Morgunblaðið - 16.11.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.11.1989, Blaðsíða 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989 Minning: Margrét Magnús dóttir, Akureyri Fædd 14. september 1899 Dáin 27. september 1989 Guðný Margrét Magnúsdóttir fæddist á Hafnarnesi við Fáskrúðs- ijörð 14. september 1899. Foreldrar hennar voru Magnús Guðmundsson og María Sigurðardóttir. Hún var elst sex aisystkina og tveggja hálf- systkina. Hún missti föður sinn ung að árum og flutti þá til ömmu sinnar. Árið 1926 giftist hún eftir- ljfandi eiginmanni sínum Ingólfi Árnasyni frá Auðbrekku. Stofnuðu þau heimili á Akureyri og eignuð- ust átta börn, Svan, Árna, Sigríði, Agnesi, Hrafnhildi, Hrefnu, Láru og Ingu. Amma mín var góð og mikilhæf kona, ég á ótal góðar minningar um hana. Amma vildi að fólk gæti lifað sanngjörnu lífi. Hún barðist fyrir jafnrétti og bættum lífskjörum verkafólks. Hún var mikilvirk og eftirsótt til vinnu. Fegurð náttúrunnar hafði snert listataug hennar og safnaði hún steinum og skeljum til að hafa hjá sér og skreyta með öskjur og fleira. Alþýðulistakona var hún og gaman var að vita til þess að er hún göm- ul og þreytt kona búandi á Dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri var dúkur sem hún hafði heklað valinn sem gjöf til okkar fyrsta kvenforseta. Ó já, amma hefur lifað tímana tvenna. Hún var einn af perludropum heimsins. Ég kynntist henni barn að aldri og naut lífsreynsluhlýju þessarar konu. Ég sá hana eldast og verða gamla og bar hún það með dugnaði. Ég er þakklátur fyrir þann stuðning sem hún veitti mér og þá ást og umhyggju sem hún gaf mér. Það var gott að dvelja hjá afa og ömmu. Afa mínum sendi ég djúpa samúðarkveðju. Guð blessi ömmu mína. Blessuð sé minning hennar. Ingólfur Björn Sigurðsson Eftir stutta sjúkralegu er Mar- grét Magnúsdóttir, tengdamóðir mín, látin á Dvalarheimilinu Hlín á Akureyri. Margrét heitin hefur sett ríkulegt mark á samtíð sína þótt sjaldan hafi verið haft hátt um til- veru hennar í fjölmiðlum. Ekki er það síst tillag hennar til heimsins að hún hefur lagt hónum til 8 börn og 65 aðra afkomendur. En saga Margrétar er um ýmislegt merkileg og ætla ég að minnast hennar með þessum orðum. Góður spölur er í tíma og rúmi frá því að Margrét fæddist fyrir rúmum níutíu áum að Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði og fram að láti henn- ar eftir nærri sjötíu ára búsetu á Akureyri og nágrenni. Þegar Margrét Magnúsdóttir fæddist árið 1899 sem fyrsta barn foreldra sinnar var Hafnames í Fáskrúðsfirði blómlegur staður á mælikvarða þess tíma. Afi hennar, Guðmundur Einarsson, hafnsögu- maður frá Gvendarnesi og kona hans Þuríður Einarsdóttir frá Sævarenda höfðu fyrst manna sest að á þessum vindblásna stað við mynni Fáskrúðsfjarðar um miðbik 19. aldarinnar. Þar voru fengsæl fiskimið skammt undan landi og var það grundvöllur tilveru íbúanna í rúma öld. Guðmundur og Þuríður voru kynsæl, eignuðust 15 börn. Þótt nærri helmingur þeirra létist fyrir manndómsár varð úr barna- hópnum fjölmenn byggð í Hafnar- nesi, 107 manns þegar mest var kringum aldamótin. Ibúamir vom nærri allir venslaðir, flestir náskyld- ir. En breyttir þjóðfélagshættir og veiðitækni urðu til þess að byggðin varð þar tiltölulega skammæ, 120 ár. Síðustu tuttugu árin hafa ekki verið íbúar þar þó að enn standi þar nokkrar byggingar. Flestir íbú- arnir fluttu smám saman til nær- liggjandi staða á Austurlandi, en aðrir urðu til að manna aðrar byggðir, t.d. á Suðurnesjum. Sem dæmi má nefna, að dtjúgur hluti íbúanna í Sandgerði eiga uppruna sinn í Hafnarnesi og eru náskyldir Margréti heitinni. Foreldrar Margrétar voru Magn- ús Guðmundsson Einarssonar hafn- sögumanns, sem fyrr var getið og María Sigurðardóttir frá Djúpavogi Friðrikssonar Lynge. Á tólf ámm eignuðust þau Magnús og María sex börn. Þau misstu tvo drengi, en systurnar Johanna, Björg og Sigurlaug náðu fullorðinsárum og lifa allar Margréti. Fjölskyldan tvístraðist árið 1912 þegar Magnús lést. Hann hafði verið veill í maga, fór til læknis í Reykjavík og var á heimleið þegar hann lést á Eski- firði. Þar var hann grafinn án þess að fregnir bæmst til ekkjunnar fyrr en allt var um garð gengið. Ekki auðnaðist Maríu að halda saman hópnum frekar en margri annarri ekkjunni á þeim tíma, en var eftir lát Magnúsar í vinnumennsku með yngstu dótturina Sigurlaugu. Síðar eignaðist María tvö börn, Þóru Sig- urðardóttur Kjemp sem enn lifir og Ragnar Steinsson, sem lést fyrir u.þ.b. áratug. Margrét fór fyrst eftir lát föður síns um tíma til ömmu sinnar, Guðnýjar Hösk- uldsdóttur, ljósmóður á Djúpavogi, en varð fljótlega að fara að vinna fyrir mat sínum, m.a. að Löndum í Stöðvarfirði. Þegar Margrét var farin að nálg- ast tvítugt fór hún suður til Vífils- staða til vinnu við berklahælið, þar sem hún hóf síðan nám í hjúkrun. En þótt dugnaður hafi verið nógur brást heilsan. Margrét fékk tauga- veiki við störf sín og varð að hverfa frá námi. En þá hófst nýr þáttur í lífi hennar. Hún fór í vist til Akur- eyrar þar sem hún vann einnig við hjúkrun á sjúkrahúsinu. Heilsan mun fljótlega hafa komist í lag nyrðra og lét sig ekki aftur fyrr en Margrét var komin á áttræðisaldur, jafnvel ekki þótt erfiðisvinna, vos- búð og barneignir reyndu verulega á hana á langri ævi. Ferðin norður átti eftir að skipta sköpum í lífi hennar þar sem hún hitti þar mannsefni sitt. Það var eftir að Kvenfélagið í Skriðuhreppi í Hörgárdal réði hana til að hjúkra sjúklingum í heimahúsum. Ungi maðurinn sem Margrét hitti þar var Ingólfur Árnason, yngsti sonur bóndans á höfuðbólinu Auðbrekku, Árna Jónatanssonar. Árni var upp- runninn í Aðaldal, en móðir Ing- ólfs, Guðrún Jonsdóttir, var fædd í Böggvisstöðum í Svarfaðardal. Þau Margrét og Ingólfur hófu sambúð sína á Akureyri árið 1925, þar sem þau hafa síðan átt heimili sitt, lengst af í Hríseyjargötu á Oddeyri. Þau eignðust átta börn, sem öll eru á lífi, fjögur á Akur- eyri og fjórar dætur syðra. Þau eru: Svanur (f. 1925) starfsmaður Hitaveitu Akureyrar, sem á Helgu Guðmundsdóttur, akureyrska konu. Árni (f. 1927) fyrrverandi skipstjóri á Akureyri, sem er kvæntur Björgu Siguijónsdóttur frá Skipalóni. Sigríður (f. 1928) starfsmaður í Fossvogsskóla er gift Sigurði Aðal- steini Björnssyni málarameistara úr Reykjavík. Agnes (f. 1930) starfsmaður Hótels Loftleiða er gift Hákoni Jónssyni bátsmanni frá Höll í Haukadal í Dýrafirði. Hrafn- hildur (f. 1932) leiðbeinandi við Sólborg á Akureyri er gift Ólafi Aðalbjörnssyni fyrrverandi skip- stjóra frá Grenivík. Hrefna (f. 1935) meðferðarfulltrúi í Garðabæ á Kristján Sveinsson húsgagnasmíða- meistara frá Sveinsstöðum á Fells- strönd. Lára (f. 1939) sölufulltrúi hjá Flugjeiðum í Reykjavík er gift Páli Ásgeirssyni lækni úr Reykjavík. Yngsta dóttirin er Inga (f. 1943) bankagjaldkeri á Akureyri sem er gift Vilhelm bifvélavirkja Arthúrssyni frá Grenivík. Þessi átta börn Margrétar og Ingólfs eiga samtals 30 börn, en afkomendur í annan lið eru orðnir 35. Snemma í sambúð sini tóku hjón- in í fóstur vegalausa telpu, Fan- neyju Árnadóttur, sem dvaldi hjá þeim frá sjö ára aldri og fram á fullorðinsár. Þrátt fyrir ómegð, fá- tækt og'húsakost, sem löngum var bæði þröngur og frumstæður, þótti þeim Margréti og Ingólfi ætíð sjálf- sagt að skjóta skjólshúsi yfir þá sem þurftu þess. Mörg börn fengu fóst- ur um lengri eða skemmri tíma og ættingjar, ekki síst Austfirðingar, litu á húsið sem samastað sinn á Akureyri. Auk þess gisti þar ijöldi óskyldra. Alltaf mátti fjölga í rúm- um eða gera flatsæng á gólfi. Sem dæmi má nefna, að Margrét frétti haust eitt í kreppunni um húsnæðis- laus hjón með lítið barn. Á þeim tíma voru sjö manns í heimili í tveim herbergjum. Margrét var ekki lengi að hugsa sig um, áður en hún lán- aði hjónunum annað herbergið með- an þau væm að finna sér annað húsnæði. Það tókst ekki fyrr en vorið eftir. Þegar Margrét og Ingólfur hófu sambúð sína árið 1925 var allsæmi- legt árferði, en það átti fljótlega eftir að versna í kreppunni þegar kom fram á fjórða áratuginn. Ing- ólfur stundaði lengst af almenna verkamannavinnu á Akureyri og drýgði afkomu heimilisins með bú- skap, hélt bæði nokkrar kindur, kú og hesta. Margrét hélt hænsni og gæsir og stundaði garðrækt til heimilisnota. Eftir lok heimssstyij- aldarinnar fékk Ingólfur fasta vinnu í Sláturhúsi KEA þar sem hann var síðar verkstjóri um fjölda ára. Þrátt fyrir alla ómegðina stundaði Mar- grét löngum erfiðisvinnu í fiski og við hreingerningar, hélt m.a. oft í síld til, Hjalteyrar, Sigluíjarðar og Raufarhafnar með einhveija dóttur- ina. Á kreppuárunum reyndi það á samstöðuna á mörgum heimilum, að konunum reyndist gjarnan auð- veldara að fá vinnu en mönnum þeirra. Svo var um Margréti, sem lagði þá og síðar fram ríkulegan skerf til heimilisins. Ætla mætti, að heimilisvafstur og erfiðisvinna hefði getað nægt Margréti til að fylla hversdaginn, en svo var þó ekki. Hún lagði gjörva hönd á margt annað. Er þar fyrst að telja þátttöku hennar í verka- lýðsmálum, sem hófst snemma. Er ekki síst að minnast djarfrar og einarðrar framgÖngu hennar í Nóvuslagnum svonefnda þar sem laust saman hafnarverkamönnum og atvinnurekendum á Akureyri, sem mun hafa verið einhver hatrömmustu átök, sem orðið hafa í verklýðsbaráttu hérlendis. Mar- grét lenti í mörgum trúnaðarstörf- um fyrir verkakonur í Verka- kvennafélaginu Einingu, sat löng- um í stjórn, meðal annars í þijú ár sem formaður og var fulltrúi á Al- þýðusambandsþingum. Hún beitti sér fyrir því af alefli að konur og karlar í verklýðshreyfingunni sam- einuðust í einu félagi. Það átak leiddi til að Verkamannafélag Ak- ureyrar og Eining sameinuðust og bar hið nýja ókynskipta félag nafn Einingar. Framlag Margrétar var metið að verðleikum og naut hún þess heiðurs að vera kjörin heiðurs- félagi í Verkalýðsfélaginu Einingu árið 1974. i. Margrét var um árabil mjög virk í starfi Kvennadeildar Slysavarna- félagsins á Akureyri. Hún naut ekki síst að vera með í starfsemi söngkórsins auk þess sem hún tók lengi þátt í róðrarkeppnum á Sjó- mannadaginn. Hún sat í stjórn Kvennadeildarinnar, en var auk þess meðlimur í mæðrastyrksnefnd og áfengisvarnarráði um árabil. Þá nutu ýmsar bágstaddar fjölskyldur óbilandi hollustu hennar við alla þá sem lentu undir í lífsbaráttunni. Stundum eru lítil samfélög talin , gróðrarstía fordóma og óbilgirni. Það er án efa rétt á stundum, en Margrét tengdamóðir mín var ætíð hafin yfir slíkt þegar lítilmagninn var annars vegar. Hins vegar sýndi sig oft skaphiti og óhagganleg af- staða þegar barátta stéttanna og stjórnmál voru í brennidepli. Auk alls þessa er langt frá því að allt sé talið af áhugamálum Margrétar. Listfengi hafði hún einnig til að bera og dugnað við að koma í framkvæmd því sem hugur hennar stóð tii. Hún fram- leiddi fagra hluti úr steinum, sem hún safnaði víða á ferðalögum, kassa, stjaka, lampa og ýmiss kon- ar listmuni úr kuðungum og skelj-- um. Um tíma málaði hún einnig olíumálverk, en hannyrðir urðu hennar höfuðiðja á síðari hluta ævinnar. Nefna má sem dæmi um handbragð hennar, að dúkur eftir hana var valinn sem gjöf handa frú Vigdísi Finnbogadóttur forseta, þegar hún heimsótti Dvalarheimilið Hlíð árið 1975. Það hefur verið mér dýrmæt reynsla að fá að kynnast Margréti Magnúsdóttur síðustu átján árin, sem hún lifði og njóta þess að ger- , ast meðlimur í fjölskyldu hennar og Ingólfs tengdaföður míns. í þess- ari ijölskyldu mætist hreinlyndi og eindrægni, sem greinilega áttu ekki síst upphaf sitt í Margréti. Sú óbrigðula samheldni og órofa tryggð, sem ríkir í fjölskyldunni, á fyrirmynd sína í sambúð Margrétar og Ingólfs. Sár harmur er kveðinn að okkur öllum, en þó sérstaklega að Ingólfi. Ég vona, að forsjónin veiti honum styrk til að halda áfram vegferð sinni enn um langan tíma þótt nú hafi hann misst lífsförunaut sinn, sem verið hefur honum stoð og stytta í 64 ár. Að lokum þakka ég Margréti fyrir allt gott, sem húnf hefur gert fjölskyldu minni og mér og bið henni blessunar í lok langs og farsæls lífs. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BERGUR HAUKDAL ÓLAFSSON, Heiðarbæ 11, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 15.00. Elísabet Lárusdóttir, Ólafur Haukdal Bergsson, Guðbjörg Ingibergsdóttir, Bergur Haukdal Ólafsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGMUNDÍNA PÉTURSDÓTTIR frá Súgandafirði, Mosabarði 11, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum að morgni 15. nóvember. Hörður Vigfússon, Magnús Einarsson, Ævar Harðarson, Elisabet Sonja Harðardóttir, Magnús Ólafsson, Kristjana Harðardóttir, Björn Sigtryggsson, Þórður Harðarson, Guðrún Kristjánsdóttir, Kristín Ása Harðardóttir, Finnbogi Þórir Jónsson, Ástþór Harðarson, Sigurvina Falsdóttir, börn og barnabörn. Páll Ásgeirsson t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, AXEL V. MAGNÚSSON garðyrkjuráðunautur, Reykjum, Ölfusi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 14. nóvember. Sigurlína Gunnlaugsdóttir, Hulda Axelsdóttir, Halldór Þorsteinsson, Alfdfs Axelsdóttir, Martin Kennelly, Erla Dís Axelsdóttir, Pétur H. Hannesson, Ari Víðir Axelsson og barnabörn. • t Alúðarþakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐJÓNS NJÁLSSONAR, Furulundi 1A, Akureyri. Þökkum læknum og hjúkrunarfólki á handlækningadeild Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri fyrir góða hjúkrun og vináttu. Heiðdís Eysteinsdóttir, Steinunn Guðjónsdóttir, Björn Eiriksson, Heiðar Ingi Svansson, Birna Klara Björnsdóttir, Heiðdís Björnsdóttir, Steinunn Lilja Heiðarsdóttir. *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.