Morgunblaðið - 18.11.1989, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 18: NOVLMBER 1989
Fríkirkjusöftiuður-
inn í Reykjavík 90 ára
Sunnudaginn 19. nóvember eru liðin 90 ár frá því að Fríkirkju-
söínuðurinn í Reykjavík var stolhaður í Goodtemplarahúsinu í
Reykjavík og 1. sunnudag í aðventu, eru Iiðin 90 ár frá fyrstu
guðsþjónustu safhaðarins.
Þessara tímamóta verður minnst
hjá söfnuðinum nú um helgina og
fyrstu helgi í desember.
Nú á laugardaginn klukkan 18
verður helgistund í kirkjunni. Leik-
ið verður á orgel kirkjunnar í 20
mínútur fyrir athöfnina.
Á sunnudeginum verður marg-
.p^þætt barnaguðsþjónusta klukkan
11 og klukkan 17 verður sérstök
hátíðardagskrá í kirkjunni.
Hjónin Violeta og Pavel Smid
orgelleikari safnaðarins, leika á
orgelið, kirkjukórinn syngur, Kam-
merhljómsveit Háteigskirkju leik-
ur. Einsöng syngja Reynir Guð-
steinsson, Dúfa Einarsdóttir, Loft-
ur Erlingsson og Þuríður Sigurðar-
dóttir.
Formaður safnaðarins Einar
Kristinn Jónsson flytur ávarp og
safnaðarprestur séra Cecil Har-
aldsson lokaorð.
Sunnudaginn 3. desember verð-
ur barnaguðsþjónusta klukkan 11
og hátíðarguðsþjónusta klukkan
14 og munu þar einnig koma fram
góðir listamenn. Að þeirri guðs-
þjónustu lokinni verður samsæti
opið öllum kirkjugestum.
Allar þessar athafnir eru öllum
opnar.
Farskóli Suðurlands
tekinn til starfa
Selfossi.
FYRSTU námskeið Farskóla Suðurlands heQast 17. og 18. nóvem-
> ber á Hellu með tölvunámskeiði og á Stokkseyri með 30 tonna
skipstjórnarréttindanámi. Kynning á Farskólanum hefur verið
send inn á hvert heimili á Suðurlandi. Þar kemur fram að boðið
er upp á 45 námskeið fram til maímánaðar á næsta ári.
Farskóiinn er skóli fyrir fólk í
atvinnulífinu og byggist á nám-
skeiðahaldi um allt Suðurland.
í frétt um lausaíjárstöðu innláns-
^stofnana í viðskiptablaði síðastlið-
' inn fimmtudag slæddist inn meinleg
villa. Þar kom fraih að 1,6 milljarð-
ur af 6,4 milljarða bata í lausafjár-
stöðunni hefði runnið til að bæta
stöðu ríkissjóðs gagnvart Seðla-
banka. Þetta er að sjálfsögðu al-
rangt. Þarna átti að standa að 1,6
milljarður hefði runnið til að bæta
stöðu innlánsstofnana gagnvart
Seðlabanka. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
Skólinn er samstarfsverkefni Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, iðnráð-
gjafa Suðurlands, Iðntæknistofn-
unar íslands og sveitarfélaga á
Suðurlandi. Markmiðið er að efla
hagnýta menntun og atvinnulífið
í fjórðungnum. Vonast er til að
með farskólanum rísi öflugur
starfsmenntaskóli til hagsbóta fyr-
ir atvinnulíf og menntun á Suðurl-
andi.
Miðstöð skólans er í fjölbrauta-
skólanum þar sem veittar eru upp-
lýsingar um námskeiðin sem í boði
eru og skráð í þau. Umsjónarmað-
ur farskólans er Örlygur Karlsson
aðstoðarskólameistari fjölbrauta-
skólans.
— Sig. Jóns.
Leiðrétting
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 17. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) , verð (kr.)
Þorskur 80,00 66,00 73,99 12,728 941.750
Þorskur(ósL) 81,00 62,00 70,87 7,134 505.587
Þorskur(smár) 42,00 39,00 41,36 0,628 25.971
Ýsa 94,00 78,00 89,33 6,926 618.704
Ýsa(ósl.) 97,00 50,00 79,78 17,791 1.419.315
Karfi 50,00 50,00 50,00 0,154 7.675
Ufsi 30,00 30,00 30,00 0,157 4.695
Steinbítur 78,00 50,00 72,44 1,371 99.322
Langa(ósl.) 40,00 40,00 40,00 0,649 25.938
Lúða 315,00 220,00 257,06 0,576 147.940
Keila 24,00 15,00 22,17 1,912 42.390
Samtals 73,92 53,886 3.983.087
Á mánudag verða meðal annars seld 100 til 115 tonn af karfa
og fleiri tegundum úr Hjalteyrinni EA og 50 til 80 tonn af þorski,
ýsu og fleiri tegundum úr Stakkavík ÁR og fleiri bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 80,00 24,00 68,24 17,678 1.206.378
Ýsa 79,00 70,00 72,05 1,049 75.583
Ýsa(ósl.) 82,00 50,00 70,78 14,598 1.033.290
Ufsi 17,00 17,00 17,00 0,031 527
Steinbítur 52,00 52,00 52,00 0,134 6.968
Lúða 300,00 175,00 245,04 0,252 61.750
Keila 12,00 12,00 12,00 0,067 804
Samtals 68,00 35,599 2.420.862
Á mánudag verður selt úr línu- og netabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 80,50 50,00 70,84 19,542 1.384.304
Þorskur(umál) 33,00 25,00 27,12 0,136 3.688
Ýsa 95,00 60,00 77,22 12,225 943.990
Karfi 28,00 15,00 25,07 0,244 6.116
Ufsi 31,00 15,00 28,39 0,280 7.950
Steinbítur 49,00 15;00 41,54 0,430 17.862
Langa 50,00 15,00 42,25 2,579 108.971
Lúða 295,00 85,00 132,59 0,147 19.400
Keila 18,00 14,00 16,22 3,315 53.775
Skata 86,00 85,00 85,25 0,200 17.050
Lax " 170,00 170,00 170,00 0,053 9.010
Samtals 65,44 39,447 2.581.512
Selt var úr Búrfelli KE, Víði KE, Þorsteini Gíslasyni GK, Ólafi
GK, Sigrúnu GK og Sandvík GK. í dag verða meðal annars seld
20 tonn af þorski og 15 tonn af ýsu úr línu- og netabátum.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 16. til 20. október.
Þorskur 110,09 185,245 20.394.375
Ýsa 130,83 9,260 1.211.517
Ufsi 49,18 17,700 870.562
Karfi 54,96 0,550 30.229
Koli 126,48 0,945 119.528
Grálúða 145,99 1,875 273.739
Samtals 106,18 221,365 236.895
Selt var úr Sigurey BA 15. nóv. og Sunnutindi SU 16. nóv.
Villi Magg við hafiiarbakkann í Bolungarvík. Morgunbiaðið/Gunnar
Bolungarvík:
Villi MsLgg keyptur
fyrir 65 millj. króna
Bolungarvík.
HLUTAFÉLAGIÐ Mánafell hér í Bolungarvík helur fest kaup á kúfisk-
veiðiskipinu Villa Magg sem verið hefur í eigu Byggðasjóðs undanfarn-
ar vikur eftir að sjóðurinn keypti það af þrotabúi Bylgjunnar á Suður-
eyri. Kaupverð skipsins var 65 niillj. króna.
Undanfarna daga hefur verið unn-
ið að því að útbúa skipið til veiða
en fengist hefur tímabundið leyfi
fyrir fiskvinnslufyrirtækið Bjartmar
á Isafirði til þess að gera tilraunir
til hörpudiskveiða með kúfiskveiðar-
færum þeim sem Villi Magg er bú-
inn. Leyfi þetta er einungis veitt til
áramóta.
Að sögn Finnboga Bernódusson-
ar, framkvæmdastjóra Mánafells, er
allsendis óvíst hvað tekur við þegar
þessum tilraunaveiðum lýkur, en
skipið hefur engan veiðikvóta en það
er auðvitað hægt að gera það út á
Úr myndinni „Ein geggjuð"
sem sýnd er í Stjörnubiói.
Stjörnubíó:
„Ein geggjuð“
STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til
sýninga bandarísku gaman-
myndina „Ein geggjuð". Með
aðalhlutverk fer Tony
Danza. Leikstjóri er Stan
Dragoti.
Myndin segir frá unglings-
stúlku sem breytist á einni
nóttu úr ólánlegum telpu-
krakka í undurfagra fegurð-
ardís. Strákarnir falla flatir
fyrir henni og hún nýtur þess
að hafa á þeim tökin. En faðir
hennar er ekki sama sinnis.
GENGI OG GJALDMIÐLAR
GENGISSKRÁIMING
Nr. 221 17. nóvember 1989
Ein. Kl. 09.15 Kr. Kaup & Tott- B«ngl
Dollari 62,75000 62,91000 62,11000
Sterlp. 99,06700 99,31900 97,89800
Kan. dollari 53,68500 53,82200 52.86600
Dönsk kr. 8,74870 8,77100 8,70500
Norsk kr. 9.07050 9,09370 9,03680
Sænsk kr. 9.72720 9,75200 9,71840
Fi. mark 14,70240 14,73990 14,65900
Fr. franki 10,00800 10,03350' 9,98070
Belg. franki 1,62160 1.62570 1,61420
Sv. franki 38,39680 38,49470 38,74610
Holl. gyllini 30,17550 30,25250 30,02590
V-þ. mark 34,05610 34,14290 33,89360
ít. líra 0,04629 0,04641 0,04614
Austurr. sch. 4,83530 4,84760 4,81490
Port. escudo 0,39580 0,39680 0,39510
Sp. peseti 0,53140 0,53280 0,53360
Jap. yen 0,43514 0,43625 0,43766
írskt pund 90,31300 90,54300 89.99700
SDR (Sérst.) 79,89890 80,10270 79,47600
ECU, evr.m, 69.73090 69,90870 69,33650
Tollgengi fyrir nóvember er sölugengi 30. október
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70.
kúfiskveiðar, sagði Finnbogi. Villi
Magg er vel búinn 145 rúmlesta
stálbátur sem smíðaður var í
Drammen í Hollandi árið 1978. Skip-
ið er sérsmíðað til skelfiskveiða og
er búið 500 ha. aðalvél. Auk þess
eru um borð tvær hjálparvélar. Finn-
bogi sagði að alla tíð hefði verið
gengið vel um skipið og öllum bún-
aði þess og vistarverum verið vel við
haldið. Hann kvaðst vona að hægt
verði að hefja þessar tilraunaveiðar
strax um helgina. Skipið er nýkomið
úr slipp þar sem það var botnhreins-
að og er einungis eftir að yfirfara
veiðarfærabúnað þess áður en það
verður tilbúið til veiða. Fjögurra
manna áhöfn verður á Villa Magg.
Skipstjóri verður Gunnlaugur Gunn-
laugsson.
Ríkisútvarpið Sjónvarp:
Sjónvarps-
skermur sett-
ur upp
SAMKOMULAG hefur tekist
,milli Ríkisútvarpsins og Pósts-
,og síma um að settur verði upp
við útvarpshúsið í Efstaleiti 7,5
,metra skermur til móttöku send-
inga frá evrópskum Qarskipta-
hnetti. Er þetta bráðabirgða-
lausn en reiknað er með að nýr
og stærri skermur verði settur
upp næsta haust.
Að sögn Péturs Guðfinnssonar,
framkvæmdastjóra Sjónvarps,
verða sendingar frá Evrópustöðv-
unum um gei-vihnött fluttar til 12.
desember nk. Eftir það mun mót-
tökubúnaðurinn sem nú er notast
við ekki koma að gagni. Hefur því
verið ákveðið að setja upp til bráða-
birgða sænskan 7,5 metra skerm
við Efstaleiti. Seinna verður settur
upp annar stærri skermur, sem
verður til frambúðar.
Búast má við að um tíma verði
að notast við dýrari lausnir við
móttöku sjónvarpsefnis og mun það
einna helst koma niður á beinum
útsendingum að utan, öðrum en
fréttum, að sögn Péturs. Reiknað
er með að það taki nokkrar vikur
að setja upp nýja skerminn, en
framkvæmdahraði ræðst af veðri.
Kona varð fyrir
bíl á grænu ljósi
UNG kona varð fyrir bíl þegar
hún gekk á grænu ljósi yfir gang-
braut við Snorrabraut síðdegis á
fimmtudag.
Hún skarst á höfði og kenndi til
í hálsi en meiðsli hennar voru ekki
talin hættuleg. Sol var lágt á lofti
þegar slysið varð og er talið að hún
hafi blindað ökumanninn.
- Gunnar
Jtleööur
á ntorgun
Haustsamvera Æskulýðssambands
kirkjunnar i Reykjavíkurprófastsdæmi
verður í Árbæjarkirkju laugardaginn 18.
nóvember kl. 15—23. Heimsókn hjá
Hjálparstofnun kirkjunnar. Unnið í hóp-
um og æfðir söngvar frá Suður-Afriku,
kvikmyndin „Cry Freedom" sýnd. Helgi-
stund kl. 22. Sölubúð á staðnum og
kvöldmatur seldur fyrir 400 kr.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasam-
koma kl. 11 árdegis. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson
messar. Organleikari Jón Mýrdal.
Æskulýðssamkoma sunnudagskvöld kl.
20.30. Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Munið kirkjubilinn.
Kaffi í safnaðarheimilinu eftir messu.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BORGARSPÍTALIIMN: Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Tómas Sveinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Kl. 14 hefst prófastsvisitas-
ia með guðsþjónust. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson prófastur prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti.
Inga Backman syngur einsöng. Sr. Gísli
Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sr. Pálmi
Matthíasson. Guðsþjónusta kl. 14. Ein-
söngur Kristín Sigtryggsdóttir. Organ-
isti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi
Matthíasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barnasam-
koma í safnaðarheimilinu við Bjarn-
hólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur Kristj-
ánsson.
DÓMKIRKJAN: Laugardag 18. nóv.
Barnasamkoma í kirkjunni kl. 10.30.
Egill Hallgrímsson. Sunnudag 19. nóv.
kl. 11, messa. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Kl. 14 messa með altarisgöngu. í leit
að nýjum stíl verða sungnir messu-
söngvar Sigfúsar Einarssonar án undir-
leiks. Dómkórinn syngur sálma og
nokkra messuþætti. Organisti Marteinn
Hunger Friðriksson. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Sunnudag 19.
nóv. Messa kl. 14. 50 ára afmæli Fé-
lags fyrrverandi sóknarpresta. Sr.
Grímur Grímsson predikar og þjónar
fyrir altari. Organisti Kjartan Ólafsson.
Félag fyrrverandi sóknarpresta.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Sunnudag:
Barnasamkoma kl. 11. Umsjón Ragn-
heiður Sverrisdóttir. Messa kl. 14,
prestur sr. Guðmundur Örn Ragnars-
son. Organisti Guðný M. Magnúsdóttir.
Mánudag: Æskulýðsfundur kl. 20.30.
Sóknarprestar.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Sunnudaginn
19. nóvember eru 90 ár liðin frá stofnun
safnaðarins. Laugardag kl. 18.00 helgi-
stund. Leikiö verður á orgel kirkjunnar
frá kl. 17.40. Orgelleikari Pavel Smid.
Sunnudag kl. 11 barnaguðsþjónusta.
Sungnir verða söngvar, farið í hreyfi-
leiki, bibliufrásögn i rháli og myndum.
I guðsþjónustunni verður skírn. Á eftir
hressing fyrir alla aldursflokka. Sunnu-
dag kl. 17. Hátíðardagskrá í tilefni 90
ára afmælis safnaðarins. Orgelleikur
Violeta og Pavel Smid. Kirkjukórinn
syngur, Kammerhljómsveit Háteigs-
kirkju leikur. Einsöngvarar: Reynir Guð-
steinsson, Dúfa Einarsdóttir, Loftur
Erlingsson og Þuríður Sigurðardóttir.
Ávarp flytur formaður safnaðarins Einar
Kristinn Jónsson. Safnaðarprestur flyt-
ur lokaorð. Cecil Haraldsson.
GRAFARVOGSPRESTAKALL: Barna-
messa kl. 11 í Félagsmiðstöðinni Fjörg-
yn við Foldaskóla. Sunnudagspóstur,
söngvar. Aðstoðarfólk Guðrún, Val-
gerður og Hjörtui;, Orgelleikari Sigríður
Jónsdóttir. Skólabíll fer frá Hamrahverfi
kl. 10.45. Sr. Vigfús Þór Árnason.
GRENSÁSKIRKJA: Sunnudag 19. nóv.
Barnasamkoma kl. 11, eldri börnin uppi
og yngri börnin niðri. Messa með altar-
isgöngu kl. 14. Orgelleikari Árni Arin-
bjarnarson. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Sunnudag 19.