Morgunblaðið - 04.01.1990, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 04.01.1990, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990 33 Selma Antoníusar- dóttir - Minning Fædd 17. desember 1912 Dáin 15. desember 1989 Selma mágkona mín er farin yfir móðuna miklu og erfiðu sjúkdómss- tríði er lokið. Þar stóð hún sig eins og hetja eins og hennar var skap- höfn og lund að þrauka til hinsta dags og láta 'engan bilbug á sér finna. Þannig var hún að eðlisfari dugmikil og vinnusöm sómakona meðan kraftar entust, víðlesin og skarpgreind. Bókelsk var hún með afbrigðum og las nærri því allt sem hönd á festi enda vel heima í íslenskum bókmenntum og kom enginn að tómum kofunum þegar bækur og rithöfunda bar á góma. Ég var barn að aldri þegar hún giftist bróður mínum Ólafi 22. febr- úar 1936 og áttum við heima í sama húsinu við Grettisgötuna í mörg ár. Og getur því nærri að samskiptin voru mikil og náin kynni. Selma átti við mikil veikindi að stríða á þessum árum og dvaldi langdvölum í sjúkrahúsi, en hún bar höfuðið hátt eins og hún átti kyn til og vann þess á milli langan vinnudag og rak stórt fyrirtæki um árabil með miklum glæsibrag. Hún vann lengi og vel að máiefn- um berklasjúklinga og starfaði í mörg ár í félaginu Berklavörn hér í Reykjavík. Hún fylgdist vel með þjóðmálum og lét skoðanir sínar í ljósi skýrt og skorinort svo enginn fór í grafgötur með það hvað henni fannst, en skoðunum sínum tróð hún aldrei upp á aðra. Hún var kát og glöð í vinahópi og við spilaborð- ið naut hún sín vel og spilaði brids o g er mér minnisstæður hressilegur hlátur hennar við spilamennskuna og á góðum stundum. Selma fæddist í Vestmannaeyj- um 17. desember árið 1912 dóttir hjónanna Antoníusar Þorvaldar Baldvinssonar og konu hans Ólafar Jónsdóttur sem kennd voru við Byggðarholt. Hún átti fjögur al- systkini og eina hálfsystur og man ég að oft var gestkvæmt á Grettis- götunni þegar fjölskyldan úr Vest- mannaeyjum kom í bæinn. Selma og Ólafur bróðir minn eignuðust þijú mannvænleg börn, Antoníus Þorvald vélstjóra, sem giftur er Ólöfu Jónsdóttur, þau eignuðust þijú börn Guðlaugu, sem dó ung og Ólaf og Steinunni, Stefán flug- mann, sem kvæntist Bergljótu Gunnarsdóttur og eiga þau þijú börn Gunnar, Hrefnu og Hönnu. Stefán fórst í flugslysi í Dacca 2. desember 1970 og var hann fjöl- skyldunni allri mikill harmdauði. Yngst er Rannveig, starfsmaður hjá Arnarflugi. Hún á tvo drengi, Bjöm Þórisson frá fyrra hjónabandi og Stefán Ólaf með eiginmanni sínum, Sæbirni Valdimarssyni. SKIPA PLOTUR - INNRETTINGAR SKIPAPLÖTUR í LESTAR BORÐ-SERVANT PLÖTUR IWC HÓLF MEÐ HURÐ _ BAÐHERBERGISÞIUUR LAMETT Á GÓLF - BORÐPLÖTUR NORSK VIÐURKENND HÁGÆÐA VARA Þ.ÞORGRlMSSON&CO Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640 plurgiiw* í Kaupmannahöfn F/EST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI Selma og Óli bróðir vom með okkur Unni konu minni þegar ég fór í mína fyrstu námsför til Kaup- mannahafnar til að undirbúa mig fyrir danskennarapróf og þegar ég hafði tekið ákvörðun um það að fara utan aftur með konu og börn var hún einn aðalstuðningsmaður minn við að halda af stað því ekki þótti öllum vænlegt fyrir ungan fjöl- skyldumann að leggja upp í dans- kennaranám og óvissuna framund- an og vorum við Unnur henni því alla tíð þakklát fyrir þann stuðning sem hún veitti okkur. Það má með sanni segja að erf- iðu jarðvistarstríði sé lokið hjá mág- konu minni og að hvíldar hafi verið þörf. Það er því trú mín að nú hafí Selma fundið frið og svífí á vængj- um morgunroðans inn í ódáins- heima þar sem hennar bíður hvfld og friðsæld eftir erfið ár. Bróður mínum, börnum hans, tengdabörnum og barnabörnum votta ég mína dýpstu samúð. Mér verður Selma mágkona mín lengi minnisstæð fyrir margra hluta sakir. Gengin er góð kona. Friður veri með sálu hennar. Löng þá sjúkdóms leiðin verður. Lífið hvergi vægir þér, þrautir magnast, þijóta kraftar, þungt og sárt hvert sporið er, honum treystu, hjálpin kemur, hann af raunum sigur ber. Drottinmelskar, - Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sig. Kristófer Pétursson) ' Hermann Ragnar Stefánsson KjamaJQölskyldan í kjamorkustuði Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Sérsveitin Laugarásvegi 25. Sýnd í Regnboganum. Leik- slgórn og handrit: Óskar Jónas- son. Tónlist: Björk Guðmunds- dóttir. Kvikmyndataka: Step- hen Macmillan. Aðalhlutverk: Ingvar Sigurðsson, Hjálmar Hjálmarsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hilmar Jónsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Soffía Jakobsdóttir og Pétur Einarsson. Stuttmyndin Sérsveitin Laug- arásvegi 25 eftir Óskar Jónasson, sem sýnd er í nokkra daga í Regn- boganum, er kúnstug lítil gaman- mynd sem enginn ætti að missa af, sprenghlægileg og kolsvört kómedía um heimatilbúna víkingasveit í heimatilbúnum vanda. Óskar hefur stundað kvik- myndanám í London og gert mjög frískleg tónlistarmyndbönd fyrir Sykurmolana en Sérsveitin er það fyrsta sem hann sendir frá sér í bíó og þótt aðeins sé um að ræða stutta mynd lofar árangurinn sannarlega góðu. Myndin er orðljót og full af ofbeldisdýrkun, ofurmennafíkn og bardagagleði, æsingi og illindum en þessi yndislega húmoríski leik- stjóri snýr allri karlmennskuí- myndarrambóþvælunni uppí and- hverfu sína þangað til eftir stend- ur skopstælingin ein, litlir kallar í hermannaleik sem þú getur hleg- ið að endalaust. Þrír bræður, líklega af Laufás- veginum þótt Bakki standi þeim nær, koma sér fyrir til æfínga uppi í sveit með íslensku víkinga- sveitina að fyrirmynd, vopnaðir hverskyns morðtólum og tveimur kærustum, þar af einni óléttri. Þeir uppnefna hver annan í sífellu og öskra hver á annan ókvæðisorð en þeir eru líka gefnir fyrir að ríma drengirnir (sjóari í svörtu veiðir ekki vörtu) og eru logandi hræddir við karl föður sinn sem kemur örkumlaður í sveitina að messa yfir þeim. Taka síðan við strangar æfíngar sem enda með ósköpum. Framvindan innan marka stutt- myndarinnar er snurðulaus og myndar góða, samfellda heild, handritið er sannarlega nógu Sérsveitin á ferð og flugi; heimatilbúin víkingasveit í heimatilbún- um vanda. kjarnyrt til að virka sannfærandi og persónugerðin nógu einföld og skýr til að virka fyndin. Myndin líður áreynslulaust áfram, hvergi er yfírspilað, leikararnir allir, bæði af gamla og sérstaklega nýja skólanum finna sig algerlega í hlutverkunum og þeim haturs- fulla en alltaf hlægilega heimi sem Óskar skapar. Og síðast en ekki síst hefur höfundurinn gott kómískt innsæi og skyn á réttri tímasetningu. Dæmi er karateæf- ingin þegar hann skiptir um sjón- arhorn í lokin og fyndið atriði verður gráthlægilegt. Ef þessi mynd er ekki upphaf að einhveiju nýju í íslenskri kvik- myndagerð þá er ég illa svikinn. Litlu risaeðlurnar Fyrstu ferðalangarnir („The Land Before Time“). Sýnd í Laugarásbíói. Leikstjóri: Don Bluth. Teiknimyndin Fyrstu ferða- langarnir, sem framleidd er á veg- um Stevens Spielbergs og Georg- es Lucas en leikstýrt af Don Bluth, er einkar fallegt og skemmtilegt ævintýri frá forsögu- legum tímum úr landi risaeðlanna sem segir frá mislitum hópi smá- eðla á leið til fyrirheitna landsins og raunum þeim og ævintýrum er þær lenda í á ferð sinni. Það er sannur ævintýraljómi yfír myndinni og töluverð spenna í bland við ágæta persónusköpun og skemmtilegt handbragð í teikningu. Umhverfið er myrkt og framandlegt en eðlurnar eru hinar krúttlegustu og lenda í mikl- um raunum, þ.m.t. jarðskjálftum og eldgosum, en á hæla þeim er hin grimmilegasta kjötætueðla til- búin að gleypa i sig smáeðlurnar. Eltingaleikurinn er oft hinn æsilegasti í meðförum Bluths, sem hefur sérstaka ánægju af að leika sér með stærðir og hlutföll hinna forsögulegu dýra. Þeir, sem fara með raddirnar, eru að mestu óþekktir en gera það með sóma þótt hvergi sé að finna hér snilldarbragð í líkingu við Bette Midler og Cheech Marin í Oliver og félagar í Bíóborg- inni/Bíóhöllinni. Á undan eðlumyndinni er stutt jteiknimynd frá sömu aðilum um hund, sem setur grútleiðinlegt heimilislíf úr skorðum og lætur sparka sér út sjálfum sér til mik- illar hamingju. Snjöll hugmynd og skemmtilega útfærð en höf- undur teiknimyndafígúranna er Tim Burton (Batman), gamall Disney-teiknari reyndar. STIMPLAS Eigendur fyrirtækja athugið. Nú er VSK tekinn við af söluskatti! Þá vantar þig stimpil með VSK.-númerinu. Búum til stimpla með hraði. STIMPLAGERÐ FÉLAGSPRENTSMIÐJUNNAR HF. Spítalastíg 10 - Sími 91-11640 - Fax 91-29520

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.