Morgunblaðið - 30.08.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.08.1989, Blaðsíða 19
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1989 ÍÍtírripmMúMí Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Ráðherra án ráðuneytis Aðalfundur Landssamtaka sauðflárbænda: Leitað verði allra leiða til að lækka verð til neytenda Á aðalfundi Landssamtaka sauðQárbænda sem haldinn var á Hvann- eyri 27. og 28. ágúst kom fram í máli Jóhannesar Kristjánssonar, form- anns samtakanna, að leita beri allra leiða til að lækka verð á dilkakjöti til neytenda. Hann sagði að draga mætti þá ályktun af reynslu Starfs- hóps um sölu lambakjöts, að unnt væri að auka sölu á dilkakjöti umtal- svert með lækkuðu verði til neytenda og breyttum áherslum í sölumál- um. Á fundinum voru samþykktar ýmsar tillögur sauðQárbænda, sem miða að því að stuðla að lækkuðu verði á dilkakjöti til neytenda. framtíðinni, svo og af verðlagi á innfluttu fóðri.“ Nýjasta uppátækið í til- raununum til að fá Borgaraflokkinn inn í ríkis- stjórn Steingríms Hermanns- sonar er að koma einum þing- manni Borgaraflokksins á ráðherralaun með því að gera hann að ráðherra án ráðu- neytis. Er þetta gert með fyrirheiti um að hann taki við umhverfisráðuneyti um áramót, en í rúman áratug hefur verið rætt um að nauð- synlegt sé að stofna það. Þá er sagt, að þessi ráðherra án ráðuneytis eigi að vinna að því að móta atvinnustefnu fyrir rikisstjórnina á meðan hann hefur ekki annað við að vera. Eins og menn muna var þessi ríkisstjórn mynduð með það að höfuðmarkmiði að fylgja fram nýrri atvinnu- stefnu og hafa Patreksfirð- ingar nú síðast kynnst henni harkalega í framkvæmd. Lög um stjórnarráðið voru sett á árinu 1969. Á þeim tuttugu árum sem síðan eru liðin hafa verið uppi ýmsar hugmyndir um breytingar á þeim. Hafa nefndir unnið að málinu og nú í sumar ein á vegum ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar. Vildi hún að ráðunejd;um yrði fækkað úr 13 í 10. Tillagan um að fjölga ráðherrum um tvo og fjölga síðan ráðuneyt- um í 14 til að báðir hafi eitt- hvað við að vera gengur þvert á þessar hugmyndir nefndar- innar. í írafárinu við að ná í Borgaraflokkinn verður allt annað að víkja. Ríkisstjórnin nýtur minna fylgis en nokkur önnur síðan mælingar á afstöðu almenn- ings til stjórnmálaflokka og ríkisstjórna hófust meðal okkar. Hún gengur einnig fram eins og hún þurfi ekki að taka neitt tillit til annars en þröngra eigin hagsmuna. Flestir telja líklega meiri þörf á öðru núna í atvinnumálum en að gera fleiri stjórnmála- menn að ráðherrum og það meira að segja án ráðuneytis. Allt er brýnna en slík at- vinnubótavinna. Þess er nú beðið, hvort borgaraflokksmenn taki gylliboðum Steingríms Her- mannssonar um ráðherra- stóla og aðrar vegtyllur. Valda- og aðstöðubrask af þessu tagi er einsdæmi. Þráin eftir að halda í ráðherrastól- ana stjórnar ferðinni og veld- ur því að enginn viðmælend- anna í þessum sérkennilegu viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar man eftir því, að Borgaraflokkurinn er með öllu fylgislaus meðal almenn- ings. Ólafur gegn Svavari Sigurbjörn Magnússon, formaður stjórnar Lána- sjóðs íslenskra námsmanna (LÍN), hefur sætt þungri gagnrýni frá Svavari Gests- syni menntamálaráðherra vegna þess að hann neitar að beita sér fyrir hækkun námslána nema samkvæmt skýrum fyrirmælum. Lánin verða ekki hækkuð nema sjóðurinn fái aukið fjármagn. Segist Sigurbjörn gjarnan vilja láta fjárveitingar duga. Menntamálaráðherra hefur gefið til kynna, að í þessari afstöðu felist flokkspólitísk andstaða við sig. í Morgunblaðinu í gær gagnrýnir Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra málstað Svavars Gestssonar, flokksbróður síns, í deilum hans við Sigurbjörn Magnús- son. Telur Olafur Ragnar að Svavar hafi ekki áttað sig á nýjum forsendum, sem sé þeim að ekkert aukið fé verði veitt til LÍN nema Alþingi samþykki það. „Mér sýnist ýmsir vinir mínir, bæði á Alþingi og annars staðar, ekki vera búnir að átta sig á því að nú fá þeir völina og þá líka kvölina,“ sagði Ólafur Ragnar í Morgunblaðinu. Ætli Svavar skilji sneiðina? Jóhannes Kristjánsson sagði að til að ná þessu marki þyrfti að fella niður söluskatt af matvæliim nú þegar eða í áföngum, lækka neyt- enda- og jöfnunargjald sem greitt er til Stofnlánadeildar og lækka þann skatt sem lagður er á dilkakjöt vegna úreldingar sláturhúsa eða leggja hann jafnframt á aðra slátr- un. Þá þyrfti að stefna að aukinni hagræðingu og hagkvæmni í rekstri búanna, sem leitt gæti til iækkunar á framleiðslukostnaði, og endur- skoða þyrfti rekstur sláturhúsa með tilliti til að draga úr slátur- og heild- sölukostnaði. „Það er ljóst að framt- íðarhorfur í sauðfjárbúskap ráðast fyrst og síðast af því hvernig til tekst með vöruþróun, markaðssetningu og verðlagningu afurðanna, en einnig af því hvort framleiðsla á svínakjöti og nautakjöti verður stjórnlaus í „Þetta eru ótíðindi mikil," sagði Þorvaldur Garðar Kristjánsson, annar þingmanna Sjálfstæðisflokks- ins í Vestfjarðakjördæmi. „Að þessu er langur aðdragandi og ömurleg saga og er sú saga ekki einstök fyrir Patreksfjörð. Staða sjávarút- vegs og fiskvinnslu hefur staðið höllum fæti hvar sem er á landinu og það kemur óhjákvæmilega hart niður þar sem um er að ræða undir- stöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Verst kemur þetta við þá landshluta sem mest byggja á sjávarútvegi eins og Vestljarðarkjördæmi.“ Þorvaldur Garðar sagði sjávarút- veginn ekki hafa haft rekstrar- grundvöll og hefðu meginástæðum- ar fyrir því verið röng gengisstefna og röng fiskveiðistefna. Afleiðing af þessu hefði verið rekstrartap frystihúsanna. „Allur þessi atvinnu- vegur hefur verið á sömu vegferð. Frystihúsin hafa verið mismunandi sett til að mæta þessum vanda. Það ANNAÐ og síðara uppboð á frystihúsi Hraðfiystihúss Pat- reksflarðar fór fram í gær. Bauð Fiskveiðisjóður 20 m.kr. i eign- ina. Þriðja og síðasta uppboð mun fara fram 25. september nk. Þá fór í gær fram þriðja uppboð Marka þarf skýra steftiu fram til aldamóta Jóhannes sagði ljóst að í framtíð- inni gæti sauðfjárframleiðslan ekki haldið uppi hinni dreifðu byggð landsins eins og hún hefði gert til þessa. Það yrði því að krefjast þess af stjórnvöldum að þau taki ákvörð- un um á hvaða svæðum landsins eigi að leggja niður sauðfjárbúskap, en að öðrum kosti benda á leiðir til að viðhalda byggðinni sé það mark- mið stjórnvalda. Ljóst sé að ekki verði gengið lengra með flatri skerð- ingu á framleiðslurétti, og marka þurfi á skýran hátt þá stefnu sem fara eigi eftir fram til næstu alda- móta. hefur farið eftir eiginfjárstöðu fyrir- tækjanna, þegar þessi óáran gekk yfir, og að sjálfsögðu stjórnunar- máta hvers fyrirtækis fyrir sig. Öll frystihúsin hafa verið á sömu leið en mismunandi langt kornin." Sagði hann sum húsin hafa getað haldið uppi rekstri með því að ganga á eigin fé en þegar það hefði ekki getað gengið lengur hefðu fyrirtæk- in lent í greiðsluerfiðleikum, greiðslustöðvunum og gjaldþrotum. Hraðfrystihús Patreksfjarðar væri komið að leiðarlokum í þessum efnu- im með gjaldþroti nú í sumar. Þeg- ar svo var komið hefði aðalvið- fangsefnið verið að halda skipum frystihússins á staðnum og í þeim tilgangi verið stofnað útgerðarfyrir- tæki sem bauð árangurslaust í skip Hraðfrystihússins við uppboðið í fyrradag. „Er nú vá fyrir dyrum þegar að skip þessi eru farin af staðnum og þar með óbærilega mikill hluti af á íbúð í eigu Hraðfrystihússins og' var Eyrarsparisjóði slegin íbúðin. Á næstu dögum munu fara fram uppboð á ýmsum öðrum eignum úr þrotabúi Hraðfrystihússins. Hraðfrystihús Patreksijarðar var lýst gjaldþrota 31. júlí sl. ræðum um frjálsan innflutning á landbúnaðarafurðum, og sagði ljóst vera að íslenskur landbúnaður yrði fyrir verulegum skakkaföllum ef af honum yrði, vegna margvíslegra nið- urgreiðslna og útflutningsstyrkja sem ættu sér stað í millilandaverslun með landbúnaðarvörur. „Hætt er við að verð myndi fljótlega hækka þegar búið væri að leggja landbúnað hér í rúst, en verslun með landbúnaðar- vörur er mjög hörð og þar er sið- gæði í lágmarki," sagði Jóhannes Kristjánsson. Steingrímur J. Sigfússon land- búnaðarráðherra vék að stöðu land- búnaðarins í ávarpi sem hann flutti á aðalfundi sauðfjárbænda. Hann kvað helsta ljósa punktinn vera að bændur væru fremur ríkir, þ. e. þeir skulduðu lítið og ættu mikið. Þetta gilti þó aðeins um þá sem ekki hefðu fjárfest síðustu árin og hefðu stund-_ að búskap um nokkurt skeið. Hann taldi ástandið hjá sauðfjárbændum líklega vera verst, og það sem ein- kenndi þá stétt væri hve margir bændur væru smáir í sniðum, en það hefði annaðhvort í för með sér lágar þeim fiskkvóta sem úr hefur verið að spila á Patreksfirði. Raunveru- lega var hér verið að bjóða upp kvóta á afarverði. Hér blasir við ein af skuggahliðum kvótakerfisins í allri sinni nekt. Það er fjármagnið sem ræður hver hneppir kvótann en ekki hvar hann verður nýttur á hagkvæmastan hátt þjóðhagslega séð. En hvað sem þessu líður er augljóst að Patreksfirðingar verða að fá sinn rétt til að draga fisk úr sjó til jafns við það sem áður var. Úm þetta hljóta allir að vera sam- mála. Á fundi sem haldinn var 8. júní í sumar um vandamál hrað- frystiiðnaðarins á Vestfjörðum lof- aði forsætisráðherra því að séð yrði um að Patreksfjörður héldi kvóta sínum hvað sem á dyndi. Ég vil ekki efast um að staðið verði við það loforð. Vandamál þau sem Pat- reksfjörður stendur nú frammi fyrir verða ekki leyst nema að stjómvöld hafi vilja til þess og sýni vilja sinn í verki. Ég geri ráð fyrir að forsvars- menn Patreksfjarðar komi í dag eða á morgun til viðræðna við ríkisstjórn og þingmenn kjördæmisins um þessi lífshagsmunamál byggðalagsins. En hveijar sem úrlausnir verða á ein- stökum vandamálum varðar auðvit- að mestu að rekstrargrundvöllur sjávarútvegsins verði tryggður með því að horfið verði frá rangri gengis- stefnu og rangri fiskveiðistefnu. Annars er allt unnið fyrir gíg. Ef sjávarútvegi er búinn almenn rekstrarskilyrði er hins vegar engu að kvíða með Patreksfjörð. Ef ekki er hægt að reka sjávarútveg á Pat- reksfirði er það hvergi hægt á landinu, slík er aðstaðan og náttúru- skilyrði þar,“ sagði Þorvaldur Garð- ar að lokum. Afleiðing fískveiðistefhunnar „Mér líst mjög illa á þetta. Þarna eru að koma í Ijós afleiðingar fisk- tekjur eða að tekjuöflun annarsstað- ar frá þyrfti að koma til. Framkvæmd sölunnar í hendur framleiðenda Steingrímur fy'allaði um söluher- ferð stjórnvalda á lambakjöti, og benti í því sambandi á að framleið- endur og vinnsluaðilar þyrftu að komast í betri tengsl við söluna. Það væri tæpast framtíð í því að stjórn- völd skuldbindu sig til að tryggja sölu á ákveðnu magni, og því yrði framkvæmdin að færast til framleið- enda sjálfra. Hann sagði að leita þyrfti allra leiða til að lækka fram- leiðslukostnað svo sem unnt væri, og auka þyrfti sveigjanleika í verð- ákvörðunum þannig að meira rúm gæfist fyrir aðgerðir í sölumálum sambærilegar við grillkjötsútsöluna. Koma þyrfti á laggirnar sérstökum vinnuhóp um svæðaskipulag fram- leiðslu, og efla þyrfti Jarðakaupasjóð til að kaupa jarðir þeirra sem vildu leggja niður búskap, og einnig til að hjálpa til við fyrningu þeirra mannvirkja sem dyttu út vegna bú- háttabreytinga. veiðistefnunnar, sem menn hefðu raunar átt að vita fyrir,“ sagði Kar- vel Pálmason, annar þingmanna Alþýðuflokksins fyrir Vestfjarða- kjördæmi. „Það verða hinir ríku sem nýta sér svona stefnu og kaupa alla kvóta. Þetta er nú eitt ljósasta dæmi þess og trúlega er þetta því miður fyrsta dæmið sem menn horfa upp á og hið alvarlegasta til þessa. Áð óbreyttri fiskveiðistefnu sýnist mér sem þetta mun halda áfram og hin óbreyttu sjávarpláss og landið í heild munu blæða." Þegar fiskafli væri heftur með þessum hætti þar sem hentugast væri að nýta hann þá hlyti landið að gjalda þess nema menn væru bara á því að byggja blokkir í Reykjavík og nýta allt þar. Sagði Karvel að þá myndu menn fyrr en seinna sjá á liði almennt ef það ætti að vera stefnan. „Vonandi opnast augu manna sem þessari ferð hafa ráðið við svona hnykk. Við Matthías Bjarna- son beittum okkur gegn þessu þegar kvótalögin voru endurnýjuð fyrir tveimur árum síðan og lögðum áherslu á að sjávarplássin yrðu að njóta sérstakra fríðinda en það var allt strádrepið á Alþingi. Þeir sem ráðið hafa ferðinni í kvótamálum bera ábyrgð á þessu. Það þarf hug- arfarsbrejrtingu á Alþingi," sagði Karvel Pálmason. Hann sagðist ekki vilja vera með neinar spár um framtíð Patreksfjarðar en það segði sig sjálft að þegar grundvallarat- vinnugreinin hrynur þá væri útlitið ekki bjart og hlyti það að áhrif á næsta nágrenni Patreksfjarðar. „Kannski sjá þeir sem ferðinni ráða ekki að sér fyrr en allt er komið í auðn nema suðvesturhornið. Mér sýnist allar ákvarðanir ráðamanna í þessum efnum stefna í þá átt að það beri að grysja þetta þangað til það er komið á þá staði sem þeir vilja hafa það,“ sagði Karvel að lok- um. í máli sínu vék Jóhannes að um- Þorvaldur Garðar Kristjánsson; Patreksfirðingar fái að veiða sama magii og áður ÞORVALDUR Garðar Kristjánsson, alþingismaður, segir að Patreks- firðingar verði að fá sinn rétt til að draga fisk úr sjó til jafns við það sem áður var. Um það hefðu ráðamenn gefið yfirlýsingar sem standa yrði við. Sjávarútvegurinn hefði ekki haft rekstrargrundvöll vegna rangrar fiskveiðistefiiu og rangrar gengisstefnu. Karvel Pálmason, alþingismaður, segir ástandið á Patreksfirði vera afleiðingu fiskveiði- stelhunnar. Að henni óbreyttri muni þetta halda áfram og hin óbreyttu sjávarpláss og landið í heild blæða. Fiskveiðisjóður bauð 20 milljómr í ftystihúsið MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1989 Björn Birkisson. Guðbrandur Hannesson. Leifiir Þórarinsson. Rúnar Hálfdánarson. Björn Birkisson, Birkihlíð; Samdrátt- ur óhjá- kvæmilegur „ÞAÐ sem brýnast er í sauðfjár- framleiðslunni í dag er að ná jafii- vægi á milli framleiðslunnar og þess sem hægt er að selja, og því er frekari samdráttur í einhveiju horfi að mínu mati óhjákvæmileg- ur, þar sem útflutningur virðist ekki vera mögulegur," segir Björn Birkisson, bóndi í Birkihlíð í Súgandafirði. „Menn eru alls ekki sammmála um hvaða leið eigi að fara í þessum efnum, en mér sýnist að þróunin sé sú að ekki sé langt í að jafnvægi náist, án þess að grípa þurfi til sérs- takra aðgerða. Menn ættu allavega að fara varlega í þær, en þó er and- inn gagnvart landbúnaði þannig að hann gefur okkur ekki það svigrúm sem við myndum þurfa, þannig að við erum þarna í vissri klemmu. Ég tel vera lítið svigrúm til þess að við getum tekið á okkur eitthvað það sem stuðlað gæti að lægra verði á sauðfjárafurðum, en með kvóta- skerðingunni höfum við verið píndir til þess að hagræða hjá okkur sjálf- um. Við fáum ákveðinn pening fyrir afurðirnar og á því verðum við að lifa. Ef við viljum svo bæta okkar kjör eða þrauka í verstu tilfellum, þá hefur ekki verið um annað að ræða en að auka hagræðingu og skipulagningu heimafyrir. Ég held að búið sé að ná þessu verulega í þessa átt, en tel samt að ef að er gáð þá komi í ljós að bændur eru með tekjulægstu stéttum hér í landinu. Umræður um innflutning á land- búnaðarvörum tel ég fráleitar, þar sem hann er meira og minna á brengluðum verðforsendum. Ef bændur hér eiga að framleiða á raunverulegu kostnaðarverði og keppa við verð á vöru sem búið er að niðurgreiða erlendis, þá er það út í hött. Menn eru að vaða reyk þegar þeir bera saman verð á þessum vör- um út úr verslunum hér og erlendis, þar sem grundvöllurinn á þessum verðum er ekki fyrirliggjandi. Þeir sem láta hæst í sér heyrast í þessum málum vilja ekki láta sannleikann koma í ljós, og glöggt dæmi um hvernig þessu er farið eru erlendu kartöflurnar sem fluttar voru til landsins í sumar, en þar má segja að vel hafi komið á vondan." Guðbrandur Hannesson, Hæk- ingsdal; Mótfallinn afskiptum ríkisvaldsins „ÉG hef verið mótfallinn þeim tillögum sem fram hafa komið um að ríkisvaldið ákveði á hvaða svæðum verði bannað að vera með sauðfé, heldur tel ég að ftjáls uppkaup á fullvirðisrétti séu eina færa leiðin til að stýra því hvar á landinu framleitt er,“ segir Guðbrandur Hannesson bóndi í Hækingsdal í Kjós. Guðbrandur sagðist telja að sú fækkun í sauðfjárframleiðslunni sem stöðugt ætti sér stað í sam- bandi við kynslóðaskipti væri gífur- lega mikil, og myndi leiða til þess að sá jöfnuður sem hann teldi að þörf væri fyrir í framleiðslunni kæmist á. „Til dæmis hefur verið stöðug fækkun af þessum sökum á hveiju ári síðan 1965 í Kjósinni, og held ég að svo muni halda áfram allt til aldamóta, og þá verði fáir sauðfjárbændur eftir á þessu svæði.“ Varðandi verðlagningu á dilka- kjöti sagði Guðbrandur að frjáls smásöluálagning sem leyfð var 1984 hefði leitt til þess að verðið hefði rokið upp úr öllu valdi og margfaldast. „Það virðist því þurfa að vera ákveðið hámarksverð á þessari vöru, eða að minnsta kosti að fólk geti haft valkost, og á boð- stólum sé ávallt haft kjöt í hálfum eða heilum skrokkum á ákveðnu hámarksverði. Mér lýst hörmulega á þá umræðu sem átt hefur sér stað um innflutning á landbúnaðar- vörum, og hef oft sagt að frekar ætti að flytja fólkið út en matvör- una inn til landsins. Bændur eru augljóslega ekki samkeppnisfærir við innflutning, og þó þessar vörur fengjust eitthvað ódýrari í dag, þá er ekki víst að það yrði til frambúð- ar. Ég held að við yrðum ekki lengi sjálfstæð þjóð ef við hættum að framleiða þau matvæli sem hægt er að framleiða hérna með þokka- Iega góðu móti.“ Leifiir Þórarins- son, Keldudal; Of há smá- söluálagning „ÞAÐ er alvarlegt mál hve salan á dilkakjöti hefiir dregist saman þrátt fyrir minnkandi framleiðslu, og því er staðan ekki góð í bú- greininni í dag. Ástæðan er of hátt verð, en smásöluálagningin á kjötið er alltof mikil. Fijálsa álagningin hefur farið úr böndun- um og hefur ekki náð þeim til- gangi sem ætlast var til á sínum tíma,“ segir Leifur Þórarinsson bóndi í Keldudal í Skagafirði. „Verðlækkunin í því söluátaki sem staðið hefur yfir í sumar hefur sýnt að salan eykst með lægra verði, en ég tel að það ætti að bjóða upp á svona tilboðsverð í byijun fram- leiðsluársins, þannig að ekki þurfi að eyða í kjötið kostnaði við fryst- ingu og geymslu. Ég tel óvíst að til frekari samdráttar í framleiðslunni þurfi að koma frá því sem orðið er ef tekst á þennan hátt að ná niður gömlu kjötbirgðunum, en það myndi leiða til jafnvægis milli framboðs og eftirspurnar. Annars er þetta pólitísk ákvörðun ráðamanna hvernig þessum málum er stýrt, og spurningin er hvort þeir vilja að við framleiðum okkar mat- væli hér innanlands eða flytjum þau inn. Ég held að hinn almenni neyt- andi verði að skoða hug sinn varð- andi hvar hann stendur ef við yrðum algjörlega háð innflutningi á þessum vörum, og satt að segja hef ég skömm á málflutningi Neytenda- samtakanna í þessum efnum. Þarna eru menn á ferðinni sem engu er líkara en séu á móti bændastéttinni sem slíkri, og því hef ég ótrú 'á þeim.“ Rúnar Hálfdánar- son, Þverfelli; Útsöluverð til neytenda ofhátt „ÞAÐ sem er ógnvekjandi í stöðu sauðfjárræktarinnar í dag er sá samdráttur sem orðið hefur í neyslu kindakjöts. Hann skýri ég eingöngu út frá verði, en endan- legt útsöluverð til neytandans er of hátt miðað við verð á öðrum kjöttegundum,“ segir Rúnar Hálf- dánarson, bóndi á Þverfelli í Lundarreykjadal. „Það sem leggja verður áherslu á er að ná niður útsöluverðinu til neyt- enda, en ég fæ ekki séð hvernig það er framkvæmanlegt í dag vegna þess hve þetta kerfi sem við búum við er rígbundið varðandi verðlagn- ingu á þessari vöru. Það er ekki hægt að sjá að í verðlagsgrundvellin- um sé neinir kostnaðarþættir sem séu vanmetnir, þannig að leita verð- ur annarra leiða til að lækka verðið. Það er hægt með því að bændur hagræði enn frekar hjá sér sjálfum og síðast en ekki síst með því að ná fram lækkun á slátur- og heild- sölukostnaði, og jafnframt vinnslu- kostnaði svo sem framast er kostur. Ef neyslan hins vegar heldur áfram að dragast saman verður eitt- hvað að gera til að minnka fram- leiðsluna, en ég tel að ekki sé lengur hægt að skerða með flatri skerðingu á alla framleiðendur. Það verður því annaðhvort að fækka þeim sem stunda sauðfjárrækt og stækka búin svo þau verði lífvæniegri, eða þá að koma á einhverri stjórnvaldsaðgerð sem segi að eðlilegt sé að halda ein- hveiju byggðamunstri. Þá yrði að greiða bændum einhverskonar stað- aruppbætur og hugsanlega greiða mishátt verð fyrir afurðirnar eftir því hvar þær eru framleiddar á landinu. Annað sem brennur mjög á bænd- um eru ákveðnir þættir í uppbygg- ingu félagskerfisins. Það er orðið gífurlega stórt og viðamikið og virð- ist þurfa stöðugt á meira fjármagni að halda, þrátt fyrir samdráttinn sem orðið hefur í framleiðslunni. Við höfum ekki efni á að halda uppi margföldu kerfi, og verðum því að fækka grunneiningunum og stækka þær svo að þær nái árangri, en það tekur vafalaust mörg ár að breyta þessu." Guðrún Lárusdóttir, íramkvæmdastj óri Stálskipa; Kominn tími til að Haftiar- fjörður haldi sínum hlut TOGARAR Hraðfrystihúss Pat- reksfiarðar, Sigurey og Þrymur, voru seldir á uppboði sl. mánu- dag. Stálskipum hf. í Haftiarfirði var slegin Sigurey á 257,5 m.kr. Vátryggingarmat skipsins var 183,2 m.kr. 1. júní sl. og er þetta kaupverð því um 40% yfir því mati. Stálskip hf. var stofnað árið 1970 og gerði út sinn fyrsta togara, Rán, árið 1971. Stálskip hafa ávallt gert út eitt til tvö skip í einu og áttu fyrir frystitogarann Ymi, sem keypt- ur var á síðasta ári. Hafði fyrirtæk- ið um árabil gert út annan togara með sama nafni. „Það hafa mörg skip verið seld úr Hafnarfirði að undanförnu og nú er kominn tími til að Hafnarfjörður haldi sínum hlut,“ sagði Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Stál- skipa, aðspurð um kaupin á Sigurey. Guðrún rekur fyrirtækið ásamt eig- inmanhi sínum, Ágúst Sigurðsssyni, skipatæknifræðingi, og bróður hans, Þorsteini Sigurðssyni, vélsmið. Sagði hún skipið verða gert út frá Hafnarfirði. Guðrún sagðist ekki telja það verð sem greitt hefði verið fyrir Sigurey vera óeðlilega hátt. Þetta væri gang- verð á skipum í dag. „Það sem skipt- ir mestu máli er dugnaður þess fólks sem stendur í þessu, þetta er ekki auðvelt og kostar fórnir. En hvað ef fólk er reiðubúið að leggja á sig þessar fórnir?" Byggðastofnun var sleginn Þrym- ur á 150 m.kr. Guðmundur Malmq- vist, forstjóri Byggðastofnunar, sagði stofnunina hafa lánað fyrir- tækinu mikið fé sem væri tryggt með veði í þessum skipum. Þannig ætti Byggðastofnun 75 rn.kr. í Þrym, 40 m.kr. í Sigurey og 20 m.kr. í Hraðfrystihúsinu. Sagði Guðmundur að nú yrðu lánin í Sigurey gjald- felld. Þegar Guðmundur var spurður hvað Byggðastofnun hygðist fyrir með Þiym sagði hann skipið standa Patreksfirðingum til boða ef þeir vildu kaupa það en ekki hefði verið rætt neitt nánar um það. Veiðiheim- ildir Þryms eru bundnar við sóknar- mark, fyrir utan þorskafla skipsins, sem má að hámarki vera um 500 tonn. Úlfar Thoroddsen, sveitarstjóri Patrekshrepps, sagðist ekki eiga von á að öðru en að reynt yrði að kaupa Þrym til Patreksfjarðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.