Morgunblaðið - 16.11.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.11.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989 29 Argentínski rithöfundurinn Silo í heimsókn á íslandi: Krafist verður pere- strojku í Vestur-Evrópu ARGENTÍNSKI rithöfundurinn Silo, öðru nafiii Mario Luis Rodrig-uez Cabos, er staddur hér á landi til að kynna bók sína, „Að gera jörðina mennska," sem bókaútgáfan Hildur gaf út nýlega. Silo sagði í samtali við Morgunblaðið að þróunin í Austur-Evrópu væri algjörlega andstæð við það sem stefiit væri að í Vestur-Evrópu. Austur-Evrópubúar væru að reyna að losa sig við miðstýr- ingu frá valdatíma Stalíns samtímis því sem stefiit væri að yfirríki og aukinni miðstýr- ingu í Vestur-Evrópu. Hann kvað sameiningaráform Evr- ópubandalagsins geta reynst stórhættuleg og spáði því að upp kæmu hreyfingar í Vestur- Evrópu er berðust fyrir umbót- um í líkingu við perestrojku Míkhaíls Gorbatsjovs Sovét- forseta. „Það yrði algert stórslys ef Evrópubandalagið verður yfirríki og gegri því verða Evrópubúar að berjast. Okkur ber hins vegar að stefna að meiri valddreifingu. Ég tel afar líklegt að á ýmsum stöð- Morgunblaðið/Júlíus Argentínski rithöfundurinn Silo. um í Vestur-Evrópu rísi upp svip- að fyrirbæri og perestrojka í Sov- étríkjunum. Þegar það gerist kemur það örugglega Vestur- landabúum jafn mikið á óvart og hin öra þróun í Austur-Evrópu að undanförnu. Þar er verið að end- urskipuleggja valdakerfið og Vesturlandabúar halda í sjálfum- gleði sinni að umbæturnar hljóti að vera að vestrænni fyrirmynd. Það er alrangt,“ sagði Siko. Rithöfundurinn sagði að sér- hver þjóð, sem gengi í yfirríkja- stofnun, ætti á hættu að verða fyrir miklum skakkaföllum því ákvarðanir valdhafana bygðust á duttlungum einstakra hagsmuna- hópa. Hann kvað sameiningará- form Evrópubandalagsins einkum sniðin að þörfum alþjóðafyrir- tækja, sem vildu losa sig við ýms- ar viðskiptahömlur. Hann sagði að þótt sameining Evrópu væri nauðsynleg bæri að beijast gegn ofurvaldi alþjóðafyrirtækjanna. Við sameininguna þyrfti m.a. að aðskilja efnahagslegt vald og pólitíska yfirstjórn. Silo fæddist í Argentínu 6. jan- úar 1938 og hafa bækur hans verið gefnar út í ýmsum löndum. Bókin „Að gera jörðina mennska“ fjallar um vandamál mannsins, menntunina, söguna, ofbeldið, lögin, ríkið og trúarbrögðin. Pólitík í nýjum umbúðum ________Bækur___________ Björn Bjamason UMBÚÐAÞJÓÐFÉLAGIÐ eftir Hörð Bergmann. Útgefandi: Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagið. Reykjavík, 1989. 168 blaðsíður. Hörður Bergmann lýkur bók sinni um umbúðaþjóðfélagið með þessum orðum: „Allt sem við leggjum til, utan flokka sem innan, á fundum og yfir kaffibolla, þarf að miða að því að grafa undan rótum þjóðmála- stefnu sem einkennist af skamm- sýni, sérhyggju, sóun, ójöfnuði og firringu. Verk okkar eiga að vitna um heildarsýn og vilja til að búa í þjóðfélagi sem tekur mið af framtíð- inni og ástundar hóflega nýtingu auðlinda. Þjóðfélagi þar sem keppt er að jöfnuði og auknu lýðræði. Á mælikvarða þess þjóðfélags skulum við meta verk okkar og viðleitni — og þau öfl sem eru að verki í sam- félagi okkar þjóðanna.“ Af þessum orðum má auðveldlega ráða, að fyrir Herði hefur vakað að skrifa bók í þeim tilgangi að leggja grund- völl að þjóðmálastefnu, enda ber bók hans undirtitilinn: Uppgjör og afhjúpun. Nýr framfaraskilningur. Úmbúðaþjóðfélagið er þjóðfélag eins og okkar, þar sem við höfum hlaðið alltof miklu í kringum okkur að mati Harðar og veijum bæði tíma, orku og ijármunum í fánýta sókn eftir vindi. Eftir að ég hafði tekið til við' að kynna mér efni bók- arinnar, var ég á göngu eftir Eiríks- götu hér í borg og sá móður koma út af Fæðingarheimilinu með barn vandlega vafið inn í hvíta sæng. Var henni fylgt að bíl sem ók henni og baminu á brott. Þá flaug mér í hug, hvort Herði Bergmann kynni að þykja sú umhyggja sem þarna var sýnd til marks um villur okkar í umbúðaþjóðfélaginu. Hvar á setja mörkin, þegar þau þægindi eru metin, sem við getum leyft okkur? Hvar og hvenær á að heija niður- skurðinn? Verður hann ekki að heij- ast strax við komuna í heiminn? Mér finnst að þessi bók sé að verulegu leyti umbúðir utan um þá einföldu skoðun, að ekki sé alit unnið með stærðinni. Margt sem höfundur nefnir stangast harkalega á við viðteknar skoðanir. Hann er til dæmis afdráttarlaus í gagnrýni sinni á heilbrigðiskerfið, en eins og kunnugt er væri unnt að veija öllum tekjum íslenska ríkisins til þess eins að koma til móts við óskir lækna og annarra sem bera hag þess kerf- is fyrir bijósti. Útfærsla höfundar á gagnrýni er ekki alltaf nægilega rökstudd eða markviss. Honum er auk þess of gjarnt að halda skoðun- um. sínum að lesendum. Hefði farið betur á því að hann léti staðreyndir og sterk dæmi nægja málstað sínum til stuðnings. Lesandanum hefði oftar mátt treysta til að móta sér sjálfur skoðun á viðfangsefninu. Bókin tvinnar saman mörg við- fangsefni. Hún hefur að geyma pólitískan boðskap. Hún er greining á þjóðfélagi líðandi stundar. í henni felst framtíðarspá. Hún er rit um óhæfilega meðferð á takmörkuðum auðlindum. Að tengja þetta allt saman í eina heild á ekki fleiri blað- síðum og ætla jafnframt að gefa lesandanum veganesti í pólitíska baráttu er virðingarvert framtak en of víðtækt. í ýmsu tilliti er ég sammála höfundi en hann tekur efnið ekki nægilega föstum tökum að mínu mati. Hann er að reyna að fóta sig á einhveijum meðalvegi milli marxisma og markaðshyggju, Bókaútgáfan Reykholt: Bækur um Reg- ínu ft*éttarit- ara og Krist- ján Thorlacius MEÐAL jólabóka bókaútgáfúnn- ar Reykholts eru bækur um Kristján Thorlacius fyrrum form- ann BSRB og Regínu Thorarens- en fréttaritara. Það er sr. Baldur Kristjánsson sóknarprestur á Höfn í Homafirði sem ræðir við Kristján Thorlacius og skrifar um hann í bókinni Þegar upp er staðið. Regína - Fréttaritari af Guðs náð, er viðtal við Regínu og úrval fréttagreina hennar. Hún var fyrst fréttaritari Morgunblaðs- ins á Ströndum, síðan Dagblaðsins á Eskifirði og loks DV á Selfossi. Jón Kr. Gunnarsson skrásetti. Á vængjum vitundar nefnist bók með viðtölum, greinum og frásögn- um um framhaldslíf og fleiri jarð- vistir. Guðmundur Sæmundsson tók saman og hann þýddi einnig ljóða- bókina Blá fíðrildi, eftir Leonard Cohen. Bókin er gefin út með styrk frá Þýðingarsjóði menntamálaráðu- neytisins. Þá kemur út unglingabókin Lífið er lukkuspil, eftir Erling Pedersen í þýðingu Sigurðar Helgasonar og Bette Davis, Líf og listir leikkonu, eftir Charles Higham, er nú gefin út í annað sinn, en leikkonan -lést fyrir skömmu. Hörður Bergmann sem ég held að sé ekki unnt að setja fram sem fullmótaða leið á sannfærandi hátt. Þjóðfélagsgrein- ing höfundar byggist á þeim skoð- unum sem hann ætlar að halda að lesandanum og fá hann til að sam- þykkja. Við vitum það hins vegar öll, að við viljum ekki vera án um- búðanna, þótt sjálfsagt sé að hneykslast á þeim eins og öllu öðru. Um umbúðirnar má segja hið sama og vopnin: Þær verða ekki ekki til af sjálfu sér og til þeirra er ekki gripið nema mennirnir vilji það. ProMinent Skömmtunardælur Eigum fyrirliggjandi skömmtunar- dælur og fylgihluti fyrir allar tegundir af vökvum t.d. klór, hreinsiefni, áburð- arlausnir o.s.frv. Utvegum einnig sjálfvirk stýritæki fyrir klór, sýrustig og leiðni. Helstu notkunarstaðir: fiskvinnsla, matvælaiðnaður, sundlaugar og heitir pottar, gróðurhús, efnaiðnaður og annars staðar þar sem nákvæmrar skömmtunar er krafist. Það borgar sig að velja það besta. Einkaumboð á íslandi: Þekking Reynsla Þjónusta - FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI84670 ACO Húðhirða Tilfinning og skynsemi Nú er verið að kynna nýja húð- hirðulínu í apótekunum - ACO Húðhirðu. Tvennt er mikil- vægt við val á húðhirðuvörum: Þær þurfa að vera þægilegar í notkun og þær mega ekki valda húðertingum eða ofnæmi. Þeg- ar þú kaupir ACO húðhirðu- vörurnar færðu góðar vörur sem eru gerðar úr bestu fáan- legum hráefnum. ACO Roll On, áhrifaríkur en samt mildur svitalyktareyðir. Minnkar svitaútstreymi og vinnur gegn óþœgilegri svita- lykt. Inniheldur ekkert húðert- andi spritt. 50 ml ACO MUd Tvál er sérstaklega mild sápa. Bæðifyrir almennan líkams- þvott og hreinsun viðkvæmrar húðar. 250 ml TILBOÐ: ÞEGAR ÞÚ KAUP- IR ACO HÚÐHIRÐUVÖRU AÐ EIGIN VALI, FÆRÐU ACOMILD TVÁL125MLÍ KAUPBÆTI. TILBOÐIÐ STENDUR Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST. ACO Húðhirða Aðeins í apótekinu! FYRIRTAK hf. sími 91-3 20 70

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.