Morgunblaðið - 04.01.1990, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990
47
iÞRÚm
FOLX
■ BJARNI Guðmundsson skor-
aði 8 mörk fyrir Wanne Eickel og
var markahæstur er lið hans sigr-
aði Niederwiirzbach, 22:18, í
vestur-þýsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik um síðustu helgi. Essen
er efst í deildinni eftir 12 umferðir
með 17 stig, en Gummersbach í
öðru sæti með 17 stig eftir 14 leiki.
■ LOGI Yes Kristánsson, sund-
maður úr Vestmannaeyjum, setti
unglingamet í 50 metra skriðsundi
á móti um helgina. Hann synti á
25,27 sekúndum. Logi hlaut einnig
Guðlaugsbikarinn fyrir besta
sundafrekið í Eyjum á síðasta ári.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐ
„Guðni kemur til greina“
- segir Eggert Magnússon, formaður KSÍ, um stöðu landsliðsþjálfara
„ÉG hef rætt lauslega við
Guðna Kjartansson um stöðu
landsiiðsþjálfara og við eig-
um eftir að ræða þetta mál
nánar. Við höfum hvorki gert
Bo Johansson tilboð eða öðr-
um, en Guðni kemur vissu-
lega til greina sem næsti
landsliðsþjálfari," sagði
Eggert Magnússon, formaður
KSI, við Morgunblaðið í gær.
Eggert sagði að stjórnin hefði
fengið ýmsar ábendingar um
þjálfara, en ekki lægi á að ganga
frá ráðningu fyrr en eftir dráttinn
í Evrópukeppninni í febrúar.
„Stjórn KSÍ kemur saman um
helgina og þá verður væntanlega
farið yfir það, sem gert hefur
verið og það sem kemur til greina
að gera, en eins og alltaf er þetta
allt saman spurning um peninga,"
sagði Eggert.
Guðni Kjartansson sagði við
Morgunblaðið að hann hefði sagt
formanni KSÍ að hann væri tilbú-
inn til viðræðna án skuldbindinga.
„Ég vil fá nánari upplýsingar um
hugmyndir þeirra um starfið/1
sagði Guðni.
Stjóm KSÍ hefur átt formlegar
viðræður við Svíann Bo Johansson
um starfíð, en Eggert sagði að
öllu yrði haldið opnu enn um sinn
— fleiri kæmu til greina. Lands-
liðsstefnu í heild ætti eftir að
móta; ekki væri ákveðið hvort
sami þjálfari yrði með U-21 liðið,
ólympíuliðið og A-liðið eða hve
margir yrðu ráðnir. Eins ætti eft-
ir að ganga frá málum varðandi
U-16, U-18 og kvennalandslið, en
þetta yrði allt tekið fyrir um helg-
ina.
GuAnl Kjartansson
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Baldvin og Ólaf-
ur til Víkings
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Pétur Guðmundsson er tilbúinn að leika áfram með landsliðinu.
Boðið á sterkt
mót í Eistlandi
Baldvin Guðmundsson og Ólafur
Ólafsson hafa gengið til liðs
við Víking i 1. deildinni í knatt-
spyrnu.
Baldvin hefur staðið í marki Þors
undanfarin ár og lék alla leiki liðs-
ins í fyrra.
faóm
FOLK
M RA Y Harford var fyrstur
stjóra enskra knattspyrnuliða til
að missa starfið á árinu — var lát-
inn fara frá Luton í gær. Að sögn
Brian Cole, for-
FráBob manns Luton, var
Hennessy gengið friðsamlega
i Englandi frá málinu — „við
vorum sammála um
að þetta væri best í þágu félags-
ins,“ sagði Cole. Terry Mancini
stjórnar liðinu fyrst um sinn.
MJOHN Gregory hjá Portsmouth
var næstur til að fjúka — var látinn
taka pokann sinn í gærkvöldi.
Gregory gerðist þjálfari hjá liðinu
fyrir 18 mánuðum og tók við stjórn-
inni fyrir ári. Portsmouth lék 46
deildarleiki undir hans stjóm og
sigraði aðeins í átta þeirra. Frank
Burrows sest í stólinn til að byija
með.
■ SJÖ leikmenn Arsenal voru
sektaðir um sem samsvarar viku-
launum vegna mótmæla við dómar-
ann í leik liðsins gegn Aston Villa
á laugardag. Atvik þetta var litið
nijög alvarlegum augum, en fyrir
sex vikum var Arsenal sektað um
20.000 pund vegna óláta er brutust
út á milli leikmanna liðsins og mót-
heija í Norwich.
M PAUL Gascoigne handleggs-
brotnaði í leik Tottenham og Co-
ventry og leikur ekki með Spurs
næstu sex vikurnar.
■ JIMMY Quinn, miðheiji Brad-
ford var seldur um áramótin til
West Ham fyrir 320.000 pund.
■ JIMMY Carter, sem hefur átt
þátt í flestum mörkum Millwali á
einn eða annan hátt, síðan hann
var keyptur frá QPR fyrir þremur
árum fyrir 15.000 pund, hefur heill-
að John Sillett hjá Coventry og
bauð hann 500.000 pund í kappann.
Millwall vill fá meira.
■ LIONELLO Manfredonia,
leikmaður ítalska knattspyrnuliðs-
ins Roma, fékk hjartaslag í leik
gegn Bologna um helgina, en á
staðnum voru fullkomin björgunar:
tæki, sem urðu honum til lífs. í
framhaldi hafa ítalskir læknar boð-
ist til að vera til taks án greiðslu,
ef neyðartilfelli koma upp á HM.
Olafur lék með Selfyssingum í
fyrra en árin áður með Víkingi.
Víkingar hafa misst nokkra leik-
menn og ber þar hæst Hallstein
Arnarson og Andra Marteinsson
sem farnir eru til FH.
HANDBOLTI
Kvennalands-
leikirviðFinna
Islendingar og Finnar mætast í
tveimur landsleikjum kvenna í
handknattleik um 'helgina. Liðin
spila á undan viðureignum íslands
og Tékkóslóvakíu í karlaflokki —
fyrir tvo síðari leiki karlanna. Fyrri
kvennaleikurinn hefst kl. 14 á laug-
ardag og sá síðari kl. 18 á sunnu-
dag. Báðir verða í Laugardalshöll.
Fyrsti karlaleikurinn verður annað
kvöld í Digranesi, sá næsti í Höll-
inni kl. 16 á laugardag og hinn
síðasti á sama stað kl. 20 á sunnu-
dagskvöld.
RUMENIA
Dinamo breytt
í Unirea
ÆT
Íþróttafélagið Dinamo í Búkarest
er ekki lengur til. Stofnandi þess
var Nicolae Ceausescu, fyrrum ein-
ræðisherra, og var félagið undir
hans verndarvæng; var rekið af
öryggislögreglunni Securitate. Eftir
hræringamar í landinu undanfarið
hefur nafni félagsins nú verið breytt
og heitir héðan í frá Unirea.
Dinamo var komið í átta liða
úrslit Evrópukeppni bikarhafa í
knattspyrnu og á að mæta júgóslav-
neska félaginu Partizan Belgrad.
Talsmaður UEFA, Evrópusam-
bandsins, lét hafa eftir sér fyrir
skömmu, að lið í Evrópukeppni
gæti ekki haldið áfram breytti það
um nafn — en ekkert hefur heyrst
úr herbúðum UEFA eftir að nafn-
breytingin varð staðreynd.
Islenska landsliðið í handknatt-
leik leikur ekki í borginni Gott-
waldov í C-riðli heimsmeistara-
keppninnar, éins og til stóð. Ein-
faldlega vegna þess að borgin er
ekki lengur til!
Eftir síðari heimsstyrjöldina
var umrædd borg skýrð í höfuðið
ÍSLENSKA landsliðinu íkörfu-
knattleik hef ur verið boðið að
taka þátt í mjög sterku móti
sem fram fer í Eistlandi í maí.
Eistlendingar halda þetta mót
árlega og til marks um styrk-
leika þess með geta að Eist-
lendingar hafa yfirleitt haf nað
í neðsta sæti. Þeir eru þó með
frambærilegt landslið sigruðu
t.d. á fjögurra liða móti í Dan-
mörku fyrir skömmu.
Islendingar tóku þátt í móti í
Danmörku milli jóla og nýárs og
biðu lægri hlut fyrir Eistlendingum.
á fyrsta forseta landsins úr röðum
kommúnista, Gottwald, en eftir
að valdatíma kommúnista lauk á
dögunum var nafni borgarinnar
breytt, og heitir hún nú aftur Zlin
eins og fyrir 48 árum.
Því má bæta við að keppendur,
þjálfarar, fararstjórar og blaða-
{ kjölfarið fengu Islendingar boð
um að taka þátt í alþjóðlegu móti.
Sigurður Hjörleifsson, aðstoðar-
þjálfari landsliðsins, sagði að ekki
kæmi til greina að taka þátt í þessu
móti nema með sterkasta liði ís-
lands. „Okkur hefur líklega aldrei
verið boðið á svo sterkt mót og
höfum ekkert að gera þangað nema
með sterkasta lið okkar,“ sagði Sig-
urður.
Pétur Guðmundsson hefur sagst
vera tilbúinn til að leika með lands-
liðinu, verði hann laus, en hann lék
með landsliðinu í fyrsta sinn í sex
ár um jólin.
menn á mótinu eiga að gista á
Hotel Moskva í Gottwaldov meðan
á riðlakeppninni stendur. Nú ér
að bíða og sjá hvort hótelið ber
sama nafn og áður þegar gestina
ber að garði.
Mm
FOLK
■ AÐ minnsta kosti einn fyrrver-.
andi rúmenskur landsliðsmaður í
handknattleik, Dan Marin, var
meðal þeirra meðlima Securitate,
öryggislögreglu Ceausescus fyrr-
verandi einræðisherra, sem hand-
teknir voru í Búkarest á dögunum
skv. upplýsingum sem Morgun-
blaðið fékk frá Júgóslavíu í gær.
Marin, sem er hálffertugur, lék um
árabil með Dinamo Búkarest og
iandsliðinu.
■ RÚMENAR eiga að koma hing-
að til lands í febrúar, og mæta Is-
lendingum þrívegis, 10., ll. og 12.
febrúar. Forráðamenn HSÍ hafa
ekkert heyrt í starfsbræðrum sínum
hjá rúmenska sambandinu eftir að
átökin í landinu hófust, og vita því
ekki enn hvort af heimsókninni
verður. Þó er vonast til að af henni
verði eins og um var samið.
I LITIÐ er vitað um gang mála
í handknattleikshreyfingu Rúm-
eníu eftir átökin. Einn aðalmanna
í júgóslavneska handknattleiks-
sambandinu sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær ekki vita hvort
formaður rúmenska sambandsins
væri enn sá sami, hvað þá hvernig
leikmönnum hefði reitt af í átökun-
um. Það eina sem hann vissi var
um ofannefndan Marin.
■ JÚGÓSLA VAR, sem eru með
íslendingum í riðli í HM í Tékkó-
slóvakíu í febrúar, koma saman i
10 daga æfingabúðir í dag. Þeir sjö
landsliðsmenn sem eru hjá erlend-
um liðum í vetur koma ekki til
æfinga með landsliðshópnum fyrr
en tíu dögum áður en haldið verður
á HM í febrúar; þar á meðal eru
bestu menn liðsins, stórskytturnar
Vujovic, Cvetkovic og Kuz-
manowski, markvörðurinn Basic
og hornamaðurinn Isakovic, sem
allir voru í herbúðum hins þekka
liðs Metaloplastika fyrir nokkrum
árum, er það varð Evrópumeistari,
og urðu allir heimsmeistarar í Sviss
1986. _
■ NÝR þjálfari hefur tekið við
landsliði Júgóslava. Sá heitir
Perojanic, en hann þjálfaði liðið
árin 1.982 og 1983, og þjálfaði á
sínum tíma stórliðið Boras Banja
Luka, er það varð Evrópumeistari.
■ REYNT var að fá Zoran
Zivkovic, sem þjálfaði liðið er það
varð heimsmeistari 1986, til að vera
við stjórnvölinn fram yfir HM, en
hann fór fram á of mikla peninga.
Hann þjálfar nú landslið Kúvæt;
er samningsbundinn til 15. maí, en
Kúvætbúar voru tilbúnir að lána
hann til Júgóslavíu um tíma. „En
við höfðum ekki peninga til að
ganga að kröfum hans,“ sagði ofan-
nefndur frammámaður í handknatt-
leikssambandi Júgóslavíu í gær.
■ EDDIE Niedzwiecki, fyrrum
markvörður Chelsea, hefur tekið
við aðstoðarþjálfarastöðu hjá Read-
ing, en þar er Ian Porterfield við
stjórnvölinn.
HANDKNATTLEIKUR / HM
ísland leikur ekki í Gottwaldov!
Nafni borgarinnar var breytt íZlin eins og hún hét áður