Morgunblaðið - 30.08.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.08.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIRUDAGUR 30. .ÁGÚST 1989 wmmm Morgunblaðið/Julíus íslensk getspá byggir í Laugardalnum „Við erum að undirbúa byggingu húss undir starf- semi okkar, í samvinnu við ÍSI og sérsamböndm; Húsið verður áfast núverandi íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugardal og framkvæmdir tieíjast í næsta mán- uði,“ sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson, framkvæmda- sljóri íslenskrar getspár. Hann sagði að kostnaður íslenskrar getspár við bygginguna væri áætlaður 50-60 milljónir króna. íslensk getspá, sem rekur Lottóið, hefúr verið með skrifstofur í húsi ÍSÍ í Laugardalnum, en verkstæði og lager í húsi Öryrkjabandalagsins. Nýja húsið verður um 2000 fermetrar og íslensk getspá verður í 1100 fermetra húsnæði. Þar af fara um 500 fermetrar undir skrifstofúr, en 600 fermetrar undir tölvur, verkstæði og lager. Húsið verður byggt áfast við hús ÍSÍ upp í hlíðina og inngangur í húsið verður sá sami og nú. Vilhjálmur sagði að ekki lægi ljóst fyrir enn hvem- ig íslensk getspá myndi fjármagna bygginguna. „Frá þvi að fyrirtækið tók til starfa hefúr einn hundraðshluti af veltu rannið í varasjóð, sem nú eru í um 30 milljónir króna,“ sagði Vilhjálmur. „Ég á von á að eignaraðilar fyrirtækisins sam- þykki á aðalfúndi í haust að þessi sjóður verði nýttur til byggingarinnar." VEÐUR I/EÐURHORFUR í DAG, 30. ÁGÚST YFIRLIT í GÆR: SPÁ: Norðan eða noröaustan stinningskaldi á Vestur- og norðvest- urlandi en hægari suðaustlæg átt í öðrum landshlutum en gengur í norðan og norðvestan stinningskalda um allt land síðdegis. Rign- ing norðanlands en fer að létta til sunnanlands undir kvöldið. Hiti 8-16 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FiMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðtæg átt og fremur kalt. Skýjað og dálitil rigning norðanlands er þurrt og víðast léttskýj- að syðra. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■J0° Hitastig: 10 gráður á Celsíus y Skúrir * V E' — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur R Þrumuveður m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 16 hálfskýjað Reykjavik 12 skýjað Bergen 13 skýjað Helsinki 12 skýjað Kaupmannah. 17 léttskýjað Narssarssuaq 6 súld Nuuk 3 rigning Ósló 18 hálfskýjað Stokkhólmur 17 hálfskýjað Þórshöfn 12 skýjað Algarve 26 skúr Amsterdam 18 skýjað Barcelona 25 léttskýjað Berlín 15 skýjað Chlcago 21 þokumóða Feneyjar 22 léttskýjað Frankfurt 17 skýjað Glasgow 16 skýjað Hamborg 17 skýjað Las Palmas 28 léttskýjað London 17 rigning Los Angeles 16 þokumóða Lúxemborg 15 skýjað Madríd 28 skýjað Malaga 27 skýjað Mallorca 26 alskýjað Montreal 19 skýjað New York 22 þokumóða Orlando 26 heiðskírt Paris 19 skýjað Róm 26 léttskýjað Vín 13 rigning Washington 24 þokumóða Winnipeg vantar Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra: Engin þörf er á nýjum skipum Menn geri út á eigin ábyrgð og ráði sjálfír gerð og stærð skipsins „ÉG TEL að það sé engin þörf á nýjum skipum," sagði Halldór As- grímsson sjávarútvegsráðherra aðspurður um hvort lánveitingar Fiskveiðasjóðs ættu að halda áfram á næsta ári eins og áður. 11 ný skip eru nú í smíðum fyrir íslendinga erlendis og bæði ráðherrann og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa lýst því yfir að minnka þurfi fiskiflotann til að auka hagkvæmni í rekstrinum. Halldór segist telja að almennar*reglur eigi að gilda um veiðiheimildir þannig að þeim verði ekki stjórnað frá degi til dags með stjómvaldsákvörðunum. Hann segir að útgerð, sem fengið hefúr ákveðna veiðiheimild, eigi að hafa sjálfsvald um hve stórt og vel búið skip sé notað til að ná hinum ákveðna afla, enda beri útgerðin sjálf ábyrgð á sínum rekstri. Reglur um lánveitingar til skipasmíða segja að 40% kaupverðs skuli vera eigið fé útgerðarinnar, en Halldór segir að í þeim efiium hafi lánastofnanir ekki farið að reglunum. „Eg hef nú eins og vitað er verið andvígur því að fjölga skipum í flot- anum,“ segir Halldór. „Hins vegar voru settar þær reglur fyrir fáum árum að aðilar sem eru í útgerð hefðu heimildir til að erndurnýja skip sín. Þá þótti nauðsynlegt að þeir gætu breytt þeim, meðal ann- ars með tilliti til breyttra aðstæðna, til dæmis að meiri þörf væri fyrir rýmri íbúðir manna og breytta meðferð afla. Út frá þessu voru settar reglur og um það rætt mjög ákveðið, að þeir sem fengju lán hjá Fiskveiðasjóði þyrftu að leggja 40% fram sem eigið fé. Ég lagði til á sínum tíma í ríkisstjórn að stjórnin samþykkti að aðrar lánastofnanir lánuðu alls ekki til skipakaupa. Þetta fékkst ekki samþykkt og var andstaða við því í þáverandi ríkis- stjórn. Ég átti hins vegar fund með forsvarsmönnum lánastofnana, þar sem sá almenni skilningur var stað- festur að viðkomandi aðilar þyrftu að leggja fram 40% eigið fé. Eg tel að hinar ýmsu lánastofnanir í landinu, án þess að ég tiigreini nein- ar sérstakar í því sambandi, hafi ekki unnið samkvæmt þessum regl- um og þar af leiðandi hafi verið ráðist í ýmsar fjárfestingar sem viðkomandi aðilar höfðu ekki burði til." Fiskveiðilöggjöfin gildi í sem lengstan tíma Halldór segir að einnig hafi skort á að viðkomandi íjármálastofnanir væru reiðubúnar að líta á hagsmuni sína og sinna umbjóðenda á breið- um grundvelli, það er að segja að ýmsar aðrar fjárfestingar sem þær höfðu áður lánað til tengdust hinum nýju. „Eins og ljóst má vera þá er mikilvægt að það gildi reglur í þessu sambandi sem séu bæði skýrar og almennar og ekki háðar duttlungum einstakra aðila í stjórnkerfínu," segir Halldór. „Ég hef einnig haldið því mjög ákveðið fram í mörg ár að mjög mikilvægt sé að fiskveiði- löggjöfín gildi í sem lengstan tíma. Um það náðist heldur ekki sam- staða. Stjórnmálamenn voru andvígir því og hagsmunaaðilar reyndar líka. Menn vildu gjarnan að lögin yrðu framlengd í eitt, tvö ár í þeirri von að eitthvað væri betra hinum megin, sem í sjálfu sér var ekkert annað en sjálfsblekking. Það var jafnframt rík krafa í því samkomulagi sem gert var um fisk- veiðistefnuna og þeim málamiðlun- um sem áttu sér þar stað, að sókn- armarkið væri mjög virkt, þannig að samkeppni gæti notið sín sem alira best. Þessi regla varð þess sem sé valdandi, að menn töldu sig geta farið út í íjárfestingar í þeirri von að geta bætt mjög afla sinn með því að nýta hið svokallaða sóknar- mark. Þetta hefur verið mikilvægur reynslutími og almennt eru menn nú að viðurkenna að sóknarmarkið hafí verið of rúmt og fiskveiðilög- gjöfin hafi gilt til of skamms tíma. Það má segja að við höfum þurft að greiða það meðal annars því verði að fjárfesting hafí verið meiri en góðu hófi gegndi. Hitt er svo annað mál að við verðum ávallt að eiga góðan fiskveiðiflota og ég býst við því að tiltölulega mikil íjárfest- ing nú allra síðustu árin en lítil sem engin næstu árin á undan muni fyrst og fremst koma fram í því að sáralítil fjárfesting muni eiga sér stað í flotanum á næstu árum og jafnvel áratug.“ Halldór segir ástæðuna fyrir því að rýmkað var um reglurnar á sínum tíma hafa verið þá, að forð- ast slíkar sveiflur. „Nú eru ýmsir famir að sjá að það er rétt að sam- eina veiðiheimildir og jafnvel þótt gildistími laganna hafí aðeins verið þijú ár síðast, þá er það fyrst þá, þegar menn sjá svo langan tíma, að þeir fara í einhveijum mæli að sameina veiðiheimildir og úrelda skip. Það hefur verið gert í allmikl- um mæli og sá áhugi fer vaxandi." Halldór segist munu beita sér fyrir minnkun flotans, meðal annars með stofnun úreldingarsjóðs sem hlíti almennum reglum." Hins vegar verði menn að beygja sig fyrir þeim staðreyndum að nútímafískveiðar krefjast betri skipa og betri að- búnaðar en áður, bæði fyrir menn, afla og tæki. Afkastageta skipanna hafi aukist mjög mikið, ekki síst vegna tæknivæðingarinnar. Skip sem afkastaði ákveðnum afla fyrir 15-20 árum geti aflað miklu meira í dag, aðeins vegna bættrar tækni. Óánægður með aukna sókn smábáta „Á sama hátt getur lítil trilla aflað miklu meira í dag en hún gat fyrir nokkrum árum vegna þess að vélvæðing og tækni hefur aukist mjög mikið. Þannig að afkastageta flotans verður ekki mæld eingöngu í stærð hans, heldur líka í þeirri þekkingu sem við höfum öðlast og við getum ekki af þeim sökum ver- ið á móti tækninni. Við hljótum að tileinka okkur hana og reyna þá að takmarka aflann sem mest við hvert skip þannig að hver og einn geti ákveðið með hvaða hætti er hagkvæmast að sækja hann í stað þess að vera að stýra því frá degi til dags hvaða búnað skipið hefur og hvað það er stórt. Ég tel að það eigi að hverfa og menn eigi að ákveða hveiju skipi aflaheimildir og síðan sé það ákvörðun hvers og eins hvort hann notar til þess tíu tonna skip eða tvö hundruð tonna skip að ná í þann afla. Það verður að vera mat þess einstaklings sem fer með stjórn þeirra verðmæta." Halldór segist vera mjög óánægður með þróun smábátaút- gerðarinnar, hve mikið sókn þeirra hefur aukist og afli um leið, og ekki hafa legið á þeirri skoðun sinni. „Ég er enn þeirrar skoðunar að þar þurfí að koma til endurskoð- unar.“ Hann segist hafa ýmsar hugmyndir um með hvaða hætti sókn smábáta verði takmörkuð, en segir ekki rétt að ræða þær á þessu stigi. „Við erum að vinna að endur- skoðun laganna og að því er unnið í nefnd sem hefur fengið það við- fangsefni og fyrstu hugmnyndir varðandi þessa endurskoðun verða væntanlega kynntar á næsta vetri,“ sagði Halldór Ásgrímsson. Í i > i i i h

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.