Morgunblaðið - 04.01.1990, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 1990
14
Samtök jafnréttis og félagshyggju:
Um orkufrekan iðnað
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi greinargerð frá
Samtökum jafnréttis og félags-
hyggju:
Vegna umræðna að undanfömu
um orkufrekan iðnað og nýjar áætl-
anir í þeim efnum vilja Samtök jafn-
réttis og félagshyggju kynna sína
afstöðu til málsins.
1. Samtökin eru ekki andvíg
orkufrekum iðnaði en setja þau
skilyrði að hann standi undir raun-
verulegum orkukostnaði og spilli
ekki náttúru landsins.
2. Samtök jafnréttis og félags-
hyggju telja að íslendingar eigi
sjálfir að virkja fallvötn sín, en ein-
ungis að byggja nýjar stórvirkjanir
ef tryggt er að hagnaður verði af
orkusölunni. í því sambandi verður
að taka með í útreikninga eðlilega
fyrningu, viðhald og fjármagns-
kostnað af orkumannvirkjum. Það
er enn fremur óeðlilegt að miða
alla útreikninga orkufreks iðnaðar
við hagkvæmustu virkjanakosti,
nær væri að taka meðaltalskostnað
þeirra virkjanakosta sem em á döf-
inni.
„Samtökin eru andvíg
byggingu álvers við
Eyjafjörð vegna meng-
unarhættu og telja að
Eyjafjörður eigi að
vera matarframleiðslu-
hérað sem framleiði
góða, heilnæma og
ómengaða matvöru.“
3. Samtökin eru andvíg byggingu
álvers við Eyjafjörð vegna mengun-
arhættu og telja að Eyjafjörður eigi
að vera matarframleiðsluhérað sem
framleiði góða, heilnæma og
ómengaða matvöm. Það er raunar
alveg óviðunandi að Eyfirðingum
sé aldrei boðinn annar valkostur í
orkufrekum iðnaði en álver. Svo
virðist sem iðnaðarráðuneytið hafi
ekkert gert í þessum málum á
síðustu ámm annað en tvöfalda
stærð þess álvers sem Eyfirðingum
var boðið fyrir 5 árum.
4. Álver af þeirri stærð sem iðn-
aðarráðherra hefur kynnt virðast
hvergi henta nema þar sem mann-
fjöldi er mikill. Vegna þess að Sam-
tök jafnréttis og félagshyggju vilja
viðhalda dreifðri búsetu um landið
teljum við að önnur og minni orku-
frek fyrirtæki en álver henti betur
til atvinnuuppbyggingar úti um
land og því beri að kanna slíka
möguleika betur.
5. Samtökin telja að ef ráðist
verði í stækkun álversins við
Straumsvík sé ekki ráðlegt að
stækka það umfram það, sem
Blönduvirkjun gefur tilefni til. Fjár-
festing í orkumannvirkjum skal
miðast við þekktar stærðir í orku-
þörf á næstu ámm. Stærð og stað-
setning nýrra framleiðslufyrirtækja
verður að ákvarðast af hagkvæmni
og byggðasjónarmiðum. Fullt tillit
verði tekið til þeirrar búsetu sem
er nú í landinu þegar tekin er
ákvörðun um uppbyggingu atvinnu-
fyrirtækja og staðsetningu þeirra.
Átvinnufyrirtækin til fólksins, en
ekki fólkið til fyrirtækjanna þar sem
því verður við komið.
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
H Múlalundur
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29
r' Hemendur'i
v°n á Patric 1
Lheimsnkni
ELDHÚSKRÓKURINN
Gott og fljótlegt
- eftir allan hátíðamatinn
(mynd nr. 1)
Fiskibollu gratín
á hrísgrjónum
2 dl langkorna hrísgijón,
4 dl vatn,
salt,
1 stór dós fiskibollur,
hálfdós af kræklingi,
2 matsk. smjör,
3 matsk. hveiti,
um 4 dl fiskibollusoð, kræklingssoð og mjólk,
■2 matsk. kavíar,
um 1 matsk. sítrónusafi,
salt og pipar,
rifinn ostur.
Sjóðið hrísgijónin í söltuðu vatni í tæpar 20 mínútur. Dreifið þeim
svo í botninn á eldföstu fati eða formi. Leggið fiskibollur og krækl-
ing ofan á.
Bræðið saman smjör og hveiti í skaftpotti - þynníð með soðinu
og mjólkinni og búið til sósu. Látið'- sósuna sjóða i um 5 mínútur og
hrærið í henni af og til. Hrærið kavíar og sítrónusafa út í. Saltið
og piprið eftir smekk.
Hellið sósunni yfir fiskibollurnar á fatinu. Stráið smávegis af rifn-
um osti yfir og bakið í 250 gráðu heitum ofni í um 12 mínútur, eða
þar til rétturinn hefur tekið lit og virðist gegnsoðinn.
Pylsu „bátar“
6 vænar pylsur,
2 stórir laukar,
1 matsk. smjör,
2-3 matsk. chilisósa.
Ristið djúpan skurð í hveija pylsu eftir endilöngu og leggið pylsurn-
ar í ofnfast fat eða form. Skrælið og grófhakkið laukana, steikið þá
svo í smjöri við vægan hita þar til laukurinn verður mjúkur og fer
að gulna. Blandið chilisósunni saman við og fyllið pylsurnar með
blöndunni. Bakið í ofni þar til pylsurnar fara að taka lit og virðast
gegnsteiktar. Það tekur um 15 mínútur í 200 gráðu heitum ofni.
Gott að bera pylsurnar fram með kartöflumús og létt steiktum
eplasneiðum, sbr. mynd.
Verði ykkur að góðu. Svo þakka ég öll bréfin og upphringingarnar
á árinu og óska ykkur gleðilegs nýs árs.
Jórunn