Morgunblaðið - 30.08.1989, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1989
Viðræður um
stærri stjórn:
Borgara-
flokkur vill
Morgunblaðið/Emilía
Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags ísiands, þakkar
Ólafíu Jónsdóttur hina höfðinglegu gjöf.
Gaf 7,6 milljónir
til skógræktar
„ÞETTA er ekki mikið og ég vil gefa ykkur miklu meira,“ sagði
Ólafía Jónsdóttir, um leið og hún afhenti Skógræktarfélagi Is-
lands 7,6 milljónir króna að gjöf. Er þetta ein stærsta gjöf sem
einstaklingur hefíir lagt til skógræktar hér á landi.
„Ég treysti ykkur fullkomlega
eftir að hafa fylgst með staj*fi
ykkar í gegnum árin,“ sagði Ól-
afía. Hjónin Ólafía og Guðmundur
Þorsteinsson, gullsmiður, sem lést
í sumar, höfðu tekið þá ákvörðun
að leggja starfi Skógræktarfé-
lagsins lið og styrkja með þessu
móti.
Hulda Valtýsdóttir, formaður
Skógræktarfélags íslands, veitti
gjöfinni viðtöku og sagði hana
lýsa miklu trausti til félagsins og
velvild í þess garð. „Gjöf þeirra
hjóna sýnir umhyggju þeirra fyrir
landinu og vilja til að bæta gróður-
far landsins með skógrækt. Mikill
undirbúningur stendur nú yfir
vegna átaksins um landgræðslu-
skóga í tilefni 60 ára afmæli fé-
lagsins á næsta ári. Gjöfin er því
mikil hvatning og gefur tilefni til
að líta björtum augum fram á
við,“ sagði Hulda.
lengn tíma
Borgaraflokkurinn hefúr enn
ekki svarað tilboði ríkisstjórnar-
innar um að flokkurinn gangi
inn í stjórnarsamstarfíð. For-
menn stjórnarflokkanna fúnd-
uðu í gær með þingflokki Borg-
araflokksins og sagði Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráð-
herra að fúndinum loknum að
hann hefði verið gagnlegur.
Borgaraflokksmenn vilja hins
vegar ennþá lengri tíma til að
svara tilboðinu.
Steingrímur sagðist hafa skilið
það svo, er hann lagði fram tillög-
ur sínar til borgaraflokksmanna,
að þeir myndu jafnvel segja af eða
á í dag, miðvikudag. „Ég hef lagt
á það áherzlu að þetta verði af-
greitt sem allra, allra fyrst,“ sagði
Steingrímur í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagðist líta svo á að
borgaraflokksmenn hefðu tekið til-
lögum stjómarinnar sem sam-
starfsgrundvelli.
Tilboð stjómarinnar gerir ráð
fyrir að Borgaraflokkur fái tvo
ráðherra. Annar verði dómsmála-
ráðherra, hinn án ráðuneytis til að
byija með en fái síðar umhverfis-
málaráðuneytið, sem á að stofna.
Fram að því fari hann með sam-
starfsmál Nofðurlanda og mótun
atvinnustefnu.
Sjálfstæðismenn samþykkja efiiahagstillögur:
Seðlabanki jafiii skamm-
tímasveiflur á genginu
Bankinn haldi ekki háu gengi, orsaki það skuldasöftiun
íslandsbanki:
Sérsviðum
skipt milli
yfirmanna
Á bankaráðsfúndi íslands-
banka í gærmorgun var ákveðin
ráðning Qögurra framkvæmda-
s^jóra og verkaskipting banka-
stjóra og framkvæmdasljóra
bankans.
Valur Valsson. verður formaður
bankastjómar eins og áður var
ákveðið. Tryggvi Pálsson banka-
stjóri verður yfir sviði alþjóðavið-
skipta og markaðsmála og Bjöm
Bjömsson bankastjóri yfir rekstr-
ar- og tæknimálum.
Allir þeir, sem ákveðið var að
bjóða framkvæmdastjórastöðu,
hafa nú verið ráðnir. Guðmundur
Hauksson verður framkvæmda-
stjóri yfir fyrirtækjalánum og lög-
fræðimálum, Kristján Oddsson
yfir afgreiðslum og fræðslumál-
um, Jóhannes Siggeirsson á sviði
þjónustu og gæðastjórnar og
Ragnar Önundarson yfir fjármál-
um og verðbréfaviðskiptum.
TILLÖGUR Þorsteins Pálssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins,
um róttækar aðgerðir í efhahags-
málum, voru samþykktar á þing-
flokksfúndi sjálfstæðismanna í
gær og var samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins lítil andstaða
við þær í þingflokknum. í yfirlýs-
ingu fúndarins um ftjálslynda og
víðsýna umbótastefhu í atvinnu-
málum segir að með tillögum
þessum hafí Sjálfstæðisflokkur-
inn í stjórnarandstöðu tekið for-
ystu í íslenzkum stjórnmálum.
Rikisstjórnin sé ófær um að leiða
þjóðina út úr erfiðleikunum.
Þingflokkurinn ítrekar fyrri yfír-
lýsingar um vantraust á stjórnina
og kröfú um að gengið verði til
kosninga þegar I stað.
Tillögur sjálfstæðismanna eru í
meginatriðum þær, sem greint var
frá í Morgunblaðinu í gær. í tillög-
um um gengismál og gjaldeyris-
verzlun er gert ráð fyrir að verð á
erlendum gjaldeyri verði fyrst og
fremst ákveðið af þeim, sem eiga
viðskipti með hann. „Seðlabanki
íslands annist skráningn á grunn-
gengi krónunnar en verð á erlend-
um gjaldeyri getur hækkað eða
lækkað innan tiltekinna marka frá
því. Meginhlutverk bankans verði
því að jafna skammtímasveiflur.
Seðlabankanum verði óheimilt að
halda niðri verði á erlendum gjald-
eyri ef það eykur skuldasöfnun
þjóðarinnar erlendis og skal breyta
grunngengi ef fyrirsjáanleg er
þynging á skuldabyrði. Með þessari
mikilvægu stefnubreytingu er horf-
ið af braut skuldasöfnunar erlendis
og útflutningsatvinnuvegum sköp-
uð skilyrði til að standa á eigin
fótum og leggja sitt af mörkum til
velferðar landsmanna," segir í yfír-
lýsingu fundarins.
Þar er jafnframt lagt til að við-
skiptabankar og sparisjóðir fái full-
ar heimildir til að verzla með erlend-
an gjaldeyri, taka erlend lán og
takast á hendur skuldbindingar við
erlenda aðila í samrærhi við eðlileg
viðskiptaleg sjónarmið. Bankarnir
ákveði sjálfir verð á erlendum gjald-
eyri í viðskiptum sínum innan tiltek-
inna frávika frá grunngengi því,
sem Seðlabankinn markar.
í tillögum um fjárlagagerð er
lagt til að einstök ráðuneyti og
stofnanir geri tillögur um útgjöld
innan tekjuramma; með öðrum orð-
um að ekki verði framkvæmt annað
en það sem peningar eru til fyrir.
Sett verði fram raunhæf áætlun um
aðhaid í ríkisbúskapnum þannig að
útgjöld rúmist innan tekjurammans
án skattahækkana.
Morgunblaðið/Júlíus
Þrír ungir menn voru handteknir eftir að hafa hleypt af skotum í
húsi við Sogaveg í gærmorgun. Á myndinni sjást lögreglumenn færa
einn hinna handteknu um borð í lögreglubifreið.
Skothríð í húsi við Sogaveg:
Tvö 600 tonna
eldisker brustu
Laxinn lá spriklandi á þurru landi
TVÖ 600 tonna ker fúll af eldislaxi brustu í eldisstöð Árlax hf. á Kópa-
skeri í gærmorgun. Mikill gnýr buldi um nágrennið þegar vatnið úr
kerunum myndaði flóðbylgju sem steyptist fram og þegar látunum
linnti lá spriklandi fiskur eins og hráviði hundruð metra frá kerunum.
Töluvert af vatni og hluti fisksins rann í læk skammt frá eldisstöðinni
og þaðan út í sjó.
Þrír menn handteknir
og hald lagt á skotvopn
LÖGREGLAN í Reykjavík var kölluð að húsi við Sogaveg i gærmorg-
un, eftir að vegfarandi hafði tilkynnt að hleypt hefði verið af skotum
þar og rúður í kjallaraglugga brotnað.
Lögreglan fékk tilkynninguna úr húsinu og var hann handtekinn.
klukkan 9.27. Skömmu síðar var
átta manna lið komið á staðinn, en
skothríðin var þá afstaðin. Lög-
reglumennimir gættu fyllsta örygg-
is, klæddust skotheldum vestum og
lokuðu götunni fyrir umferð. Eftir
nokkra stund kom ungur maður út
Þá fór lögreglan inn í húsið og
handtók þar tvo aðra unga menn.
Lagt var hald á tvo riffla og þijár
haglabyssur, en mennirnir voru
óvopnaðir þegar lögreglan kom inn
í húsið. Hleypt hafði verið af vopn-
unum í herbergi í kjallara hússins
og einnig er talið að mennimir hafí
skotið út um gluggann, en rúður í
honum voru brotnar. Engan hafði
þó sakað, en nokkrar skemmdir
urðu á herberginu.
Lögreglan tók mennina þijá, sem
voru um og yfir tvítugt, í sína
vörslu, en talið er að þeir hafi verið
undir áhrifum áfengis. Málið hefur
verið sent Rannsóknarlögreglu
ríkisins til meðferðar.
Hann segir að ekki hefði þurft að
spyrja að leikslokum hefði starfs-
maður verið að vinnu við kerin en
menn biðu í kaffistofu eftir bíl sem
flytja átti seiði til Seyðisfjarðar. Einn
starfsmaður var þó í vinnuskúr að
sækja fóður sem vantaði og munaði
fáeinum augnablikum að hann hefði
verið kominn að kerunum.
Allt tiltækt fólk var kvatt til, sumt
úr öðrum störfum, að blóðga fiskinn
sem spriklaði á þurru á víð og dreif.
Blóðguðum fiskinum var komið fyrir
í nokkrum 5-600 lítra fiskikerum og
í gærkvöldi og í nótt unnu menn að
því í fiskverkuninni Útnesi að gera
að fiskinum.
Guðmundur Björnsson stöðvar-
stjóri var á káfí í aðgerðinni þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í
gærkvöldi. „Ég veit ekki nákvæm-
lega hvað gerðist, ég sá þetta ekki
heldur heyrði bara drunurnar. Annað
kerið er bókstaflega í rúst og það
gæti verið að það hefði gefíð sig og
vatnið úr þvi síðan sópað botninum
undan hinu og þar með hafi pokinn
í því sprungið undan þunganum,"
sagði Guðmundur. Hann kvaðst ekki
vita nákvæmlega hvað mikið hefði
verið af fiski í kerunum. „Það var
talsvert, hluti af því í sláturstærð;
fískur frá 200 grömmum upp í 2 14
kíló úr þremur hópum.^stór hluti var
settur í kerin um miðjan október í
fyrra.“ Hann vildi ekki tjá sig um
hve mikið tjón hefði orðið, taldi þó
ljóst að það mældist í milljónum.
Guðmundur kvaðst eiga von á að
tækist að selja innanlands allan fisk-
inn sem náðst hefði að blóðga. „Það
er enn á viðræðustigi en ég á von á
að það finnist kaupendur sem vilja
hitareykjaþennan físk,“ sagði hann.
Árlax hf. hefur starfað í um það
bil fimm ár. Stærstu eigendur eru
Eimskipafélagið og SÍS auk margra
einstaklinga fyrir norðan.