Morgunblaðið - 04.01.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990
27
Læknafélag Reykja-
víkur opnar leikskóla
LÆKNAFÉLAG Reykjavíkur hefiir opnað Leikskólann Mýri að
Skerplugötu 1 í Reyýavík. Félagið keypti sl. vor hús af Reykjavíkur-
borg, sem áður stóð við Tjarnargötu II. Það var flutt út í Skeijafjörð.
Húsið hefur verið gert upp og
lagað að þörfum leikskóla. í húsinu
eru kjallari, tvær hæðir og ris.
Heildarkostnaður er rúmlega 32
millj. króna.
Rekstur skólans er alfarið í hönd-
um foreldra bamanna, en rými er
fyrir um 40 börn á aldrinum eins
til níu ára. Forstöðumenn leikskól-
ans eru Unnur Jónsdóttir og Sól-
veig Ásgeirsdóttir, fóstrur.
Áramót voru með hefð-
bundnum hætti í Vogum
Vognm.
ÁRAMÓT voru með hefðbundn-
um hætti í Vogum að undan-
skildu veðrinu sem að þessu
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Veigar Örn Guðbjörnsson kveður
árið með blysi.
sinni var hvöss sunnanátt og
rigning.
Samkvæmt áratuga langri
venju var kveikt í brennu klukkan
átta. Þar kom saman mikill fjöldi
fólks, en skömmu síðar fór að
rigna og dvaldi því fólk stutt við
brennuna.
Um kvöldið var miklu magni
flugelda skotið á loft, og áttu
margir í erfiðleikum með það
vegna veðursins, en ekki er vitað
annað en allt hafi þó farið vel.
Áramótadansleikur var í félags-
heimilinu Glaðheimum sem hófst
laust eftir miðnætti. Þar var hús-
fyllir.
Á nýársdagsmorgun var komið
besta veður, logn og hiti. í heið-
inni um 2 kílómetra frá Vogum
liggur Reykjanesbrautin sem var
flughál, og áttu einhveijir í erfið-
leikum af þeim sökum á brautinni.
- E.G.
Blús í Kjallara keisarans
BLÚSSVEITIN Blámakvartett-
inn leikur blús í Kjallara keisar-
ans að Laugavegi í kvöld. Gestur
á tónleikunum verður Bubbi
Morthens.
Hljómsveitina skipa reyndir blús-
leikarar, þeir Haraldur Þorsteinsson
bassi, Björgvin Gíslason gítar, Ás-
geir Óskarsson trommur og Pétur
Hjaltested hljómborð. Að sögn Mar-
geirs Margeirssonar í Kjallara keis-
arans hefur undanfarin fimmtu-
Utanríkisráð-
herra hættir við
för til Israels
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherraj hefur tilkynnt
stjórnvöldum í Israel að hann hefði
ákveðið að fresta opinberri heim-
sókn sinni til ísraels um óákveðinn
tíma vegna óvissuástandsins í
landinu. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá utanríkisráðuneyt-
inu.
dags- og sunnudagskvöld verið leik-
in blústónlist á staðnum og er stefnt
að því að svo verði áfram. Tónleik-
arnir hefjast kl. 22.
Athugasemd
í tilefni umfjöllunar fjölmiðla um
starfslok mín hjá Sambandinu um
þessi áramót skal upplýst að ég hef
gert forstjóra ítarlega grein fyrir
ástæðum þess að ég hef kosið að
víkja úr framkvæmdastjórninni.
Ein ástæðan er mat mitt á
margra mánaða samningagerð
Sambandsins við Landsbankann,
þar sem undirritaður taldi — öðru
hveiju — að nær fullsamið væri,
aðeins til að uppgötva þegar á átti
að herða, að ókleift reyndist að ná
samkomulaginu í höfn.
Vegna brýnna sameiginlegra
framtíðarhagsmuna Landsbankans
og Sambandsins, taldi ég rétt að
víkja þessum samskipta-kapítula til
hliðar með því að þoka úr starfi.
Kjartan P. Kjartansson
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM
3. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í 1 Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðai- Ma'gn Heildar-
verð verð verð (testir) verð(kr.)
Þorskur(ósL) 76,00 67,00 71,97 3,878 279.088
Ýsa(ósl.) 125,00 89,00 109,28 5,759 629.337
Steinbítur(ósl.) 70.00 51,00 67,07 ■ 0,259 17.370
Lúða 500,00 405,00 458,36 0,037 16.730
Keila(óst) 26,00 26,00 26,00 0,418 10.868
Samtals 92,11 10,351 953.393
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(ósL) 90,00 64,00 78,82 9,747 768.220
Ýsa(ósl.) 134,00 70,00 116,54 10,963 1.277.677
Samtals 20,859 2.052.294
I Selt var á þrlðjudag og miðvikudag.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 84,00 65,00 75,21 9,192 691.342
Undirmál 20,00 20,00 20,00 0,018 360
Ýsa 138,00 80,00 105,77 2,495 263.905
Steinbítur 50,00 50,00 50,00 0,245 12.250
Langa 50,00 46,00 46,07 0,227 10.458
Keila 56,00 24,50 27,38 0,558 15.276
Lýsa 32,00 32,00 32,00 0,017 544
Samtals 77,96 12,752 994.135
Virðisaukaskattur er ekki innifalinn í ofangreindu fiskverði.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Tekin var mynd af hendi Ólafs Björnssonar formanns sjúkrahússtjórnar. En á myndinni hér fyrir
neðan sést Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra taka nýju röntgentækin formlega í notkun.
Sjúkrahúsið í Keflavík:
Ný röntgentæki tekin 1 notkun
Gömlu tækjunum var ekið beint á ruslahaugana
GUÐMUNDUR Bjarnason
heilbrigðisráðherra var við-
staddur þegar ný röntgentæki
voru tekin í notkun hjá Sjúkra-
húsi Keflavíkurlæknishéraðs.
Gömlu tækin voru orðin 18 ára
og úr sér gengin á margan
hátt og var þeim ekið beint á
haugana.
Karl Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri sjúkrahússins
sagði við þetta tækifæri að nýju
tækin hefðu kostað 11,3 milljón-
ir og annar kostnaður við að
koma tækjunum fyrir hefði verið
um 3 milljónir. Kostnaður við
uppsetningu hefði verið um 1
milljón og við breytingar á hús-
næði um 2 milljónir.
Heilbrigðisráðherra flutti
ávarp og sagði meðal annars að
ákveðið hefði verið að veita fé
til öldrunarmála á Suðurnesjum.
Að loknu máli sínu tók ráðherra
hin nýju tæki formlega í notkun
með því að taka röngtenmynd
af hendi Ólafs Bjömssonar form-
anns sjúkrahússtjórnar.
BB
Athugasemd frá
Pósti og síma
Morgunblaðinu barst í gær eftir-
farandi athugasemd frá Póst- og
símamálastofnun:
Vegna uppsagna símsmiða sem
tóku gildi um síðastliðin áramót
hafa komið fram ýmsar rangar upp-
lýsingar í fjölmiðlum varðandi þetta
mál.
Nauðsynlegt er að leiðrétta nokk-
ur atriði:
1. Því hefur verið haldið fram að
stofnunin hafi ráðlagt viðkomandi
aðilum að segja upp störfum sínum.
Þetta er ekki rétt og hefur það ver-
ið margleiðrétt í viðtölum við tals-
menn símsmiða.
2. Fullyrt hefur verið að laun sam-
kvæmt kjarasamningum á almenn-
um markaði séu 30% hærri en þau
sem símsmiðir fá hjá Pósti og síma.
Slíkur samanburður er ekki til, en
samanburður hefur verið gerður á
dagvinnulaunum rafeindavirkja
samkvæmt taxta Rafiðnaðarsam-
bandsins og launatöflu Fél. ísl.
símam. í des. 1989 og eru þau hærri
sem nemur frá 6,4% upp í 26,8%.
Er þá ekki tekið tillit til sérréttinda
opinberra starfsmanna, t.d. lífeyris-
réttinda og atvinnuöryggis fram yfir
aðrar stéttir.
3. Póst- og símamálastofnunin er
ekki samningsaðili um launa- og
kjaramál heldur fjármálaráðuneytið.
Félag íslenskra símamanna semur
um kaup og kjör símsmiða. Stofnun-
in telur æskilegt að einn aðili semji
um laun starfsmanna innan sömu
starfsgreinar og helst eitt félag eða
samband stéttarfélaga fyrir alla
starfsmenn stofnunarinnar.
Stofnunin mun kappkosta að
leysa þarfir viðskiptavina eftir föng-
um, en biður þá að hafa biðlund á
meðan þetta ástand varir.
Sundlaug’arlyfta fyrir
fatlaða tekin í notkun
Selfossi.
NÝ sundlaugarlyfta og baðstóll voru afhent Sundhöll Selfoss að gjöf
28. desember. Tæki þessi koma sér vel fyrir fatlaða sem sækja laugarn-
ar i vaxandi mæli.
Það voru Styrktarfélag aldraðra,
Þroskahjálp á Suðurlandi og íþrótta-
félag fatlaðra sem söfnuðu fyrir
nýju tækjunum og stóð söfnunin
yfir frá í maí í vor. Meðal fjáröflun-
arleiða var sala á plastpokum í slát-
urtíðinni.
Selfossbær sá um að gera þær
breytingar sem þurfti svo koma
mætti lyftunni fyrir. Við afhending-
una kom fram að nokkurra úrbóta
er þörf við Sundhöllina svo aðgengi
fatlaðra verði þar eins og bést verð-
ur á kosið en þörf er á að setja upp
handrið, skábraut við aðalinngang
og lyftu til að komast út á útisvæði.
- Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Fyrsti notandi lyftunnar var Stefán Smári Friðgeirsson. Það er Þór-
ir Kristinsson sem tekur á móti honum í lauginni.