Morgunblaðið - 18.11.1989, Page 1
64 SIÐUR B/LESBOK
264. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Lögregla ræðst á andófsmenn í Prag með kylfiihöggum:
Tugþúsundir heimta um-
bætur og afsögn Jakes
Andófsmenn í Prag með
tékkneska fána á útifundin-
um í gær. Þegar fólkið
reyndi að komast á Wen-
ceslas-torgið í miðborginni,
þar sem oft hefúr komið til
mótmælaaðgerða, réðust
lögreglumenn á það með
kylfúm og hundum. Margir
slösuðust illa og um eitt
hundrað voru handteknir,
að sögn sjónarvotta.
\
Prag. Reuter.
NÆR 50.000 manns tóku í gær þátt í fjölmennustu mótmælum í Prag
í tvo áratugi. Mannfjöldinn krafðist þess að Milos Jakes, leiðtogi komm-
únistaflokksins, færi frá og komið yrði á umbótum í landinu. Mann-
réttindasamtökin Charta 77 voru hyllt og hrópuð vígorð gegn kommún-
istaflokknum. Ungliðasamtök kommúnista höfðu, ásamt óháðum stúd-
entum og með leyfi yfirvalda, efnt til fúndarins við Vysehrad-kirkju-
garð til að minnast morða nasista á tékkneskum stúdentum fyrir 50
árum. Er hópur manna reyndi að komast í miðborgina sundraði lög-
regla honum með kylfuhöggum.
þjóðhetjur Tékka hvíla. Margir söng-
luðu: „Burt með kommúnistaflokk-
inn!“, „Fq'álsar kosningar!“ og
„Fjörutíu ár eru nóg!“ Ræðumenn
hvöttu stjómvöld til viðræðna við
umbótasinna. Gerð voru hróp að full-
trúa kommúnísku ungliðanna er
hann reyndr að tala til fólksins.
Bandaríska dagblaðið The New
York Times sagði nýlega að Sovét-
menn legðu nú fast að stjórninni í
Prag að koma á umbótum áður en
austur-þýskt ástand skapaðist í
landinu. Jan Fojtik, hugmyndafræð-
ingur tékkneska kommúnistaflokks-
ins, neitaði þessu í samtali við frétta-
mann Reuters en sagði þó að erfitt
væri að spá um framtíðina. -„Allt
getur gerst. Það gengur svo mikið á
alls staðar," sagði Fojtik.
Reuter
Umbótasinnar taka völdin í Búlgaríu:
Mladekov forseti segist
vilja fijálsar kosningar
Steftia Zhívkovs harðlega gagnrýnd o g andófsmönnum veitt uþpgjöf saka
Fólkið bar tékkneska fána, blóm
og logandi kerti þegar það gekk frá
háskólanum í Prag að Vysehrad-
kirkjugarðinum, þar sem margar
Júgóslavía:
Níutíu kola-
námamenn
taldir af
Belgraö. Reuter.
JÚGÓSLAVNESKA sjónvarpið
skýrði frá því í gærkvöldi að um
90 júgóslavneskir námamenn
hefðu týnt lífi er eldur kviknaði
í kolanámu á Aleksinac-vinnslu-
svæðinu í Serbíu, sem er 200 km
suður af Belgrað, höfuðborg
landsins.
Að sögn sjónvarpsins urðu 104
námamenn innlyksa í námunni er
eldur braust út í henni 700 metrum
undir yfirborði jarðar. Talið er að
hann hafi kviknað fyrir handvömm
viðgerðarmanna, sem unnu að við-
gerð á flutningatækjum sem flytja
menn og kol upp á yfirborðið.
Slökkviliðs-■ og björgunarmenn
reyndu í allan gærdag að slökkva
eldana og bjarga námamönnunum,
en að sögn sjónvarpsins hafði ekki
tekist að hefta eldana seint í gær-
kvöldi. Loguðu þeir enn stjórnlaust.
Á undanförnum árum hafa slys
verið tíð í námum í Serbíu. í júní
1983 biðu 38 menn bana í gas-
sprengingu í námu á Aleksinae-
svæðinu og 33 biðu bana í spreng-
ingu í koianámu á Resavica-svæð-
inu ári síðar.
PETAR Mladenov, hin nýi leiðtogi
búlgarska kommúnistaflokksins,
var í gær kjörinn forseti landsins.
I viðtali við fi’anska sjónvarpsstöð
sagði liann aðspurður að frjálsar
kosningar kæmu vel til greina.
„Hvað ■ sjálfan mig snertir er ég
hlynntur þeim,“ bætti hann við.
Nýkjörinn fulltrúi í stjórnmálaráð-
inu, Anatólíj Lúkanov, sagði
líklegt að í næstu kosningum yrðu
fleiri valkostir en kommúnista-
flokkurinn. Fjöldi ungmenna fagn-
aði breytingunum á útifúndi í höf-
uðborginni Sofíu í gær og tætti í
sundur myndir af Todor Zhívkov,
fyrrum leiðtoga landsins. Mlad-
cnov, sem talinn er til umbóta-
sinna, tók í fyrri viku við stöðu
flokksleiðtoga af Zhívkov og for-
dæmdi með öllu stjórnarhætti
hans í ræðu er liann flutti á þingi.
Búlgarska þingið hefiir samþykkt
að fella úr gildi lög sem kveðið
hafa á um að skilgreina beri
pólitíska andófsmenn sein glæpa-
menn.
Þingheimur samþykkti einróma
kjör Mladenovs og var þar með form-
lega bundinn endi á 35 ára valda-
skeið harðlínumannsins Todors
Zhívkovs. Nýr utanríkisráðherra var
ennfremur kjörinn í gær. Sá heitir
Bojko Dímítrov en Mladenov gegndi
þessu embætti áður.
Flokksleiðtoginn nýi sagði í ræðu
sinni að Zhívkov hefði grafið undan
þingi landsins. „Þjóðin mun aldrei
fyrirgefa okkur þetta myrkraverk,"
sagði hann. Fyrrum varnarmálaráð-
herra Búlgaríu, Slavko Trenskí, sak-
aði Zhívkov og fjölskyldu hans um
að hafa dregið sér fé til þess að
geta lifað í hóflausum munaði.
Nefndi hann að Borís, fyrrum kon-
ungur Búlgaríu, hefði átt fjögur
heimili og sumarhús en Zhívkov hins
vegar 30. Hann sagði og að sonur
Zhívkovs, Vladímír, hefði tapað
gríðarlegum fjárhæðum er hann
svalaði spilafíkn sinni. Ræðunum var
útvarpað og sagði í fréttaskýringu
að vænta mætti frekari breytinga á
refsilöggjöf landsins auk þess sem
skipuð yrði ný. nefnd til að endur-
skoða stjórnarskrána. Þingmenn
samþykktu einnig í gær að andófs-
menn skyldu framvegis ekki taldir
til glæpamanna og að öilum þeim
sem dæmdir hefðu verið í samræmi
við lög þessi yrði sleppt úr fangelsi.
Heimildarmenn Reu ters- f réttastof-
unnar í Búlgaríu sögðu að rúmlega
200 manns yrði gefið frelsi.
Á fimmtudag vék Mladenov fjöl-
mörgum samstarfsmönnum
Zhívkovs úr embættum sínum og
tóku menn, sem taldir eru til umbóta-
sinna, við stöðum þeirra. Vestrænir
heimildarmenn telja sýnt að Mlad-
enov hyggist innleiða umbætur á
efnahags- og stjórnmálasviðinu,
svipaðar þeim sem Míkhaíl S. Gorb-
atsjov, leiðtogi sovéska kommúnista-
flokksins, hefur reynt að koma á í
Sovétríkjunum undanfarin fjögur ár.
EB-viðræður undirbúnar
París. Reuter.
LEIÐTOGAR aðildarríkja Evrópubandalagsins (EB)
koma saman í París í kvöld til að ræða hina öru
umbótaþróun í Austur-Evrópu. Þetta er í fyrsta sinn
sem leiðtogarnir efna til sérstaks fundar um pólitísk
málefni. Jacques Delors, (lengst t. v.) forseti fram-
kvæmdastjómar EB, var í gær í Ungverjalandi ásamt
Roland Dumas, utanríkisráðherra Frakklands, og á
myndinni sjást þeir með Reszo Nyers, (lengst t.h.)
forseta Ungveijalands. Delors hét stuðningi við um-
bæturnar þar og gaf fyrirheit um að Ungverjum yrði
veitt lán vegna efnahagskreppunnar í landinu til að
bjarga þeim yfir erfiðasta hjallann. Talið er að EB-
leiðtogarnir vilji á Parísarfundinum móta sameiginlega
stefnu varðandi breytingarnar í Austur-Evrópu, fram-
tíð Evrópu og samskipti austurs og vesturs.
iveuw;r