Morgunblaðið - 27.08.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.08.1989, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C 193. tbl. 77. árg. SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 1989 PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS Skylda að bera skilríki í Peking Peking. Reuter. ÖLLUM Pekingbúum, 16 ára og eldri, hefur verið fyrirskipað að bera alltaf á sér persónuskilríki og framvísa þeim þegar her- eða lögreglumenn krefjast. Lög þessa efhis taka gildi 1. september nk. en í Peking hefur enn ekki verið aflétt herlögunum, sem sett voru 20. maí sl. Eru vopnaðir hermenn enn á verði við brýr og mikilvæg gatnamót og krefjast þess reglulega, að vegfar- endur sýni skilríki. I október nk. eiga allir Kínverjar að vera komnir með ný persónuskilríki. Vestrænir stjórnarer- indrekar í Peking telja, að nokkur þúsund manns hafi verið handtekin síðan andóf námsmanna var brotið á bak aftur í júní sl. Gáleysisleg skíðamennska Lillehammer. Reuter. SAUTJÁN ára norskur skíðamaður hefur verið ákærður fyrir gáleysislega skiðamennsku, sem leiddi til þess, að sjö ára stúlka slasaðist illa. Litla stúlk- an þurfti að liggja á spítala í tvo mán- uði. Pilturinn er ákærður fyrir að hafa með gáleysi sínu valdið slysinu og á yfir höfði sér allt, að sex mánaða fang- elsisdóm. Danmörk: Prinsarnir í frjálsu falli Kaupmannahöhi. Frá Nils Jörgen Bruun, frétta- ritara Morgunblaðsins. DÖNSKU prins- arnir, Friðrik og Jóakim, munu í fyrsta skipti stökkva í fallhlíf úr þriggja kíló- metra hæð á mánudag. Er það liður í þjálf- un þeirra hjá orrustuflug- sveit, sem hefur aðsetur í Ála- borg. Þeir munu einnig læra að stjórna F-16- orrustuþotu. Prinsarnir munu stökkva fjórum sinn- um hvor og hefja hvert stökk á ftjálsu falli í um það bil eina mínútu, áður en fallhlífarnar verða opnaðar. Móðir þeirra, Margrét Þórhildur, hefur sett sem skilyrði, að drengirnir verði ekki um borð í sömu flugvélinni samtímis. LEYNDARDOMAR TRITONS Reuter Myndir frá Trítoni, fylgitungli reikisfjörnunnar Neptúnusar, hafa vakið mikla athygli vísindamanna, sem segja þær sýna að á tunglinu séu eldflöll og jöklar, Qallahryggir og klettabelti, frosin vötn og mýrlendi. Myndina að ofan tók bandariska könnun- arfarið Voyager af Tríton á fostudag. Sjá „Afrakstur ferðar Voyagers ...“ á bls. 4. Takako Doi í samtali við Morgunblaðið: Útílokar ekki þingkosningar í Japan eftir nokkrar vikur TAKAKO Doi, formaður japanska Sósíalistaflokksins og leiðtogi stjórnarandstöð- unnar á japanska þinginu eftir sigur flokksins í kosningunum til öldungadeildar japanska þingsins í júlí, sagði í símtali við Morgunblaðið nú fyrir helgina, að hún útilokaði ekki að efiit yrði til kosninga þegar í nóvember. Að öllu óbreyttu ætti að kjósa til neðri deildarinnar eftir tvö ár. Staða stjórnarflokksins, helsta andstæð- ings Doi, veiktist enn í vikunni vegna hneykslismála og afsagnar helsta aðstoðar- manns forsætisráðherrans. Var kona skipuð í hans stað í von um að unnt yrði að skáka Doi. Takako Doi er fyrsta konan sem kemst til pólitískra áhrifa í Japan og jókst fylgi flokksins mjög mikið í kosningunum nú í júlí. í símtalinu sagðist hún stolt af þeirri samstöðu sem japanskar konur hefðu sýnt. „Mér finnst að konur víða um lönd geti glaðst, fyrst þetta er unnt í Japan leyfi ég mér að segja það eigi að vera hægt hvar sem er í heiminum." Þegar hún var spurð hvernig það legðist í hana að taka við forsætisráðherraembætti ef flokkur hennar ynni ámóta sigur í næstu kosningum hvort sem þær verða í nóvember eða ekki sagði Takako Doi: „Við skulum nú sjá til. Það er best að tala gætilega en ég hef aldrei skorast undan að axla ábyrgð og hef vonandi það sjálfstraust sem til þarf.“ Sjá Mannsmynd og símaviðtal við Takako Doi á bls. 14 og 15. ÞORP í HELJARÞRÖM I\KVKO 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.