Morgunblaðið - 18.11.1989, Síða 42
42
MQRGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LA-tJGATtDÁóPRr Í8. NÓVKMBKH 1?89
BRÚNÁS BÝÐUR TIL SÝNINGAR Á
NÝJUM INNRÉTTINGUM SEM ERU
ÁVÖXTUR METNAÐARFULLS
SAMSTARFS VIÐ IÐNTÆKNI-
STOFNUN OG
INNANHÚSSHÖNNUÐINA
GUÐRÚNU MARGRÉTI ÓLAFSDÓTTUR
OG ODDGEIR ÞÓRÐARSON.
GUÐRÚN M. ÓLAF
INNANHÚSSHÖLl
NÚTÍMALEG HÖNNUN OG
ÓVENJULEGT EFNISVAL
í NÝJUM ELDHÚSINNRÉTTINGUM
BAÐINNRÉTTINGUM OG
FATASKÁPUM.
KOMDU OG SJÁÐU
HVÍTBÆSAÐ FUGLSAUGA,
OG ÞREIFAÐU Á
KIRSUBERJAVIÐI OG
GRÁSTEINI.
FAGLEG
RÁÐGJÖF
Á STAÐNUM. A
ODDGEIR ÞÓRÐARSON,
INNANHÚSSHÖNNUÐUR
pDÓTTIR,
NUÐUR
ÞORLEIFUR MAGNÚSSON
VERSLUNARSTJÓRI
GUÐRÚN ATLADÓTTIR,
INNANHÚSSHÖNNUÐUR
ÁRMÚLA 17A, 108 REYKJAVÍK, SÍMAR: 91-84585, 91-84461
MIÐÁS 11, 700 EGILSSTAÐIR, SÍMAR: 97-11480.
KÖRFUBOLTI / LANDSLIÐIÐ
Guðjón Skúlason
■ Úrvals
amerískt
sittnep
með frönskuivafi
Eitt það allra besta
Heildsölubirgðir:
KARI. K. KARLSSON&CO.
Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32
Guðjón
Skúlason
vekur
athygli
Bandarískt há-
skólalið hefur
sýnt honum áhuga
GUÐJÓN Skúiason, landsliðs-
maður j körfuknattleik og leik-
maður ÍBK, hefur staðið sig
mjög vel með landsliðinu í
keppnisferðinni í Bandaríkjun-
um. Hann skoraði m. a. 41 stig
íeinum leiknum ívikunni, þrátt
fyrir að hafa ekki leikið síðustu
níu mínúturnar vegna meiðsla.
Forráðamenn iiðs Fairfield há-
skóla sáu leikinn, hrifust mjög
af Guðjóni og íhuga að bjóða
honum skólavist.
Guðjón var betri í hnénu í gær
og gerði ráð fyrir að leika
gegn Fairfield í gærkvöldi að
bandarískum tíma.
Slætil"
„Ég er allur að koma til. Vissu-
lega væri mjög spennandi að fá
tækifæri til að leika með bandarísku
háskólaliði og ef mér verður boðin
skólavist, slæ ég til. Það yrði samt
ekki fyrr en á næsta skólaári," sagði
Guðjón við Morgunblaðið í gær.
Guðjón var ekki með í fyrrinótt,
þegar landsliðið tapaði 63:50 fyrir
Connecticut háskóla. „Þeir höfðu
kortlagt leik okkar og tókst að
halda hraðanum niðri. Þeir spiluðu
mjög agað og notuðu ávallt 45 sek-
úndumar,“ sagði Keflvíkingurinn.
Guðmundur Bragason var stiga-
hæstur íslendinganna með 19 stig.
Mikilvæg reynsla
Guðjón var mjög ánægður með
ferðina. „Við höfum haft mjög gott
af þessum leikjum — þetta er mikil-
væg reynsla. Bæði er að við höfum
fengið gott tækifæri til að sjá hvað
þarf að bæta og eins höfum við
lært hvernig við þurfum að spila
tii að sigra. Við höfum verið að
leika gegn mjög sterkum liðum og
gerðum ekki ráð fyrir sigri í neinum
leik, en hefðum átt skilið að sigra
í fjórum af fyrstu fimm leikjunum,“
sagði Guðjón.
Islenska liðið lék í nótt, en síðan
koma þrír leikir á jafn mörgum
dögum — sá 'síðasti verður aðfarar-
nótt þriðjudags.
M ÓLAFUR Gottskálksson,
knattspyrnumarkvörður, æfir nú
körfubolta af fullum krafti með
ÍBK. Hann lék með 1. flokki félags-
ins gegn Grindvíkingum fyrir
skömmu og skoraði þá 22 stig í
síðari hálfleik. Reiknað er með að
Ólafur leiki með meistaraflokki
IBK gegn UMFG í úrvalsdeildinni
26. nóvember.