Morgunblaðið - 16.11.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989
_ >
Til Islands að kaupa
nýsjálenskt lambakjöt?
MAMMA fór til íslands í dag -
okkur fínnst öllum lambakjöt svo
gott. Þetta er yfirskrift stórrar
Nefndin tekur ákvörðun um hver
hlýtur verðlaunin þann 23. janúar
næstkomandi í Helsinki í Finn-
landi. Verðlaunaupphæðin er 150
þúsund danskar krónur, eða um það
bil 1,3 milljónir íslenskra króna á
núverandi gengi. Verðlaunin verða
afhent á þingi Norðurlandaráðs í
Reykjavík í febrúar.
auglýsingar sem birtist nýlega í
breska blaðinu Daily Express.
Islenskir lesendur reka væntan-
Af íslands hálfu sitja í dómnefnd-
inni Jóhann Hjálmarsson og Sveinn
Einarsson. Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs voru fyrst veitt
árið 1962. Þrír íslendingar hafa
fram til þessa hlotið verðlaunin,
Ólafur Jóhann Sigurðsson árið
1976, Snorri Hjartarson árið 1981
og Thor Vilhjálmsson árið 1988.
lega upp stór augu, og ekki
minnkar undrunin þegar aðeins
neðar er tilkynnt að heilt læri
af nýsjálensku lambi kosti aðeins
1,29 sterlingspund hvert enskt
pund (454 grömm).
Það- er þó ekki svo að breskir
neytendur skreppi yfir hafið til ís-
lands til að kaupa sér nýsjálenskt
lambakjöt, heldur er auglýsingin frá
breskri verslanakeðju sem heitir
Iceland, og sérhæfir sig í að selja
frystar matvörur.
Aðalstöðvar Iceland eru í Wales,
og að sögn Peters Weston, mark-
aðsstjóra var fyrirtækið stofnað af
tveimur framkvæmdamönnum á
sjöunda áratugnum, og seldi þá
aðallega frosið grænmeti. Fyrirtæk-
ið óx hratt og fyrr á þessu ári yfir-
tók það annað fyrirtæki sem seldi
frosin matvæli. Nú rekur Iceland
um 470 verslanir í Bretlandi.
Starfsmenn eru um 10.000 og velt-
an er um 700 milljónir punda.
Weston sagðist ekki vita til þess
að íslenskar matvörur væru á boð-
stólum í búðum íslands.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1990:
Matthías og Svava
fulltrúar Islands
DÓMNEFND um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs tilkynnti í
gær hvaða bækur yrðu lagðar fram til verðlaunanna 1990. Af ís-
lands hálfu verða lagðar fram bækurnar Gunnlaðar saga eftir Svövu
Jakobsdóttur og ljóðabókin Dagur af degi eftir Matthías Johannessen.
VEÐUR
VEÐURHORFUR íDAG, 16. NÓVEMBER.
YFIRLIT í GÆR: Suðlæg átt á landinu, víðast gola eða kaldi. Súld
eða rigning var við suðurströndina, en skúrir á annesjum vestan-
lands. Þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi.
SPÁ: Hæg suðíæg átt, þurrt og bjart veður norðaustantil á landinu
en súld, rigning eða slydda á Suður- og Vesturlandi. Hiti 2—6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg suðlæg átt með snjó- eða slydduélj-
um og hita rétt yfir frostmarki sunnanlands en þurrt og vægt frost
nyrðra.
HORFUR Á LAUGARDAG: Vaxandi norðaustanátt og kólnandi veð-
ur. Él norðanlands- og austan og líklega einnig við suðurströndina
en að mestu þurrt vestanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y' Norðan, 4 vindstig: -\ Q° Hitastig:
^ Vindörin sýnir vind- 10 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. y Él
/ / / / / / Rigning = Þoka
/ / / = Þokumóða
* / * > Súld
* / * Slydda / * / oo Mistur
■* # * 4 Skafrenningur
* * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 7 skýjað
Reykjavik 4 skýjað
Bergen 6 léttskýjað
Helsinki 0 skýjað
Kaupmannah. 7 léttskýjað
Narssarssuaq •f-1 snjókoma
Nuuk 4-5 snjókoma
Osló 8 hálfskýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Þórshöfn 8 léttskýjað
Algarve 19 léttskýjað
Amsterdam 11 skýjað
Barcelona 17 aiskýjað
Berlín 7 skýjað
Chicago 7 súld
Feneyjar 9 þokumóða
Frankfurt 1 þokumóða
Glasgow 9 skýjað
Hamborg 10 léttskýjað
Las Paimas 19 skýjað
London 11 skýjað
Los Angeles 12 þokumóða
Lúxemborg 7 þokumóða
Madríd 15 þokumóða
Malaga 18 alskýjað
Mallorca 20 alskýjað
Montreal 2 rigning
New York 17 skúr á s. kl.
Orfando 19 skýjað
Parls 8 léttskýjað
Róm 15 þokumóða
Vín 6 skýjað
Washington 16 alskýjað
Winnipeg 415 ísnálar
Mum’s gone to
Icelandtoday-
weall
love lamh
AWHOLELEG OF
NEW ZEALAND LAMB!
AMAZING VALUE ATJUS
SAVE 50p
The big choice in frazen food.
Alþýðubandalag:
Auglýsingin í Daily Express.
Níundi
landsfiuidur
NÍUNDI landsfundur Alþýðu-
bandalagsins hefst síðdegis í dag
í Borgartúni 6 í Iteykjavík, en
kjörorð fundarins er Nýr grund-
völlur fyrir nýja tíma.
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins setur lands-
fundinn, og að því loknu flytja
Svanfríður Jónasdóttir, Svavar
Gestsson, Steingrímur J Sigfússon,
Arthúr Mortens, Margrét
Frímannsdóttir og Björn Grétar
Sveinsson framsöguræður um
framtíðarverkefni flokksins. Al-
mennar stjórnmálaumræður hefjast
svo í kvöld og halda áfram á morg-
un ásamt nefndarstörfum og starfs-
hópum. Á laugardag er hliðarráð-
stefna um Evrópu í breyttum heimi
og pallborðsumræður og kosning
stjómar og framkvæmdastjórnar
síðdegis.
Fyrirspurn í Borgar-
ráði vegna fram-
kvæmda við Lágmúla
Merkilegt að engar athugasemdir komu
fram við úthlutun, segir Júlíus Hafstein
ALFREÐ Þorsteinsson Framsóknarflokki, hefiir lagt fram fyrirspurn
í borgarráði vegna byggingarframkvæmda við skrifetofu- og verslunar-
húsnæði við Lágmúla 6 til 8. Spurt er hvort borgaryfirvöld ætli að
beita sér fyrir afturköllun þessarar lóðaúthlutunar í ljósi þeirra upplýs-
inga, sem liggi fyrir. Júlíus Hafstein, sem stendur að hluta byggingar-
innar, vísar á bug ásökunum Alfreðs um lóðabrask. „Ég get að sjálf-
sögðu ekkert gert við þvi þó að pólitískir andstæðingar mínir vilji
skyggnast í þessa hluti eða aðra, hitt er athyglisvert að þeir gerðu
ekki athugasemdir við þetta mál þegar úthlutun fór fram, það er
merkilegt út af fyrir sig,“ segir Júlíus.
í fyrirspurninni segir: „í frétt
Mbl. 5. nóvember s.l. er skýrt frá
því, að einn af borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins sé aðili að stórbygg-
ingu í Lágmúla 6-8, sem telst vera
álitlegur byggingarstaður undir
skrifstofu- o g verslunarhúsnæði,
enda mjög miðsvæðis.
Það sem vekur sérstaka athygli
við áðurnefnda frétt Mbl. er sú stað-
reynd, að borgarfulltrúinn, sem
nefndur er, hefur fyrir alllöngu selt
rekstur fyrirtækis síns og hefur þar
af leiðandi ekki lengur þörf fyrir
umrædda lóð.
Borgarráð hefur markað mjög
skýra stefnu í skyldum málum. M.a.
var nýlega afturkölluð lóðarúthlutun
fyrirtækis, sem ýsti yfir, að það
hefði ekki þörf fyrir lóð, sem því
hafði verið úthlutað, og hugðist
framselja öðrum aðila.
Með þessari ákvörðun sinni vildi
borgarráð koma í veg fyrir lóða-
brask, en það er á vitorði borgarfull-
trúa, að lóðabrask með atvinnu-
húsalóðir hefur aldrei verið meira
en nú, sbr. þá staðreynd, að einung-
is einn aðili af þeim fjölmörgu, sem
fengið hafa úthlutun í austurhluta
Skeifunnar, er með atvinnurekstur
á eigin lóð. Hinar lóðirnar hafa geng-
ið kaupum og sölum og milljóna-
tugir runnið í vasa aðila fyrir það
eitt að senda inn lóðaumsóknir óg
fá úthlutun.
Út yfir allan þjófabálk tekur, þeg-
ar kjömir borgarfulltrúar taka þátt
í slíkum leik, eins og reyndin sýnist
vera með lóðina í Lágmúla. Forsenda
fyrir upprunalegri lóðaúthlutun til
fyrirtækis borgarfulltrúans er ósk
um 700 fermetra húsnæði, sem þörf
var talin á. í dag virðist umrætt
fyrirtæki vera rekið í gegnum einn
símsvara og án starfsfólks. Þörf fyr-
ir jafnstóra lóð undir símsvara er
því út í hött. Fyrir viðkomandi aðila
er hér hins vegar um verslunarvam-
ing að ræða, sem skiptir milljónum
króna.“
Júlíus Hafstein kveðst hafa sótt
um lóð ásamt mörgum öðmm fyrir
meira en fimm ámm síðan og feng-
ið úthlutað í ágúst 1985. „Við höfum
unnið að því í rúm þijú ár að hefja
þessar framkyæmdir með tei'kningr
um frá teiknistofu Gunnars Hans-
sonar.“
Júlíus kveðst hafa sótt um lóðina
á þeim tíma sem hann var varaborg-
arfulltrúi. „Síðan er ég kjörinn borg-
arfulltrúi og tek að mér meiri störf
en þrátt fyrir það held ég áfram
rekstri mínum og er búinn að vera
með hann í mjög góðum gangi þang-
að til í byrjun þessa árs að ég sel
stóran hluta af rekstrinum, en ekki
fyrirtækið. Það hefur verið minni
rekstur á þessu ári af skiljanlegum
ástæðum, en þrátt fyrir það hef ég
ekki ákveðið að hætta í viðskiptum
og hef hugsað mér að halda þeim
áfram. Ég er þarna að byggja yfir
framtíðina og við gerum það sameig-
inlega, í þessu tilviki, ég og Ólafur
H. Jónsson hf., eða okkar fyrirtæki.
Við höfum fengið byggingarmeist-
ara og verktaka til að annast þessa
hluti fyrir okkur.“
Júlíus sagði að það væri ekkert
launungarmál, varðandi ásakanir
um lóðabrask, að borgarritari hefði
óskað eftir skýringum og þær kvaðst
hann munu gefa. „Mér finnst ekkert
athugavert við það i sjálfu sér, þó
að beðið sé um skýringar að þessu
leyti varðandi þessa framkvæmd, ég
mun að sjálfsögðu gefa þær. Þess
má geta að fyrirtækið átti aðrar
eignir og hefur selt þær, meðal ann-
ars vegna þessara framkvæmda, og
við höfum að öllu leyti staðið eðli-
Iega að þessu máli frá því að við
fengum úthlutað og staðið við okkar
skyldur gagnvart borgaryfirvöldum
um alla þá þætti sem til er gert
vegna framkvæmda."
Júlíus var spurður hvort hann
hefði áætlað hvenær hann flytti inn
í húsið með fyrirtæki sitt. „I samn-
ingum við verktaka er gert ráð fyrir
að húsið verði fokhelt í mars, en
þetta hús verður ekki tilbúið fyrr
en um áramótin 1990/’91 svo að það
er langt í land, en ég hef tryggt
mér húsnæði fyrir fyrirtækið á með-
an,“ sagði hann. En, telur Júlíus að
ásakanir Alfreðs séu af pólitískum
toga vegna þess hve stutt er til borg-
arstjórnarkosninga? „Ég legg ein-
dregið til að aðrir svari því, en ekki
ég,“ sagði hann.