Morgunblaðið - 04.01.1990, Síða 9

Morgunblaðið - 04.01.1990, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990 9 ínrnea Eigendur Einingabréfa nutu hárrar ávöxtunar á síðastliðnu ári: Einingabréf 1 gáfu 33,1% nafnvexti eða 9,5% VEXTI UMFRAM VERÐBÓLGU. Einingabréf 3 gáfu 34,5% nafnvexti eða 10,7% VEXTI UMFRAM VERÐBÓLGU. Þeir, sem áttu eða keyptu Einingabréf 3 í upp- hafi ársins fyrir 500.000 krónur, voru því 172.500 krónum auðugri nú urn áramótin. Það skal því engan undra að sífellt fleiri Islending- ar velji Einingabréf sem ávöxtunarleið en - þau má kaupa fyrir hvaða upphæð sem er - þau eru að jafnaði laus til útborgunar hvenær sem er - þau gefa hæstu ávöxtunina á markaðnum á hverjum tíma - vextir óg verðbætur reiknast á þau daglega. Einingabréfin er hægt að kaupa hjá Kaupþingi í Reykjavík, Kaupþingi Norðurlands hf. á Akureyri og hjá helstu sparisjóðum landsins. Einnig er hægt að ákveða kaupin í gegnum síma og greiða bréfin með gíróseðli í hvaða bankaútibúi sem er, hvar sem er á landinu. Hafðu samband við okkur í síma 68-90-80 og ráðgjafar okkar rnunu leiðbeina þér við val á öruggri sparnaðarleið. SELJENDUR HLUTABRÉFA ATHUGIÐ Höfum kaupendur að hlutabrétum í Verslunarbankanum hf., Eimskipafélagi Islands hf. og Skeljungi hf. Sölugengi verðbréfa 4. janúar 1990 EININGABRÉF 1...........4.551 EININGABRÉF 2............2.505 EININGABRÉF 3............2.993 LÍFEYRISBRÉF.............2.288 SKAMMTÍMABRÉF............1.555 KAUPÞING HF Kringlmmi 5, 103 Reykjavík, sími 91-689080 Mikil fram- leiðslugeta í The Financial Times segir: „Vestur-Evrópuríkin hafa flest fengið að kynn- ast því vandamáli, sem er of mikil iramleiðslu- geta, til dæmis í stál-, kola- og veljariðnaði og öðrum gömlum atvinnu- greinum, en það hefiir hins vegar farið l'ram hjá mörgum, að það sama á við um fiskveiðiflotann. Við þennan vanda hafa sjávarútvegsráðheirar Evrópubandalagsins orð- ið að glíma á fundum sínum áð undanfornu um aflakvóta á árinu 1990 og niðurstaðan er langt í frá ánægjuleg, að minnsta kosti fyrir sjó- mennina... Rannsóknir fiskifræð- inga sýna, að mjög illa er komið fyrir helstu fiskstofhunum vegna of- veiði á síðustu árum og því lagði framkvæmda- stjóm EB til, að heildar- afli mikilvægustu fisk- tegundanna yrði skorinn verulega niður. Niðurskurðurinn. bitn- ar mest á enskum og skoskum sjómöimum við Norðursjó en á árinu 1990 mega þeir veiða 60% minna af ýsu og 20% minna af þorski en 1989. Annar afli minnkar einn- ig og þetta er aimað árið í röð, sem gripið er til mikils niðurskurðar. Sem dæmi má nefiia, að ýsu- afii Breta verður líklega ekki nema fjórðungur þess, sem hann var árið 1983 þegar sameiginleg fiskveiðistefiia Evrópu- bandalagsins kom til skjalanna. Þegar þessar tölur eru skoðaðar verð- ur skiljanlegt, að tals- menn fiskiðnaðarins telja ástæðu til að kvarta.“ Góðir tímar The Financial Tinies heldur áfi'am: „í hnotskum er vand- inn sá, að of mörg skip em að eltast við of lítiim fisk. Um miðjan þennan EB og fiskveiðarnar Innan Evrópubandalagsins (EB) fara nú fram umræður um framtíðarstefnu í út- gerð og fiskvinnslu. Skömmu fyrir jól ákváðu sjávarútvegsráðherrar aðildar- landanna 12, hverjar skyldu verða veiði- heimildir á hinu nýbyrjaða ári. Vakti sú ákvörðun ekki alls staðar mikinn fögnuð, til dæmis er talið mjög nærri Skotum gengið, eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu. í Staksteinum í dag er birt nýleg forystugrein úr breska blaðinu The Financial Times, þar sem rætt var um fiskveiðistefnu EB. áratug var mikill upp- gangur í sjávarútvegin- um, ríflegir kvótar og gott verð, og því ekki að undra þótt útgerðar- mönnunum fjölgaði og þeir, sem fyrir vom, bættu við sig skipum og juku sóknargetuna. Siðan hefur afiinn minnkað mikið og nú þegar viðvömnarbjöll- umar hringja gerist það á sama tima og vextir em rrýög háir og umskiptin því enn erfiðari en ella. Sjávarútvegsráðherr- ar EB-ríkjaima verða þó að vera fastir fyrir og vísa á bug óraunhæfum kröfúm um meiri kvóta. Þeir verða að gera for- svarsmönnum sjávarút- vegsins og fiskiðnaðarins ljóst, að stundargróðinn kemur þeim sjálfúm verst þegar til lengdar lætur. Ráðherrarnir ættu einnig að viðurkenna, að niðurskurðurinn nú mun ekki leiða til þess, að fisk- stofiiamir nái sér strax á strik — eins og var með síldina seint á síðasta áratug og snemma á þessum — og því nauð- synlegt að fækka skipum i ofvöxnum flotanum." Aðlögnn Loks segir The Fmanc- ial Tímes: „Ein aðferðin gæti ver- ið sú að láta markaðinn ráða þannig að verst settu fyrirtækin, til dæm- is þau skuldugustu, fæm einfaldlega á hausinn. Með tilliti til erfiðra að- stæðna í mörgum fiski- bæjum er hins vegar ekki óeðlilegt að auðvelda fyr- irtækjum þar aðlögunina með nokkurri fyrir- greiðsfu eins og gert hef- ur verið i öðmm atvinnu- greinum. Fyrir ári var fallið frá hugmyndum um sérstak- ar bætur til þeirra, sem vildu fiekka skipum, en það var illa ráðið og ætti ekki að endurtaka sig. Allra síst með tilliti til lítilla undirtekta undir þá áætlun EB að aðstoða fyrirtækin við endumýj- un skipanna gegn því, að sóknargetan yrði minnk- uð um 3% á fimm ára tímabili. Að leggja skipum beint eins og ýmsir innan greinarinnar vilja og breska stjómin hefiir til athugunar hefiir þó sína ókosti líka. Hefiir þessu verið líkt við landbúnað- inn þar sem bændur fá bætur fyrir að taka land úr ræktun en í þessum samanburði verður að gæta þess, að sjávarút- vegurinn er styrktur með milljónum ECU [evr- ópska mynteininginj en stuðningurinn við land- búnaðinn er talinn í millj- örðum ECU. Yrði skipun- um fækkað með valdboði er nefúilega hætta á, að sum best reknu fyrirtæk- in, þótt skuldug séu, helt- ist alveg úr lestipni. Að minnka heildarafl- ann og skera niður kvóta er ekki erfiðasta verkið fyrir ráðherrana; þeir mega ekki gleyma að ráðast til atlögu við allt of stóran fiskiskipaflot- I ann.“ Fellagörðum - Breiðholti III (í dansskóla HEIÐARS) NY NAMSKEID HEFJASTINJESTU VIKU: Almenn námskeið Karon skólirm kennir ykkur: • Rétta líkamsstöðu • Rétt göngulag • Fallegan fótaburð • Andlits- og handsnyrtingu • Hárgreiðslu • Fataval • Mataræði • Hina ýmsu borðsiði og alla al menna framkomu o.fl. Módelnámskeið Karon skólinn kennir ykkur. • Rétta líkamsstöðu • Rétt göngulag • Fallegan fótaburð • Sviðsframkomu Öll kennsla í höndum færustu sérfræðinga. Allir tímar óþvingaðir og frjálslegir. Ekkert kynslóðabil fyrirfinnst í Karon skólanum. INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í SÍMA 38 1 26 - KL. 15-20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.