Morgunblaðið - 30.08.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.08.1989, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1989 fclk f fréttum DANS Lambada — eggjandi dans nýrrar kynslóðar Lamba’da heitir dans sem farið hefur sigurför um Evrópu í sumar og á rætur sínar að rekja til Brasilíu. Fjölmiðlar um öll Evróp- ulönd fjalla mikið um dansinn og hefur verið sagt að hann boði „end- urreisn kynþokkans á tímum al- næmis“. Því er einnig haldið fram að þetta sé fyrsti alþýðudansinn sem komið hefur fram í 25 ár þar sem gert er ráð fyrir að dansararn- ir snertist. Lagið Lambada er einn- ig sumarsmellurinn í Frakklandi og trónir efst á vinsældalistum þar- lendis. Yfir ein miljón lítilla platna auk yfir 400.000 safnplatna, þar sem lagið er að finna, hafa selst í Frakklandi frá því að það var gefið út 21. júní síðastliðinn. Segja kunn- ugir að annað eins fár hafi ekki geisað í frönskum danssölum frá því að Madonna tók Frakka með trompi um árið. Uppruna dansins má rekja til Porto Seguro í norðausturhluta Brasilíu. „Lambada" þýðir hring- ferð, heitar lendur, eða einfaldlega dans, allt eftir því hvaða tímarit á að taka trúanlegt. Þessi frjálsmann- lega brasílsk-karabíska dansblanda byggir í aðalatriðum á rúmbu-hljóð- falli og trinidadískum socca-dansi með ívafi af sölsu, zouk og reggí. Við tónlistarflutninginn eru notuð blásturhljóðfæri, ásláttarhljóðfæri og stundum bregður fyrir tónum bandeons (hljóðfæri skylt harmón- ikku), og svuntuþeysis (synthesiz- er), auk radda og kynferðislega vekjandi söngtexta á portúgölsku. Dansinn byggir á sérstökum danssporum þar sem ástleitið dans- par beitir hnjánum óspart og oft er þeim ætlaður staður á milli læra dansfélagans. „Dansinn snýst um Lambada fer nú sem eldur í sinu í danssölum í Frakklandi. þrána,“ segir Olivier Lorsac, sem hefur staðið að kynningu dansins í Evrópu. „Þú faðmar dansfélagann, hörfar frá honum og faðmar hann aftur. Dansinn er eggjandi,“ sagði Lorsac. í Sao Paulo og Rio í Brasilíu eru svonefndir „Lambadarias“, þar sem gestir dansa eingöngu Lambada. Jean Karakos, félagi Lorsacs, segir að fólk á dansstöðum sé á ný farið að snerta hvert annað. „Fram að þessu hafa unglingar dansað líkt og foreldrar þeirra gerðu. Lambada er þeirra dans.“ Karakos starfaði áður við hljóm- plötuútgáfu í New York og við aug- lýsinga- og kvikmyndagerð í JYakklandi. Á síðasta ári fór hann til Porto Seguro ásamt fornvini sínum Lorsac. Þar kynntust þeir Lambada-tónlist, hrifust af henni og ákváðu að kynna hana fyrir Evrópubúum. Núna heldur 25 manna hópur tónlistarmanna, dansara, söngvara og tæknimanna uppi Lambada- sýningum víðs vegar um Suður- Frakkland. Platan „Lambada“ er í fyrsta sæti vinsældarlistans í Belgíu, fjórða sæti á Ítalíu og hún á stöðugt auknum vinsældum að fagna í Hollandi, Þýskalandi og á Spáni. FIMLEIKAR Björk á Riccione Tólf stúlkur frá Fimleikafélaginu Björk héldu til Riccione nú fyrr í sumar og tóku þar þátt í evrópsku sýningarmóti. Allar Evrópuþjóðir máttu senda fulltrúa á þetta mót. Að sögn íslenskra ferða- langa sem voru á Riccione þegar mótið fór fram var íslensku stúlkunum einstaklega vel tekið og þótti sýning þeirra margbrotin og glæsileg. Þessar sömu fimleikastúlkur urðu íslandsmeistarar 1989 í hópakeppni þriðja árið í röð. Stúlkurnar með þjálfúrum og ferðafélögum sínum. Sýningaratriðin þóttu einstaklega glæsileg. Lambada-sýn- ingar eru nú haldnar víðs vegar í Suð- ur-Frakkl- andi úti undir beru lofti. Mörg nýstárleg dansspor, eins og hné á milli læra, eru einkenni nýja dansins. COSPER Fyrst nágranninn hefúr efni á að kaupa sér hjólbörur hlýtur þú að hafa það líka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.