Morgunblaðið - 16.11.1989, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.11.1989, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NOVEMBER 1989 TEMMA BELLI GALLERÍBORG TEMMA Bell opnar sýningu á verkum sínum í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, fimmtudag- inn 16. nóvember kl. 17. Temma Bell er fædd í New York árið 1945. Hún er dóttir hjónanna Leeland Bell og Louisu Matthíasdóttur sem eru íslend- ingum að góðu kunn. Eigin- maður Temmu er Ingimundur Kjarval, sonarsonur Jóhannesar S. Kjarval. Temma Bell nam við Boston University, Indiana Uni- versity og lauk BFA-prófi frá Philadelphia College of Art. Eft- ir námslok bjó hún í Reykjavík og New York. Þetta er áttunda einkasýning Temmu. Síðast sýndi hún í Bow- ery Gallery, N.Y.C. árið 1988. Árið 1980 sýndi Temma í List- munahúsinu í Reykjavík. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga m.a. í Haller Gall- ery, Washington Depot, Ct. „Group show“ árið 1984. Árið 1985 „Mother Daughter Show“ Southem Allegheny Museum of Art. Landscape Show, Borg- enicht Gallery, N.Y.C. 1988 og síðast 1989 í College of William and Mary, Williamsburg „Draw- ing Show“. Temma Bell Verk eftir Temmu Bell eru m.a. í eigu Canton Art Institude, Chemical Bank, Holland Bank og í einkasöfnum. Á sýningu Temmu nú i Gall- erí Borg eru olíumyndir, smáar og stórar aðallega frá ís- landi. Sýningin er opin frá kl. 10-18 virka daga og frá kl. 14-18 um helgar. Henni lýkur þriðjudaginn 28. nóvember. Ein mynda Temmu Bell. Morgunblaðið/Júlíus Malarflutningabíll ekur fram hjá TF-RLR þar sem vélin bíður á útskoti á Krísuvíkurvegi skammt sunn- an Hafnarfjarðar skömmu eftir nauðlendinguna. Flugrél nauðlenti á Krísuvíkurvegi Engin umferð um veginn þá stundina EINS hreyfils flugvél úr Reykja- vík var nauðlent á Krísuvíkur- vegi í Kapelluhrauni, skammt sunnan Hafharflarðar, síðdegis í gær. Vélin er óskemmd og tveir menn sem í henni voru sluppu ómeiddir. Töluverð um- ferð er um Krísuvíkurveg, þar aka meðal annars um stórir malarflutningabílar, en engir bílar voru nálægir þegar vélin lenti. og vel, olían er þá ekki upp á borð- um í næstu kjarasamningum fiski- manna, ekki höfum við sjómenn neitt við þá skoðun Kristjáns Ragn- arssonar, formanns LÍÚ, að athuga. Hins vegar má benda á, og það er aðalatriðið, að þessi búnaður til brennslu á svartolíu er til staðar í skipum. Hér er hægt að byija að spara strax og það án þess að fara út í fjárfestingar." Garðar Sigurðsson flugmaður til hægri og Gunnar Skarphéðinsson farþegi við vélina. inn fljúga yfir Krísuvík. Þegar flugvélin var komin suður fyrir Hafnaríjörð drapst á hreyfli henn- ar og tilkynnti flugmaðurinn það til flugumferðarstjóra klukkan 16.15. Garðar sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann hefði fyrst reynt að koma hreyflinum aftur í gang en ekki tekist og síðan farið að svipast um eftir lendingarstað. Hann sagðist hafa verið í 1.000 feta hæð og haft sæmilegan tíma. Hann hefði í fyrstu tekið stefnuna á kvartmílubrautina, sem er í Kap- elluhrauni skammt sunnan við ál- verið í Straumsvík, með það í huga að lenda þar en síðan snúið við og lent á Krisuvíkurveginum í suður. Hann sagði að engin umferð hefði verið á veginum þá stundina og lendingin tekist veí. Bundið slitlag er á veginum. Klukkan var 16.21 þegar flugmaðurinn tilkynnti að hann væri lentur. Eftir lendingu færðu Garðar og Gunnar flugvélina á útskot á veg- inum og síðar komu starfsmenn Merkingar á Fermitex 1 samræmi við reglur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur ekki ástæðu til að banna sölu á Fermitex-vítissóda, enda séu allar merkingar á umbúðum efnisins í samræmi við reglur. Fermitex er notað til að losa stíflur úr rörum. Eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu á þriðjudag brenndist kona i andliti þegar efnið, sem komst í snertingu við heitt vatn, gaus upp. Tryggvi Þórðarson, heilbrigðis- fulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, segir að ekki sé ástæða til að banna sölu efnisins. Merkingar á umbúðum í verslunum innflytjandans hafi verið kannaðar og þær uppfylli settar reglur. Notk- un sé skýrð, tekið fram að um eitur sé að ræða og hvað skuli gera ef slys verður. rannsóknadeildar Loftferðaeftir- litsins á vettvang. Ómar Ragnarsson fréttamaður flaug vélinni til Reykjavíkur í gær- kvöldi og gekk sú ferð áfallalaust. Frjálslynd- ir hægri í mál vegna út- gáfiistyrkja ÞINGFLOKKUR Fijálslynda hægri flokksins hefúr ákveðið að höfða mál til að fá ráðstöfun- arrétt á fjárveitingum þessa árs til „styrkja til blaðaútgáfii“ og „til útgáfiimála skv. ákvörðun þingflokka". Þingflokkarnir skiptu þessum flárveitingum á milli sín áður en tveir þingmenn Borgaraflokksins sögðu sig úr honum í byrjun apríl og stofii- uðu Frjálslynda hægri flokkinn. Umræddar fjárveitingar eru samtals 72 milljónir kr. Ingi Bjöm Albertsson annar þingmaður Fijálslynda hægri sagði að flokk- urinn hefði gert kröfu um að fá þann hluta styrkjanna sem deilt var á milli þingflokkanna í hlut- falli við þingmannafjölda. Sá hluti styrkjanna er rúmar 685 þúsund krónur á hvern þingmann. Ingi Björn sagði að búið væri að fela lögfræðingi að annast málsóknina en ekki væri ákveðið hvemig að henni yrði staðið. Taldi hann eðli- legast að fara í mál við Borgara- flokkinn þar sem sá flokkur hefði fengið þessa peninga greidda en neitaði að skila þeim. Flugvélin, sem er fjögurra sæta, er af gerðinni Cessna Skyhawk og ber einkennisstafina TF-RLR. Flugmaður var Garðar Sigurðsson úr Grindavík en hann er einn af eigendum vélarinnar og með hon- um var Gunnar Skarphéðinsson úr Hafnarfirði. Vélin fór frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 16.09 í gær og hugðist flugmaður- __ * Guðjón A. Kristjánsson formaður FFSI: OKan er ekki uppá borð um í næstu samningum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi firá Guðjóni A. Krist- jánssyni, formanni Farmanna- og fiskimannasambands Islands: „Vegna þess sem haft er eftir Kristjáni Ragnarssyni, formanni LÍÚ, í Morgunblaðinu 12. nóvember síðastliðinn og öðmm fjölmiðlum að undanförnu, vil ég taka fram eftirfarandi: Þar sem skilja mátti á orðum Kristjáns að ég væri að fara með staðlausa stafi og að eftir Iitlum spamaði væri að slægjast, þegar ég segi að spara megi 200-300 milljónir króna með því að nota svartolíu á togurum, er rétt að eftir- farandi sé á hreinu. Verð á gasolíu í dag er 13,60 lítrinn eða 16.385 kr. tonnið. Svart- olía kostar í dag 9.980 kr. tonnið. Svartolía er ca. 37% ódýrari en gasolía. Togarinn sem ég er á, Páll Páls- son ÍS 102, eyðir ca. 4.500 lítrum á sólarhring. Miðað við 270 úthalds- daga er áætluð olíunotkun 1.215.000 lítrar sem kosta á núver- andi gasolíuverði 16,5 millj. kr. á ársgrundvelli. Ef notuð er, eins og gert hefur verið, svartolía sparast ca. 6,1 millj. kr. Ég veit einnig, að 20 af rúmlega 100 togumm brenna svartolíu og em búnir að gera það með góðum árangri í mörg ár. Það ætti að vera mjög auðskilið mál, að útgerðarmenn þessara togara væm ekki að brenna svartolíu, ef þeir teldu sig ekki hafa hag af því. En af því að ég vissi að raddir eins og Kristjáns Ragnarssonar kæmu fram, hafði ég, áður en ég setti fram mína staðhæfingu, samband við útgerðir skipa sem brenna svart- olíu og fékk staðfestingu á því að engir sérstakir erfiðleikar væm samfara notkun svartolíunnar. Vilji er það eina sem þarf. Ég endurtek því það sem ég sagði á þingi FFSÍ. Þessu hefur ekki ver- ið sinnt af útgerðarmönnum, á sama tíma er talað um taprekstur og að of mikið fari í launakostnað til sjómanna. Það er leitt, þegar menn hafa ekki lengur tíma til þess að spara peninga, nema í kjarasamningum við sjómenn, þá kemur olíukostnað- ur útgerðar alltaf inn í umræður. Kristján segir að olíunotkun komi kjarasamningum ekkert við, gott

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.