Morgunblaðið - 16.11.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.11.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NOVEMBER 1989 33 Ogn Guðmunds- dóttir - Minning Fædd 7. september 1892 Dáin 6. nóvember 1989 Já, nú er hún búin að kveðja hún Ögn, eða Agga, eins og hún var nefnd af flestum. Eftirlifendum virtist hún gerast sem betur fer átakatítið, þessi færsla yfir á æðra tilverustig, sem öllum mætir, fyrr eða síðar. Agga fæddist þar sem hvað stærst landsvæði hafa farið í eyði á þessari öld, en það eru eins og kunnugt er Hornstrandirnar. Þetta gerðist á bænum Seljanesi, nálægt Kúvíkum við Reykjaríjörð. Faðir Öggu var Guðmundur Þor- kelsson, en móðirin Jakobína Magn- úsdóttir. Þær voru alltaf saman mæðgurnar. Jakobína var mikil ull- arvinnukona og minnist ég ekki að hafa séð neina aðra þeyta rokkinn af þvílíkum krafti sem hana. Þær mæðgur fluttust til Patreks- íjarðar og svo árið 1916 til Hafnar- Ijarðar. Þar bjó Ögn alllengi með Eysteini Jakobssyni frá Hraunsholti og eignaðist með honum tvo syni, Gunna og Helga. Síðast átti hún lengi heima í kjallaranum á húsi þess síðarnefnda, Öldugötu 3A í Sigurður P. Eiríks- son - Minning Fæddur 16. nóvember 1907 Dáinn 13. október 1989 Mig langar hér með örfáum orð- um að minnast afa míns sem lést 13. október á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Hans afa míns, sem sat örfáum stundum áður en hann lést, sæll og glaður að spila við félaga sína, eins og hann gerði alla daga, og þá skyndilega kom kallið. Margar yndislegar minningar á ég hann barn afa og öll árin okkar í Norðurgötu 30. Þar sem kær- leiksríkt samband afa og ömmu gaf okkur öllum svo mikið, afi með sína léttu lund og geislandi bros og amma ljúf og góð síbakandi upp í svanga munna. Afi vann hjá Ut- gerðarfélagi Akureyringa frá því ég man eftir mér og bjuggu þau amma allan sinn búskap í Norður- götu 30, þar sem afi ræktaði garð- inn sinn vel og fannst okkur jólin vera komin þegar kveikt hafði ver- ið á stóra trénu í garðinum sem lýsti upp allt nágrennið. Undanfarið eitt og hálft ár hafa þau búið á Dvalarheimilinu Hlíð í góðu yfirlæti þar sem gott var til þeirra að koma, alltaf var afi tilbú- inn með bijóstsykurskálina, en mest fannst honum þó gaman að + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGI S. EGGERTSSON, Árlandi 8, lést í Landakotsspítala þriðjudaginn 14. nóvember. Lilja Jónsdóttir, Rósa Björg Helgadóttir, Orthulf Prunner, Guðrún Helgadóttir, Garðar Guðmundsson og barnabörn. fara í sinn reglubundna bíltúr nið- ur á Eyri að skoða gamla húsið sitt og umsvif Útgerðarfélags Ak- ureyringa. Það sakna allir afa, stórir sem smáir, hann var svo góður, alltaf hress og glaður. Við þökkum elsku afa og lan- gafa fyrir allt, og biðjum Guð að varðveita og styrkja elsku ömmu í hennar mikla missi. Regína og Linda Hafnarfirði, og mun það sambýli hafa verið báðum til ánægju. Árið 1922 giftist Ögn Emil Randrup, manni lífsglöðum og hressum, eins og hún var sjálf. Emil fæddist í Danmörku, bar margt við og hafði víða farið. Hann var mikið á sjó fram eftir ævi, en einnig fékk hann réttindi sem málari og stundaði þá iðn mikið. Þau eignuðust íjögur börn, Huldu, Emmu, Magnús og Ágústu. Barnabörnin munu vera a.m.k. 25 og löngum hafði Ögn jákvæð samskipti við hálfsystur sínar tvær í Reykjavík, Þorkelsínu og Guðrúnu. Ekki þótti Öggu nóg að vera heimavinnandi húsmóðir, þótt margs handtaksins þyrfti við á þetta íjölmennu heimili, heldur fór hún einnig í fiskvinnu hjá Ein- ari Þorgilssyni, og einmitt í það starf þar sem kappið var mest — vaskið. Vitanlega er betri íslenzka að nefna það fiskþvott, en mér finnst að einmitt af virðingu fyrir þessum orðlögðu „vaskakonum" eigi að nota það orð sem þær höfðu um þetta verk. Sá beini kunnings- skapur sem ég hafði við Öggu var lítið annað en það, að ég var á barnsaldri oft sendur þangað, til að fá lánaðar nokkrar arkir úr Sögusafni heimilanna, ömmu minni til lestrar. Alltaf var mér tekið með brosi og vingjarnleika og einhveiju bragðgóðu í munninn. Agga var hláturmild og lífsglöð og sá jafnan hinar jákvæðu hliðar á tilverunni. Margt mun hafa verið spjallað yfir kaffibollanum, þegar Sigríður Er- lends sat þar á síðkvöldum. Sameig- inleg áhugamál þeirra voru m.a. vöxtur og viðgangur Alþýðuflokks- ins og jákvæður og snurðulaus rekstur dagheimilisins á Hörðuvöll- um. Þar var Sigríður í forystusveit- inni og Ögn studdi hana dyggilega í þeim málum öllum og sjálf vann hún þar við ræstingar í mörg ár. Þessum fátæklegu orðum fer nú að ljúka. Aldamótakynslóðin er að kveðja og maður sér ekki lengur Öggu, fóthvata og snara í snúning- um, brosandi og með sitt silfurhvíta hár. Hún er horfin okkur, en við, bæði skyldir og vandalausir, þökk- um henni samfylgdina og biðjum henni guðs blessunar á æðra til- verustigi. Magnús Jónsson HERRASIiÓR Veró 2.995,- Stærðir: 40-46. Litur: Svart. Efni: Skinn, léttur og lipur sóli. Ath.: Jólaskór á börn í miklu úrvali. Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur. KRINGMN KBIHeNH S. 689212 tobÆ VELTUSUNDI 1 21212 Stor núrner Verslunin eropin frá kl. 16-18 og laugard.frá kl. 10-14. Fáið ókeypis lista. Sími 62 23 35. MANDA Baldursgötu 32. SIEMENS Öflug fyk?ggg! Stillanlegur sogkraftur (250- 1100 W). 4 fylgihlutir í inn- byggðu hólfi. Fjórföld sýklasía í útblæstri. Sjálfinndregin snúra og hleðsluskynjari. SIEMENS framleiðsla ll tryggir endingu og gæði. Verð 15.400,- kr. m SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.