Morgunblaðið - 30.08.1989, Síða 22
n
22
f-KJ JKi')} .0 ; *.j ir . í '| v jj;v if'dA f - ;h ri
■MOHGUNBLAÐIÐ ’MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1989
AKUREYRI
Vill koma upp æfingavelli
en vantar heppilegt land
Skotveiðifélag Eyjafjarðar:
Illmögulegl að fínna stað í bæjarlandinu, segir skipulagsstjóri
SKOTEY, eða Skotveiðifélag Eyjaíjarðar, hefur í hyggju að koma
sér upp skotvelli til æfinga og keppni í skotfimi og er þegar búið
að panta tvo leirdúfúkastara frá Svíþjóð. Gert er ráð fyrir að kostn-
aður við völlinn fullbúinn nemi um 600 þúsundum. Það sem hins
vegar strandar á er heppilegur staður fyrir slíkan völl og eru stjórn-
armenn í Skotey ekki alls kostar ánægðir með seinagang í bæjar-
kerfinu varðandi staðsetningu slíks vallar.
Um nokkurt skeið hefur Skot- var eftir svæði undir skotvöllinn
veiðifélag Eyjaijarðar haft aðstöðu
til æfinga í landi Hesjuvalla ofan
Akureyrar, en þar er um að ræða
bráðabirgðaaðstöðu. í lok janúar
sendi stjórn félagsins bréf til bæjar-
stjórnar Akureyrar þar sem leitað
og var erindið sent skipulagsstjóra
til umijöllunar.
Stjórnarmenn í Skotey sögðust
hafa komið fram með fjölmargar
tillögur um hvar staðsetja mætti
vöilinn, en menn hefðu ekki getað
Félagar i Skotveiðifélagi Eyjaflarðar vilja koma sér upp æfinga-
velli og hafa pantað þar til gerð tæki frá Svíþjóð, en staðsetning
vallarins vefst fyrir mönnum. Frá vinstri er Gísli Ólafsson, Ámi
Hrólfúr Helgason, Ófeigur Örn Ófeigsson, Ásgrímur Ágústsson
og Bjöm Stefánsson stjórnarmenn í Skotey.
fellt sig við þau svæði.
„Það er mjög mikilvægt að menn
æfi sig áður en þeir halda til veiða,
en það er eins og menn kunni ekki
að meta gildi þjálfunar, ef miðað
er við dræmar undirtektir við er-
indi okkar,“ sagði Gísli Ólafsson
formaður Skotveiðifélagsins. Land-
svæði það sem félagið þyrfti undir
völlinn er um hálfur hektari að
stærð, en gert er ráð fyrir um 300
metra öryggissvæði umhverfis völl-
inn. Hugmyndir stjórnarmanna í
Skotey eru að planta tijám hring-
inn í kringum völlinn og gera hann
sem snyrtilegastan úr garði, m.a.
að helluleggja stíga og fleira.
Árni Ölafsson skipulagsstjóri
sagði að vissulega hefði málið
velkst lengi í bæjarkerfinu, en nið-
urstaða athugana væri sú að ill-
mögulegt væri að koma vellinum
fyrir í bæjarlandinu. Þau svæði sem
til greina kæmu væru ýmist of
nálægt íbúðabyggð, útivistarsvæð-
um eða friðlandi. „Málið er að
nokkru leyti í þeirra höndum, ég
vil gjarnan að þeir hafi frumkvæð-
ið og leiti sjálfir fyrir sér með því
að spjalla við bændur í nágrenninu
og við munum að sjálfsögðu líka
leggja okkar af mörkum, því ég
skil vel nauðsyn þess að finna
heppilegt svæði fyrir þessa íþrótta-
grein,“ sagði Árni.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
íbúðir fyrir aldraða við Víðilund voru afhentar í gær, á 127 ára
afinæli Akureyrarbæjar. Sigurður J. Sigurðsson forseti bæjar-
stjórnar afhenti Erlingi Davíðssyni/lykla að íbúð sinni við stutta
athöfii í gær. I
*
Ibúðir fyrir aldraða afhentar
ÍBÚÐIR fyrir aldraða við Víðilund 24 voru formléga afhentar í
gær, þriðjudag, á 127 ára afinæli Akureyrarbæjar. Hugmyndin að
byggingunni fæddist skömmu eftir stofnun Félags aldraðra á Akur-
eyri síðla árs 1982, en Erlingur Davíðsson tók fyrstu skóflustung-
una að íbúðum fyrir aldraða 3. október 1987, á 5 ára afinæli Félags
aldraðra.
I húsinu eru alls 30 íbúðir á fimm
hæðum. Á hverri hæð eru 6 íbúðir,
tvær þriggja herbergja og fjórar
tveggja herbergja. Sameiginlegt
þvottahús er á hverri hæð. Sams-
konar hús er í byggingu skammt
sunnan við og verður innangengt
í sameiginlegan þjónustukjarna
sem byggður verður á milli íbúða-
bygginganna tveggja.
Verktaki að byggingunni er
Híbýli hf., en undirverktakar Karl
og Þórður hf., Rafmar hf., Hús-
prýði sf. og Garðverk sf. Arkitekt-
ar voru Bjami Reykjalín og Árni
Ólafsson, en Halldór Jóhannsson
landslagsarkitekt sá um hönnun
utandyra.
Endanlegur kostnaður við bygg-
ingu hússins liggur ekki fyi/ir, en
í febrúar 1988 er tilboð Híbýlis hf.
lá fyrir var kostnaður áætlaður 132
milljónir króna. Framreiknað til
verðlags í dag miðað við bygging-
arvísitölu er kostnaður rúmlega
177 milljónir króna.
Við afhendinguna var gestum
boðið að skoða húsið og spjalla við
íbúana, sem luku miklu lofsorði á
framkvæmdir og voru hinir ánægð-
ustu í hinum nýju húsakynnum.
/
t
Móðir okkar,
MARTA PÉTURSDÓTTIR,
lést á heimili dóttur sinnar í Saint Merry’s í Ástralíu þann
27. ágúst sl.
Jarðarförin verður tilkynnt síðar.
Börn hinnar látnu,
Lillý Jóhannesdóttir Sigurðsson,
Sævar Þorbjörn Jóhannesson.
t
Eiginmaður minn,
DAIMÍEL ÞORKELSSON
málarameistari,
Stigahlíð 83,
lést 28. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar.
Martha Þorkelsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginkona min og móðir,
LÁRA JÓNSDÓTTIR,
Sunnuvegi 33,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 31. ágúst
kl. 10.30.
Guðlaugur Jónsson,
Gísli Lárus Valsson.
t
Bróðir okkar,
PÉTUR GUÐMUNDSSON
frá Fáskrúðsfirði,
verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni fimmtudaginn 31. ágúst
kl. 15.00.
Fyrir hönd ættingja og annarra vandamanna,
Ótto Guðmundsson,
Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Sigurður Guðmunds-
son — Minningarorð
Fæddur 16. júlí 1900
Dáinn 21. ágúst 1989
Afi minn, Sigurður Guðmunds-
son, lést þann 21. ágúst sl. á Borg-
arspítalanum. Þau hjónin Sigurður
og Rannveig Runólfsdóttir tóku
mömmu mína í fóstur og tengdist
hún þeim sterkum böndum. Ég var
nú ekki há í loftinu heldur þegar
ég fór að sofa hjá ömmu og afa,
sem varð til þess að ég flutti heim
til þeirra og tóku þau mér opnum
örmum.
Þegar ég hugsa til baka til þess-
ara ára sem þau tóku mig að sér
fyllist ég þakklæti til þeirra fyrir
alla þá ást og umhyggju sem þau
gáfu mér. Með þessum fáu orðum
langar mig til að minnast þeirra
og þakka þeim fyrir allt sem þau
gerðu fyrir mig þessi vel gerðu hjón
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BERGÞÓRA ÞORBERGSDÓTTIR,
Þinghólsbraut 20,
Kópavogi,
lést í Landspítalanum mánudaginn 28. ágúst.
Svava MagnúsdóttirTagliavia, Fabio Tagliavia,
Kristján Magnússon, Guðbjört Ingólfsdóttir,
Esther Magnúsdóttir, Halldór Einarsson,
Sigríður 1. Magnúsdóttir, Þorsteinn Brynjúlfsson,
Lilja Magnúsdóttir, Gunnar Steinn Pálsson,
Jón Magnússon, Ingibjörg M. Viðarsdóttir,
Magnús Magnússon, Helga H. Sigurðardóttir,
Helgi Þór Magnússon -
og barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
INGIMUNDUR BJARNASON,
Bfesugróf 4,
lést að kveldi 25. ágúst í Borgarspítalanum. Jarðarförin fer fram
frá Bústaðarkirkju föstudaginn 1. september kl. 13.30. Blóm vin-
samlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Borgarspítalann.
Guðrún Guðlaugsdóttir,
Ólöf Bára Ingimundardóttir,
Guðlaugur Ingimundarson, Sigríður Þ. Sigurmundsdóttir,
Inga Ingimundardóttir, Þórarinn Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
sem voru full af mannkærleik og
ást.
Megi elsku afi minn hvíla í friði.
Rannveig H. Harðardóttir
í dag, miðvikudag 30. ágúst, fer
fram frá Fossvogskirkju útför Sig-
urðar Guðmundssonar fóstra míns.
Hann var giftur Rannveigu Run-
ólfsdóttur sem Iést 1. október 1968.
Þau voru bæði ættuð úr Skaftafells-
sýslu og eignuðust 2 syni, þá Ing-
ólf og Ragnar, svo tóku þau mig í
fóstur og langaði mig til að þakka
þeim fyrir allt sem þau gerðu fyrir
mig.
Einnig var dóttir mín hjá þeim í
allmörg ár, allt þar til að Rannveig
lést. Sigurður var mikill trúmaður
og þau hjónin helguðu líf sitt trú-
málum og boðskap Guðs.
Sigurður hefur unnið mikið við
ritstörf og gefið út kristilegt tíma-
rit sem var honum mjög hjartfólgið.
Fóstri minn var alla tíð mjög
heilsuhraustur og hafði yndi af
ferðalögum. Þegar hann varð 89
ára þann 16. júlí sl. kom hann heim
til mín og ekki grunaði mig þá að
þetta yrðu okkar síðustu samveru-
stundir, þarna sem hann sat og
talaði um fólk og ferðalög. Megi
guð blessa minningu elsku fóstra
míns.
Selma Gunnarsdóttir