Morgunblaðið - 27.08.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. AGUST 1989
17
IK
Hægt að gera reyfara-
kaup í Flórída
Fró Atla
Steinarssyni í
VERZLUN ARFERÐIR til annarra
landa hafa oft komist í tízku á
íslandi — og eru líklega alltaf í
tízku og mega því teljast klass
ískar. Þeir sem eldri eru minnast
Gullfossferðanna sem hófust 1950,
þegar heilu skipsfarmamir af ís-
lendingum stormuðu um verzlanir
í Edinborg og Glasgow kaupandi
allt sem hönd á festi, ekki alltaf
vegna þess að hlutinn vantaði,
heldur af því að hann var svo
miklu ódýrari en á íslandi. Margir
farandsalar i Skotlandi lögðu
grundvöll að góðum efhahag
sinum með því að selja ýmsan
varaing á kæjanum þar sem Gull-
foss lá bundinn milli flóða í Forth-
firði 12 stundir í viku hverri. Það
var meiri sala í tekexi, sælgæti
og ýmsum smávarningi þann dag,
en alla aðra daga vikunnar saman-
lagt hjá farandsölunum.
FS
Mugfélögin byggðu síðar á þess-
um sama grunni og fluttu kaup-
óða Islendinga í förmum til Glasgow
— og gera víst enn. Lundúnaborg
og Amsterdam eiga líka miklum vin-
sældum að fagna í þessum efnum.
Islendingar þurfa ekki nema svona
10-12 klukkutíma til að eyða vertí-
ðarhírunni sinni, afganginum af árs-
kaupinu, eða úttektarheimild
greiðslukortanna. En þetta hefur oft
margborgað sig að sögn þátttakenda
í slíkum ferðum, þeir hafa fatað sig
og birgt upp fyrir miklu minni fjár-
upphæð en þurfti til sömu kaupa
heima á Fróni, og gátu að auki not-
ið nokkurra klukkutíma eða nokk-
urra kvölda gamans á börum og
skemmtistöðum. Þetta hefur engan
ergt nema íslenzka kaupmannastétt,
sem misst hefur vænan spón úr aski
sínum.
Líklega hafa þeir íslendingar, sem
Dómkirkjan
Ferð eldri
borgara í
Dómkirkju-
sókn
ÁRLEGA hefur verið efiit til
stuttrar ferðar með eldri borgur-
um í Dómkirkjusókn. Á miðviku
daginn kemur, þann 30. ágúst,
verður lagt upp frá Dómkirkj
unni klukkan 13.
Ferðinni er heitið um Mosfells-
heiði og Grafning að Nesjavöll-
um og áfram um Ulfljótsvatn og
Sog til Hveragerðis. Þar verður
drukkið kaffi á Hótel Örk. Síðdegis
verður Þorlákskirkja heimsótt, þar
sem Gunnar Markússon kirkjuvörð
ur mun sýna kirkjuna og muni
hennar. Þar annast prestar Dóm-
kirkjunnar helgistund áður en hald-
ið verður heim á leið.
Vænst er góðrar þátttöku eldri
safnaðarsystkina og verður skrán-
ing í ferðina á mánudag og þriðju-
dag milli klukkan 14 og 16.
- Sr. Jakob Iljálmarsson
vilja verzla ódýrt, enn ekki almennt
uppdagað ávinninging af því að
verzla ódýrt í Flórída. Hér fæst
margt sem er hræódýrt miðað við
búðarverð á Islandi — og hér nær
fólk sólbrúnku á mettíma.
Hér var t.d. nýlega á ferð mjög
veraldarvön íslenzk kona, sem öðrum
betur þekkir verzlunarhætti austan
hafs og vestan vegna búsetu um tíma
vestan hafs og góðra möguleika til
að komast þangað sem hugur hennar
gimist hverju sinni. Hún kom hingað
til að verða sólbrún á mettíma en
konan mín sýndi henni nokkrar búð-
ir, m.a. „heildsöluklúbb“ sem við
hjónin höfum „fundið" á nokkurra
mánaða dvöl okkar hér, og selur
varning oft á ótrúlega lágu verði, sem
án efa byggist að mestu á risainn-
kaupum keðjuverzlana. Hér er vöru-
verð lægra en víða annars staðar í
Bandaríkjunum, m.a. á New York
svæðinu. Söluskattur í Flórída er líka
með lægsta móti, eða „aðeins" 6%.
Konan veraldarvana hafði ekki
áður heyrt á þessar búðir minnzt,
þrátt fyrir fjölþætt kynni af ódýrum
verzlunum víða um heim. Hún varð
óð og uppvæg og keypti og keypti.
Hún keypti ðtal hluti, stóra og smáa,
og m.a. birgðir af sokkabuxum sem
hún taldi nægja sér næstu árin. Hún
hafði ekki í öðrum löndum, ríkjum
eða borgum fundið slíkan vaming á
jafn lágu verði. Þetta er ef til vill
þarfi rannsóknarefni iyrir- innkaupa-
stjóra Flugleiða, sem nú þurfa sokka-
buxur á svo til alla flugfreyjustéttina
á íslandi.
Engin verzlunarmiðstöð eða
„kringla" í Flórída er jafnþekkt með-
al íslendinga og „Florida Mall“. Þar
er hátt á annað hundrað verzlana,
m.a. stórbúðir og J.C. Penny, Sears
og Maison Blanche með öllum sínum
deildum. Þessi „kringla" er áföst við
Sheraton Crown Plaza-hótelið, þar
sem íslendingum þykir gott að búa,
þó þeir geti fengið ódýrari.gistingu.
Mörgum finnst aðalkosturinn felast
í því, að innangengt er í búðirnar.
Sumir fara því aldrei út úr þessu
húsi, fyrr en þeir halda út á flugvöll
aftur heim á leið.
Afgreiðslufólk í ýmsum verzlunum
þarna hefur tjáð mér, að oft beri
Islendinga að garði og þeir þykja
aufúsugestir í búðunum. „Þeir hafa
allir mörg greiðslukort — og flestir
gullkort," sagði afgreiðslumaður í
herrafataverzlun einni og mér fannst
móta fyrir dollaramerkjum í augum
hans.
Kona mín og dóttir voru staddar
í kvenfatabúð í „Mallinu" og hafði
það borizt í tal við afgreiðslustúlku
að þær væru íslenzkar. Meðan þær
voru þarna hringdi síminn og fór
stúlkan að sinna honum. Eftir nokk-
urt þjark bað hún íslenzku mæðg-
urnar um aðstoð, því í símanum var
íslenzk kona að panta sé_r fatnað, sem
átti að senda henni til íslands. Einu
erfiðleikarnir við viðskiptin voru, að
hún gat ekki stafað nafn sitt og
götuheiti svo að afgreiðslustúlkan
skildi. Með þær í búðinni leystist vel
úr þessum vanda. Það eru því sjálf-
sagt margir sem vita, hve ódýrt og
gott það er að verzla í Flórída — og
kannski hefjast verzlunar- og sólbök-
unarferðir þangað fyrr en varir — •
ef Flugleiðir fjölga þangað ferðum,
eða önnur félög taka þær upp. Eins
og er er ekki flogið til Orlando nema
tvisvar í viku og vegna mikillar um-
ferðar þarf að panta far með alllöng-
um fyrirvara, — en það er önnur
saga. Nú er möguleiki á að komast
til Orlando á fimmtudegi og heim á
sunnudegi — eða vera hér frá laugar-
degi til föstudags. Verzlanir eru opn-
ar alla daga fram á kvöld.
Glæsilegasta feróaúrvaf haustsins
Benidorm og
Costa del Sol
Benidorm og Costa del Sol sam-
an í einni ferð.
Hér færóu notið þess besta fró
þessum vinsælustu sólarströnd-
um Spánar meó því að dvelja í
viku á hvorum stað og ferðast á
milli með beinu flugi sem tekur
aðeins 45 mínútur. Og að sjálf-
sögðu nýtur þú þjónustu Verald-
ar allan tímann.
Brottför 19. sept.
Verð frá kr. 49.600,-
Frabærir mdguleikar í sólina
Benidorm og Madrid
Vika á Benidorm og 4 dagar í
hinni fögru höfuðborg Spánar,
Madrid. Hér færóu notið feg-
urstu baðstrandar Spánar og
lystisemda Madridborgar, m.a.
hinna einstöku safna, Prado og
Picasso, dagsferðar til Toledo
og heimsótt einstaka vínkjallara
gömlu miðborgarinnar með
íslenskri fararstjórn.
Brottför 19. sept.
Verð frá kr. 49.900,-
Costa del Sol
og London
Þú getur dvalið á okkar glæsi-
lega gististað, Benal Beach, í viku
og notið hins besta sem Costa
del Sol hefur upp a'að bjóða
og kórónað stuttan og velheppn-
aðan sumarauka með 2-3 daga
dvöl í höfuðborg Evrópu, Lon-
don.
Brottför 19. sept.
Verð frá kr. 46.920,-
Viðskiptaferiir Veraldar
Farseólar um vióa Veröld
Sérsamkomulag okkar vió flugfélög og hótelhringa
erlendis tryggja hagkvæmasta verð í viðskipta-
ferðum og ferð þín er skipulögð af sérfræðingum
í sérfargjöldum.
Singapore, Hong Kong, New York, Köln, London,
Brussel eöa París.
Vörusýningar
Véröld er einkaumboósaðili á íslandi fyrir vörusýn-
ingar í Þýskalandi.
Aðgöngumiðar, upplýsingarit og gisting fyrir eftir-
taldar sýningar:
Frankfurter International, Spoga í Köln, ISPO í
Munchen, Buchmesse í Frankfurt, ANUGA í Köln, K
í Dusseldorf o.fl.
Veraldarreisa 2
Jól i Thailandi
Glæsileg ferð til Thailands með
lúxus aðbúnaði og fararstjórn í
Veraldarreisustíl. Bangkok,
Pattaya og Chang Mai. Dvalió
er á hinu glæsilega nýja Dusit
Resort á Pattaya -ströndinni.
Kynnisferðir í Bangkok og frá
Pattaya.
Brottför 18. desember.
Verð kr. 128.900,-
Sérferðir Veraldar
Veraldarrreisa 1
Styttri valmöguleiki
Nú er Veraldarreisa 1 til Suður-
Ameríku uppseld og því bjóðum
við nokkur sæti í frábæran nýjan
valkost í veg fyrir Veraldarreis-
una. Brottför 13. nóvember og
nýr hópur hittir Veraldarreisufar-
þega í Caracas og dvelur með
hópnum síðari hluta ferðarinnar
við frábæran aðbúríaó.
Verð kr. 124.800,-
Vinsmökkun
I Móseldalnum
Fegursti hluti Móseldalsins, sigl-
ing
á Mósel og sælkeramáltíðir með
bestu vínum uppskerunnar í
þessu heillandi umhverfi. íslensk
fararstjórn, máltíðir, flug, gisting
og vínsmökkun innifalin.
Brottför 20. sept.
Veró kr. 38.900,-
FERflAMIflSIDfllN
Látiu tasfóim í tmióiwstu smufmia feróina þína
Austurstræfi 17, síml 622200