Morgunblaðið - 18.11.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 18.11.1989, Blaðsíða 42
42 MQRGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LA-tJGATtDÁóPRr Í8. NÓVKMBKH 1?89 BRÚNÁS BÝÐUR TIL SÝNINGAR Á NÝJUM INNRÉTTINGUM SEM ERU ÁVÖXTUR METNAÐARFULLS SAMSTARFS VIÐ IÐNTÆKNI- STOFNUN OG INNANHÚSSHÖNNUÐINA GUÐRÚNU MARGRÉTI ÓLAFSDÓTTUR OG ODDGEIR ÞÓRÐARSON. GUÐRÚN M. ÓLAF INNANHÚSSHÖLl NÚTÍMALEG HÖNNUN OG ÓVENJULEGT EFNISVAL í NÝJUM ELDHÚSINNRÉTTINGUM BAÐINNRÉTTINGUM OG FATASKÁPUM. KOMDU OG SJÁÐU HVÍTBÆSAÐ FUGLSAUGA, OG ÞREIFAÐU Á KIRSUBERJAVIÐI OG GRÁSTEINI. FAGLEG RÁÐGJÖF Á STAÐNUM. A ODDGEIR ÞÓRÐARSON, INNANHÚSSHÖNNUÐUR pDÓTTIR, NUÐUR ÞORLEIFUR MAGNÚSSON VERSLUNARSTJÓRI GUÐRÚN ATLADÓTTIR, INNANHÚSSHÖNNUÐUR ÁRMÚLA 17A, 108 REYKJAVÍK, SÍMAR: 91-84585, 91-84461 MIÐÁS 11, 700 EGILSSTAÐIR, SÍMAR: 97-11480. KÖRFUBOLTI / LANDSLIÐIÐ Guðjón Skúlason ■ Úrvals amerískt sittnep með frönskuivafi Eitt það allra besta Heildsölubirgðir: KARI. K. KARLSSON&CO. Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32 Guðjón Skúlason vekur athygli Bandarískt há- skólalið hefur sýnt honum áhuga GUÐJÓN Skúiason, landsliðs- maður j körfuknattleik og leik- maður ÍBK, hefur staðið sig mjög vel með landsliðinu í keppnisferðinni í Bandaríkjun- um. Hann skoraði m. a. 41 stig íeinum leiknum ívikunni, þrátt fyrir að hafa ekki leikið síðustu níu mínúturnar vegna meiðsla. Forráðamenn iiðs Fairfield há- skóla sáu leikinn, hrifust mjög af Guðjóni og íhuga að bjóða honum skólavist. Guðjón var betri í hnénu í gær og gerði ráð fyrir að leika gegn Fairfield í gærkvöldi að bandarískum tíma. Slætil" „Ég er allur að koma til. Vissu- lega væri mjög spennandi að fá tækifæri til að leika með bandarísku háskólaliði og ef mér verður boðin skólavist, slæ ég til. Það yrði samt ekki fyrr en á næsta skólaári," sagði Guðjón við Morgunblaðið í gær. Guðjón var ekki með í fyrrinótt, þegar landsliðið tapaði 63:50 fyrir Connecticut háskóla. „Þeir höfðu kortlagt leik okkar og tókst að halda hraðanum niðri. Þeir spiluðu mjög agað og notuðu ávallt 45 sek- úndumar,“ sagði Keflvíkingurinn. Guðmundur Bragason var stiga- hæstur íslendinganna með 19 stig. Mikilvæg reynsla Guðjón var mjög ánægður með ferðina. „Við höfum haft mjög gott af þessum leikjum — þetta er mikil- væg reynsla. Bæði er að við höfum fengið gott tækifæri til að sjá hvað þarf að bæta og eins höfum við lært hvernig við þurfum að spila tii að sigra. Við höfum verið að leika gegn mjög sterkum liðum og gerðum ekki ráð fyrir sigri í neinum leik, en hefðum átt skilið að sigra í fjórum af fyrstu fimm leikjunum,“ sagði Guðjón. Islenska liðið lék í nótt, en síðan koma þrír leikir á jafn mörgum dögum — sá 'síðasti verður aðfarar- nótt þriðjudags. M ÓLAFUR Gottskálksson, knattspyrnumarkvörður, æfir nú körfubolta af fullum krafti með ÍBK. Hann lék með 1. flokki félags- ins gegn Grindvíkingum fyrir skömmu og skoraði þá 22 stig í síðari hálfleik. Reiknað er með að Ólafur leiki með meistaraflokki IBK gegn UMFG í úrvalsdeildinni 26. nóvember.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.