Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 23
og aðr-
imdar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
briminu upp á Svírabryggju.
eldi Grindavíkur, en þar flæddi sjór
inn í dæluhús og við það stöðvuð-
ust vélar. Slökkviliðið var kvatt á
vettvang og aðstoðaði það við að
dæla sjó úr dæluhúsinu. I gær hafði
tekist að gangsetja tvær af þremur
vélum og auk þess var súrefniskút-
um komið fyrir við öll kerin árla
þriðjudagsmorguns, en hætta var á
að allur fiskur dræpist í keijunum
af súrefnisskorti.
M OHGIJNBLADID MIÐVIKUpAGUjt 10. JANÚAR 1990
Á Eyjabakka flettist malbik ofan af bryggjunni og barst út um allt, en þar höfðu staðið yfír miklar endur-
bætur.
„Ég fékk tvö líf þessa nótt“
ÓLAF Ágústsson, vélstjóra og einn eigenda Reynis GK í Grindavík, tók
út af Eyjabakka þegar hann var á leið í skip sitt í óveðrinu aðfaranótt
þriðjudags. Ólafúr barst út í sjó með útsogi en hann náði taki á fleka
og bjargaðist á land í um 300 metra fjarlægð frá Eyjabakka. Um tveim-
ur klukkustundum eftir að Ólafur kom heim til sín eftir svaðilfórina
barst honum sú fregn að dóttir hans hefði þá alið barn.
„Ég ætlaði að fara um borð í
bátinn um klukkan hálftvö. Stýri-
maður og annar vélstjóri voru þá
komnir um borð. Sjórinn náði mér
upp að hnjám þegar ég var skammt
frá skýli björgunarsveitarinnar og
ég ætlaði að reyna að skjótast um
borð í bátinn þegar þessa ógurlegu
fyllu bar inn á höfnina og færði allt
í kaf. Ég náði taki á spotta í fleka
sem kom æðandi á móti mér og
náði að komast upp á hann. í útsog-
inu bar mig um 300 metra leið og
flekinn lenti rétt við slippinn,“ sagði
Svavar.
„Ég fékk tvö líf þessa nótt,“ sagði
Unnur, eiginkona Ólafs. „Dóttir mín,
Iris, ól stúlkubarn og Ólafur bjargað-
ist.“
Ólafur sagðist ekki hafa fundið
til kulda meðan hann var í sjónum
og hefði óttast það mest að vinnu-
skúrar rétt við skýli björgunarsveit-
arinnar lentu á sér. „Ég sá að þeir
voru komnir á hreyfingu en ég hafði
engan tíma til hugsa meðan ég var
í sjónum og fann ekki til kulda fyrr
en ég skreiddist af flekanum við
slippinn," sagði Ólafur.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ólafur ásamt eiginkonu sinni,
Unni Guðmundsdóttur, og barna-
barninu Agli Ævarssyni.
iókunn
og 3 um nóttina, en Arnbjörn
kvaðst hafa komið í húsið um kl.
hálftvö til þess að ná í bönd til
þess að binda niður hjólhýsi við
heimahús,en þá var allt með felldu
í fiskverkunarhúsinu. Jafnhliða
slökkvistarfi unnu menn að því
að bera farg á járn og annað laus-
legt eftir eldsvoðann. eftir í
rústunum nema stálið bert.
Morgunblaðið/Rax.
í gær stóðu rústir fískverkunarhússins í Sandgerði einar eftir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varði bátinn
með vörubíl
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sóley KE, bátur Svavars laskaðist töluvert og þegar verstu hryðjurn-
ar gengu yfir ýtti báturinn vörubílnum á undan sér.
SVAVAR Ingibersson, annar eig-
enda fiskverkunarhússins sem
brann til kaldra kola í Sandgerði
aðfararnótt þriðjudags, er jafti-
framt eigandi Sóleyjar KE 15,
plastbáts sem stórskemmdist í
óveðursnóttina.
Sóley KE, stóð í vari upp við Norð-
urgarðinn en í áhlaupinu í fyrrinótt
fóru búkkar undan bátnum og hann
valt á hliðina. Svavar ók þá vörubíl
sínum upp að bátnum til að varna
því að hann færðist frekar úr stað.
„Síðan settist ég upp í annan bíl
og fylgdist með því þegar annað
brot skall á bátnum sem rann áfram
nokkra metra og ýtti vörubílnum á
undan sér. Ég vissi að í nokkur
hundruð metra fjarlægð brann fisk-
verkunarhúsið," sagði Svavar.
Svavar var með öll sín veiðarfæri
í fiskverkunarhúsinu og nemur tjónið
mörgum milljónum króna. „Það var
ekkert af þessu tryggt. Á mánudag-
inn kom eigandi eins báts með 54
beitt bjóð inn húsið,“ sagði Svavar.
23
Vestmannaeyjar:
Óverulegar
skemmdir
Vestmannaeyjum.
ÞRÁTT fyrir mikinn veður-
ham urðu óverulegar
skemmdir á eignum í Vest-
mannaejjum. Mikill sjógang-
ur var þó við Eyjar og gekk
sjórinn sums staðar langt á
land.
Að sögn lögreglunnar í Eyjum
var þó nokkuð um að járplötur
fykju af þökum og einnig var
talsvert um rúðubrot. Einhveijar
bifreiðir skemmdust í óveðrinu
en ekkert stórt tjón varð. Hjálp-
arsveit skáta í Vestmannaeyjum
var kölluð til aðstoðar aðfara-
nótt þriðjudags og sinnti 41 út-
kalli um nóttina.
Heijólfur felldi niður ferð til
Þorláksháfnar í gær og kennsla
var felld niður í grunnskólum
bæjarins. Grímur
Laust dót
áflugi
TÖLUVERT var um að Reyk-
víkingar leituðu Iiðsinnis
vegna hvassviðrisins í fyrri-
nótt. Oftast var það vegna
/njislegs lauslegs dóts, sem
fauk um og skapaði hættu.
Klukkan tvö um nóttina rifn-
uðu tré upp með rótum í garði
við Suðurgötu, vindurinn reif
jólatré laust í Skipholti og lausar
jakplötur ollu mörgum vand-
ræðum. Stórgrýti og þari kast-
aðist upp á veginn við Ánanaust
og var vegurinn lokaður um
tíma. Þá voru einnig vandræði
vegna sjógangs og gijótflugs í
Skeijafirði.
Flæddiað I
hrossum
Holti.
TVÖ hross drápust en 28
björguðust er flæddi að 30
hros'sum frá Beijanesi, en þau
voru stödd við vestanverðan
Holtsós er illviðrið gekk yfír
landið í gær. Mikið brim gekk
þá skyndilega yfir sjávar-
kambinn við ósinn og hækkaði
yfirborð í honum verulega á
mjög stuttum tíma.
Hrossin voru stödd í mýrinni
vestan við ósinn er flæddi inn á
hann. Líkast til hefur fyrst flætt
að þeim landmegin og þau síðan
leitað út í ósinn. Þegar að hross-
unum var komið, náði sjór þeim
í miðjar síður og var farið að
draga af þeim. Kallaðar voru til
björgunarsveitir, bæði undan
Austur- og Vestur-Eyjafjöllum
og loks kom björgunarsveitin frá
Vík á staðinn með bát. Að lokum
tókst við illan leik að bjarga
hrossunum, en tvö þeirra voru
þá svo aðframkomin að þau
drápust. _ Fréttaritari
Sviptivind-
ar á Húsavík
Húsavík.
Skemmdir eða skaðar á
Húsavík, vegna óveðursins
sem gekk yfír landið, hafa
ekki orðið verulegir svo vitað
er. Um þrjúleytið í gær gerði
hér mikla sviptivinda suður á
Haukamýri, og náðu þeir
syðst í bæinn en ekki svo telj-
andi hafi verið í Norðurbæinn.
í þessum vindhviðum fauk
lítill braggi og vegavinnuskúr
sem voru á Haukamýrinni. Bátur
sem eigandinn hafði flutt heim
á lóð sína í Suðurbæinn, fauk
yfir á næstu lóð. Tómur tengi-
vagn sem stóð þvert á veðrið
valt á hliðina. Þessir sviptivindar
gengu yfir flugvöllinn og feyktu
þar gijóti sem gerði göt á rúður
eins og eftir byssukúlur og braut
þannig og skemmdi yfir 20 rúður
Fréttaritari.