Morgunblaðið - 18.11.1989, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989
Samþykkt aðalfundar LIU:
Veiðiheimildir verði
bundnar aflamarki
-sóknarmark aflagt
FIMMTUGASTI aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna,
sem lauk á Hótel Sögn í gær, er í meginatriðum samþykkur fram-
komnum dröguni að frumvarpi til laga um stjómun fiskveiða. Aðal-
fundurinn samþykkir að veiðiheimildir allra fiskiskipa verði alfarið
bundnar við aflamark og sóknarmark þannig lagt af. Fundurinn
hafhar hins vegar hugmyndum um sölu veiðileyfa, eða auðlinda-
skatt, við stjórnun fiskveiða og er mótfallinn þeim hugmyndum, sem
fram koma í frumvarpi til laga um úreldingu fiskiskipa. Á aðalfimd-
inum var Kristján Ragnarsson endurkjörinn formaður LIU með
lófataki.
Fundurinn telur að úthluta eigi
veiðiheimildum alfarið til skipa en
ekki einstakra sveitarfélaga eða
fiskvinnslustöðva. Lögð er áhersla
á að ný lög um stjórn fiskveiða
verði ótímabundin en kvótaárið
verði frá 1. september til 31. ágúst
og heildaraflamagn botnfiskteg-
unda fyrir komandi ár verði ákveð-
ið eigi síðar en 1. ágúst ár hvert.
Aðalfundurinn telur að aðilar
eigi sjáifir að ráða málum varðandi
úreldingu og kvótasölu án opin-
berrar milligöngu eða miðstýring-
ar. Stofnun sérstaks opinbers sjóðs
í þessu skyni til að kaupa og selja
skip, og ráðstafa veiðiheimildum
þeirra eftir geðþótta, sé ekki í sam-
ræmi við þá stefnu, sem unnið
hafi verið markvisst að í sjávarút-
vegi síðastliðin ár.
Stefnt hafi verið að freisi í stað
opinbers forræðis með það að leið-
arljósi að fækka sjóðum og öðrum
millifærslukerfum í sjávarútvegi,
þannig að menn ráði gerðum sínum
sjálfir og beri þá einnig ábyrgðina.
Fundurinn telur á hinn bóginn að
leita eigi leiða til að bæta núver-
andi fyrirkomulag varðandi úreld-
ingu fískiskipa en bent hafi verið
á margar leiðir til þess.
Fundurinn samþykkir að helm-
ingur afla línubáta frá nóvember
til og með febrúar verði utan kvóta,
eins og verið hafi. Þá er lagt til
að heimilt verði að færa allt að 20%
af úthlutuðum afla einstakra teg-
unda til næsta árs, svo og aflaheim-
ildir í sérveiðum.
Aðalfundurinn leggur áherslu á
að hlutdeild smábáta í heildaraflan-
um vaxi ekki frá því sem hú er,
við gildistöku nýrra laga um fisk-
veiðistjórnun. Fundurinn vill að ein-
ungis þeir smábátar undir 6 brúttó-
rúmlestum fái veiðileyfi, sem
skráðir verði á skipaskrá 31. des-
ember 1989, eða samið hafi verið
um smíði á iyrir gildistöku væntan-
legra laga um stjóm fiskveiða, enda
verði bátarnir afhentir fyrir 1. júlí
1990.
Fundurinn er mótfallinn álagi á
ferskan fisk, sem fluttur er á er-
lendan markað, en með tilliti til
allra aðstæðna sé þó hægt að fall-
ast á 15% álag, eins og í gildandi
lögum. Skorað er á stjómvöld að
standa við loforð um að stjóm á
útflutningi ísfisks í gámum verði
færð úr utanríkisráðuneytinu.
Aðalfundur LÍÚ vill að þegar á
næsta ári verði teknar upp veiðar
á hrefnu hér við land, enda hafi
hvalatalning leitt í Ijós að stofninn
sé stærri en áður hafi verið talið.
Morgunblaðið/Bjarni
Sterk dramatísk sýning
TOSCA eftir Puccini var frumsýnd í íslenzku óperanni í gærkvöldi. Húsfyllir var og mikil ánægja með
sýninguna, að sögn Jóns Ásgeirssonar tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins. „Þetta er sterk dramatísk
sýning og sögnvaramir vora mjög góðir,“ sagði Jón. Myndin var tekin í leikslok.
Viðskiptin við Sovétríkin:
Skynsamlegt að ræða inn- og
útflutning á svipuðum tíma
- segir Friðrik Pálsson forstjóri SH
„ÉG TEL að samband sé þarna á milli. Sovétmenn eru í miklum
gjaldeyriserfiðleikum og virðast ekki eiga annarra kosta völ en að
tengja saman innfiutning og útflutning. Ég held að þetta viti allir
sem eitthvað koma nærri þessum viðskiptum," sagði Friðrik Páls-
son, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, þegar hann var
spurður hvort hann teldi að samband væri á milli olíukaupa og sölu
á frystum fiski til Sovétríkjanna. Næstkomandi mánudag hefjast í
Moskvu viðræður um freðfiskkaup Sovétmanna á næsta ári. Sigurð-
ur Markússon, framkvæmdastjóri sjávarafurðadeildar SIS, sagði um
sama mál: „Ég get ekki fiillyrt að þeir hætti að kaupa fisk af okkur'
ef við hættum olíukaupunum. En ég get hiklaust sagt að ef báðar
hliðar þessa máls eru í góðu lagi er það til þess fallið að styrkja
viðskiptin og viðhalda þeim.“
Friðrik sagði að fyrir ári hefðu
fulltrúar allra helstu útflytjenda til
Sovétríkjanna gengið á fund Jóns
Sigurðssonar viðskiptaráðherra og
óskað eftir að ekki yrði gengið frá
olíukaupasamningi fyrr en svör
hefðu fengist frá Sovétmönnum um
hvaða flármuni þeir áætluðu til inn-
kaupa frá íslandi á sama tímabili.
„Þessi beiðni var sett fram vegna
þess að útflytjendum þótti serrt
nokkuð skorti á að sovésk stjórn-
völd gæfu fyrirtækjunum sem ís-
lendingar skipta við nægilegt svig-
rúm til innkaupa. Þar sem olíuvið-
skiptin era á hendi íslenskra stjóm-
valda fannst okkur beiðnin eðlileg
en ráðherrann sá þó ekki ástæðu
til að verða við þessari beiðni þá.
Við höfum reynt að ná viðbótar-
samningum um frystan fisk allan
seinni hluta ársins. Fyrir liggur að
kaupandinn í Sovétríkjunum hefur
áhuga á viðskiptum en skortir
gjaldeyrisheimildir til að geta keypt.
Mér skilst líka að vandræðin við
saltsíldarsöluna núna snúist fýrst
og fremst um gjaldeyri. Þetta finnst
Olíukaup og síldarsala 1986:
Samningur um olíukaup
var ekki undirritaður
- á meðan saltsíldarviðræður voru í strandi
í OKTÓBERMÁNUÐI 1986 tók þáverandi ríkisstjóm Steingríms
Hermannssonar ákvörðun um að undirrita ekki samninga um
olíukaup við Sovétríkin, þar sem viðræður um síldarsölu til Sovét-
manna höfðu siglt í strand. Samningar um sölu saltsíldar náðust
svo 5. nóvember 1986 og samningar um olíukaup voru undirritað-
ir 22. desember sama ár.
Matthías Bjamason, þáverandi
viðskiptaráðherra, skýrði þáver-
andi ríkisstjóm frá stöðu í saltsíld-
arviðræðum á fundi 16. október
og óskaði eftir áliti samráðherra
á þeirri fyrirætlan sinni, að samn-
ingar um olíukaup yrðu ekki und-
irritaðir að svo stöddu. Var það
samþykkt af öðram ráðherrum.
Á fundi rikisstjórnarinnar 21.
október 1986 var sett á fót nefnd
þriggja ráðherra til þess að fylgj-
ast með og fylgja eftir afstöðu
íslendinga í saltsíldarviðræðum
við Sovétmenn. í nefndinni áttu
sæti viðskiptaráðherra, sjávarút-
vegsráðherra og utanríkisráð-
herra.
Samhliða þessum aðgerðum
hér heima gaf Matthías Bjamason
íslenzkum embættismönnum, sem
staddir vora í Moskvu, fyrirmæli
um að undirrita ekki kaup á olíu-
vöram á meðan saltsíldarmálið
var ófrágengið.
mér benda eindregið til þess að
skynsamlegt væri að ræða báðar
hliðar viðskiptanna á svipuðum
tíma og það væri báðum aðilum til
hagsbóta," sagði Friðrik.
Sigurður Markússon sagði að í
upphafi hefðu verið bein tengsl á
milli fisksölu og olíukaupa í við-
skiptunum við Sovétríkin. Sovét-
menn hefðu farið að kaupa freðfisk
vegha erfiðleika okkar við sölu á
honum, sérstaklega í Bretlandi, og
þá hafi íslendingar farið að kaupa
olíuvörar á móti. „Hugsunin á bak
við rammasamning þjóðanna er sú
að það sé jafnvægi í viðskiptunum.
Ég held að báðum aðilum hafi fund-
ist gott og eðlilegt að hafa þetta
jafnvægi. Hins vegar er ramma-
samningurinn þess eðlis að menn
era ekki taldir skuldbundnir af ein-
stökum atriðum í honum. Það sama
gildir í þessu og í viðskiptum á
milli fyrirtækja, að ef viðskiptin eru
gagnkvæm era meiri líkur á að þau
haldist stöðug en ef þau væra bara
á aðra hliðina," sagði Sigurður.
Kristmann Jónsson, formaður
Síldarútvegsnefndar, segir að þó
ekki sé hægt að segja að beint sam-
band væri á milli olíu og síldar í
viðskiptunum við Sovétríkin hefði
alltaf verið talið að viðskiptajöfnuð-
ur ætti að vera á milli landanna.
Þegar við kaupum af þeim kaupi
þeir af okkur í staðinn. Hann sagði
að aldrei hafi verið látið á það reyna
hvert sambandið þarna á milli
beinlínis væri. Sagði Kristmann að
þáu pólitísku sjónarmið sem áður
hefðu verið áberandi í viðskiptunum
við Sovétríkin hefðu minnkað en
hörð viðskiptasjónarmið komið í
staðinn. „Það vita allir um erfiðleik-
ana í Sovétríkjunum. Þeir eiga erf-
itt með að kaupa það sem þeir nauð-
synlega þurfa,“ sagði Kristmann.
„Okkur finnst að það hefði mátt
draga þetta í einhveija daga, eins
og undirskriftina úti, af því að þetta
bar upp á sama tíma,“ sagði Krist-
mann þegar hann var spurður um
áhrif þess að gengið var frá olíu-
kaupasamningi þrátt fyrir að
stjórnvöld í Sovétríkjunum hefðu
ekki viljað staðfesta saltsíldarsamn-
inginn. Hann sagði jafnframt að
sjónarmið Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra hefði kannski eitt-
hvað til síns ágætis líka, hann vildi
ekki leggja neinn dóm á það.
Kópavogur:
Nauðgunar-
árás kærð
Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnur að rannsókn á meintu
grófii nauðgunarmáli sem átti
sér stað í austurbæ Kópavogs í
fyrrinótt.
Að sögn Jóns H. Snorrasonar,
deildarstjóra hjá' RLR, var um mjög
grófa og fruntalega árás að ræða
og er unnið af krafti að rannsókn
málsins.
Þyrla nauðlenti á
Krýsuvíkurvegi
ÞYRLA frá Björgunarsveit varn-
arliðsins nauðlenti á Krýsuvíkur-
veginum skömmu eftir hádegi í
gær.
Þyrlan var í æfingaflugi er ljós
kviknaði í mælaborðinu sem gaf
til kynna að bilun hefðí komið
fram í drifkassa. Flugmaður þyrl-
unnar lenti á veginum og kallað
var á viðgerðamenn frá Keflavík-
ui’flugvelli.
Viðgerðamenn rannsökuðu
vélina en fundu enga bilun og
var henni því flogið aftur til
Keflavíkurflugvallar eftir rúm-
lega tveggja tíma rannsókn.
Vélin verður tekin til nánari
rannsóknar næstu daga en
Björgunarsveit varnarliðsins á
briár bvi'lur til viðbótar;