Morgunblaðið - 18.11.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989
E1 Salvador:
Sókn skæruliða virð-
ist í nokkurri rénun
Grunur um að dauðasveitir hægri-
manna hafi myrt 6 jesúítapresta
San Salvador. Reuter.
ENN er hart barist í San Salvador höfuðborg E1 Salvador. Nýjustu
fréttir herma þó að sókn vinstrisinnaðra skæruliða sem hófst fyrir
viku sé nú í rénun. Gífurlegt mannfall hefiir verið í borginni, barist
heftir verið í stórum hluta hennar og talið er að um 800 manns hafi
fallið undanfarna viku. Mestan óhug hafa vakið morð á 6 jesúítaprest-
um og tveimur konum í háskóla í
manna eru grunaðar um ódæðið.
Þijátíu vopnaðir menn réðust inn
á garð Mið-Ameríkuháskólans að-
faranótt fimmtudags. Mennirnir
vöktu þá sem þar sváfu og myrtu
síðan átta manns, sex jesúítapresta,
eiginkonu eins háskólastarfsmanna
og 15 ára dóttur hennar. Pjórir
hinna látnu fundust á grasflöt við
háskólann. Hafði þremur verið stillt
upp við vegg áður en þeir voru
skotnir með vélbyssum. Meðal fórn-
arlambanna er Ignacio Ellacuria,
rektor háskólans og mikill baráttu-
maður fyrir mannréttindum. Ellac-
uria aðhylltist frelsunarguðræði sem
hvetur m.a. til þess að kaþólska
kirkjan taki afstöðu í stjórnmálum.
Ekki er vitað hvetjir stóðu að
morðunum. Ríkisstjórn landsins
undir forsæti Alfredos Cristianis
sagði „hryðjuverkahópa" hafa verið
þar að verki og tilkynnt var að opin-
San Salvador. Dauðasveitir hægri-
oer rannsókn myndi fara fram á
atvikinu. Leiðtogi jesúíta í Banda-
ríkjunum sakaði stjórnarherinn í E1
Salvador um að hafa staðið að morð-
unum. Bandarísku mannréttinda-
samtökin Americas Watch segja í
bréfi til James Bakers, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, að stjórnar-
herinn hafi lengi fylgst með háskó-
lanum og morðunum svipi til hryðju-
verka dauðasveita hægrimanna.
Christopher Dodd, bandarískur
öldungadeildarþingmaður, spáði því
í gær að andstaða almennings við
fjárhagsstuðning bandarískra
stjórnvalda við stjórnina í E1 Salvad-
or myndi vaxa mjög. Dodd, sem er
formaður utanríkismálanefndar öld-
ungadeildarinnar, sagði að þingið
myndi hætta við fjárveitingar ef í
ljós kæmi að hægrisinnaðir hermenn
hefðu staðið að morðunum. Fjár-
stuðningur Bandaríkjanna til stjórn-
Reuter
Lík þriggja jesúítapresta sem fundust á grasflöt við Mið-Ameríkuhá-
skólann í San Salvador.
arinnar í E1 Salvador nemur nú um David Blundy fréttaritari Sunday
60milljónumíslenskrakrónaádag. Correspondent, á sjúkrahúsi eftir
í gær lést breskur blaðamaður, að hafa orðið fyrir skoti.
■ FJÓRIR Norðmenn fórust er
sjúkraflugvél flaúg á fjallstind í
stórhríð á þriðjudág. Lík fjórmenn-
inganna, tveggja flugmanna, hjúkr-
unarkonu og læknanema, fundust
skammt frá slysstaðnum í gær,
þremur dögum eftir slysið.
H TVEIR starfsmenn hollensks
verslunarfyrirtækis hafa verið
handteknir og kærðir fyrir að hafa
selt blýmengað dýrafóður. Fóðrið
hefur valdið eitrun í þúsundum
nautgripa í tveimur löndum. Sölu-
bann var sett á mjólk og kjöt frá
300 bændabýlum í Hollandi og 1400
í Bretlandi vegna blýmengunar
hrísgijónahýðis frá Búrma, en því
var aflétt í gær. Fyrrum forstjóri
fóðursölufyrirtækisins D.M. De
Bruyn BV og samstarfsmaður hans
hafa verið kærðir fyrir að selja
hættulega vöru vísvitandi og án
þess að vara kaupendur við. Þeir
eiga yfir höfði sér allt að 15 ára
fangelsisdóma.
H JÓHANNES
Páll páfí II ræðir
við Míkhaíl Gorb-
atsjov Sovétfor-
seta í Páfagarði
1. desember. Þetta
verður í fyrsta
sinn sem páfi og
Sovétleiðtogi ræð-
ast við og gæti
fundur þeirra orð-
ið til þess að páfi
færi í heimsókn til
Sovétríkjanna,
sem er eitt af þeim
fáu löndum sem
hann hefur ekki
heimsótt.
Gorbatsjov
Tímamót í sögu Austur-Þýskalands:
Umbætur Modrows sam-
þykktar á a-þýska þinginu
Búist við milljónum ferðalanga að austan til Vestur-Þýskalands um helgina
Austur-Berlín. Reuter.
AUSTUR-ÞÝSKA löggjafarsam-
kundan samþykkti í gær sam-
hljóða tillögur ríkisstjórnar Hans
Modrows, forsætisráðherra, sem
fela m.a. í sér aukið frelsi í ut-
anríkisviðskiptum, heimila stofn-
un einkafyrirtækja og draga úr
miðstýringu og niðurgreiðslum.
Þær fela einnig í sér aukinn rétt
einstaklinga til orðs og athafna.
í gærmorgun tóku Austur-Þjóð-
verjar að streyma vestur yfir
landamærin og er búist við jafn-
vel enn fleira fólki en um síðustu
helgi. Þá tæmdu gestirnir sumar
verslanir í Vestur-Berlín af ýms-
um varningi sem skortur er á
fyrir austan.
„Það er afstaða ríkisstjórnarinn-
ar að almennum borgurum sé fijálst
að gera allt nema það sem er sér-
staklega bannað," sagði Modrow
er hann útskýrði umbótaáætlun
stjórnar sinnar. Þingið samþykktj
áform stjórnarinnar með lófataki. í
ræðu sinni gagnrýndi Modrow
Erich Honecker, fyrrum flokksleið-
toga, harðlega og sagði stjórn hans
bera ábyrgð áratuga efnahagslegri
stöðnun og kreppu á öllum sviðum.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalánds, sagði í gær að taka
yrði tillit til þess ef þýska þjóðin
öll óskaði sameiningar þýsku
i'íkjanna. Vestur-Þjóðverjar myndu
þó ekki knýja fram sameiningu
nema með stuðningi bandamanna
sinna. Mieczyslaw Rakowski, leið-
togi pólska kommúnistaflokksins,
sagði í gær að sameining þýsku
ríkjanna kynni að stofna framtíð
Póllands í hættu. Gagnrýndi hann
Kohl fyrir að vilja ekki heita því í
nýafstaðinni Póllandsför sinni, að
við hugsanlega sameiningu yrði
ekki gert tilkall tíl þýskra svæða,
sem bandamenn sameinuðu Pól-
landi í stríðslok.
Tugþúsundir Austur-Þjóðveija
streymdu í gær yfir til Vestur-
Þýskalands og sagði lögreglan ring-
ulreið ríkja í mörgyim landamæra-
þorpum og bæjum. Búist er við
ekki minni straumi vestur yfir
landamærin en um síðustu helgi.
Þá fóru tvær milljónir Austur-
Þjóðveija til Vestur-Berlínar er
múrinn, sem skiptir borginni í
tvennt, hafði verið rofinn. Undan-
farna daga hefur um helmingur
Austur-Þjóðveija fengið vega-
bréfsáritun til að heimsækja Vest-
ur-Þýskaland.
Manfred Gerlach, leiðtogi Fijáls-
lynda flokksins í Austur-Þýska-
landi, skýrði frá því í gær, áð Erieh
Honecker hefði gefið her- og lög-
reglusveitum fyrirmæli um að hefja
skothríð á hóp fólks, sem efndi til
fjöldafundar í Leipzig fyrir mánuði
og krafðist umbóta. Egon Krenz,
þáverandi yfirmaður öryggissveit-
anna og síðar arftaki Honeckers,
hefði hins vegar komið í veg fyrir
blóðbað með því að draga fram-
kvæmd árásarinnar á langinn þar
til um hægðist.
H LEIÐTOGI kommúnista í
júgóslavneska lýðveldinu SIóv-
eníu, Milan Kucan, hyggst láta
af embættinu í næsta mánuði. Kuc-
an er umbótasinni og hefur verið
flokksleiðtogi frá árinu 1986. Hann
hefur verið helsti andstæðingur
Slobodans Milosevics, nýkjörins
forseta og valdamesta manns
Serbíu.-
18 VITAL Mo-
reira, atkvæða-
mikill kommúnisti
í Portúgal, hefur
hvatt Ieiðtoga
portúgalska
kommúnista-
flokksins, Alvaro
Cunhal, til að
segja af sér til Cunhal
auðvelda breytingar á stefnu
flokksins. Moreira sagði í viðtali við
portúgalskt dagblað að stefna
flokksins væri orðin úrelt í ljósi
atburðanna í Austur-Evrópu að
undanförnu.
IIISGAGAASl f\l\G
Nýjar sendingar af ítölskum og þýskum sófasettum
□□□□□□
Opiö laugardag til kl. 16.00,
sunnudag frá kl. 14.00-16.00 hú5G#gnaverslun
REYKJAVir\GRVEGI 66 HAFMARFIRÐI SIMI 54 100