Morgunblaðið - 10.01.1990, Page 26

Morgunblaðið - 10.01.1990, Page 26
Dalvíkurbær: Gefiir UMFS 2,5 millj- ónir í afinælisgjöf BÆJARSTJÓRN Dalvíkur samþykkti á fundi sínum í gær, að veita Ungmennafélagi Svarfdæla 2 milljónir króna til framkvæmda á íþróttasvæði félagsins. Auk þess var samþykkt að veita félaginu allt að 500 þúsund. krónur til afborgana á Iánum þess, Ungmennafélag Svarfdæla átti 80 ára afmæli 30. desember síðastliðinn og á afmælis- hátíð sem þá var haldin tilkynnti Trausti Þorsteinsson forseti bæjar- stjórnar um gjöf bæjarins til félagsins. Björn Friðþjófsson varaformaður Ungmennafélags Svarfdæla sagði að búið væri að byggja upp æfinga- svæði á félagssvæðinu, en hann reiknaði með að framkvæmdir við aðalvöllinn færu í gang í byijun sumars. Ætlunin er að gera knatt- spyrnuvöll við æfingasvæðið og í tengslum við hann fullkomna frjáls- íþróttaaðstöðu. „Þetta er mjög höfðingleg gjöf og við erum afar ánægð og þakklát fyrir hana. Við vonum að sú að- staða sem við erum að byggja upp muni nýtast öllum bæjarbúum,“ sagði Björn. Hann sagði að fram- kvæmdir við íþróttasvæði félagsins væri alfarið kostað af félaginu sjálfu, en það nyti styrkja frá ríki og bæ. Á síðasta ári veitti bæjarfé- lagið 500 þúsund krónum til upp- byggingarinnar og ríkið 250 þúsund krónum. Leikfélag Akureyrar: Æfingar hafiiar á verk- inu Heill sé þér þorskur ÆFINGAR eru hafnar á þriðja leikverki Leikfélags Akureyrar á þessu leikári, en það er nýtt íslenskt verk eftir Guðrúnu Ásmunds- dóttur og er heiti þess, Heill sé þér þorskur, sótt í Ijóðlínu eftir Hannes Hafstein. I verkinu er sagt frá sjómönnum og þeirra fólki og er þar fléttað saman samtalsforminu, ljóðum, dægur- og sönglög- um af ýmsu tagi. Verkið er byggt á sögunni Tíðindalaust í kirkjugarðinum eftir Jónas Ámason, en þar segir frá gömlum sjómanni sem á sér það takmark að byggja yfir sig stórt grafhýsi. Leikritið gerist allt í kirkjugarðinum, en þrátt fyrir stað- setninguna er létt yfir verkinu. Mikið er af tónlist í verkinu, sjó- mannalögum og þekktum slögur- um, en auk þess verða flutt mörg laga Bubba Morthens, þekkt sem óþekkt. Til stóð að fá Bubba til að vera með í leikritinu, en útgáfufélag Hrísey: Eyfell E A selt kvótalaust STEFNT er að því að selja Eyfell EA-540 kvótalaust, en Útgerðarfélag KEA í Hrísey tók skipið upp í er það seldi Snæfell EA til Þorbjarnar hf. í Grindavík seint á síðasta ári. Eyfell EA var áður Sigurður Þorfinns- son GK og er það 170 tonna togskip. Skipt var á skipunum í Reykjavík fyrr í þessari viku, en Eyfellið er væntanlegt til Hríseyjar í næstu viku. Jóhann Þór Halldórsson fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags KEA í Hrísey sagði að skipið yrði selt kvóta- laust ef viðunandi tilboð fengist í það. Ef slíkt boð bærist ekki í skipið yrði það fyrst um sinn gert út' á rækjuveiðar og er nú verið að gera það klárt á veiðar. Skipið mun leggja upp afla hjá Söltunarfélagi Dalvíkur. /fTk TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI Hafnarstræti 81, sími 21460 - 21788. Innritun á vorönn Tekið verður á móti umsóknum nýrra nemenda fyrir vorönn 1990 á skrifstofu skólans á milli kl. 13.00 og 17.00 alla virka daga fram til 18. janúar. Kennsla á vorönn hefst 25. janúar. Hægt er að bæta við nemendum í forskóla á selló og málmblást- urshljóðfæri. Einnig verður boðið upp á tíma ítónlist- arsögu og hlustun fyrir almenning. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans. hans í Englandi hefur kallað hann til sín þar sem verið er að gefa út plötu hans þar, svo ekkert verður af því að Bubbi stígi á fjalirnar hjá LA í sýningunni. Leikstjóri er Viðar Eggertsson, Anna G. Torfadóttir hannar bún- inga og sér um leikmuni, en Ingvar Björnsson hannar lýsingu. Leikarar eru 10, gamla sjómanninn leikur Árni Tryggvason, en aðrir leikarar eru Þráinn Karlsson, Jón Stefán Kristjánsson, Sigurþór A. Heimis- son, Stefán Sturla Siguijónsson, Guðrún Þ. Stephensen, Steinunn Ólafsdóttir, Sóley Elíasdóttir, Margrét Pétursdóttir og Lára Stef- ánsdóttir, en hún er listdansari í íslenska dansflokknum og hefur hún samið dansa fyrir verkið og séð um hreyfingar. Frumsýning verksins er áætluð 10. febrúar. Morgunblaðið/Haukur Ingólfsson NýrFrosti til Grenivíkur Frosti ÞH-229 sigldi fánum prýddur til heimahafnar, Grenivíkur, á laugardag. Frosti ÞH var áður Hjalteyrin II EA og var í eigu Sam- heija á Akureyri. Við komu skipsins var heimamönnum boðið um borð að skoða og þá var einnig boðið upp á veitingar. Frosti ÞH er 299 tonn að stærð og veiðiheimildir skipsins hljóða upp á um 2.000 tonn þegar allt er talið. Skipstjóri á Frosta er Þorsteinn Harðarson og sagði hann að sér litist vel á skipið. „Þetta er gott sjóskip og okkur líst vel á það,“ sagði Þorsteinn. í áhöfn skipsins eru 13 menn og eru langflestir þeirra Grenvíkingar. Frosti heldur til veiða seinni- part vikunnar og mun hann landa afla hjá Kaldbaki hf. „Við erum að kanna möguleika á sölu skipsins, en það er enginn einn ákveðinn kaupandi inni í myndinni ennþá," sagði Jóhann Þór. Hann sagði. að skipið yrði einungis selt kvótalaust og tækist ekki að selja það þannig yrði það gert út á rækju- veiðar. Færi skipið á rækju verða 6 menn í áhöfn þess og hafa tveir vél- stjórar, sem báðir voru áður á Snæ- fellinu verið ráðnir á Eyfellið. Morgunblaðið/Rúnar Þór Kúrt undir teppi á Pálmholti Börnin á dagheimilinu Pálmholti héldu sig inni við í gær og skriðu undir teppi, enda veðrið lítt fýsilegt til útivistar fyrir ungviði. Vindhraðinn komst mest upp í 72 hnúta um hádegisbilið, en veðrið var þó skaplegt á Akureyri þegar miðað er við- Suðurlandið. Hvassviðrisins gætti einkum í Glerárhverfi og þar var lög- reglu kunnugt um að þakplötur hefðu farið af sínum rétta stað og fokið út í veður og vind. Talsvert var um útköll hjá lögreglu og yeitti hún ýmiskonar aðstoð vegna fjúkandi hluta, en ekkert teljandi tjón varð af þeim sökum, að sögn varðstjóra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.