Morgunblaðið - 30.08.1989, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1989
33
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
n TIL FÖSTUDAGS
/ \JT i/yywifl»*i U. JtW ' U 1 f
Upplýs-
ingadeildin
enn við lýði
Til Velvakanda.
í Morgunblaðinu 18. ágúst sl.
birtir þú bréf frá Sigríði Jóns-
dóttur, ellilífeyrisþega, þar sem
hún spyr, hvort það sé búið að
leggja upplýsingadeild Trygg-
ingastofnunar ríkisins niður. Hún
segist hafa komið tvisvar í stofn-
unina í júlímánuði og hitt engan
fyrir í upplýsingadeildinni.
Ég gat glatt Sigríði með því,
að það er ekki búið að leggja
upplýsingadeildina niður, en mér
þykir það mjög leitt, að hún skyldi
ekki hitta neinn fyrir í deildinni.
Nú standa yfir sumarfrí og
ríkisstofnanir mega ekki ráða fólk
til sumarafleysinga, nema í mjög
litlum mæli, því að það þarf að
spara. Svo var ég svo óheppin að
veikjast í júlí, og var því frá vinnu
í lengri tíma. Því var mjög fáliðað
í upplýsingadeildinni.
Nú vil ég biðja Sigríði að hafa
samband við okkur. Hún er alltaf
velkomin og við munum aðstoða
hana eftir bestu getu.
Með þökk fyrir birtinguna.
Margrét H. Sigurðardóttir
deildarstjóri
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspurnir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Þessir hringdu . . .
Ósnyrtileg lóð
Jóna hringdi:
„Af hverju er ekki hreinsað í
kringum Hallgrímskirkju? Viðar-
plankar liggja eins og hráviði út
um allt Iðnskólamegin en spýtur,
tóm plastílát og steypukekkir að
sunnanverðu. Það er meira að segja
kofaskrífli fast upp við kirkjuvegg-
inn. Ekki getur verið að þetta sé
starfsvöllur barna. Það er engin
afsökun að verið sé að gera við
kirkjuna. Fjarlægja má allt óþarfa
efni jafnóðum og ætti að gera það.
Ekki er nóg að eiga stærstu kirkju
á landinu og fallega innan dyra.
Það þarf einnig að hugsa um snyrt-
ingu utan húss, ekki sízt þar sem
lóðin er ófrágengin.“
Gleraugu
Nú hafa gullfiskarnir í Gullfiska-
búðinni fengið félagsskap, því að
þar fundust gleraugu á þriðjudag
fyrir rúmri viku. Sá, sem saknar
gleraugnanna, getur hringt í síma
11757.
Ekkert eftirlit?
Marbendill hringdi:
„Það er undarlegt að heyra um
þessar stóru byggingar eins og
Þjóðleikhúsið og nú síðast Þjðð-
minjasafnið og viðhaldið á þeim.
Hefur virkilega ekkert eftirlit verið
með þeim? Menn hefðu átt að geta
séð fyrirfram að hveiju stefndi. Það
hlýtur að vera einhver aðili, sem á
að sjá um eftirlit með byggingum
í öllu þessu ríkisbákni. Annars virð-
ist óráðsían rosaleg í þessu sem
öðru.“
Málverk
Tvö málverk, sem Halldór heit-
inn Pétursson listmálari málaði í
vinnustofu sinni í Drápuhlíð 11, eru
enn í vörzlu konu hans, Fjólu Sig-
mundsdóttur. Annað er af rauð-
birkinni eldri konu á peysufötum
en hitt af stúdent með stúdents-
húfu á höfði. Fjóla er nú flutt úr
Drápuhlíð en hún hefur árangurs-
laust reynt að hafa upp á þeim,
sem þessi málverk eru af eða Iétu
á sínum tíma mála þau. Þeir sem
kynnu að vita um þá sem hér á
einn eða annan veg eiga hlut að
máli, eru beðnir um að hafa sam-
band við Fjólu í síma 10288.
Taska
Taska úr gallaefni tapaðist á
sunnudagsmorgun í bíl. Finnandi
hafi samband við Lindu í síma
53835.
Filmur
Áteknar filmur og lyklar í litlum
hvítum poka týndust í nágrenni við
Víkingsvöllinn í Fossvogsdal
fimmtudaginn 24. ágúst. Finnandi
hafi samband við Trausta í síma
31339.
Reiðhjól
Reiðhjól af gerðinni Muddy Fox
hvarf frá útibúi Búnaðarbankans
í Hótel Sögu um Id. 13 á föstu-
dag. Finnandi hafi samband við
Jóhann í síma 612942.
Seðlaveski
Rauðbrúnt seðlaveski með dýr-
mætum skilríkjum tapaðist fyrir
utan skemmtistaðinn Broadway
síðastliðið föstudagskvöld.
Finnandi hafi samband við Ómar í
síma 641154.
Landakort
Landakort, upprúlluð og í plast-
hólki, töpuðust í nágrenni Hvols-
vallar um miðjan júlí. Finnandi er
beðinn um að hringja í síma
672923.
Kanína
Svört kanína með hvítan depil á
enninu fannst í Sörlaskjóli s.l.
föstudag. Upplýsingar fást í síma
10172.
mjómplötur
Poki með fjórutn hljómplötum
tapaðist í Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar s.l. föstudag. Finnandi hafi sam-
band við Hrund í síma 53219.
Gleraugu
Karlmannsgleraugu með brúnni
umgjörð týndust sunnudaginn 20.
ágúst. Finnandi hringi í Kristin í
síma 691210 á vinnutíma.
íþróttaföt
Plasttaska, sem innihélt m.a. tvo
íþróttagalla, fannst í síðustu viku
á áskriftardeild Stöðvar tvö. Upp-
lýsingar í síma 673777.
Víkverji skrifar
Tæknin hefur í för með sér, að
ýmis orð,. sem við notum í
tengslum við hana eru tiltölulega
fljót að úreldast. Þannig hefur ver-
ið á það bent, að ekki sé við hæfi
að tala um gervihnetti, þar sem
tækin sem skotið er á loft séu flest
ferköntuð og ílöng. Þar með virðist
einnig orðið gervitungl vera búið
að renna sitt skeið. Víkverji treyst-
ir sér þó ekki til að benda á nein
önnur betri orð um þessi tæki sem
maðurinn keppist við að skjóta
umhverfis jörðu, þar sem orðið
geimfar hefur þá merkingu í hans
huga, sem lýst er í Orðabók Menn-
ingarsjóðs, það er „farartæki til að
ferðast á um geiminn“.
Víkvetji vaknaði til umhugsunar
um þetta, þegar hann rakst á
vangaveltur eins af ritstjórum
bandaríska blaðsins The New York
Times um þá athöfn að hringja í
síma. Á ensku er sögnin to dial
notuð, þegar menn hringja í síma
og símnotandinn er kallaður dialer.
Er hvort tveggja dregið af skífunni
á símatækinu, sem menn snúa til
að velja númer. Telur ritstjórinn,
að á tímum takkasíma séu þessi
orð, sem vísa til skífunnar, orðin
úrelt, þótt þeim verði ekki breytt.
xxx
IOrðabók Menningarsjóðs er
sögnin að hringja skýrð á þennan
veg: láta klingja, hljóma. Þar er
ekki skýrð merking þess að hringja
í síma, sem er næsta undarlegt, en
í stað þess að kenna notkun á síma
við skífuna, sem snúið en, kennum
við hana við hljóðið, sem kemur frá
símanum. Raunar eru börn og ung-
lingar farnir að nota sögnina að
dingla um hljóm í klukkum eða
dyrabjöllum, en Víkveiji hefur ekki
heyrt hana notaða um hljóð frá
síma.
Símahljóðið hefur hins vegar
breyst á undanförnum árum. í stað
þess að hringja á hefðbundinn hátt
gefa tækin frá sér mismunandi píp
eða flaut. Sum hljóðin minna einna
helst á neyðarflautur. Ástæðulaust
er að ætla, að menn hætti að tala
um að hringja í síma, þrátt fyrir
þessi nýju hljóð, og segist ætla að
pípa eða flauta í staðinn. Sögnin
að hringja mun framvegis tákna
það hljóð í hugum okkar, sem
síminn gefur frá sér hveiju sinni.
Merking hennar mun einfaldlega
breytast á sama hátt og við köllum
kassana, sem snúast umhverfis
jörðina okkar hnetti eða tungl.
xxx
*
Aþriðjudag í síðustu viku var
orðið líter notað hér, þegar
rætt var um mismunandi bensín-
verð í ýmsum Evrópulöndum. Les-
andi hringdi og sagði, að þetta orð
væri einfaldlega ekki til í íslensku
máli, heldur notuðu menn orðið lítri
á því máli. Biðst Víkveiji afsökunar
á að hafa fallið í þennan pytt.
Lesandinn sagði, að þetta væri
ekki í fyrsta sinn sem hann vekti
athygli ritglaðra manna á þessu.
Hefði svo farið eftir ítrekaðar at-
hugasemdir hans, að kunnur rithöf-
undur hefði einfaldlega fórnað
höndum og sagt: Ég verð þá bara
framvegis að nota orðið pottur!
Kannski Vikveiji velji einnig þann
kost.
nmmnn
„ |>á- rnátt fccrtx. heirn. yfir JÓLin."
TM Reg. U.S. Pat OH —all nghts reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Hvernig er það: Kemst
ekkert að hjá þér annað
en föt og peningar?
Mér líður hreinlega illa
þegar ég sé eitthvað í búð-
argluggunum sem og hef
ekki efni á ...
HÖGNI HREKKVtSI
„ Pö VeeÐcil? AE> <5e-íSA RÁP Fy«ll? BÁEiNO/JI
/VIAURO/M i' SKÓGARFEFD! "