Morgunblaðið - 16.11.1989, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989
23
Fyrsti ársfimdur ríkisspítalanna:
Virðist refsað fyrir hag-
ræðingu o g sparnað
HAGRÆÐING og sparnaður að undanförnu hefur ekki orðið ríkissp-
ítölunum til góðs. Yfir 300 milljónir króna vantar á fjárframlög af
íjárlögum næsta árs til að unnt verði að halda óbreyttri starfsemi
frá því sem verið hefur í ár. Fjárskortur sjúkrahúsanna var ræðu-
mönnum á fyrsta ársfúndi ríkisspítalanna ofarlega í huga.
Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir
Sjóvarnargarðurinn, sem skemmdist í óveðri sl. vetur. Gert var við
skemmdirnar í sumar.
Ársfundur ríkisspítalanna
haldinn fyrir skömmu í anddyri
hinnar nýju K-byggingar Landspít-
alans. Að loknum ávörpum nokk-
urra framámanna spítalanna hlutu
sjö starfsmenn viðurkenningar fyrir
Miklar framkvæmdir á Flateyri:
Iþróttahúsið nær fokhelt
Flateyri.
MIKLAR framkvæmdir hafa verið á vegum Flateyrarhrepps á liðnu
sumri. Stærsta framkvæmdin var bygging íþróttahúss og er nú að
mestu lokið að gera húsið fokhelt. Að sögn Kristjáns Jóhannessonar
sveitarstjóra, er áætlað að sá kostnaður sem var við þennan áfanga
og það sem eftir er til áramóta verði um 14 milljónir og er hlutur ríkis-
ins um 4 milljónir. Lionsmenn og verkalýðsfélagið Skjöldur á Flateyri
gáfu nuddpott til sundlaugarinnar sem var'mjög rausnarleg gjöf.
leikskóla átti sveitarfélagið viðræður
„I skipulagi sundlaugarinnar var
gert ráð fyrir að pottur yrði hafður
úti í garði en orkukostnaður hér er
slíkur að ekki kom til greina að hann
yrði undir berum himni,“ sagði
Kristján. Því var arkitekt fenginn til
að teikna viðbyggingu og er búið að
steypa stöplana fyrir hana. Ekki er
vitað hvenær þessari framkvæmd
lýkur en Lionsmenn hafa unnið tölu-
verða sjálfboðavinnu og gáfu þeir
efni í húsið líka til þess að flýta fyr-
ir verkinu.
íþróttahúsið verður líka nokkurs
konar félagsmiðstöð fyrir Flateyr-
inga og verður byggt stórt anddyri
fyrir snyrtingu þegar húsið verður
notað til annars en íþróttastarfsemi.
Kristján sagði að hætt hefði verið
við fyrirhugaða gatnagerð til þess
að tækist að framkvæma þennan
áfanga íþróttahússins.
Flateyrarhreppur keypti nýja
gröfu í sumar, einnig voru um 40
fermetrar byggðir við leikskólann.
Teiknuð var viðbygging við húsnæði
sem kvenfélagið Brynja byggði og
rak þar róluvöll um margra ára bil.
I framhaldi af þeirri hugmynd að
gera þetta að framtíðarhúsnæði sem
við kvenfélagið. Ákváðu félagskonur
að þetta yrði eign sveitarfélagsins
og sagði Kristján það veruiega rausn-
arlegt af þeim.
Næst verða byggðir tveir salir
ásamt annarri aðstöðu og verður þá
pláss fyrir 24 börn í tveimur deildum.
Verður þá hægt að taka á móti 48
börnum með því að tvískipta deildum.
Keyptur var nýr löndunarkrani við
höfnina og unnið við Iokaáfanga á
hafnarvog sem keypt var í fyrra.
Heilmiklar endurnýjanir voru við öld-
runarstofnunina og nú er að ljúka
viðgerð á sjóvarnargarði sem
skemmdist mikið í óveðri 11. febrú-
ar. 1,8 milljónir voru ætlaðar í fram-
kvæmdina og var sótt um viðbótaríj-
árveitingu til íjárveitinganefndar
sem var hafnað. Það var því aðeins
til ijármagn til að gera við 200 metra
af þeim 300 sem skemmdust. Unnið
var fyrir rúmar 3 milljónir og íjár-
magnaði Flateyrarhreppur mismun-
inn tímabundið.
„Okkur þykir hart að þurfa að íjár-
magna þetta sjálfir því ríkið sér alfar-
ið um slík verkefni. Við teljum þetta
vera náttúruhamfarir, svona uppá-
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 15. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 85,00 60,00 77,05 11,792 908.552
Þorskur(ósL) 52,00 52,00 52,00 0,319 16.562
Þorskur(smár) 26,00 26,00 26,00 0,096 2.496
Smáþorsk(ósl) 26,00 26,00 26,00 0,023 585
Ýsa 118,00 61,00 106,54 3,020 321.797
Ýsa(ósl.) 82,00 78,00 80,18 4,812 385.848
Ufsi 16,00 16,00 16,00 0,067 1.064
Steinbítur 52,00 48,00 48,76 0,637 31.041
Langa 29,00 29,00 29,00 0,010 290
Langa(ósl.) 29,00 29,00 29,00 0,033 957
Lúða 205,00 205,00 205,00 0,016 3.280
Kolaflök 130,00 130,00 130,00 0,030 3.900
Keila 23,00 23,00 23)00 1,491 34.301
Keila(ósL) 23,00 23,00 23,00 0,013 288
Lýsa 20,00 20,00 20,00 0,006 110
Samtals 76,48 22,374 1.711.247
í dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
•FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 80,00 53,00 71,82 8,643 620.714
Ýsa 94,00 30,00 79,42 11,486 912.209
Karfi 37,50 34,00 35,67 125,023 4.459.173
Ufsi 47,00 42,00 44,91 51,684 2.320.952
Hlýri+steinb. 47,00 47,00 47,00 1,345 63.215
Langa+blál. 45,00 37,00 42,22 2,568 108.415
Lúða(stór) 305,00 200,00 244,48 0,230 56.230
Lúða(smá) 370,00 210,00 263,83 0,411 108.435
Keila 12,00 12,00 12,00 0,139 1.668
Hrogn 25,00 25,00 25,00 0,020 500
Samtals 42,85 202,313 8.669.035
Selt var meðal annars úr Margréti EA og Hegranesi SK. í dag
verður selt óákveðið magn úr línu- og netabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 89,00 25,00 80,26 19,790 1.588.390
Ýsa 97,00 65,00 86,00 6,000 516.000
Steinbítur 35,00 35,00 35,00 0,025 875
Langa 40,00 36,00 39,08 0,650 25.400
Lúða 135,00 70,Ó0 96,68 0,134 12.955
Skarkoli 15,00, 15,00 15,00 0,006 90
Keila 14,00 10,00 10,36 0,880 9.120
Samtals 78,04 27,655 2.158.100
Selt var m.a. úr Víkingi III. ÍS, Víði KE, Búrfelli KE og Happa-
sæli KE. I dag verða m.a. seldir 150 kassar af karfa úr Gnúpi
GK og óákveðið magn af blönduðum afla úr dagróðrabátum.
koma eins og varð hér í vetur, og
héldum því að þetta yrði auðfengið
en það gekk því miður ekki,“ sagði
Kristján.
Kristján var spurður hvernig Flat-
eyrarhreppur stæði að vígi eftir svo
mikið framkvæmdaár. „Þetta er
traust sveitarfélag, ijárhagur þess
er í góðu lagi, að vísu eru lausaíjár-
stöðuerfiðleikar og kemur auðvitað
fram hér eins og annars staðar, þeg-
ar erfiðleikar eru í fiskvinnslu og
sjávarútvegi. Hér er trygg atvinna
allt árið um kring, hér hefur ekki
verið greiddur einn dagur í atvinnu-
leysisbætur síðan 1984 og telst gott
miðað við það sem er að gerast í
þjóðfélaginu, þannig að við stöndum
bara vel að vígi. Aðalvandamál okkar
er að við erum of fá. Okkur vantar
fleira fólk til að flytja til okkar,“
sagði Kristján að lokum.
- Magnea
farsæl störf. Þá var boðið í skoðun-
arferðir um ýmsar deildir spítalans
og snæddur hádegisverður í and-
dyri K-byggingarinnar svonefndu.
„Stjórnmálamenn segja stundum
að stofnanir sem sýna árangur eigi
að fá að njóta hans. Reyndin er því
miður oftast önnur og ijárlagatil-
lögur sem nú liggja fyrir eru engin
undantekning," sagði Davíð Gunn-
arsson, forstjóri ríkisspítalanna
meðal annars í ræðu sinni. „Það
er jafnvel svo að hagræðing og
sparnaður í eitt ár getur þýtt lægri
framlög á því næsta...Þið verðið að
fyrirgefa forstjóranum að hann
stendur hér og veltir því fyrir sér
hvort ekki hefði verið réttara að
fara að eins og sannur kaupsýslu-
maður og reka ríksispítalanna 15%
umfram fjárlög í eitt ár, eins og
dæmin sýna að gerst hefur hjá sum-
um opinberum stofnunum, og geta
þar með lokið við K-bygginguna.“
Guðmundur G. Þórarinsson,
stjórnarformaður ríkisspítalanna,
sagði að spítölunum virtist refsað
fyrir mikið aðhald. Um 460 milljón-
ir þyrfti að meðaltali ár hvert til
þess að ríkisspítalarnir gætu þróast
á eðlilegan hátt. Yfir 300 milljónir
vantaði til að halda mætti óbreyttri
starfsemi frá því í ár. Guðmundur
ræddi helstu framkvæmdir á vegum
ríkisspítalanna. Hann sagði að sam-
kvæmt grófri athugun mætti spara
milli 800 og 1200 milljónir árlega
með sameiningu spítala. Þá kom
fram í ræðu hans að launakostnað-
ur væri um 67% af rekstri ríkisspít-
alanna.
Guðmundur Bjarnason heilbrigð-
isráðherra lýsti ánægju sinni með
að ársfundur ríkisspítalanna væri
nú haldinn í fyrsta sinn. Hann ræddi
um rnikil gæði íslenskrar heilbrigð-
isþjónustu og sagði að auðvitað
ætti að halda áfram á þeirri braut
að allar aðgerðir verði hægt að
framkvæma hér á landi. Hluta
hjartaaðgerða er nú unnt að fram-
kvæma hér en Guðmundur G. Þór-
arinsson sagði að ódýrara væri að
flytja allar aðgerðirnar heim.
Árni Björnsson, formaður lækna-
ráðs Landspítalans, talaði síðastur
og rakti sögu handlækninga á
spítalanum. í ræðu hans kom með-
al annars fram að aðgerðir á spíta-
lanum hefðu verið 4590 talsins í
fyrra. Sjúkrarúm hefðu verið 45
árið 1930 og væru nú 126. Á sama
tíma hefði fjöldi aðgerða tífaldast.
Árni kvaðst eiga erfitt með að trúa
því að afmælisgjöf ráðamanna til
Landspítalans á komandi ári yrði
til þess að draga þyrfti úr þjónustu
sem veitt hefði verið á spítalanum
frá upphafi.
Starfsmennirnir sem viðurkenn-
ingu hlutu voru Alfreð Árnason,
vísindamaður í blóðbanka, Baldur
Skarphéðinsson, umsjónarmaður á
Kleppsspítala í ijölmörg ár, María
Bjarnadóttir, starfskona í eldhúsi
frá 1946, Snorri Páll Snorrason,
prófessor í lyflækningum sem starf-
að hefur á Landspítalanum frá
1957, Vigdís Magnúsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri, Þorbjörg Andrésdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur og Þórhildur
Salómonsdóttir, starfskona í
þvottahúsi frá 1947.
Stórstúka íslands:
Kannað hvort áfengi o g tóbak
eigi heima í framfærsluvísitölu
STORSTUKA Islands gekkst fyr-
ir opnum fundi í Reykjavík fyrir
skömmu um stöðu Reglunnar og
bindindismála á Islandi í dag og
náinni framtíð. Fundarsljórar
voru Hörður Pálsson og séra
Björn Jónsson. Fundarmenn
skiptu sér í fjóra hópa og höfðu
eftirfarandi framsögn fyrir þeim:
Valdór Bóasson, Elísabet Jens-
dóttir, Elfa Björk Gunnarsdóttir
og Ólafur Haukur Árnason.
í fréttatilkynningu frá Stórstúk-
unni segir, að fram hafi komið í
máli margra ótti við gífurlega
aukna áfengisneyslu á þessu ári eða
Tónleikum
frestað
TÓNLEIKUM bresku rokkhljóm-
sveitarinnar House of Love sem
halda átti í Menntaskólanum við
Hamrahlíð í kvöld hefúr verið
frestað um ótilgreindan tíma.
Breska hljómsveitin House of
Love, sem leika átti á tónleikum
með íslensku hljómsveitunum Bless
og Risaðeðlunni í hátíðarsal MH í
kvöld, hefur verið frestað um ótil-
greindan tíma vegna slysfara.
Trommuleikari hljómsveitarinnar
skarst það illa á hendi að hann
verður frá tónlistariðkun næstu vik-
ur. Falla tónleikarnir því niður af
þeim sökum.
Fyrirhugað er að hljómsveitin
komi til íslands í febrúar næstkom-
andi, en nánar verður tilkynnt um
það síðar.
um 36% samfara litlum sem engum
fjárveitingum hins opinbera til
áfengisvarna og bindindisstarfs.
Einnig segir í fréttatilkynningunni:
„Stórstúka íslands hefur kynnt
menntamálaráðherra tillögu um
bindindisfræðslu í grunnskólanum
fyrir 8, 9 og 10 ára böm en engin
svör hafa enn borist.
Uppeldisstarf með börnum og
unglingum á grundvelli bindindis
og heilbrigði er nauðsyn. Það verð-
ur að tengjast skólastarfi svo að
falli árekstrarlaust að fræðslu og
uppeldi skólanna.“
Eftirfarandi ályktun um stefnu í
áfengismálum var samþykkt.
„Brýna þarf fyrir valdhöfum
landsins hver nauðsyn er á virku
bindindisstarfi og gildi þess fyrir
heilbrigði almennt og efnahag.
Sérstök stjórn verði sett yfir
ÁTVR og hætt verði að kaupa
einkasöluvörur með milligöngu
umboðsmanna. Engin nauðsyn er
að áfengisframleiðendur hafi hér á
landi menn á launum til þess að
auka drykkjuskap í landinu.
Gagnvart veitingastöðum skal
meta friðhelgi heimila og rétt þeirra
svo að hávaði og óþrifnaður nái
ekki að spilla heimilisfriði.
Kannað verði til þrautar hvort
launþegasamtök telji ástæðu til að
verð tóbaks og áfengis hafi áhrif á
framfærsluvísitölu. Þakka skal
dómsmálaráðherra nýja reglugerð
um vínveitingaleyfi og opnunartíma
vínsölustaða. Eindregið var stutt
það sem þar kemur fram að opnun-
artími bjórstofa verði styttri en
venjulegra dans- og skemmtistaða.
Hagstofunni verði falið að taka
saman í félagi við áfengisvarnaráð
og gefa út skýrslu með tölfræðileg-
um upplýsingum um áfengismál.
Ríkið, sveitarfélög og aðrar opin-
berar stofnanir veiti ekki áfengi.“
Hjálparsveit
skáta í Garða-
bæ 20 ára
HJÁLPARSVEIT skáta í
Garðabæ á tuttugu ára starfsaf-
mæli þann 20. nóvember nk. Mun
sveitin af því tilefni standa fyrir
kynningu á starfsemi sinni í hús-
næði hjálparsveitarinnar við
Bæjarbraut, sunnudaginn 19.
nóvember frá klukkan 13-17. Þar
gefst almenningi kostur á að
kynnast búnaði, farartækjum og
starfi sveitarinnar.
Starfandi félagar eru nú yfir
sextíu auk nýliðahóps. Fyrsti for-
maður sveitarinnar og stofnandi var
Einar Guðmundsson en núverandi
formaður er Eyj ólfur V. V altýsson.
Rey kj avíkur br éf:
Leiðrétting
I Reykjavíkurbréfi Morgunblaðs-
ins 12. nóvember sl., sem að megin-
efni Ijallaði um ráðstefnu Lífs og
lands, var m.a. vitnað til erindis dr.
Ingu Þórsdóttur, næringarfræð-
ings. I bréfinu misritaðist föðurnafn
hennar; þar stóð Þórisdóttir en átti
að vera Þórsdóttir. Velvirðingar er
beðið á þessum mistökum sem leið-
réttast hér með.