Morgunblaðið - 19.07.1989, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞRÖTTIR MÍDVlRUUAGUK 19. JÚLÍ 1989
43
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Sigurður Jónsson er á leið til Arsenal, ef marka má brezk dagblöð. Hér
er hann hinsvegar í leik með íslenska landsliðinu á Laugardalsvelli.
Brezku blödin
veðja á Arsenal
Sigurður Jónsson er að öllum
líkindum á leið til ensku meist-
aranna Arsenal, að því er brezk
blöð greindu frá í gærmorgun. Sig-
urður ræddi í gær við George Gra-
ham, framkvæmdastjóra Arsenal,
en að því er Sigurður sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi á
enn eftir að útkljá ýmis deilumál.
Að sögn brezkra blaða er fram-
kvæmdastjóri Arsenal, George Gra-
ham, aðeins tilbúinn til að bjóða
400 þúsund pund í Sigurð en Sheff-
ield Wednesday vill fá 750 þúsund
pund eða sömu upphæð og Celtic
bauð í hann á sínum tíma.
Ef samningar takast um allt
nema upphæð, mun sérstakur dóm-
stóll skera úr um þá tölu en búast
má við að hún verði nær því sem
Sheffield Wednesday vill fá.
„Ég á eftir að ræða við fram-
kvæmdastjóra Chelsea og það verð-
ur ekki fyrr en þá að ég tek endan-
lega ákvörðun,“ sagði Sigurður
Jónsson í gær. „Ég hef talað við
Graham og Clough en ýmis atriði
ber á milli. Tilboðin eru í sjálfu sér
svipuð og því erfitt að gera upp á
milli þeirra," sagði Sigurður.
Það sem gerir það að verkum
að brezku blöðin telja nú líklegra,
að Sigurður fari til Arsenal fremur
en til Nottingham Forest, er að allt
bendir til að John Sfteridan sé á
leiðinni frá Leeds til Forest en þeir
leika sömu stöðu.
KNATTSPYRNA
Guðmundur gerir
þriggja ára samn-
ing við St. Mirren
Morgunblaðið/Stuart Cunningham
Guðmundur Torfason og Gordon Smith, lögfræðingur St. Mirren, tak-
ast í hendur eftir samningagerðina í gærkvöldi.
GUÐMUNDUR Torfason,
landsliðsmaður f knatt-
spyrnu, hefur komist að sam-
komulagi við skoska úrvals-
deildarliðið St. Mirren. Guð-
mundur mun skrifa undir
þriggja ára samning og fer
líklega með liðinu í keppnis-
ferð um helgina til eyjunnar
Manar þar sem St. Mirren
tekur þátt í sex liða móti. Það
sem stendur í vegi fyrir að
gengið verði frá endanlegum
samningi er að St. Mirren og
Genk, belgfska liðið sem á
söluréttinn á Guðmundi, eiga
eftir að koma sér saman um
kaupverðið en líklegt er að
það verði um 300-400.000
sterlingspund.
Mér líst mjög vel á liðið og
allar aðstæður hér í Paisley
eru mjög góðar. Ég hef verið á
þvælingi um Evrópu undanfarin
ár og kominn tími til að finna sér
fast heimilisfang," sagði Guð-
mundur i samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Genk bauð mér
tveggja ára samning en boð St.
Mirren er mun betra. Ég átti einn-
ig í viðræðum við tvö austurrísk
lið, Sportclub Vín og Austria Salz-
burg en það varði ekkert úr því.
Ég er mjög ánægður með þessa
niðurstöðu og líst vel á að leika
í Skotlandi.
Áhugi _St. Mirren vaknaði á
landsleik íslands og Austurríkis á
Laugardalsvellinum. Meðal áhorf-
enda voru forstjóri og þjálfari
Celtic sem höfðu augastað á Guð-
mundi. Ekkert varð úr því en
þjálfari Celtic benti forráðamönn-
um St. Mirren á Guðmund.
Guðmundur lék sinn fyrsta leik
með aðailiði St. Mirren í gær-
morgun, gegn varaliði liðsins og
skoraði eitt mark. „Við erum mjög
ánægðir með að fá hann 5 í okkar
raðir,“ sagði Frank McGarvie,
aðstoðarframkvæmdastjóri St.
Mirren í samtali við Morgunblaðið
í gær. „Hann les leikinn vel, getur
skorað mörk, hefur góðar stað-
setningar, og hann veit upp á hár
hvemig á að {júka dæminu upp
við markið,“ sagði McGarvie.
KNATTSPYRNA /.BIKARKEPPNI KSÍ
Umdeilt
sigur-
markí
Garðinum
VÍÐISMENN léku einn sinn
besta leik á sumrinu þegar
þeir mættu íslandsmeisturum
Fram í gærkveldi. Þegar frá
upphafi börðust þeir af miklum
krafti, spiluðu af skynsemi og
áttu ágæta leikkafla. Framarar
voru hins vegar sterkari aðilinn
í leiknum og áttu sigurinn ski-
lið, þrátt fyrir að sigurmarkið
hafi verið mjög umdeilt, svo
ekki sé meira sagt.
Víðismenn byijuðu leikinn af
miklum krafti og strax á 13.
mínútu náðu þeir forystunni, þegar
Vilberg Þórðarson gaf góða stungu-
IHH sendingu á Klemenz
Frá Kristínu Sæmundsson, sem
Bjömsdóttur skoraði örugglega
á Suðumesjum. með föstu skoti frá
markteig.
Víðismenn voru ekki á því að
gefa neitt eftir þrátt fyrir þessa
góðu byijun og héldu áfram að
sækja. Þeir fengu alveg upplagt
tækifæri til að bæta öðru marki við
á 23. mínútu þegar Vilberg fékk
boltann einn og óvaldaður frammi
fýrir markinu og átti einungis eftir
að sigrast á markverði Fram, Birki
Kristinssyni. Birkir sá hins vegar
við Vilbergi með góðri markvörslu.
Framarar voru mun ákveðnari í
síðari hálfleik og strax á þriðju
mínútu eftir leikhlé fengu þeir gott
færi eftir að Kristinn R. Jónsson
hafði gefíð á: Guðmund Steinsson,
sem skaut boltanum í fæturna á
einum vamarmanni Víðis. Jöfnun-
armarkið kom svo á 60. mínútu.
Pétur Ormslev gaf fyrir markið,
Gísli Hreiðarsson, markvörður
Víðis, sló knöttinn beint til Ómars
Torfasonar, sem skoraði úr þröngu
færi.
Það var hins vegar alveg ljóst
að markið lá í Ioftinu og það kom
fyrr en varði, þó heldur hafi það
nú verið umdeilt. Ragnar Margeirs-
son fékk boltann fyrir utan teig
eftir langa stungusendingu, lék nær
markinu, og hörkuskot hans var
óveijandi fyrir Gísla.
Allt ætlaði um koll að keyra
vegna þessa marks, því heimamenn
vildu meina að Ragnar hefði verið
rangstæður. Dómarinn, Magnús
Jónatansson, var hins vegar ekki í
neinum vafa og dæmdi markið gilt.
Úrslitin voru þar með ráðin og
Framarar héldu áfram að sækja til
leiksloka. :.
Daníel Einarsson var besti maður Víðis í gærkveldi.
um félaga sinn hjá ÍBK, Ragnar Margeirsson,
MorgunblaðíÖ/Júlíus
Hér stöðvar hann fyrr-
Eyjamenn
í undanúrslit
LIÐ ÍBV, sem leikur í 2. deild,
gerði sér lítið fyrir og sló
Skagamenn út úr bikarkeppn-
inni í gær, 4:2. Eyjamenn voru
einfaidlega betri, þrátt fyrir að
þeir væru á útivelli og aðeins
stórgóð markvarzla Svein-
bjarnar Allanssonar kom í veg
fyrir enn stærra tap Skaga-
manna.
Eftir aðeins 52 sekúndur af
leiknum kom Hlynur Stefáns-
son Eyjamönnum S 1:0 eftir mikinn
darraðardans í vítateig Skaga-
■HHI manna en aðeins
Frá Sigþóri fimm mínútum síðar
Einkssyni jafnaði Guðbjöm
áAkranesi Tryggvason metin
fyrir IA, 1:1 og
bjuggust áhorfendur þá við að
heimamenn myndu færa sig upp á
skaftið en það var öðm nær.
Eyjamenn tóku völdin í sínar
hendur og á 19. mínútu skallaði
Ingi Sigurðsson í netið eftir góða
sendingu fyrir markið, 2:1. Þeir
áttu auk þess fjöida færa og þríveg-
is varði Sveinbjörn Allansson mjög
vel þegar þeir komust S opin færi.
Strax á fyrstu mínútu siðari hálf-
leiks jafnaði Bjarki Gunnlaugsson
fyrir heimamenn, 2:2, með föstu
skoti eftir ágæta sókn. Við það
hresstust heimamenn en tókst ekki
að skora.
En á si'ðasta stundarfjórðungnum
gerðu gestirnir út um leikinn með
tveimur mörkum. Hið fyrra skoraði
Hlynur Stefánsson á 77. mínútu
eftir að hann og Sigurlás Þorleifs-
son höfðu spilað sig i gegnum
Skagavörnina, 3:2. Fjórða og
síðasta Eyjamanna gerði siðan
„gamli maðurinn" sjálfur, Sigurlás
Þorleifsson aðeins fjórum mínútum
siðar.
Sigur Eyjamanna var fyllilega
sanngjarn. Þeir vörðust vel, voru
sterkir í vörn og eru auk þess með
eldfljóta og hættulega framheija.
Hlynur Stefánsson, Ólafur Ámason
og Sigurlás Þorleifsson áttu sérlega
góðan leik.
Skagamenn vom hins vegar afar
slakir. Sveinbjöm Allansson, mark-
vörður, og Guðbjöm Tryggvason
vora þeirra beztir og komu í veg
fyrir enn stærra tap.
Valur—KR | “
íkvöld I ÚRSLIT
í KVÖLD fer fram síðasti leik- I ...................
urinn í 8-liða úrslitum bikar- I
keppni KSÍ. Þá eigast við I 4. deild E:
Valur og KR á Hlíðarenda. ■ KSH-Leiknir..........0:4
■■■■■■•- -A®íét§ií«rðsf9n3.R4bert.gw£ánsson.j