Morgunblaðið - 16.11.1989, Side 40
SAGA CLASS
Fyrir þá sem eru aðeins
á undan
FLUGLEIDIR
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Fiskveiðasj óður:
Þrjú tilboð í Pat-
rek og fiystihúsið
ÞRJÚ tilboð bárust í Hraðfrystiiiús Patreksijarðar og togskipið Pat-
rek, sem Fiskveiðasjóður auglýsti til sölu. Frestur til að skila tilboð-
um rann út síðdegis í gær, en Fiskveiðasjóður veitir ekki upplýsing-
ar um tilboðin fyrr en stjórn sjóðsins hefur íjallað um þau.
Fiskveiðasjóður keypti Hrað-
frystihúsið á 95 milljónir króna á
nauðungaruppboði þann 25. sept-
ember sl, en sjóðurinn átti 110
milljóna króna kröfur í húsið. Aður
hafði sjóðurinn keypt togskipið Pat-
rek, sem var í eigu Odda hf., á 146
milljónir króna, en kröfur sjóðsins
Stykkishólmur:
Innbrota-
faraldur
upplýstur
LÖGREGLAN í Stykkishólmi
hefur upplýst um innbrotafarald-
ur, sem þar hefur verið undanfar-
inn hálfan annan mánuð. Þar var
að verki einn og sami unglingur-
inn og braust inn á 12 stöðum
auk nokkurra báta.
Að sögn lögreglu var málið erfitt
viðureignar, þar sem þjófurinn
skildi lítil ummerki eftir sig. Hann
stal einkum tóbaki og öðru smá-
legu, auk þess sem hann stal skot-
færum sem hann sagðist við yfir-
heyrslur hafa ætlað að nota í
sprengjur. Lögregla segir hann hafa
farið á milli þessara staða, gengjð
hreint til verks og tekið sitt lítið
af hveiju í hverjum stað. Hann
gekk tiltölulega vel um, skemmdi
ekki annað en það sem hann þurfti
til að bijóta sér leið inn á þann
stað sem hann vildi komast á. Þessi
„góða“ umgengni olli því einmitt,
að sögn lögreglu, að erfitt var að
rekja slóðina. Afbrotamaðurinn hef-
ur ekki áður komið við sögu lög-
reglu.
í því tilfelli námu 164 milljónum.
Sjóðurinn greiddi því samtals 241
milljón fyrir eignirnar tvær, en kröf-
ur sjóðsins námu samtals 274 millj-
ónum.
Svavar Armannsson, aðstoðar-
forstjóri Fiskveiðasjóðs, sagði að
honum hefðu borist þijú umslög
með tilboðum í frystihúsið og skip-
ið. „Eg get ekki gefið upp hveijir
gerðu tilboðin eða hvernig þau voru
fyrr en stjórn Fiskveiðasjóðs hefur
séð þau,“ sagði hann. „Stjórnar-
fundur hefur ekki verið ákveðinn
enn.“
Að sögn Svavars voru tvö um-
slaganna merkt „hraðfrystihús og
fiskiskip", í samræmi við auglýs-
ingu Fiskveiðasjóðs, sem gerði ráð
fyrir að eignirnar yrðu seldar sam-
an. Eitt umslag var hins vegar
merkt „Patrekur". Samkvæmt aug-
lýsingunni áskilur Fiskveiðasjóður
sér rétt til að hafna tilboðunum.
Morgunblaðið/Þorkell
Unglingar gegn ofbeldi á lokasprettinum
ATAKIÐ Unglingar gegn ofbeldi er nú á lokasprett-
inum. I gær söfnuðust unglingar saman í Hugmynda-
smiðju í Glym í Breiðholti, þar sem lokið var vinnslu
verkefna og var meðfylgjandi mynd tekin þegar einn
hópurinn kynnti verkefni sitt. í dag verður menning-
arvaka í Glym, þar sem haldin verður yfirlitssýning
á verkum unglinga og skemmtidagskrá sem hefst
klukkan 16. Lokadansleikur verður síðan í Glym í
kvöld þar sem hljómsveitin Ný Dönsk leikur fyrir
dansi. Dansleikurinn er fyrir alla unglinga 13 ára
og eldri og verða rútuferðir frá félagsmiðstöðvum
til og frá dansleiknum.
Samstarfshópur nítján aðila
um leitar- og björgunarmál
Fyrst og ft*emst lögð áhersla á eflingu þyrluflotans
SAMSTARFSHOPUR 19 félaga
og landssamtaka hefúr verið
stofnaður í þeim tilgangi að beita
sér fyrir samræmdu átaki í leit-
ar- og björgunarmálum lands-
manna, þar sem fyrst og fremst
verði lögð áhersla á eflingu
þyrluflotans, en einnig verði unn-
Hafrannsóknastofiiuii:
Hámarksafli
úthafsrækju
verði 20 þús.
tonn 1990
Hafrannsóknastofiiun leggur
til að ekki verði veidd meira en
20 þúsund tonn af úthafsrækju á
næsta ári, sem er sama magn og
stofnunin lagði til að veiða mætti
í ár. Leyft var hins vegar að veiða
23 þúsund tonn af úthafsrækju í
ár en búist er við að aflinn verði
um 18.300 tonn.
I skýrslu Hafrannsóknastofnun-
ar um ástand úthafsrækjustofna
árið 1989 og aflahorfur árið 1990
segir meðal annars að þrátt fyrir
of mikla sókn árin 1987 og 1988
og minnkandi afla á sóknareiningu
undanfarið sé gert ráð fyrir nokkr-
um bata í úthafsrækjustofnunum á
næsta ári vegna betri nýliðunar og
minni sóknar á sum mið árið 1989.
Veidd voru 30 þúsund tonn af út-
hafsrækju árið 1986, tæp 35 þús-
und tonn árið 1987 og um 26 þús-
und tonn árið 1988.
Frá slysstað í gærkveldi.
Morgunblaoið/Juhus
Kona fannst látin í
Hafnarfj ar ðar höfii
UNG kona af erlendum uppruna fannst látin í Ilafnarfjarðar-
höfn á ellefta tímanum í gærkveldi. Oljóst er með hvaða hætti
slysið bar að höndum, en Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
rannsókn málsins með höndum.
Tveir íslenskir sjómenn sem
voru að fara til sjós urðu varir
við konuna á floti í höfninni og
gerðu lögreglu aðvart. Tilkynn-
ingin barst til lögreglunnar
klukkan 22.10. Þegar lögreglan
kom á staðinn hafði þeim tekist
að ná konunni á þurrt, en lífgun-
artilraunir báru ekki árangur.
Ekki var um miðnættið í gær-
kveldi búið að bera kennsl á kon-
una, en vitað að hún var gest-
komandi um borð í grænlenskum
togara, sem liggur við landfestar
í höfninni, um sex leytið í gær.
Ekki var ljóst um málsatvik að
öðru leyti.
ið að því að skipulag leitar- og
björgunarmála verði með hlið-
sjón af alþjóðasamþykkt þar um.
Ennfremur verður unnið að lög-
leiðingu staðsetningarbauja fyrir
skip og báta. Staðsetningarbauj-
ur fljóta upp þegar skip ferst og
hefja merkjasendingar sem hægt
er að miða út frá skipum og flug-
vélum.
„Það er fyrsta markmið samtak-
anna að hafist verði handa um-
stækkun þyrluflotans. Þau telja það
óviðunandi að ekki sé önnur þyrla
á móti TF-SIF, þar sem hún verði
óhjákvæmilega eitthvað frá vegna
viðhalds," segir Haraldur Henrys-
son forseti Slysavarnafélagsins og
formaður framkvæmdanefndar
samstarfshópsins. Þyrlan er orðin
fjögurra ára og eru fyrirsjáanlegar
vaxandi frátafir.
Haraldur segir að starfshópar
verði settir á fót til þess að vinna
að úttektum á ýmsum hliðum þyrlu-
kaupa. Ennfremur mun samstarfs-
hópurinn snúa sér til Alþingis og
ríkisstjórnar með erindi þess efnis
að stjórnvöld marki stefnu í þeim
efnum.
Haraldur segir að hugað hafi
verið að söfnunarátaki meðal þjóð-
arinnar til þyrlukaupa, en engin
ákvörðun verið tekin enn. „Hins
vegar safnar Nemendafélag Stýri-
mannaskólans í Reykjavík fé í sinn
þyrlukaupasjóð."
TF-SIF er í viðgerð þar sem ann-
ar hreyfill hennar bilaði og skammt
er þar til taka þarf hinn hreyfilinn
til skoðunar, sem verður bæði
kostnaðarsöm og tímafrek. Harald-
ur segir að æskilegt sé að fá stóra
þyrlu, en verið er að kanna hvort
hægt sé að fá samskonar þyrlu og
TF-SIF í fyrstu lotu, þar sem af-
greiðslutími stórra þyrlna er allt að
tvö ár. Stór þyt'la sem getur tekið
heila skipshöfn á stærri skipum
mun kosta nálægt 500 milljónum
króna ný, minni þyrla eins og TF-
SIF kostar um 250 milljónir.
Þau félög og samtök sem standa
að samstarfshópnum eru Far-
manna- og fiskimannasamband ís-
lands, Sjómannasamband íslands,
Slysavarnafélag íslands, Nemenda-
félag Stýrimannaskólans, Lands-
samband íslenskra útvegsmanna,
Samband íslenskra kaupskipaút-
gerða, Sjómannablaðið Víkingur,
Landssamband smábátaeigenda,
fjögur kvenfélög sjómannafélaga:
Aldan, Bylgjan, Hrönn og Keðjan,
Landssamband hjálparsveita skáta,
Landssamband flugbjörgunar-
sveita, Fiskifélag íslands, Land-
helgisgæslan, Starfsmannafélag
Landhelgisgæslunnar, Félag
íslenskra atvinnuflugmanna og
Siglingamálastofnun.
Verðlagsstofti-
un ætlar sér að
kæra Islenska
útvarpsfélagið
VERÐLAGSSTOFNUN hyggst
kæra íslenska útvarpsfélagið til
Rannsóknarlögreglu ríkisins
vegna spurningaleiks á Bylgj-
unni, og fjöldi fyrirtækja tók
þátt í.
Samkvæmt upplýsingum frá
Verðlagsstofnun er talið að leikur-
inn stangist á við verðlagslög. For-
ráðamönnum Islenska útvarpsfé-
lagsins var sent bréf vegna þessa
fyrir skömmu, en í svarbréfi til
Verðlagsstofnunar féllust þeir ekki
á að spurningaleikurinn bryti í bága
við verðlagslög.