Morgunblaðið - 30.08.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.08.1989, Blaðsíða 1
40 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 195. tbl. 77.árg. MIÐVIKUDAGUR 30. AGUST 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bréf von Weizsáckers til Jaruzelskis: Yfirlýsing’ forsetans „lítilvægnr þvættingxir“ - segja vestur-þýskir repúblikanar Bonn. Reuter. REPÚBLIKANAR í Vestur-Þýskalandi gagnrýndu Richard von Weiz- sacker, forseta landsins, harðlega í gær fyrir að aftieita öllu tilkalli til pólsks landsvæðis. Von Weizsacker sendi Wojciech Jaruzelski, forseta Póllands, yfirlýsingu þess efiiis á mánudag í tilefni þess að 1. septem- ber nk. er hálf öld liðin síðan Þjóðveijar réðust inn í Pólland. Talsmenn repúblikana sögðu að von Weizsacker talaði ekki fyrir munn allrar þýsku þjóðarinnar. For- setinn vitnar í yfirlýsingu sinni til samnings sem gerður var árið 1970 og staðfestir núverandi vesturlanda- mæri Póllands. Hann segir að land sitt hafi heitið því „að gera hvorki nú né síðar kröfur til pólsks lands- svæðis". Repúblikanar vísuðu þessu orða- lagi á bug í gær sem „lítilvægum þvættingi". „Við mótmælum í nafni tveggja milijóna kjósenda Repúblik- anaflokksins þessum sögufölsunum Líbýa: Afimælishá- tíð í „para- dís á jörðu“ Kúvæt. Reuter. „KOMIÐ öll til paradísar á jörðu“ sagði í gær í flenni- stórri auglýsingu á forsíðu eins dagblaðsins í Kúvæt og í öðru sagði: „Við bíðum komu ykkar.“ Mikli, sósíalski alþýðuflokk- urinn í Líbýu er um þessar mundir að bjóða „vinum og velunnurum um heim allan“ að koma til landsins í tilefni af því, að 1. september eru liðin 20 ár síðan Muammar Gaddafi og nokkrir herforingjar aðrir steyptu Idris konungi af stóli. Verður mikið um dýrðir á af- mælinu og á tilstandið meðal annars að sýna umheiminum, að Gaddafi sé ekki jafn um- komulaus og sumir segja. „Við köllum til alla vini okk- ar og bræður og bjóðum þeim að koma til þessa lands ástúð- ar, ofgnóttar og frelsis; að verða vitni að sköpunarmættin- um, sem gegnsýrir þetta sam- félag hinna hamingjusömu,“ sagði í einni auglýsingunni og í annarri er væntanlegum gest- um boðið að „upplifa það, sem er að gerast í þessu græna landi hins fullkomna einstaklings- frelsis". Gaddafi heldur þvi fram, að í Þriðju Mgildu kenningunni, sem hann setti sjálfur saman, sé að finna lausn á öllum vandamálum mannanna og hvetur hann aðrar þjóðir til að fara 'að dæmi Líbýumanna og tileinka sér beint lýðræði án nokkurra afskipta ríkisvalds- ins. Þeir menn finnast þó, sem fullyrða, að Gaddafi sjálfur sé upphafið og einnig endirinn á líbýsku lýðræði. og lögbrotum,“ sagði í yfirlýsingu frá flokknum. Repúblikanar halda til streitu rétti Þjóðvetja til sameiningar innan landamæra Þýskalands frá árinu 1937 á þeirri forsendu að ekki hafi verið gert friðarsamkomulag eftir seinni heimsstyijöldina. Þótt fjármálaráðherra vestur- þýsku ríkisstjórnarinnar, Theo Waigel frá Kristilega sósíalsamband- inu í Bæjaralandi, hafi sjálfur sagst líta svo á að Þjóðveijar hafi lagaleg- an rétt til pólsks landsvæðis, luku ráðherrar upp einum rómi í gær og fordæmdu yfirlýsingar repúblikana. „Árás þessara hægriöfgamanna í óþroskuðum anda Hitlers-æskunnar á hinn virta þjóðhöfðingja ætti að taka af öll tvímæli um að á meðal leiðtoga repúblikana eru nýnasistar," sagði Jurgen Möllemann, mennta- málaráðherra Vestur-Þýskalands. Amnesty: Reuter Eiturlyfjastríðið íKólumbíu Sprengjur sprungu í sex áfengisverslunum í Medellin-borg, þar sem samnefndur eiturlyQasmyglhringur er með höfúðstöðvar sinar, og í ferðaskrifstofú í borginni Bogota. Á myndinni virða starfsmenn skrifstofiinnar verksummerkin fyrir sér. Enginn lýsti árásunum á hendur sér en lögreglan telur að hópur, sem tengist Médellin-hringnum, hafi þar verið að verki. Hópurinn er einnig grunaður um sprengjuárásir á níu banka í Medellin-borg á sunnu- dag. Þúsundir Kínverja ofsóttar Lundúiium. Reuter. Mannréttindahreyfingin Amn- esty Intemational skýrði frá því í gær að þúsundir Kínveija ættu yfir höfði sér aftökur eða langa fangelsisvist vegna ofsókna kínverskra sljórnvalda á hendur andófsmönnum eftir mótmælin í landinu í júní siðastliðnum. Hreyfingin sakaði kínversk stjórn- völd um að hafa beitt fjöldahapd- tökum, pyndingum, skyndiréttar- höldum og aftökum gegn andófs- mönnunum. Hún hvatti Li Peng, for- sætisráðherra Kína, til þess að binda enda á kúgunina og hætta að beita aftökum í pólitískum tilgangi. Stjórnvöld í Kína hafa vísað á bug ásökunum um að kínverskir hermenn hafi gerst sekir um fjöldamorð á mótmælendum er þeir létu til skarar skríða á Torgi hins himneska friðar í Peking 3. og 4. júní. Amnesty Int- ernational heldur því hins vegar fram að hermennirnir hafi að minnsta kosti myrt 1.000 manns. Mótmælin í Sovétríkjunum: Gorbatsjov samþykkti við vörun til þjóðernissinna Atök brjótast út að nýju á milli Armena og Azera Moskvu. Reuter, Daily Telegraph. MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétforseti lagði blessun sína yfir harðorða viðvörun miðstjórnar sovéska kommúnistaflokksins til þjóðernis- sinna í Eystrasaltsríkjunum, sem birt var um helgina, að því er Gennadíj Gerasímov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins Vátryggð fyrir einn milljarð Suzanne Mizzi, sýningar- stúlka sem sérhæfir sig í því að vera ber að ofan, sést hér ganga glaðbeitt út úr aðalbyggingu Lloyd-tryggingarfélags- ins í London. I gær vá- tryggði hún líkama sinn fyrir 10 milljónir punda (tæpan milljarð ísl. króna). Andlit sitt tryggði Suzanne Mizzi fyrir fimm milljónir punda, fótleggina fyrir eina milljón punda, bijóst fyrir tvær milljón- ir punda og handleggi fyrir eina milljón punda. Áfgang líkamans mat hún á eina milljón punda. Reuter upplýsti í gær. Um 80.000 rússne- skir verkamenn í MoldavíU fóru í verkfall er Æðsta ráð lýðveldisins ræddi á stormasömum fúndi hvort moldavíska ætti að vera ríkismál lýðveldisins. Sovésk stjórnvöld ákváðu að senda hermönnum í héraðinu Nagorno-Karabak og nágrenni liðsauka eftir að átök höfðu brotist út á milli Armena og Azera vegna deilunnar um héraðið. Gennadíj Gerasímov skýrði frá því á blaðamannafundi í Moskvu að Míkhaíl Gorbatsjov hefði samþykkt harðorða yfirlýsingu miðstjómar kommúnistaflokksins um helgina, þar sem þjóðernissinnar í Eystra- saltslöndunum voru varaðir við því að halda kröfum sínum til streitu eftir fjölmenna mótmælafundi í lönd- unum í síðustu viku. Miðstjórnin seg- ir þar ineðal annars að „stórslys" sé yfirvofandi verði ekki endi bundinn á „sefasýki þjóðernissinna" og „andsovéskar og andkommúnískar aðgerðir" þeirra. Þar sem Gorbatsjov hefur verið í sumarleyfi var talið að harðlínumenn hefðu samið yfirlýs- inguna án þess að Sovétforsetinn samþykkti hana. Leiðtogar þjóðemissinna í Eystra- saltsríkjunum kváðust furðu lostnir yfir því hve harðorð yfirlýsing mið- stjórnarinnar var og sögðu að það væri slæmt fyrir orðstýr Gorbatsjovs sem umbótasinna tengdist nafn hans slíkri yfirlýsingu. Þjóðernissinnarnir óttast að viðvörun miðstjórnarinnar sé fyrirboði róttækra aðgerða, jafn- vel valdbeitingar. Verkföll rússneskra verkamanna breiddust út í Moldavíu í gær og talsmaður skipuleggjendanna sagði að vinna hefði verið lögð niður í 99 verksmiðjum í borgunum Tíraspol, Benderíj og Kíshínev. Verkfalls- mennirnir eru óánægðir með nýtt frumvarp, sem Æðsta ráð lýðveldis- ins hefur tekið til afgreiðslu, þar sem gert er ráð fyrir því að moldavíska verði ríkismál lýðveldisins og tekið verði upp latneskt letur í stað kýr- ilísks. Hundruð Moldava komu sam- an fyrir utan þinghúsið til að krefj- ast þess að frumvarpið yrði sam- þykkt. Talið er að greidd verði at- kvæði um frumvarpið í dag. Vadím Bakatín, innanríkisráð- herra Sovétríkjanna, sagði að átök hefðu brotist út að nýju í grennd við héraðið Nagorno-Karabak í síðustu viku eftir að tilraun hefði verið gerð til þess að koma á nýrri stjórn í hér- aðinu, sem bryti í bága við stjórnar- skrá Sovétríkjanna. Sovésk stjórn- völd skipuðu nefnd til að stjórna héraðinu í janúar eftir að 100 manns höfðu fallið í átökum Armena og Azera, sem hvorirtveggju gera til- kalí til héraðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.