Morgunblaðið - 30.08.1989, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTÍR
llTTfUfsíM i . ■
MIÐVIKUDAGUR 30. AGUST 1989
35
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Morgunblaðið/Júlíus
Guðmundur Hreiðarsson horfir hér á eftir knettinum fara framhjá Antony Karli, KA, og Unnsteini Kárasyni,
Víkingi, og að lokum sjálfu markinu.
KA-menn fundu
meístarataktinn
KristinnJens
Sigurþórsson
skrifar
KA-MENN eru greinilega búnir
að finna íslandsmeistaratakt-
inn, og í gærkveldi dönsuðu
þeir eftir honum þegar þeir
einfaldlega burstuðu Víkinga
5:1. Á tíu mínútna kafla í fyrri
hálfleik, gerðu þeir út um leik-
inn með þremur glæsilegum
mörkum, og undir lok síðari
hálfleiks er þeim var farið að
leiðast þófið, innsigluðu þeir
sigurinn með tveimur snagg-
aralegum mörkum. Víkings-
vörnin var hins vegar eins og
sneið af svissneskum osti í
þessum leik; flöt og götótt, og
Guðmundur Hreiðarsson í
markinu bætti ekki úr skák.
Greinilegt var frá upphafi að
KA-menn ætluðu sér ailt ann-
að en skiptan hlut í þessum leik.
Þeir voru fljótari á boltann, sóttu
meira, og spiluðu
ágæta knattspyrnu.
Þeir skoruðu fyrsta
markið á 18. mínútu
eftir vægast sagt
ótrúlegan klaufaskap Guðmundar
Hreiðarssonar í markinu, og er
ótrúlegt að minnast þess að þarna
er varalandsliðsmarkvörðurinn á
ferðinni.
KA-menn létu ekki þar við sitja,
þvi þremur mínútum síðar átti Þor-
valdur Örlygsson stórglæsilegt skot
fyrir utan vítateig, sem hvein í net-
inu. Annað slíkt mark kom svo á
27. mínútu þegar Bjarni Jónsson iék
sama leikinn, og knötturinn hafnaði
toóm
FOLK
■ GLASGOW Rangers var í gær
skikkað til að greiða Everton 1,53
milljónir punda fyrir miðvörðinn
Trevor Steven. Liðin gátu ekki
komið sér saman um sanngjarnt
verð fyrir kappann og því fór málið
fyrir dóm. Þetta er met þar sem
þessi dórristóll hefur aldrei sett upp
svo hátt verð fyrir einn leikmann.
■ MEISTARAMÓT öldunga í
fijálsum íþróttum fer fram um helg-
ina í Laugardalnum. Keppni hefst
kl. 13.30 á laugardaginn og kl. 16
á sunnudaginn. Keppt verður í
landskeppnisgreinum í flokki
kvenna (eldri en 30 ára) og flokki
karla (eldri en 35).
í bláhorninu. í báðum tilvikum var
Víkingsvörnin alveg gríðarlega
seinvirk, og gerði ekkert annað en
að bjóða norðanmenn velkomna í
bæinn.
Hugsunarvilla Víkinga
Þar með voru úrslitin ráðin og
KA-menn gáfu örlítið eftir á miðj-
unni til að kítta í vörnina. Víkingar
voru því meira með boltann; reyndu
að sækja upp kantana og gefa háar
sendingar fyrir, en heimskulegri
áætlun var ekki hægt að hugsa
sér, þar sem KA-vörnin saman-
stendur m.a. af Erlingi Kristjáns-
syni og Steingrími Birgissyni, en
þeir eru um það bil höfðinu hærri
en sóknarmenn Víkings. Þeir stóðu
því í ströngu við að skalla þessar
fyrirgjafir í burtu, og stóðu sig með
prýði. Það kom samt ekki í veg
fyrir að Bimi Bjartmars tækist að
minnka muninn á 76. mínútu með
skalla af stuttu færi, en það var
þá bara til að setja KA-liðið aftur
í gang til að bæta við tveimur mörk-
um. I fyrra skiptið átti Jón Grétar
Jónsson stórgóðan sprett upp að
endamörkum; gaf á Árna sem skor-
aði hjá Guðmundi, sem las leikinn
vægast sagt einkennilega. Þremur
mínútum fyrir leikslok skallaði Jón
Grétar svo í stöng og inn.
KA-menn voru vei að þessum
sigri komnir; vörnin var mjög sterk,
miðjan virk, og hinir fljótu sóknar-
menn þeirra geta verið stórhættu-
legir.
Nú eru einungis þijár umferðir
eftir, og þá mæta KA-menn Val
og Fylki á heimavelli, og leika svo
gegn ÍBK í Keflavík í síðustu um-
ferðinni. Það þarf því ekki mikla
heppni til þess að liðinu takist að
krækja sér í íslandsmeistaratitil og
flytja hann með sér norður yfir
heiðar í fyrsta sinn.
KNATTSPYRNA
Valsmenn
skipta inná
TITILLAUST sumar hjá Vals-
mönnum er staðreynd. Það
varð öllum Ijóst eftir leik
þeirra gegn Fylki á mánu-
dagskvöldið, og í Ijósi þess
var Hörður Helgason, þjálfari
þeirra, leystur frá störfum. í
hans stað hefur Guðmundur
Þorbjörnsson verið ráðinn, en
hann hefur aldrei áður þjálfað
meistaraflokk karla í knatt-
spyrnu.
Það er aldrei einum manni að
kenna þegar illa gengur, en
stundum þarf að taka leiðinlegar
ákvarðanir, og stjóm knatt-
spymudeildar Vals ákvað að rétt
væri að fá nýjan þjálfara á þess-
ari stundu," sagði Eggert Magn-
ússon, formaður knattspyrnu-
deildar Vals, þegar hann var innt-
ur eftir ástæðum þess að Hörður
var rekinn.
Eggert vildi sem fæst orð hafa
um þetta mál, en þegar hann var
spurður hvort almenn óánægja
hefði verið meðal leikmanna,
sagði hann að þegar illa gengi,
skapaðist vitaskuld spenna á milli
leikmanna og þjálfara.
Guðmundur Þorbjömsson, ný-
ráðinn þjálfari Vals, vildi ekkert
segja um hugsanlegar breytingar
á Valsliðinu undir sinni stjórn,
þær yrðu bara að koma í ljós í
fyrsta leik.
„Það er rétt að ég hef ekki
áður þjálfað meistaraflokk karla,
en þegar ég var beðinn um að
Herði Helgasyni hefur verið skipt
útaf...
...og inná kemur Guðmundur Þor-
bjömsson.
taka verkefnið að mér, gat ég
ekki skorast undan, þótt auðvitað
sé ekki auðvelt að taka við liðinu
á þessari stundu,“ sagði Guð-
mundur að lokum.
Víkingur—KA
Víkingsvöllur í Stjörnugróf, íslandsmótið 1. deild, þriðjudaginn 29. ágúst 1989.
Mark Víkings: Björn Bjartmarz, 76. mín.
Mörk KA: Erlingur Kristjánsson, 18. mín., Þorvaldur Örlygsson, 21. mín., Bjami Jóns-
son, 27. mín, Ámi Hermannsson, 78. mín. og Jón Grétar Jónsson, 87. mín.
Gul spjöld: Atli Einarsson, Víkingi. Jón Kristjánsson, Þorvaldur Örlygsson, Bjami
Jónsson, KA.
Dómari: Friðjón Eðvarðsson.
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson, Hallsteinn Amarson, Ámundi Sigmundsson, Atli
Helgason, Gunnar Gylfason (Bjöm Einarsson 39. mín.), Goran Micic, Atli Einarsson,
Andri Marteinsson, Trausti Ómarsson (Bjöm Bjartmarz 70. mín), Öm Torfason, Unn-
steinn Kárason.
Lið KA: Haukur Bragason, Erlingur Kristjánsson, Antony Karl Gregory (Árni Hermanns-
son, 40. mín.), Ormarr Örlygsson, Jón Grétar Jónsson, Jón Kristjánsson, Þorvaldur Örl-
ygsson, Steingrímur Birgisson, Gauti Laxdal, Bjami Jónsson, Halldór Halldórsson (Halld-
ór Kristinsson 87. mín.).
Steingrímur Birgisson, KA.
Erlingur Kristjánsson, Orm-
arr Örlygsson, Haukur Braga-
son, Jón Grétar Jónsson, Árni
Hermannsson og Bjarni Jóns-
son, KA.
1.DEILD
KA 15 7 6 2 24: 13 27
FH 14 7 5 2 20: 11 26
FRAM 15 8 2 5 19: 13 26
KR 14 6 5 3 22: 17 23
ÍA 15 7 2 6 15: 16 23
VALUR 15 6 3 6 16: 14 21
VÍKINGUR 15 4 5 6 22: 24 17
ÞÓR 15 3 6 6 16: 23 15
FYLKIR 15 4 1 10 15: 28 13
ÍBK 15 2 5 8 15: 25 11
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Ásta og Guðrún markadrottningar
Asta Benediktsdóttir úr ÍA og
Guðrún Sæmundsdóttir eru
markahæstar í 1. deild kvenna. Þær
skoruðu báðar í gær, í síðustu leikj-
unum í 1. deild kvenna. Ásta gerði
fjögur mörk og Guðrún tvö og þær
OLYMPIULEIKAR
em markahæstar með 12 mörk
hvor.
Ásta gerði fjögur mörk er ÍA
vann stórsigur á Stjömunni, 7:0 og
Guðrún gerði tvö mörk fyrir Val
sem sigraði Þór, 5:2. Helena Ólafs-
Sameinast grannarnir?
Borgaryfirvöld í Vestur-Berlín
hafa mikinn hug á því að sækja
um að fá að halda Olympíuleikana
2004, ásamt grönnum sínum í Aust-
ur-Berlín. Skipuð hefur verið nefnd
til að kanna málið en Austur-Þjóð-
verjar hafa ekki sýnt því mikinn
áhuga. Walter Momper, borgar-
stjóri í Vestur-Berlín, sagðist vona
að yfirvöld austan megin myndu
skipta um skoðun enda hefði margt
breyst þar á skömmum tíma. Þá
er reiknað með því að Kínverjar
sæki um næstu Ólympíuleika á
undan, árið 2000. Leikarnir yrðu
haldnir í Peking og búist er við að
Kínverjar leggi fram umsókn sina
á næsta ári.
dóttir úr.KA kemur næst en hún
hefur gert níu mörk.
Einn leikur til viðbótar var í
gær, KA og UBK gerðu jafntefli,
2:2.
Ikvöld
15. umferð 1. deildar íslands-
mótsins í knattspyrnu lýkur í
kvöld. Þá mætast KR og FH
á KR-velli og hefst leikurinn
kl. 19.
Þá á að gera þriðju tilraun
til að klára leik Einherja og
ÍBV í 2. deild. Leiknum hefur
tvívegis verið frestað en hann
hefur verið settur á í kvöld
kl. 19 á Vopnafirði.
1. DEILD KVENNA
ÍA—Stjarnan...................7:0
Ásta Benediktsdóttir 4, Halldóra Gylfadótt-
ir, Vanda Sigurgeirsdóttir.
KA-UBK........................2:2
Valgerður Jónsdóttir 2 — Hrafnhildur
Gunnlaugsdóttir, Sigríður Tryggvadóttir.
Þór—Valur.....................2:5
EUen Óskarsdóttir, Steinunn Jónsdóttir —
Guðrún Sæmundsdóttir 2, Kristín Arnþórs-
dóttir, Ragnheiður Vfkingsdóttir, Biyndís
Valsdóttir.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
VALUR 12 10 2 0 43: 6 32
ÍA 12 8 2 2 34: 7 26
KR 12 7 3 2 28: 8 24
BREIÐABLIK 12 5 2 5 17: 23 17
KA 12 1 4 7 12: 32 7
ÞÓRA. 12 1 3 8 11: 40 6
STJARNAN 12 1 2 9 10: 39 5
ENGLAND
1. deild:
Charlton—Chelsea.................3:0
Williams 2, Mortimer.
Southampton—Aston Villa..........2:1
Cockerill, Case — Platt.
Wimbledon—Millwall...............2:2
Fairweather, Cork — Anthrobus, Cascarino.
1.DEILD
Atli
ur leik
J\ tli Eðvaldsson spilar ekki
#%meira með Valsliðinu í
sumar vegna meiðsla í baki.
Hann er nú staddur í Vestur-
Þýskalandi S meðferð vegna
þeirra, og síðan liggur leiðin að
líkindum til Tyrklands, þar sem
hann mun leika með liði frá
Ankara.
Atli jék með í fyrstu 8 leikjum
Vals í íslandsmótinu og skoraði
tvö mörk. Þegar.hann meiddist
voru Valsmenn á toppnum með
16 stig, en síðan hefur þeim
gengið heldur brösulega.