Morgunblaðið - 04.01.1990, Page 2

Morgunblaðið - 04.01.1990, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990 Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi; Þrjár konur eru í 5 efstu sætunum FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi samþykkti sam- hljóða í gærkvöldi tillögu uppstillinganefndar um framboðslista sjálf- stæðismanna fyrir bæjarsfjómarkosningarnar á Seltjaraaresi í maí í vor. Listinn er þannig skipaður: 1. Sigurgeir Sigurðsson, bæjar- stjóri, 2. Erna Nielsen, húsmóðir, 3. Ásgeir S. Ásgeirsson, kaup- maður, 4. Petrea I. Jónsdóttir, ritari, 5. Björg Sigurðardóttir, endurskoð- andi, 6. Guðmundur Jón Helgason, húsa- smiður, 7. Gunnar Lúðvíksson, verslunar- maður, 8. Hildur Jónsdóttir, deildarstjóri, 9. Steinn Jónsson, læknir, 10. Magnús Margeirsson, mat- reiðslumaður, 11. Þröstur Eyvinds, rannsóknarlög- reglumaður, 12. Ásgeir Snæbjömsson, fram- kvæmdastjóri, 13. Þóra Einarsdóttir, tómstundafull- trúi, 14. Guðmar Magnússon, stórkaup- maður. Jón Hákon Magnússon, formaður fulltrúaráðsins, sagði að loknum fundinum í gærkvöldi að listinn væri sterkur og hann væri athyglis- verður fyrir þær sakir að þijár kon- ur skipuðu fimm efstu sætin og fjórar konur átta efstu sætin. „Kon- ur hafa skipað áhrifastöður hjá Sljórn fiilltrúa- ráðs Sjálfstæðisfé- laga í Reykjavík: okkur sjálfstæðismönnum á Nesinu og þær konur sem skipa listann hafa ekki náð þessum sætum vegna röðunar heldur vegna eigin verð- leika,“ sagði Jón Hákon. Áramótaskákmót Reggio Emilia: Margeir tapaði fyrir Gurevich Frá Gunnari Finnlaugssyni, íréttaritara Morgunblaðsins á N-ltalíu. MARGEIR Pétursson tapaði í gær skák sinni gegn Gurevich eftir 34 leiki í sjöttu umferð á hinu árlega áramótaskákmóti Reggio Emilia á Norður-Ítalíu. Önnur úrslit í sjöttu umferð urðu þau að Ivanchuk vann Georghiev, De Firmian vann Beljavski, jafntefli varð hjá Ehlvest og Ribli og einnig hjá Portisch og Karpov. Að sjöttu umferð lokinni er Ivanc- huk í fyrsta sæti með 4 vinninga að 5 skákum tefldum, og í 2.-4. sæti eru Karpov, Ehlvest og Ribli með 3,5 vinninga að loknum 5 skákum. Morgunblaðið/Þorkell Fyrsti viðskiptavinur Islandsbanka Valur Valsson, formaður bankastjómar íslands- banka, afgreiddi fyrsta viðskiptavin bankans, Jó- hannes Stefánsson veitingamann, í afgreiðslunni í Husi verslunarinnar í gærmorgun. Á milli þijú og fjögur hundruð starfsmenn komu saman fyrir utan aðalstöðvarnar í gær á fyrsta starfsdegi íslands- banka þar sem Valur Valsson, Ásmundur Stefáns- son, formaður bankaráðs og Jón Sigurðsson, við- skiptaráðherra fluttu stutt ávörp. Að því loknu var haldin flugeldasýning og merki bankans tendrað til merkis um að íslandsbanki hefði tekið formlega til starfa. Sjá einnig B3 og Akureyrarsíðu. Ekkert próf- Bandaríkjamarkaður: kjör í vor STJÓRN fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík samþykkti á fundi sinum í gær, að eftia ekki til prófkjörs vegna borgarstjómarkosn- inganna í vor. Meirihluti stjómarinnar, eða 15 stjómarmenn, lögðu til að skipuð yrði kjömefnd og horfið frá prófkjöri en 8 vildu prófkjör. Einn seðill var auður. Fulltrúaráðið kemur saman til fundar næstkomandi mið- vikudag, þar sem endanleg ákvörðun verður tekin. Ekki viturlegt að hækka okkar fiskverð að sinni - segir Magnús Gústafsson forstjóri Coldwater Seafood „VERÐ á okkar vöru er langt fyrir ofan það verð, sem keppi- nautar okkar bjóða, þannig að það væri ekki viturlegt af okkur að hækka verðið að sinni,“ sagði Magnús Gústafsson, forstjóri Coidwater Seafood, dótturfyrir- tækis Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna í Bandaríkjunum. Magn- ús sagði að þorsk- og ufsaveiðar Póstur og sími: Um þrjátíu uppsagnir símsmiða til viðbótar 2-300 manns bíða eftir flutningi eða uppsetningu nýs síma UM ÞRJÁTÍU símsmiðir hafa sagt upp störfúm til viðbótar þeim rúmlega 70 sem létu af störfúm um mánaðamótin síðustu hjá Pósti og síma. Uppsagniraar taka gildi um mánaðamótin mars/apríl og apríl/maí, nema þeirra sem hafa mánaðaruppsagn- arfirest. Félagar í Félagi símsmiða eru 132, en 160-170 simsmiðir voru starfandi hjá stofnuninni. Páll Þorkelsson, formaður Fé- lags símsmiða, sagði í samtali við Morgunblaðið að full samstaða væri með þeim sem látið hefðu af störfum og engan bilbug að finna. Menn væru farnir að líta eftir annarri vinnu og sumir símsmiðir frá smærri stöðum væru farnir til sjós og vafamál hvort þeir sneru aftur til Pósts og síma, þó félagið fengi viður- kenningu sem sjálfstæður samn- ingsaðili gagnvart ríkinu með að- ild að Rafiðnaðarsambandi ís- lands. „Við bíðum átekta. Það er full harka í þessu hjá okkur. Stór hluti af þessum mönnum mun ekki fara til símans aftur nema þetta gangi í gegn. Þessi laun sem eru greidd þama í dag eru algjör hneisa,“ sagði Páll. Hann sagði að ástandið væri víða erfitt út um land vegna þess hve margir símsmiðir hefðu hætt. Þannig væru engir símsmiðir starfandi á Sauðárkrók og Pat- reksfirði, einn verkstjóri á Húsavík, örfáir á Akureyri og 1-2 starfandi í Kef lavík og á Selfossi. Bilun varð í fyrradag á nokkuð stórum jarðsímastreng í Keflavík og var Hitaveita Suðumesja og fiskvinnslufyrirtæki síma- og telex-sambandslaus fyrir vikið, auk fleiri aðila. Unnið var að við- gerð en óvíst hvenær henni myndi ljúka. Þá kom leki að jarðsímastreng til loftskeytastöðvarinnar í Gufu- nesi. Stöðin varð aldrei sambands- laus. Búið var í gær að finna bil- unina og unnið að viðgerð. Ágúst Geirsson, símstjóri í Reykjavík, sagði aðspurður að sennilega biðu á bilinu 2-300 manns eftir f lutningi eða uppsetn- ingu nýs síma, en á annað hundr- að verkbeiðnir gætu komið inn á einum degi. Hann sagði ekki hægt að fullyrða hve .afgreiðslutíminn væri langur nú, en stofnunin hefði viljað fá þessar beiðnir með nokk- urra daga fyrirvara þegar ástand- ið var eðlilegt. við Alaska væru að aukast. Það gæti hugsanlega bætt upp minna framboð á þorski úr Norður- Atlantshafinu og Alaska-ufsi hefði í auknum mæli farið í blokka- og flakaframleiðslu. Magnús Gústafsson sagði að árið 1989 hefði komist á meiri stöðug- leiki en verið hefði næstu ár á und- an. „Við höfum getað boðið upp á stöðugleika, bæði hvað gæði og framboð varðar, og menn hafa ver- ið tilbúnír að greiða okkur umtals- vert hærra verð en keppinautum okkar. Þeir þurfa því að hækka sitt verð áður en við getum farið að hugsa til verðbreytinga,11 sagði Magnús. Hann sagði að það hefði verið ánægjulegt fyrir Coldwater Seafood hversu mikið hefði verið framleitt af þorsk- og ýsuflökum fyrir Bandaríkjamarkað á árinu 1989. „Þetta hefur verið góð vara og okk- ur hefur gengið allvel að selja hana fyrir gott verð. Við megum því vel við una og vonumst til að árið 1990 verði svipað og 1989. Keppinautun- um hefur hins vegar ekki gengið vel að selja flök og þrátt fyrir tak- markað framboð af kanadískum þorski hefur Kanadamönnum geng- ið frekar illa að selja hann, sem sést best á því hvað þeir bjóða lágt verð.“ Magnús sagði að Coldwater Sea- food hefði hins vegar kosið að selja meira af unninni vöru, sérstaklega fyrri hluta síðastliðins árs en seinni 'hluta ársins hefði þó ræst heldur úr með sölu á henni. „Við ætlum að halda áfram að koma til móts við óskir neytenda hvað varðar gæði og frágang vörunnar og þæg- indi við matreiðslu," sagði Magnús. Hann sagði að eftirspum eftir sjávarafurðum hefði aukist mjög á árunum 1986 og 1987. „Það leiddi til1 mikilla verðhækkana og fram- boðið varð ekki nægilegt til að sinna þörfum neytendanna. Þessi þróun kom svo niður á sjávarútveginum árið 1988 með minnkandi eftirspurn og lægra verði. Á árinu 1989 komst á meira jafnvægi og við skulum vona að árið 1990 verði ár nýrrar sóknar fyrir sjávarafurðir á Banda- ríkjamarkaði, sem þrátt fyrir allt greiðir besta verðið fyrir gæðavöm. Það ræðst þó mest af okkar eig- in frammistöðu og við skulum minn- ast þess að aðalkeppinautar okkar eru ekki aðrir fiskframleiðendur, heldur kjúklingaframleiðendur, sem virðast geta boðið upp á lægra verð en við og stöðugt framboð," sagði Magnús Gústafsson. Reykjavík: 774 skráðir atvinnulausir SAMTALS 774 voru skráðir at- vinnulausir 20. desember siðast- liðinn en á sama tíma árinu áður voru 444 á skrá. Af þeim 774 sem voru á skrá, voru 467 karlar og 307 konur. Þar af voru 67 öryrkjar, 43 karlar og 24 konur. Af þeim 444, sem voru skráðir árinu áður, voru 296 karlar og 148 konur. Þar af voru 45 ör- yrkjar, 24 karlar og 21 kona.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.