Morgunblaðið - 04.01.1990, Qupperneq 38
MÓRGUNBLAÐIEÍ FIMMf UDÁGÍJR 4. JÁNÚÁR 1990
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÁSGEIRSSON,
Krosseyrarvegi 11,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju á morgun, föstudaginn 5.
janúar kl. 13.30.
Hallbjörg Gunnarsdóttir, Guðni V. Björnsson,
Erla Gunnarsdóttir, Guðmundur Jafetsson,
börn og barnabörn.
t
Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir,
INGVELDUR J. R. PÁLSDÓTTIR,
Þórsgötu 2,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum að morgni 30. desember.
Guðmundur Aronsson,
Páll Aronsson,
Ragnhildur Aronsdóttir,
Óli Már Aronsson,
Sigriður Bjarnadóttir,
Inga Einarsdóttir,
Haukur Leósson,
Kristi'n Gunnarsdóttir.
t
Stjúpmóðir mín og systir mín,
UNNUR ÓSK ÁSMUNDSDÓTTIR,
áðurtil heimilis á Austurbrún 4, Reykjavík,
sem lést í Hrafnistu, Hafnarfirði, 20. desember sl., verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. janúar nk. kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hulda Ásgeirsdóttir,
Jenný Ásmundsdóttir.
t
Hjartkær dóttir okkár og systir,
REBEKKA SVERRISDÓTTIR
byggingaverkfræðingur,
fædd 19. október 1954,
lést í Kaupmannahöfn 30. desember 1989. Jarðarförin fer fram
í Kaupmannahöfn.
Kaino H. Bailey,
Sverrir Ólafsson,
Pía Rakel Sverrisdóttir,
Halldór Halldórsson.
t
Ástkær sonur okkar, bróðir og vinur,
BRAGI ÞÓR GUÐMUNDSSON
frá Sjónarhóli,
Grindavik,
lést 2. janúar í Borgarspítalanum. Jarðarförin auglýst síðar.
Guðmundur Þorsteinsson, Árný Enoksdóttir,
Þorsteinn Guðmundsson, Aldis Einarsdóttir,
Kristfn Guðmundsdóttir, Helgi Þ. Magnússon,
Þorvaldur Guðmundsson, Margrét Kristinsdóttir,
Þórlaug Guðmundsdóttir,
Birgir Ingi Guðmundsson,
Finnbogi Sigurbjörnsson.
t
Systir mín,
MARY A. FRIÐRIKSDÓTTIR
frá Gröf,
Vestmannaeyjum,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 23. desember, verður
jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, föstudaginn 5. jan-
úar.
Fanný Friðriksdóttir og aðrir vandamenn.
t
Sonur okkar,
THORDUR JOHNSEN,
er látinn. Jarðarförin hefur farið fram.
Alúðarþakkir færum við björgunarsveitum fyrir fórnfúst starf.
Sérstakar þakkir færum við hjónunum Dóru Þórhallsdóttur og
séra Heimi Steinssyni, Jóhönnu Möller og séra Sigurði Pálssyni
fyrir hlýhug í okkar garð.
Fyrir hönd sona Sigurðarog Árna Baldvins og annarra aðstandenda,
Dóra Johnsen,
Rögn valdur Johnsen.
Eygerður Péturs-
dóttír - Minning
Fædd 30. júní 1942
Dáin 27. desember 1989
Við, sem eftir stöndum, þegar
sjálfur dauðinn er á ferð, erum oft
minnt á það, að skammt getur ver-
ið bilið milli lífs og dauða og að
„brugðist getur lánið frá morgni til
kvelds." Svo varð með okkur vini
Eygerðar Pétursdóttur, er við
spurðum andlát hennar. Hún gekk
til hvílu að kvöldi annars í jólum
sl., kona á besta aldri, á öruggum
batavegi eftir því sem best var vit-
að, eftir mikla skurðaðgerð, sem á
henni var gerð í nóvembermánuði
sl., en upp úr miðjum næsta morgni
var hún örend. — Svo snöggt og
þungt var höggið sem ástvinir og
aðstandendur Eygerðar Pétursdótt-
ur voru lostnir þennan dimma
skammdegismorgun.
Eygerður Laufey Pétursdóttir,
en svo hét hún fullu nafni, var
fædd í Reykjavík 30. júní 1942, og
voru foreldrar hennar Pétur Guð-
mundsson, áður bifreiðarstjóri, en
síðar heilbrigðisfulltrúi í Kópavogi,
sem nú er fyrir alllöngu látinn og
kona hans Asta Davíðsdóttir, en
hún er á lífi og dvelur á Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Með foreldrum sínum ólst Ey-
gerður upp, fyrst í Reykjavík en
síðar í Kópavogi, í hópi fjögurra
systkina, þriggja systra og eins
bróðurs. Systurnar eru Sigrún,
Anna og Kristín, allar giftar konur,
búsettar á Álftanesi, í Kópavogi og
í Noregi, en bróðirinn er Davíð
bóndi að Þverá í V-Skaftafellssýslu,
kvæntur maður.
Að loknu gagnfræðaskólanámi
stundaði Eygerður nám við Hús-
mæðraskólann að Varmalandi í
Borgarfirði, en eftir það hóf hún
fljótlega störf við iðnað og þá aðal-
lega við bókagerð í prentsmiðjum,
sem hún vann raunar við lengst af
síðan, allt fram undir dauðadag.
Mun það fljótt hafa komið í ljós
að hún var víkingur til vinnu, að
hvaða störfum sem hún gekk og
var svo aila tíð. Einnig vann hún
að félagsmálum starfsmanna í
þeirri iðngrein, sem hún starfaði
við og tók m.a. virkan þátt í störfum
Félags bókagerðarmanna.
Þann 4. júlí 1963 giftist Eygerð-
ur systursyni mínum, Benedikt
Eiríkssyni, vélstjóra. Leit ég upp frá
því á hana sem einskónar mágkonu
mína, því að auk þess nána skyld-
leika, sem var með okkur Benedikt
vorum við í raun uppeldisbræður,
þar sem hann var alinn upp hjá
foreldrum mínu og síðar systrum
mínum, móðursystrum hans, eftir
að móðir hans Guðrún lést í blóma
lífsins og hannn var enn barn að
aldri.
Þau Eygerður og Benedikt eign-
uðust tvö börn, þau Pétur rafvirkja-
nema, sem nú er 26 ára að aldri,
og er sambýliskona hans Guðrún
Ingólfsdóttir og Guðrúnu Kristínu
skrifstofustúlku, nú 24 ára sem enn
býr í foreldrahúsum.
Þau Eygerður og Benedikt voru
samhent hjón og samstiga í búskap
sínum, heimilishaldi og við uppeldi
bama sinna. Saman unnu þau af
útsjónarsemi og dugnaði við að full-
gera og fegra og prýða utanhúss
og innan, hús það að Sæbólsbraut
10 á Seltjarnarnesi sem þau festu
kaup á fyrir tæpum áratug í félagi
við elstu systur mína sem búið hef-
ir þar síðan með þeim. Af sama
dugnaði og eljusemi unnu þau að
því að koma upp sumarbústað við
Þingvallavatn þar sem þau dvöldu
löngum um helgar og í leyfum á
sumrin.
Heima við var Eygerður mikil
og myndarlég húsmóðir, sem stjórn-
aði heimili og heimilishaldi innan-
húss af röggsemi, myndugleika og
myndarskap. Sérstaka ánægju
hafði hún af því að taka á móti
gestum, sem að garði bar og gerði
til þeirra vel af rausn og höfðings-
skap og var svo raunar um þau
hjón bæði. Eygerður var kona vel
greind og kunni á mörgu góð skil.
Hún var glaðlynd, hlý og glaðbeitt
í viðmóti, hress og skemmtileg í
viðræðu, hnyttin og oft orðheppin.
Hún var einnig skoðanaföst á menn
og málefni, hreinskilin og sagði hug
sinn allan hverjum sem var og í
áheyrn hvers sem var. Langt var
frá að við værum alltaf sammála
en ekki leiddu mismunandi skoðan-
ir okkar á ýmsu til langvarandi
misklíðar eða vinslita. Með afbrigð-
um var hún greiðvikin og var gott
til hennar að leita, ef vandkvæði
einhvers konar steðjuðu að. Voru
þá viðbrögð hennar skjót og örugg
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR ODDUR SIGURÐSSON,
Háaleitisbraut 56,
' stöðvarstjóri við Elliðaár,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju i dag 4. janúar kl. 13.30.
Herdis Sigurjónsdóttir,
Einar Sigurðsson, Iris Sigurðardóttir,
Sólveig Sigurðardóttir, Óttar Sigurðsson.
t
Maðurinn minn,
BENEDIKT SVEINBJARNARSON,
Lyngbrekku,
Biskupstungum,
áður til heimilis að Austvaðsholti, Landsveit,
sem andaðist 29. desember, verður jarðsunginn frá Lágafells-
kirkju, Mosfellsbæ, laugardaginn 6. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ólöf Helgadóttir.
t
Sendum öllum þeim, sem sýnt hafa okkur samúð og hluttekningu
við andlát og útför elskulegs sonar míns og bróður okkar,
GUNNARS ÓLAFS GUNNARSSONAR,
Hamrahli'ð 23,
Reykjavík.
Hugheilar þakkir. Guð blessi ykkur öll.
Þorbjörg S. Sigurbergsdóttir,
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Þórunn Gunnarsdóttir.
og ekki látið staðar numið af henn-
ar hálfu fyrr en mál voru til lykta
leidd. Með Eygerði heitinni og Erlu
konu minni tókst fljótlega hin ágæt-
asta vinátta eftir að þau Eygerður
og Benedikt giftust og stóð sú vin-
átta síðan meðan báðar lifðu. Spjöll-
uðu þær oft saman, oftast í léttum
dúr, um menn og málefni og fram-
vindu hins daglega lífs áreiðanlga
báðum til ánægju. Vegna vináttu
þeirra Erlu og af ýmsum öðrum
ástæðum ber ég sérstakan hlýhug
til Eygerðar og á það ekki síður
við nú er hún er liðin en meðan hún
var lífs.
Fyrir 10-15 árum tók að gæta
heilsubrests hjá Eygerði og ágerðist
sú heilsuveila með árunum. Kom
svo að lokum, að ákveðið var að
gera á henni meiriháttar aðgerð og
reyna þar með að færa henni varan-
lega heilsubót. Varla grunaði okkur
vini og vandamenn hennar þá til
hvers þessi aðgerð myndi leiða og
að svo skammt undan væri sólarlag
í lífi hennar.
Við systkinin, móðursystkini
Benedikts Eiríkssonar, höfðum við
Eygerði mikil og margvísleg sam-
skipti, gegnum tíðina, allt frá því
að þau Benedikt gengu í hjónaband
og á það þá e.t.v. sérstaklega við
eftir að elsta systirin Steinunn,
flutti í sameiginlegt hús hennar og
þeirra hjóna á Seltjarnarnesi fyrir
8-9 árum.
Að leiðarlokum þökkum við Ey-
gerði okkar fyrir margar sameigin-
legar ánægjustundir frá upphafi
kynna okkar við hana og sérstak-
lega þökkum við henni umönnun
hennar og umhyggju fyrir systur-
inni Steinunni og er okkur þó öllum
ljóst, að sú umhyggja verður aldrei
fullþökkuð, hérna megin grafar.
Við biðjum henni blessunar Guðs
og óskum henni fararheill inn á
lendur hins eilífa lífs.
Öllum ástvinum Eygerðar, börn-
um hennar, móður hennar og systk-
inum, sendi ég og mínir innilegustu
samúðarkveðjur og við Benedikt,
vin minn og uppeldisbróður langar
mig til að segja þetta: Ég veit að
mig brestur orð og andagift til að
mæla til þín huggunarorð á þessum
döpru skammdegisdögum, en fyrir
örfáum árum, stóð ég, harmi sleg-
inn í þeim sömu sporum og þú
stendur í nú. Megi Guð gefa þér
styrk til að standast þessa þungu
raun, þann styrk, sem felst í vissu
um endurfundi við horfínn ástvin,
sem svo skyndilega var frá þér hrif-
inn, langt um aldur fram. - Trúðu
því vinur, að þeir endurfundir verði
- þegar þar að kemur og í fyllingu
tímans.
Einar Ingimundarson
Eygerður Pétursdóttir er látin,
langt um aldur fram. Dauða hennar
bar óvænt og skyndilega að, þegar
hún var óðum að ná sér eftir mikla
aðgerð í mjaðmarlið. Banamein
hennar var blóðtappi.
Eygerður var gift Benedikt
Eiríkssyni vélstjóra og áttu þau tvö
börn, Pétur og Guðrúnu Kristínu.
Þau eru bæði uppkomin.
Eygerði kynntumst við fyrir lið-
lega 25 árum, en við tengdumst
fjölskylduböndum, þegar hún giftist
Benedikt. Urðu þau kynni síðan að
einlægri vináttu, sem við mátum
mikils. Milli fjölskyldna okkar var
alla tíð töluverður samgangur. Oft