Morgunblaðið - 04.01.1990, Side 28
28
-MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990
Kraftlyftingar:
A
Þrjú Islandsmet og
átta Akureyrarmet
ÞRJÚ íslandsmet voru sett í fiillorðinsflokki á Akureyrarmóti i bekk-
pressu sem haldið var í Iþróttahöllinni á gamlársdag, auk þess voru
sett sex Akureyrarmet í unglingaflokki og tvö í flokki fullorðinna.
Þrettán keppendur mættu til
leiks á þessu síðasta kraftlyftinga-
móti ársins. Kári Elíson tvíbætti
íslandsmet Ólafs Sigurgeirssonar
frá árinu 1981, er hann lyfti fyrst
175,5 kg. og síðan 180 kg, sem er
afrek á alþjóðlegan mælikvarða, en
Kári vó aðeins 75,1 kg og var því
aðeins 100 grömmum yfir 75 kg
flokknum.
Helgi Jónsson bætti eigið ís-
landsmet í 52 kg flokki með því
að lyfta 71 kg í aukatilraun, en
Helgi er aðeins 19 ára.
Akureyrarmeistarar urðu Helgi
Jónsson, Jóhann Guðmannsson,
Rúnar Friðriksson, Kári Elíson,
Friðgeir Halldórsson, Flosi Jónsson,
Jón Jakobsson, Jóhann Sigurðsson
og Torfi Ólafsson. Besta afrek
mótsins vann Kári Elíson og hlaut
hann 119,48 stig. Besta afrek ungl-
inga vann Rúnar Friðriksson með
71,76 stig.
Slökkvilið Akureyrar:
Nokkru færri útköll
1989 en árið á undan
ÚTKÖLL Slökkviliðs Akureyrar
voru ögn færri á síðasta ári en á
árinu þar á undan, árið 1988 voru
útköllin 79, en á síðasta ári voru
þau 73. Langmesti eldsvoðinn var
í Krossanesi á gamlársdag. Sjúk-
raútköll voru 1.028 á árinu 1989,"
þar af 130 utanbæjar, en þau voru
1.084 árið þar á undan og voru
þá 185 utanbæjar.
Eldur laus
í bílskúr
ELDUR varð laus i bílskúr
við Birkilund laust fyrir há-
degi í gær og urðu á honum
töluverðar skemmdir auk
þess sem verkfæri og annað
dót sem í bílskúrnum var
eyðilagðist. Miklar annir hafa
veríð hjá Slökkviliðinu á Ak-
ureyri fyrstu daga ársins.
Gísli Kristinn Lórenzson
varðstjóri hjá slökkviliðinu sagði
að greiðlega hefði gengið að
slökkva eldinn í bílskúmum, en
talsverðar skemmdir hefðu orð-
ið vegna brunans. Þegar til-
kynnt var um eldinn rétt fyr'r
hádegi voru báðir sjúkrabílarnir
úti í flutningum og sagði Gísli
að einungis einn maður hefði
verið á vakt.
Slökkvilið Akureyrar hefur
verið kallað út 17 sinnum vegna
sjúkraflutninga og þrisvar
vegna eldsvoða það sem af er
þessu ári. M.a. var var liðið
kallað að Alþýðuhúsinu að
kvöldi nýársdags þar sem ein-
hver hafði gert sér að leik að
kveilqa á eldspýtu í lyftu húss-
ins þannig að hún fylltist af
reyk.
í skýrslu um útköll og eldsvoða
árið 1989 frá Slökkviliði Akureyrar
kemur fram að slökkviliðið var kallað
út 42 sinnum vegna elds og var hann
í flestum tilfellum í íbúðarhúsum,
eða 15 sinnum. Þá vár eldur í 10
tilfellum laus í rusli eða sinu, 8 sinn-
um í ökutækjum og 6 sinnum í iðnað-
arhúsnæði.
Hvað varðar útköll án elds, var
um að ræða bilun í boða í 8 skipti,
15 sinnum lék grunur á að um eld
væri að ræða og þá var liðið gabbað
fjórum sinnum á síðasta ári. Æfing-
ar urðu 47.
Upptök eldsvoða voru í flestum
tilfellum raktar til rafmagns, en í 9
tilvikum var um að ræða íkveikju og
6 sinnum var óvarlega farið með eld.
í 7 eldsvoðum varð tjónið meira
en 2 milljónir króna, en tjón á bilinu
1-2 milljónir varð í þremur eldsvoð-
um. í 10 skipti varð tjónið minna en
1 milljón og í 22 skipti varð ekki um
tjón að ræða.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjórir afgreiðslustaðir
íslandsbanka
Fjöldi fólks lagði leið sína í útibú íslandsbanka
á Akureyri í gær, á fyrsta opnunardegi bank-
ans. Afgreiðslustaðir bankans eru á fjórum
stöðum í bænum, þar sem áður voru Alþýðu-,
Iðnaðar og Útvegsbankar og verða afgreiðslu-
staðimir áfram fjórir fyrst um sinn, að sögn
Ásgríms Hilmissonar. Hann sagði enga ákvörð-
un enn liggja fyrir um hvenær bankinn samein-
aðist undir einu og sama þakinu, né heldur
hvar það yrði. Bankastjórar íslandsbanka á
Akureyri verða því áfram þrír, Ásgrímur Hil-
misson, sem áður var bankastjóri Útvegs-
bankans á Akureyri, Guðjón Steindórsson
bankastjóri Iðnaðarbankans og Kristín Jóns-
dóttir bankastjóri í útibúi Alþýðubankans á
Akureyri. Lúðrasveit Akureyrar lék í öllum
afgreiðslum íslandsbanka og boðið var upp á
kaffi og kökur skreyttar með litum bankans,
auk þess sem yngri kynslóðin fékk mynd af
Óskari og Emmu, sparibaukum bankans, og
hinir eldri plakat með mynd eftir Erró. Starfs-
fólk íslandsbanka á Akureyri verður á bilinu
36-8 manns og hefur því heldur fækkað frá
því ákvörðun um sameiningu bankanna var
tekin.
Togararnir halda til veiða hver af öðrum:
Árið leggst bærilega í okkur
þrátt fyrir ýmsa erfiðleika
*
segir Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri UA
ÞRÍR af sex togurum Útgerðar-
félags Akureyringa hafa látið úr
höfn á nýju árí og um miðnætti
í nótt átti frystitogarinn Slétt-
bakur að halda út. Þá fór togari
Útgerðarfélags KEA í Hrísey,
Súlnafellið einnig út í gærkvöld
Sigurður Bjarklind vann
fyrsta Gamlárshlaupið
SIGURÐUR Bjarklind fór með sigur af hólmi I fyrsta gamlárshlaup-
inu sem haldið var á Akureyri nú á gamlársdag.
Hlaupið var frá afleggjaranum
að Kristnesi og endað við Torfunefs-
bryggju, en leiðin er tæpir 10 kíló-
metrar. Þátttakendur voru 15, en
einungis tveir dagar voru til undir-
búnings og kynningar á hlaupinu.
Stefnt er að því að slíkt hlaup verði
hér eftir árviss atburður. Allir þátt-
takendur fengu viðurkenningar-
skjal að hlaupi loknu og höfðu um
það góð orð að mæta aftur á sama
tíma að ári.
Sigurður Bjarklind varð fyrstur
í mark, hljóp vegalengdina á 37,39,
Cees van de Ven hljóp á 39,31 og
varð annar, en þriðji var Karl Hall-
dórsson á 40,19. I fiokki kvenna
varð Guðrún Svanbjömsdóttir fyrst
í mark á 43,43 og Bryndís Stefáns-
dóttir önnur á 44,27.
og er reiknað með að það landi
afla um miðja næstu viku.
Vinnsla hefst hjá frystihúsi Kald-
baks hf. á Grenivík I kríngum
miðjan mánuðinn. Vinnsla hefst
í frystihúsi ÚA í næstu viku.
Sólbakur og Harðbakur fóru út
um miðnætti 1. janúar og i gær-
morgun fór Kaldbakur út. Slétt-
bakur átti að halda á miðin um
miðnætti í nótt og Hrímbakur fer
út á morgun, föstudag. Svalbakur
er í slipp hjá Slíppstöðinni á Akur-
eyri í yfirferð og smáviðgerðum
ýmiskonar.
Gunnar Ragnars framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa
sagði að vinnsla hæfist í frystihús-
inu í næstu viku, en það færi eftir
aflabrögðum togaranna hvenær
vinna hæfist þar.
„Árið leggst bærilega í okkur, þvi
er auðvitað ekki að neita að við
margskonar vanda er að etja, en
það þýðir ekki annað en vera bjart-
sýnn,“ sagði Gunnar.
Súlnafellið fór á veiðar í gær-
kvöld og er reiknað með að það
landi um miðja næstu viku. Sólfell-
ið var á síld í haust og liggur það
nú bundið við bryggju á Akureyri
og verður þar eitthvað áfram.
Starfsfólk frystihússins hefur verið
að pakka saltflökum og sinna öðr-
um tilfallandi verkefnum, en dauði
tíminn er notaður til að lágfæra og
dytta að.
Þorsteinn Pétursson fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks hf. á
Grenivík sagði að vinnsla hæfist í
frystihúsinu um miðjan mánuðinn,
eða í kringum 15. janúar. Verið er
að undirbúa Sjöfn ÞH á línu, en
allar trillur Grenvíkinga eru enn í
landi. Hjalteyrin 11 EA sem var í
eigu Samheija á Akureyri verður
afhent Grenvíkingum næsta sunnu-1
dag, 7. janúar.
„Við héldum vinnslunni gangandi
hjá okkur fram til 22. desember og
fór hráefnisöflun á síðasta ári fram
út björtustu vonum manna, en það
var þó alls ekki nóg. Við erum hins
vegar mun bjartsýnni í upphafi
þessa árs en við vorum um síðustu
áramót og staðan er betri nú en
hún var. En auðvitað er uggur í
manni, því óvissan íþessari atvinnu-
grein er mjög mikil,“ sagði Þor-
steinn. Grenvíkingar hafa yfir að
ráða þrefalt meiri kvóta fyrir þetta
ár, en þeir höfðu við upphaf árs
1989, eða í kringum 3000 tonn í
stað um 1000 tonna.
Fundur um sorg
og sorgarferli
Samtök um sorg og sorgar-
viðbrögð halda opinn fund í
kvöld, fímmtudagskvöldið 4.
janúar, kl. 20.30 í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju.
Kynntar verða bækur og bækl-
ingar um sorg og sorgarferli og
að því loknu verða fijálsar umræð-
ur. Fundurinn er öllum opinn, jafnt
félagsmönnum samtakanna sem
öðrum sem áhuga hafa á þessum
málum. • .
(Fréttatilkynning)