Morgunblaðið - 04.01.1990, Blaðsíða 48
wgtniÞljifeito
SAGA CLASS
Ferðafrelsi
FLUGLEIÐIR
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Vestmannaeyj ar:
Morgunblaoio/RAX
Fyrsta myndin af jólaþríburunum
Hjónin Guðbjörg Gunnarsdóttir og Ölafur Guðjónsson, sem
búa í Kópavogi, eignuðust á aðfangadag jóla þríbura, tvær
stúlkur og einn dreng. Drengurinn var í hitakassa fyrstu
dagana en nú hefur hann náð sér að fullu og í gær var hægt
að taka fyrstu myndina af hamingjusamri fjölskyldunni með
þríburana. Guðbjörg sagði í samtali við Morgunblaðið að hún
byggist við að fá að fara heim með börnin eftir hálfan
mánuð en þeim heilsast vel. „Mér líst vel á framtíðina. Þetta
verður kannski dálítið erfitt en börnin eiga eftir að gefa
okkur mikið í staðinn,“ sagði Guðbjörg. Með Guðbjörgu og
þríburunum á myndinni er eiginmaður Guðbjargar, Ólafur
Guðjónsson, og dóttir hennar Berglind.
Deilur um fiskverð á Austfjörðum;
Allt starfsfólk Hraðftystihúss
Eskifjarðar á atvinnuleysisskrá
FLEST starfsfólk Hraðfrystihúss Eskifjarðar mætti á vinnustað í
gærmorgun þrátt fyrir að því hafi verið sagt upp störfum. Að
sögn Hrafiikels A. Jónssonar, formanns Verkalýðsfélagsins Arvak-
urs á Eskifirði, hélt starfsfólkið fund á vinnustað fram undir há-
degi, en hélt síðan heimleiðis þar sem engir verkstjórar mættu
til starfa. Starfsfólk Hraðfrystihússins hefiir nú látið skrá sig á
atvinnuleysisskrá, en það er um 40 manns.
Hrafnkell sagði að stjóm Hrað-
frystihússins hefði á fundi með
sjómönnum í gær afhent nánari
útfærslu á fyrra tilboði sínu um
að sjómenn fengju 10% af afla
greidd á sama verði og fengist á
uppboðsmörkuðum eða ef siglt
væri með aflann, en sjómennimir
hafa farið fram á að 30% af aflan-
um yrðu greidd á þennan hátt.
Sagði Hrafkell að sjómennimir
myndu fara yfir þessa útfærslu á
fundi sem haldinn verður í dag.
, Sjómenn á Vopnafirði hafa sett
fram kröfur um 30% tekjuhækkun,
og tilkynntu þeir í fyrrakvöld að
þeir færu ekki á sjó fyrr en geng-
ið hefði verið að kröfum þeirra.
Fundur sjómanna og forráða-
manna Tanga hf., sem gerir út
togarana Bretting og Eyvind
Vopna, stóð fram undir miðnætti
í nótt og lauk honum án þess að
samkomulag næðist, en annar
fundur deiluaðila hefur verið boð-
aður í dag. Sjómenn á Fáskrúðs-
firði hafa farið fram á svipaða
tekjuhækkun og sjómenn á Eski-
firði og Vöpnafirði. Áhafnir togar-
anna Hofsfells og Ljósafells mættu
til skráningar í gærmorgun, <tn
brottför var áætluð á miðnætti í
nótt. Síðdegis í gær tóku sjómenn-
imir síðan ákvörðun um að mæta
ekki til brottfarar fyrr en gengið
hefði verið að kröfum þeirra.
Sjómannasambandið telur ör-
uggt að minnst sé borgað fyrir
fisk á Austfjörðum og Norður-
landi, og á Austfjörðum sé minnst
um að sjómenn fái meira greitt
fyrir fiskinn en gert er ráð fyrir
í lágmarksverði Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins.
Sjá nánar í frétt á bls. 20.
„Vatnsendaland er ekkert við-
komandi Stöð 2 eða Verslunarbank-
anum,“ sagði Þorvarður. „Þessar
150 milljónir hafa ekki verið lagðar
fram enn þá en fyrri eigendur hafa
fengið frest í nokkra daga, að mig
minnir til 6. janúar, til að leggja
fram þessar milljónir. Það er síðan
Alvarlegt
slys um borð
í fískibáti
UNGUR maður slasaðist alvar-
lega við störf um borð í bátnum
Styrmi VE 82 um hádegisbilið
í gær. Verið var að leggja net
um 18 mílur suðaustur af Vest-
mannaeyjum á svokölluðum
Kanti. Maðurinn var fluttur
með sjúkraflugvél á Landspítal-
ann í Reykjavík þar sem hann
gekkst undir aðgerð.
Slysið varð með þeim hætti að
taug sem bundin var við dreka
flæktist í skrúfu bátsins með þeim
afleiðingum að maðurinn, sem var
leggja út taugina, flæktist í henni
og fór útbyrðis.
Að sögn lögreglu í Vestmanna-
eyjum missti maðurinn aldrei með-
vitund meðan hann var í sjónum.
Skipveijar náðu manninum um
borð þegar hann hafði verið í sjón-
um skamma hríð. Slæmt veður var
þegar slysið átti sér stað.
Maðurinn var talinn mjaðmar-
grindarbrotinn og auk þess missti
hann mikið blóð.
Loðnuskip-
in komin
ámiðinen
loðnan er
ófundin enn
NÁLÆGT 30 lóðnuskip
voru í gær á leið á miðin,
en aðeins nokkur komin
þangað. Ekkert af loðnu
hafði fundizt að áliðnum
degi.
Loðnunnar er nú leitað á
svipuðum slóðum og hætt var
fyrir jólin, skammt austan
Kolbeinseyjar. Skipveijar á,
Súlunni frá Akureyri voru
fyrstir á miðin enda stutt að
fara frá Akureyri. Þeir höfðu
síðdegis lítið fundið, aðeins
smá dreifir. Gott veður var á
þessum slóðum í gær, en
kalda spáð um nóttina.
þeirra mál hvernig þeir útvega
þær.“
Þorvarður sagði að eigið fé Versl-
unarbankans hafi verið nálægt
milljarði króna og að enginn dragi
í efa að félagið geti staðið við þess-
ar ábyrgðir.
Sjá einnig fréttir á miðopnu.
Verðbréfafyrirtækin:
Hlutabréf seldust fyrir 90
milljónir kr. á einum degi
HLUTABRÉF seldust fyrir hátt í 90 milljónir hjá verðbréfafyrir-
tækjum síðastliðinn föstudag, að því er kemur fram í viðskipta-
blaði Morgunblaðsins í dag. Alls seldust hlutabréf fyrir um 600
milljónir á síðasta ári.
Samþykkt Alþingis um um
hækkun á heimild einstaklinga til
að draga kaupverð hlutabréfa frá
skattskyldum tekjum jók mjög
sölu hlutabréfa undir lok síðasta
árs.
í desember seldust hlutabréf
fyrir 100 milljónir hjá hlutabréfa-
markaðnum HMARKI, þar af 30
milljónir síðastliðinn föstudag. 79
milljónir seldust hjá Fjárfestingar-
félag íslands þar af 31,8 milljónir
síðastliðinn föstudag.
Sjá nánar B 1.
Þorvarður Elíasson um mál Stöðvar 2:
Fyrri aðaleigendur
fengu frest í 6 daga
til að afla hlutafjár
ÞORVARÐUR Elíasson varaformaður Eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans og varaformaður stjórnar Stöðvar 2, segir að fyrri aðaleig-
endur Stöðvar 2 hafí fengið frest í nokkra daga, eða til 6. janúar, til
að greiða þær 150 milljónir í hlutafé sem þeir hafa skuldbundið sig til.