Samúelsdóttir, Garðar Olafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURJÓN HALLBJÖRNSSON
símvirkjameistari,
Sörlaskjóli 82,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. júlí kl.
15.00.
Halldóra Guöný Sigurjónsdóttir, Baldur Karlsson,
Erna Sigurjónsdóttir, Guðmundur K. Arnmundsson
Berglind Baldursdóttir, Sigríður Baldursdóttir,
Maria Guðmundsdóttir, Jessica Ásdis Brigham.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lángamma,
INGIMUNDA ÞORBJÖRG GESTSDÓTTIR,
Austurtúni 2,
Hólmavfk,
verður jarðsungin fimmtudaginn 20. júlí kl. 10.30 í Fossvogskap-
ellu.
Jóhann Guðmundsson, Soffía Þorkelsdóttir,
Ingimundur Guðmundsson, Ásdís Ólafsdóttir,
Halldór Guðmundsson, Sóley Tómasdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Guðmundur Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
FURUHÚSIÐ
Grensásvegi 16 — 108 Reykjavík — Sími 687080
Wí—3-*—j' X íX í" i. ■ Í 1 J-f-4- 'ft' jH-f-T-n-} S'á-ijO i ifft-irj-t-R'K^gcSTll'H TÍ' 9'TgTtW