Morgunblaðið - 27.08.1989, Page 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 1989
ERLEIMT
INIMLENT
Sorpurðun
samþykkt í
Alfsnesi
Hreppsnefnd Kjalarneshrepps
hefur samþykkt að sorp af höfuð-
borgarsvæðinu verði urðað í landi
Álfsness. Nefndin hafði fellt að
veita urðunarleyfi í fyrri viku.
Reykjavíkurborg hefur náð sam-
komulagi við eigendur Álfsness um
kaup á landinu. Kaupverð er tæpar
100 milljónir króna. Hreppurinn
fellur frá forkaupsrétti sínum.
Hitaveita Reykjavíkur mun yfir-
taka hitaveitu hreppsins og u.þ.b.
70 milljón króna skuldir hennar.
Þar með mun orkuverð til Kjalnes-
inga lækka um helming.
Fjárlög næsta árs
afgreidd með haila
Ríkisstjóniin íhugar að leggja
fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár
fram með halla, að sögn
Steingrims Hermannssonar for-
sætisráðherra. Ólafur Ragnar
Grímsson íjármálaráðherra leggur
til að tvö þrep verði í virðisauka-
skatti sem leysir söluskatt af hólmi
um áramót; 15% á kjöt, mjólk og
fisk en 25% á annan vaming. Þá
hefur fjármálaráðherra lagt til að
fjárlagaár verði framvegis miðað
við 1. júní í stað áramóta nú.
Sænska akademían í
heimsókn á Islandi
Tíu af átján meðlimum sænsku
akademíunnar sóttu ísland heim til
að kynna sér íslenska menningu,
einkum tungu og bókmenntir.
Sænsku 'gestimir sóttu Halldór
Laxness nóbelsverðlaunahafa
heim og gáfu 900 þúsund krónur
til íslenskrar málstöðvar. Þeir fóru
að Borg á Mýrum, Reykholti og
Þingvöllum.
Seðlabanki vill
verulega vaxtalækkun
Bankar og sparisjóðir breyttu
ekki vöxtum síðasta vaxtabreyt-
ingadag þrátt fyrir að verðbólga
miðað við lánskjaravísitölu hafi
mælst 13,4% síðasta mánuð. Vext-
ir óverðtryggðra skuldabréfa em
nú 29-30%. Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri segir að óeðlilegur
munur sé nú á verðbólgu og vöxt-
um á óverðtryggðum útlánum og
gerir ráð fyrir að vextir lækki veru-
lega 1. september.
Óveiddur þorskur
á20krónur
Óveiddur þorskur selst nú á allt
að 20 krónur kílóið og dæmi era
um þeir' sem veitt hafa umfram
kvóta sinn greiði meira til að kom-
ast hjá sektum. Framboð er litið
þrátt fyrir hátt verð og fá færri
keyptan viðbótarkvóta en vilja.
Svíakóngur á
hreindýraveiðum eystra
Gústaf Adolf
Svíakonungur er
ásamt föraneyti
sínu við við hrein-
dýraveiðar á
Fljótsdalsheiði.
Konungur er
mikill áhugamað-
ur um skotveiðar
en ein ástæða þess að hann kemur
nú hingað er talin geislamengun
villtra dýra í heimalandi hans í kjöl-
far slyssins í Tsjemobyl.
Tap fyrir Austur-
ríkismönnum
Landslið íslands í knattspymu
tapaði 2-1 fyrir Austurríkismönn-
um í Salzburg á miðvikudag. RagTi-
ar Margeirsson skoraði fyrir Is-
land.
Þorvaldur til Forest
Þorvaldur Örlygsson knatt-
spyrnumaður úr KA hefur gert
atvinnumannssamning til tveggja
ára við enska 1. deildarliðið Nott-
ingham Forest.
£ f' Æ£mjk
ERLENT
Mazowiecki
kjörinn for-
sætisráðherra
Samstöðumaðurinn Tadeusz
Mazowiecki var á fimmtudag
kjörinn forsætisráðherra Póllands
og er hann fyrsti forsætisráðherra
kommúnistaríkis, sem er andvígur
kommúnista-
flokknum. Sov-
étmenn virtust
fyrir sitt leyti
samþykkja
kjörið, því tals-
maður utanrík-
isráðuneytisins
sagði að á
Mazowiecki
yrði litið sem „félaga". Áður en
af kjörinu varð, hafði Samstaða
fallist á að kommúnistar færu
með ráðherraembætti varnar- og
innanríkismála og e.t.v. kunna
ráðherrastólar kommúnista að
verða fleiri. Lech Walesa, einn
helsti frumkvöðull og leiðtogi
Samstöðu, táraðist við atkvæða-
greiðsluna um Mazowiecki og
kvaðst vona að stjóm hans yrði
ríkisstjóm allra Pólverja, sem
ieiða myndi þjóðina frá alræði til
lýðræðis.
50 ára afmæli
griðasáttmála Stalíns og
Hitlers
Á miðvikudag var þess minnst
í Éistlandi, Lettlandi og Litháen,
að 50 ár voru liðin frá undirritun
griðasáttmála Þriðja ríkisins og
Sovétríkjanna, en í þeim samningi
var m.a. kveðið á um skiptingu
ríkja Austur-Evrópu milli alræð-
isríkjanna tveggja. Eystrasalts-
ríkin þijú féllu í hlut Sovétríkj-
anna, sem hemámu þau og inn-
limuðu. Afmælisins var meðal
annárs minnst með þeim hætti,
Vjatseslav Molotov, utanríkisráðherra
Sovétrikjanna, undirritar griðasátt-
málann, en einræðisherrann Stalin
(bvítklæddur) stendur kampakátur við
hlið Joachims von Ribbentrops, ut-
anríkisráðherra Hitlers.
að um tvær milljónir íbúa Eystra-
saltsríkjanná tóku höndum saman
og mynduðu 600 km langa óslitna
keðju milli höfuðborga ríkjanna,
Tallín, Ríga og Vilnu. Mótmælin
fóru friðsamlega fram, nema í
Moskvu þar sem nokkur hundruð
manns söfnuðust saman. Þeim var
dreift með kylfuhöggum og há-
þrýstivatnsdælum og voru 75
menn handteknir.
Tékkar minnast
innrásarinnar
Nokkur þúsund Tékkar minnt-
ust á mánudag innrásar Varsjár-
bandalagsins árið 1968, en í Prag
réðust lögregluþjónar vopnaðir
kylfum og táragasi hvað eftir
annað á manngrúann. Fjöldi fólks
var barinn til óbóta og var að
sögn sjónarvotta því líkast sem
hemaðarástand væri í borginni.
Innrásin var fordæmd af Pólveij-
um og Ungveijum, en í Moskvu
var tilkynnt að slík innrás yrði
aldrei gerð nú, en hins vegar vildi
embættismaðurinn ekki svara
þeirri spurningu hvort innrásin
væri réttlætanleg eða ekki.
60 manns drukkna í
Thames
Um 60 manns fórust þegar
sanddæluprammi sigldi niður
fijótandi diskótek á Thames-á í
Lundúnum á aðfaranótt sunnu-
dags. Slysið var rakið til sam-
skiptaleysis og misskilnings skip-
stjóra sanddæluprammans. 84
komust lífs af úr slysinu.
Pólland:
Verkamenn snúa aftur til
vinnu að tilmælum Walesa
Varsjá, Washington, Bankok. Reuter. ,
JÁKNBRAUTARSTARFSMENN í Lodz, næststærstu borg Pól-
lands, sneru aftur til vinnu í gær að tilmælum Lechs Walesa, leið-
toga Samstöðu, eftir eins dags verkfall. Hin opinbera fréttastofa PAP
sagði að starfsmenn hefðu snúið til vinnu aðfaramótt laugardags.
Við höfum ákveðið að láta af
verkfallsaðgerðum og sanna
þannig stuðning okkar og traust á
forsætisráðherranum," sagði í yfir-
lýsingu jámbrautarstarfsmanna.
Þeir ræddu á föstudag við Tadeus
Mazowiecki, fyrrum ráðgjafa Sam-
stöðu, sem á fimmtudag var kjörinn
fyrsti pólski forsætisráðherrann í
yfir 40 ár sem ekki kemur úr röðum
kommúnista.
Walesa beindi þeim tilmælum til
pólskra verkamanna á föstudag að
þeir létu af verkföllum. Hann sagði
að þörf væri róttækra umbóta í
landinu og Pólveijar mættu ekki
standa í vegi fyrir þeim með verk-
fallsaðgerðum. „Við verðum að
bjarga Póllandi, ekki á kostnað
annarra, heldur með sameiginlegu
átaki,“ sagði Walesa.
í viðtali við bandarísku sjón-
varpsstöðina ABC kvaðst Walesa
vonast til að sjá fjörbrot kommúnis-
mans í Póllandi en hafnaði jafn-
framt kapítalísku fyrirkomulagi að
bandarískri mynd í landi sínu. „Við
munum byggja upp stjómkerfi sem
byggir á lýðræði og frelsi. Það verð-
ur ekki kapítalismi. Það verður
betra en kapítalismi," sagði Walesa.
Walesa sagði að Pólveijar þörfn-
uðust fjárhagsaðstoðar frá Banda-
ríkjunum og öðrum þjóðum til þess
að grynnka á erlendum skuldum
landsins sem nema 39 miljörðum
dala, um 23,400 miljörðum ísl.
króna.
Kommúnistaflokkurinn í Víet-
nam sakaði Samstöðu á laugardag
um gagnbyltingu í Póllandi og skor-
aði á pólska verkamenn að standa
vörð um kommúnismann. „Hið
sanna eðli pólitískra atburða í Pól-
landi er valdarán að undirlagi Sam-
stöðu með liðsinni ýmissa heim-
valdasinna, einkum Bandaríkja-
manna,“ sagði í forystugrein mál-
gagns víetnamska kommúnista-
flokksins, Nhan Dan.
Málaliðar þjálfa fíkni-
eftiaþrj óta í Kólumbíu
Bogota. Reuter.
MÁLALIÐAR frá Bretlandi, ísra-
el og Bandaríkjunum hafa þjálfað
varðsveitir kólumbískra fíkni-
efhaþijóta frá því í fyrra, að því
er leyniþjónusta Kólumbíu skýrði
frá í gær.
Talsmaður leyniþjónustunnar
sagði að málaliðarnir væra
fyrrverandi hermenn og hefðu þeir
þjálfað einkasveitir kókaínframleið-
enda í vopnaburði og hryðjuverkum.
Hann sagði að þeir væra á engan
hátt fulltrúar yfirvalda í löndum
sem þeir kæmu frá. Helsta blað
Kólumbíu, El Espectador, hélt því
fram að málaliðar í röðum fíkni-
efnaþijóta væru einnig frá Vestur-
Þýskalandi og Svíþjóð.
Afrakstur af ferð Voyagers
mun meiri en menn óraði fyrir
AFRAKSTUR af ferð banda-
ríska rannsóknarfarsins Voya-
gers annars er mun meiri en
nokkurn óraði fyrir þegar hon-
um var skotið á loft frá Cana-
veral-höfða á Flórída 20. ágúst
1977. Frá geimskoti hefur
hann sent um 70.000 ljósmynd-
ir til jarðar og gert hveija
uppgötvunina af annarri.
Vísindamenn segjast hafa öðl-
ast meiri þekkingu á reiki-
stjörnunum og sólkerfinu frá
því Voyager var skotið upp en
á þúsundum ára þar á undan.
Formlegri rannsóknarferð
Voyagers lauk á föstudag þó
áfram muni farið senda upplýs-
ingar til jarðar.
Voyager öðrum var skotið á
loft hálfum mánuði á undan
Voyager fyrsta. Tilgangurinn var
að rannsaka Júpíter og Satúmus.
Ekki var gert ráð fyrir að gagn
yrði af rannsóknarförunum nema
í um fimm ár. Þó var talið að þau
kæmust einnig til Úranusar og
jafnvel Neptúnusar og byggðist
það á svonefndri teygjubyssu-
kenningu sem gekk út á það að
í hvert sinn sem Voyager kæmi
inn í þyngdarsvið plánetu ykist
hraði farsins til muna er leiddi til
þess að það skytist fram hjá plá-
netunni og áleiðis til þeirrar
næstu. Reikistjömurnar hjálpuðu
því til við að slöngva Voyager
lengra og lengra frá sólu. Þannig
yfírgaf farið segulsvið jarðar á
40 þúsund km hraða á klukku-
stund 1977 en verður á 65 þúsund
km hraða þegar það fer frá Nept-
únusi.
Myndir af Neptúnusi tóku að
berast frá Voyager öðrum í júní
sl. og undanfarn- ■■■■■■É^B
ar vikur hefur
hann fundið
hvert tunglið af -
öðru við reiki-
stjömuna. Nær
daglega hefur
einhver ný uppgötvun verið gerð.
Stjarnfræðingar töldu að tvö
tungl væru á braut um Neptúnus,
Neireid og Tríton, en undafarna
daga hefur Voyager uppgötvað
sex ný tungl þar. I fyrradag var
Voyager næst Neptúnusi, eða
5.000 km ofar skýjatoppum
stjömunnar. Nokkr-
um stundum síðar
átti hann að fljúga
skammt frá tungl-.
inu Tríton, sem
minnir á jarðarbeij-
aís að útliti og er
eini fylgihnöttur
sem vitað er til að
hafí öfugan snúning
við reikistjörnu sína.
Mun rannsóknarfar-
ið senda um 8.000
myndir af Neptún-
usi og nágrenni
hennar til október-
loka. Vegna ijar-
lægðar frá jörðu, en
til Neptúnusar eru
4,5 milljarðar kíló-
metra, tekUr það
hvetja ljósmynd
flórar stundir og sex
mínútur að berast
til jarðar en merkin
berast á ljóshraða
eða 300.000 kíló-
metra á sekúndu.
Frá Neptúnusi
heldur Voyager
annar út úr sólkerf-
inu og til annarra
stjama. Mun hann
taka stefnuna á
stjömuna Síríus og
ef allt gengur að
óskum á hann
stefnumót við hana
eftir 350 þúsund ár
en fjarlægð hennar
frá jörðu er sex
milljónir ljósára. Til vonar og vara
var ákveðið að senda sýnishom
af mannlífi og menningu jarð-
arbúa með geimfarinu ef mann-
verar kynnu að verða einhvers
■■■■■■■■ staðar
Voyager 2: Siðasta reikistjarnan
Geimfariö Voyager 2, sem upphaflega var hannað til þess að
kanna einungis Júpíter og Satúrnus, er nú fariö hjá Neptúnusi,
áttundu reikistjörnu sólkerfisins frá sólu talið. Hér er yfjriit yfir 12
ára flug þess.
Flugið til Neptúnusar--------------------------------—
Voyager notaöi aödráttarafl hverrar reikistjörnu til þess aö þeyta
sór til næsta áfangastaöar. Feröin er nú oröiö meira en 7 milljaröa
km löng. n__________________
20. ágúst, 1977:
Skotiö frá Jöröu
Skilaboö til
Jaröar /
Nú erg upplýsíngar j
frá Voyager4
Stúndirog 6 mín- I
útur á leiö til jaröar, •
.•eri útvarpsbylgjur
feröast á Ijóshraöa i
þá 4,3 milljaröa km, j
sem eru til Jaröar.
Neptúnus kannaöur
LjóSnæm tæki kanna veöurfar, vindhraöa, sarhsetningu
og efni lofthjúpsíns. Útvarpsbylgjuloftnet mæla snúníngs^
firaöa reikistjörnunnar, en tæki, serri greina útvarps-
bylgjur og Ijós kanna hvaöaírdrriefni er aö finna f
lotthjúpnum og mæla.massa Neptúnusac,
Sólarnemi
Loftnet
L_
Trfton
og tengra
Trlton, tungl Neptúnusar er'
síöasti viökomustaöur Voyagers. '
Eftir þaö fer könnunarfariö úr sól^
kerfinu. Tríton er á stærö viö
Tungliö okkar, en snýst
öfugt viö snúning
Neptúnusar.
Hreyflll
til þess
eö breyta
stefnu
farslns.
. Eldaneytis-
geymlr
BAKSVID
eftirÁgúst Ásgeirsson
á vegi
þess. Silfur-
skjöldur með
mynd af nöktum
karli og konu var
sendur með en
ágreiningur var
um útlit myndarinnar. Hönnuðir
Voyagers vildu hafa konuna
þungaða en það olli deilum og því
fallið frá því. Auk skjaldarins eru
í geimfarinu myndir frá jörðinni
og segulbandsupptaka með sýnis-
hornum úr tónlist, barnsgráti, og
ávarpi Jimmy Carters, fyrrum
Bandaríkjaforseta, og fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, Kurts Waldheim. Má því
segja að Voyager annar sé nokk-
urs konar flöskuskeyti geimaldar
sem ferðast á 60 þúsund kíló-
metra hraða að ókunnri strönd.
Neptúnus er nú fjærst sólu af
reikistjömunum og verður það til
ársins 2113 vegna óvenjulegrar
brautar Plútós sem er ekki alveg
hringlaga. Hún er ósýnileg berum
augum vegna fjarlægðar.
Hjá bandarísku geimferða-
stofnuninni (NASA) vonast menn
til að halda sambandi við Voyager
allt til ársins 2020 en þá er gert
ráð fyrir að farið verði statt í
Andrómedu-stjörnumerkinu.